01.04.1963
Efri deild: 65. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1011 í B-deild Alþingistíðinda. (971)

196. mál, almannatryggingar

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Ég vildi fyrst leyfa mér að þakka hv. heilbr.- og félmn. fyrir skjóta og góða afgreiðslu á þessu máli og sömuleiðis einnig hv. dm., sem yfirleitt hafa tekið málinu mjög vel, þó að þeir, eins og eðlilegt er, hafi ýmsar ábendingar eða brtt. að gera, sem er mjög eðlilegt um svo stóran lagabálk eins og þennan. En yfirleitt virðist mér, að það sé samhugur hjá hv. þdm. um það að afgreiða þetta mál í öllum meginatriðum eins og það er fram lagt.

Hv. frsm. n., hv. 3. þm. Vestf., hefur nú gert grein fyrir eða svarað fyrir n. hönd þeim brtt., sem hér hafa komið fram, og að nokkru leyti einnig þeim ábendingum, sem gerðar hafa verið til breyt. á þessu frv.

Það er aðeins eitt atriði sérstaklega, sem fékk mig til að óska eftir að taka til máls, það voru ummæli hv. 6. þm. Norðurl. e. um lífeyrissjóðina. Þegar frv. var til athugunar og umr. í n., sem hafði það til meðferðar og ræddi það nokkrum sinnum við mig lá fyrir, að það höfðu verið kannaðir möguleikar lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins til að standast þær fjárgreiðslur, sem bráðabirgðaákvæðið gerir ráð fyrir, og sú könnun hafði leitt í ljós, að þetta mundi vera vel mögulegt. Lífeyrissjóðirnir eru nú margir, eins og kunnugt er, og það var náttúrlega ómögulegt að taka hvern og einn þeirra til meðferðar, en látið opið í bráðabirgðaákvæðinu um samkomulag við þá til þess að reyna að koma í veg fyrir, að þær fjárkröfur, sem til þeirra yrðu gerðar, stefndu þeim yfirleitt í nokkra hættu. Það var, held ég að megi segja, samhljóða allt n. og rn., að það kæmi ekki til mála að gera þeim lífeyrissjóðum, sem þegar eru starfandi og hafa verið lengi, svo erfitt fyrir, að það gæti valdið þeim erfiðleikum, ég tala nú ekki um vandræðum. Þess vegna var sett í þetta ákvæði fyrirmæli, sem gera ráð fyrir, að þessum byrðum lífeyrissjóðanna megi dreifa á 10 ár. En þessar byrðar, sem þeir verða að taka á sig, eru þau iðgjöld, sem sjóðfélagar þeirra mundu hafa greitt til almannatrygginganna, og vextir af þeirri upphæð að frádreginni þeirri upphæð, sem þessir lífeyrissjóðir hafa sparað tryggingunum. Þetta uppgjör við lífeyrissjóðina er gert ráð fyrir að fari fram samkv. reglum, sem ráðh. setur, og kostnaðinum eða greiðslunum dreift með jöfnum árgreiðslum á allt að 10 ár. Sérfræðingar þeir, sem n. hafði sér til aðstoðar, töldu, að þetta mundi í öllum tilfellum bæta mjög verulega hag þeirra tryggðu, það mundi gefa þeim betri útkomu í heild en ef þeir væru eingöngu í sérsjóðunum. Þetta held ég, að sé ekki vefengt af neinum, en það, sem hefur verið vefengt og ekki hefur kannske verið fyllilega upplýst enn, er það, að sjóðirnir gætu að fullu og sér að vandræðalausu staðið við þær greiðslur, sem þeim er ætlað að inna af hendi til Tryggingastofnunar ríkisins. Ég vil um þetta atriði segja það, að samkv. því, sem í bráðabirgðaákvæðinu stendur, að ráðh. eigi að setja reglur um það, hvernig þessu uppgjöri við Tryggingastofnunina skuli hagað, þá muni, a.m.k. ef það kemur til minna kasta, verða leitazt við að sjá um, að þetta geti gengið vandræðalaust fyrir sig. Og ef það ekki getur gengið vandræðalaust fyrir sig, þá verða ráðstafanir gerðar til þess að kippa því í lag. Þetta er svo stórt atriði, að það má ekki koma fyrir, að þeim sjóðum, sem lengi hafa starfað og hafa marga innan sinna vébanda, verði gert örðugt eða ókleift að uppfylla sínar skuldbindingar. — Þetta vildi ég segja um þetta atriði.

