18.04.1963
Efri deild: 75. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1044 í B-deild Alþingistíðinda. (990)

196. mál, almannatryggingar

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Þetta mál er, eins og hv. þdm. muna, fyrst flutt hér í hv. Ed. Síðan gekk það til Nd., en hefur tekið þar lítils háttar breytingum, þannig að það þarf að koma á ný til þessarar hv. d. Þessar breyt., sem Nd. gerði á málinu, eru ekki ýkja margar. Ég ætla að leyfa mér að geta nokkurra þeirra, þeirra sem eru efnisbreyt. að einhverju verulegu leyti.

Fyrsta breyt., sem gerð var, er við 12. gr., en í henni var, eins og frv. var flutt, gerður nokkur munur á lífeyri þeirra manna, sem fæddir eru árið 1894 eða síðar, og hinna, sem fæddir eru fyrr. Þennan mismun hefur Nd. samþ. að fella úr gildi, þannig að bæturnar verði nú jafnar fyrir alla. Í þeirri gr., 12. gr., var einnig ákvæði um, að ef maður andast, sem frestað hefur töku lífeyris fram yfir 67 ára aldur, og lætur eftir sig maka á lifi, þá skal hinn eftirlifandi maki til viðbótar ellilífeyri eiga rétt á helmingi þeirrar hækkunar, sem hinn látni átti rétt til vegna frestunarimar, hefði hann lifað. Í staðinn fyrir helming þessarar hækkunar samþykkti Nd., að eftirlifandi maki ætti rétt á hækkuninni að fullu.

Við 14. gr. er gerð sú breyting, að í staðinn fyrir, að þar voru aðeins eiginkonum ellilífeyris- og örorkubótaþega heimilaðar makabætur, þá er gerð sú breyt. á, að maka, hvort sem er eiginkona eða eiginmaður, skuli þessar bætur vera heimilar, ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi.

Við 37. gr. er enn fremur gerð sú aðalefnisbreyting, að eins og frv. var lagt fram í upphafi, þá var gert ráð fyrir, að ekkja eða ekkill, sem samvistum var við hinn látna eða á framfæri hans, hljóti bætur, þ.e.a.s. slysabætur, ef um dauðaslys er að ræða, 2000 kr. á mánuði í 8 ár, og þó aldrei hærri mánaðargreiðslu en sem svarar 3/4 af vinnutekjum hins látna. Þessu var breytt í Nd, á þann hátt, að takmörkunin við 3/4 af mánaðargreiðslu vinnutekna hins látna verði afnumin, þannig að bæturnar verði 2000 kr. á mánuði í 8 ár. Og enn fremur er þar bætt við svo hljóðandi ákvæði: „Nú andast ekkja eða ekkill, sem bóta hefur notið samkv. ákvæðum þessarar gr., áður en bætur hafa verið greiddar að fullu, og skulu þá eftirstöðvar bótanna greiddar að jöfnu börnum hins látna eftir sömu reglum til loka tímabilsins, ef börnin eru á lifi, ella til dánarbús hans.“ Þetta helgast af því, að slysabæturnar eða dánarbæturnar eru raunveruleg greiðsla, sem Tryggingastofnuninni ber að inna af hendi, og ef sá, sem á að taka við þeim, deyr, þá verði það, sem eftir kann að standa, greitt eftirlifandi börnum eða dánarbúi, eins og um aðra eign hins látna væri að ræða.

Þetta eru nú aðalbreytingarnar. Þó skal ég rétt geta þess, að í 72. gr. er ákveðið, að þegar iðgjaldsgreiðandi greiðir ekki neinn eignarskatt, þá geti hann átt rétt á því, að sveitarsjóðurinn greiði fyrir hann iðgjaldið. Þetta hefur verið svo áður í l. og var óbreytt tekið upp í þennan kafla, en nú hefur því verið bætt við í hv. Nd., að til þess að fá þessa greiðslu skuli um hana sótt, þ.e.a.s. greiðslan komi ekki af sjálfu sér, heldur verði viðkomandi maður að sækja um það til sveitarstjórnar, ef hann á að njóta þessarar greiðslu. Þetta eru aðalbreyt. Smávægilegar breyt. eru þarna fleiri, sem ég tel óþarfa að minnast á.

Hv. heilbr: og félmn. Nd. var með fleiri brtt. á döfinni, en hafði um allar brtt. samráð við hv. heilbr.- og félmn. þessarar hv. d., og þessar breyt. allar eru gerðar í samráði við hana. Hins vegar féll n. frá að gera aðrar breyt. en þær, sem fullkomið samkomulag fékkst um við hv. heilbr.- og félmn. þessarar hv. d. Þetta var gert v egna þess, að það var talið líklegt, að ef breyt. kynnu að verða gerðar í þessari d. enn, þá mundi málið þvælast það mikið á milli deilda, að ósýnt væri, hvort þolinmæði fram að ganga á þessu þingi. Þess vegna var, með því að haga breyt. í samræmi við óskir og samþykktir hv. heilbr: og félmn. þessarar d., gengið út frá, að málið gæti gengið í gegn nokkurn. veginn eins og frá því var gengið í hv. Nd., og það vil ég einnig vona, að d. geri.