Um brtt. heilbr.- og félmn. á þskj. 482 vildi ég segja, að ég get fallizt á þær. Það er raunverulega aðalbreyt., að það eru tekin upp mæðralaun til móður með eitt barn, sem hafði verið fellt niður í frv., þegar fjölskyldubótunum var bætt við. Að vísu voru ákvæði frv. þannig, að þessi einstæða móðir með eitt barn fékk hækkaðar sínar bætur með ákvæðum frv., þar sem fjölskyldubæturnar voru teknar upp til hennar. En úr því að hv. heilbr.- og félmn. telur, að það sé rétt, að mæðralaunin verði einnig greidd, hef ég sízt á móti því.

Önnur atriði í brtt. n. sé ég ekki ástæðu til þess að ræða, en ég leyfi mér að mæla með því, að þær verði samþ.

Á þskj. 486 flytur hv. 9. þm. Reykv. nokkrar brtt. Um þær vildi ég segja, að það er náttúrlega alltaf æskilegt að geta haft þær bætur, sem Tryggingastofnunin greiðir, sem hæstar. En niðurstaða mþn. hefur nú orðið sú að binda sig við þær tölur, sem í frv. eru, og ég vildi taka undir það með hv. 1. þm. Norðurl. e., sem hann sagði hér áðan, að þessi tryggingastarfsemi er eins og fasttimbraður hlutur, þannig að ef eitt atriði er hreyft, þá verður kannske að taka tillit til margra annarra, sem það snerta, og það er þörf og eðlilegt, að þessi lög séu endurskoðuð með stuttu millibili til þess að vaka yfir því, að ósamræmi komi ekki fram. Ég get vel fallizt á, að það sé nauðsynlegt að hafa næstum stöðuga endurskoðun á 1. í gangi.

Í 2. brtt. hv. 9. þm. Reykv. er lagt til, að árlegur barnalífeyrir verði 8640 kr. í staðinn fyrir 8400, sem gert er ráð fyrir í frv. Ég tel, eins og ég sagði raunar við 1. umr., að hér væri um sáralítinn mun að ræða. En þegar tillit er tekið til þess, að þeir, sem barnalífeyrisins njóta, skulu nú allir fá fjölskyldubætur til viðbótar, finnst mér ekki ástæða til þess að fara í þennan sparðatíning.

Um 3. brtt. hefur hv. frsm. n. rætt og sagði, sem rétt var, að það er þó með þessu ákvæði um húsmæðurnar gert ráð fyrir því, að þær fái betri meðferð en áður. Þeirra hlutur er frekar með þessu réttur heldur en hitt, þar sem ekki hafa verið áður ákvæði um það, hversu skuli metinn vinnudagur eða starf húsmóðurinnar.

Um 4. brtt, vildi ég aðeins segja það, að hvort sem um er að ræða bótagreiðslur eða laun, þá tel ég það óheppilegt, að slíkt fylgi vísitölu framfærslukostnaðar. Kerfið hefur sýnt sig svo áþreifanlega í íslenzku efnahagslífi, að ég tel það vera hættulegt að hafa þann hátt á, sem það gerir ráð fyrir. Það sýndi sig með víxlverkun launa og verðlags, hvernig áhrif það hafði, og þó að kannske ekki sé gallalaust það fyrirkomulag, sem nú er í gildi, tel ég það miklu betra en hitt. Ég vildi því fyrir mitt leyti ekki mæla með því, að till. á þskj. 486 verði samþ.

Hv. 5. þm. Austf. ræddi hér um málið vinsamlega og viturlega, vil ég segja, eins og hans er vandi, en hann hafði ýmsar ábendingar að gera, sem ég skal leyfa mér að fara um nokkrum orðum. Hann vildi, að mér skildist, telja, að breytingin, sem gerð var á almannatryggingunum á sínum tíma, þannig að horfið var frá sjóðmyndun og horfið að því að leggja nauðsynleg útgjöld á árlega, mundi verða til þess að valda verðbólgu. Ég er nú kannske ekki bær um að dæma þær vísindalegu ástæður, sem til. verðbólgu liggja á hverjum tíma, en ég vil þó benda á, að frá mínum bæjardyrum séð er einn meginkostur almannatryggingalaganna sér, að hann felur í sér tekjuflutning frá þeim, sem hafa meiri efni, til hinna, sem haft minni efni til að lifa og bjarga sér. Hvort sú tekjuöflun trygginganna fer í gegnum einhvern sjóð eða ekki, sýnist mér ekki valda úrslitum. Það, sem er aðalatriðið, er, að það, sem einn fær, er tekið frá öðrum. Og þeir t;eta ekki báðir eytt þessum peningum, þannig að ef upphæðirnar, sem nú renna til trygginganna frá ríki, frá bæ og frá atvinnurekendum, hefðu ekki verið teknar og ekki látnar fara í þessar bótagreiðslur, þá hefðu viðkomandi aðilar; bæði almennu greiðendurnir til ríkis og bæjar og einstaklingarnir, haft aðstöðu til og getað eytt þessum upphæðum sjálfir, og þá hefði það alveg eins orðið fyrir þá kaupgeta eins og fyrir þá, sem nú njóta bótagreiðslnanna, — þannig að ég held, að það, a.m.k. þegar til lengdar lætur, hafi ekki þau skaðlegu áhrif, sem hv. þm. vildi vera láta eða óttaðist um að það kannske kynni að lafa. Að vísu má segja, að það eru kannske meiri líkur til þess, að sá, sem nýtur bótagreiðslnanna, eyði þeim öllum og fari með þær á torg og komi þeim í lóg, heldur en hinn, sem tekið er af og hefur kannske úr meiru af spila og gæti þess vegna lagt upphæðina fyrir í banka eða einhvern sjóð. En mikill munur held ég nú að ætti ekki á þessu að verða.

Þá vék hv. þm. að bótagreiðslunum í frv. og upphæðunum, sem þar er slegið föstum, og benti á, að undanfarið hefði það tíðkazt og væri sjálfsagt meiningin enn, að þessar bótagreiðslur fylgdust nokkuð með launum opinberra starfsmanna, nú stæði fyrir dyrum allmikil breyt. á launum opinberra starfsmanna, og spurðist fyrir um, hver stefna ríkisstj. væri í þessu máli. Um þetta hefur ríkisstj. ekki tekið ákvörðun, og það er þess vegna ekki hægt að tala um hennar stefnu í þessu sambandi. En ég get aðeins sagt sem mína skoðun það, að endurskoðunin á launum opinberra starfsmanna fer ekki í þá átt nú eins og áður, að það sé sama hundraðstala greidd ofan á laun allra ríkisstarfsmanna, eins og gert hefur verið, heldur verði vissir hópar starfsmanna ríkisins hækkaðir meira og aðrir minna, og þá er náttúrlega ekki hægt að hafa þetta á sama veg sem viðmiðun, eins og þegar atlir starfsmenn ríkisins voru lækkaðir um sama hundraðshluta. Hvernig með þetta skuli fara og hvaða viðmiðunartala skuli tekin, er ég ekki tilbúinn að svara á þessari stundu, m.a. vegna þess, að þetta höfum við ekki rætt. En mér þætti ekki ólíklegt, að þessi viðmiðun mundi, þegar hækkanirnar verða misjafnar á launum ríkisstarfsmannanna, verða helzt miðuð við þá launaflokka, sem líkastir væru í tekjum þeim bótaþegum, sem um væri að ræða, þ.e.a.s. lægstu launaflokkana. Ég skal ekki slá neinu föstu um þetta, en ég segi þetta sem aðeins að mínu viti líklega möguleika.

Þá ræddi hv. þm. um þá skerðingu, sem enn væri eftir í frv., þar sem væru skertir slysa og sjúkradagpeningar á þann hátt, að þeir væru miðaðir við ákveðna upphæð. Það er rétt, að þetta er gert, en eins og hv. frsm. n. hefur bent á, eru þessar bótagreiðslur miðaðar við að bæta mönnum skaða, sem þeir hafa orðið fyrir, en ekki að veita þeim endilega einhverja ákveðna peningaupphæð. Það er skaðinn, sem er metinn, og skaðinn byggist náttúrlega fyrst og fremst á því, hvaða tekjuvon þeir hafa átt, ef þeir hefðu haldið fullri heilsu eða ekki orðið fyrir slysi.

Um hjónafólkið og læknisvitjanasjóðina held ég, að því hafi verið svarað, sem hv. þm. spurði þar um.

Ég sem sagt vildi endurtaka það, sem ég sagði í upphafi, að ég er þakklátur hv. n. og hv. þdm. fyrir það, hvernig á málinu hefur verið tekið. Það er ekki óeðlilegt, að það komi aths. og ábendingar, sem verða athugaðar allar, eftir því sem möguleikar eru á, því að ég tek undir það, sem hv. 1. þm. Norðurl. e. sagði, að það er ekki óeðlilegt, að þessi lög séu alltaf meira og minna í endurskoðun.