25.03.1963
Neðri deild: 59. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1046 í B-deild Alþingistíðinda. (993)
214. mál, þátttaka síldarverksmiðja ríkisins í útgerðarfélagi
Sjútvmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Efni þessa litla frv. er mjög einfalt og auðskilið, og þarf þess vegna ekki að hafa um það mörg orð. En það er, að síldarverksmiðjum ríkisins verði heimilað að leggja fram allt að 2 millj. kr. sem hlutafé í hlutafélagi, er stofnað yrði á Siglufirði í samvinnu við Siglufjarðarkaupstað til að eiga og reka vélbáta frá Siglufirði, svo og botnvörpunginn Hafliða, sem nú er í eigu Siglufjarðarkaupstaðar. Framlag síldarverksmiðjanna er hugsað 55% af hlutafé félagsins.
Þetta frv, á sér eigi að síður alllanga sögu. Það var árið 1953, að útgerð togaranna á Siglufirði komst í nokkra fjárhagserfiðleika, og var þá samþ. af þáv. ríkisstj. að hjálpa upp á sakirnar með því að leggja fram nokkra fjárhæð til fyrirtækisins og stofna, til rekstrar hraðfrystihúss á staðnum, sem tók til starfa það ár. Þetta var á, þeim árum, þegar síldarleysi var mjög tilfinnanlegt og atvinna af mjög skornum skammti, og áttu þessar ráðstafanir þess vegna að verða til þess og urðu til þess að hressa upp á atvinnulífið á staðnum. En skilyrði fyrir því, að þetta yrði gert, var það, að stjórn síldanverksmiðja ríkisins tæki að sér rekstur togaranna, um leið og það ræki sitt eigið frystihús, en rekstur togaranna yrði eigi að síður á ábyrgð Siglufjarðarkaupstaðar, þannig að hagnaður eða tap á rekstrinum yrði hans.
Nú var það snemma árs 1960, ætla ég að það hafi verið, eða um það leyti, áramótin 1959—1960, að stjórn síldarverksmiðja ríkisins sagði upp þeim samningi, sem hún hafði gert um rekstur þessara togara. Það var talin ástæða fyrir uppsögninni, að forstjóri síldarverksmiðja ríkisins, sem hafði haft með reksturinn að gera í framkvæmd, hefði sagt upp því starfi og vildi ekki sinna því lengur. Tókst þó um sinn að framlengja þetta, og voru togararnir um skeið áfram reknir af stjórn síldarverksmiðjanna undir stjórn þessa framkvæmdastjóra. Reksturinn hafði verið ákaflega erfiður, eins og hjá öllum togurum í þessu landi, og heildartap fyrirtækisins mikið, sem síldarverksmiðjur ríkisins höfðu í bili orðið að leggja út, en bæjarsjóður Siglufjarðar átti að greiða.
Þá var það, að ég skipaði nefnd til að athuga þessi mál, en í þessari n. áttu sæti: formaður stjórnar síldarverksmiðja ríkísins, Sveinn Benediktsson, bæjarstjórinn á. Siglufirði, Sigurjón Sæmundsson, og Birgir Finnsson alþm., sem var form. n., og átti n. að leitast við að finna leiðir til þess, að þessi útgerð gæti haldið áfram í einu formi eða öðru. Það mundi líka hafa orðið talsvert áfall fyrir síldarverksmiðjur ríkisins, ef togarareksturinn hefði algerlega stöðvazt og þeir verið seldir burt úr bænum, því að þeir höfðu, a.m.k. þá um sinn, veitt nokkuð mikið hráefni til frystihúss síldarverksmiðjanna. En það var líka talinn hagur fyrir síldarverksmiðjurnar, að þetta frystihús yrði rekið, vegna þess að menn, sem fastráðnir voru til ársvinnu, fengu þar nokkurt verkefni, sem þeir gátu vel sinnt að vetrarlagi, þegar starfsemi síldarverksmiðjanna hin venjulega lá niðri. Það var þess vegna fyrir alla aðila æskilegt, að eitthvert form væri hægt að finna til þess, að þessi starfsemi gæti haldið áfram.
Ég skal ekki rekja þá sögu. N. skilaði í maí 1961 áliti og klofnaði. Tveir nm., þeir Birgir Finnsson og Sigurjón Sæmundsson, lögðu til, að sett yrðu lög, sem heimiluðu stofnun sameignarfélags ríkisins, eða SR fyrir þess hönd, og Siglufjarðarkaupstaðar. Skal það félag taka við eignum og skuldum bæjarútgerðar Siglufjarðar, eins og þær verða, þegar skuldir hafa verið eftir gefnar eða greiddar og umsamdar, eins og við höfum lagt til hér að framan, segir í álíti meiri hl. Einnig skal félagið taka við eignum og skuldum hraðfrystihúss síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði, eins og þær verða, eftir að samkomulag hefur verið gert við stjórn síldarverksmiðja ríkisins um skiptingu eigna og skulda hraðfrystihúss SR og síldarverksmiðjanna. Heimilisfang félagsins skal vera Siglufjörður og tilgangur þess útgerð fiskiskipa og rekstur hraðfrystihúss. Eignarhlutföllin verði þannig, að ríkissjóður, eða SR fyrir ríkisins hönd, eigi 4/5 og bæjarsjóður Siglufjarðar 1/5. Ábyrgð takmarkist við stofnframlög hvors aðila, en þau verði 1 millj. 600 þús. kr. frá ríkinu og 400 þús. kr. frá kaupstaðnum.
Þetta var það, sem meiri hl. n. lagði til, en minni hl. skilaði líka álíti, sem ég skal ekki lesa upp hér nema aðeins niðurlagið, með leyfi hæstv. forseta, en það hljóðar svo:
„Með tilvísun til framanritaðs legg ég til, að SR eigi hraðfrystihús sitt áfram og leitist við að efla rekstur þess með auknum viðskiptum við báta, eins og þegar hefur verið reynt með nokkrum árangri, en stjórn SR hefur samþ. að koma upp veiðarfærageymslu og beitingaraðstöðu fyrir nokkra báta í þessu skyni.“ Og svo segir: „Þegar afskrift skulda bæjarútgerðar Siglufjarðar hefur farið fram og útvegað hefur verið lánsfé til greiðslu á lausaskuldum samkv. hinum sameiginlegu till. n., legg ég til, að stofnað verði hlutafélag með 3 millj. kr. höfuðstól og leggi síldarverksmiðjur ríkisins fram 2/3 hluta fjárins og Siglufjarðarkaupstaður 1/3. Gengið sé út frá, að stjórnin verði skipuð 2 mönnum frá SR og 1 frá Siglufjarðarkaupstað. Félag þetta kaupi togarann Elliða á matsverði fyrir 5 millj. kr. og geri hann út, en togarinn Hafliði verði afhentur ríkinu upp í skuldir. Greiðsla kaupverðsins fari fram eftir nánari samningum.“
Þetta var álit minni hl. n.
Nú dróst það, að hægt væri að gera upp þetta allskulduga bú útgerðarinnar, og þess vegna ekki skilyrði fyrir hendi til þess að fara út í þessa félagsmyndun, eins og á stóð, nema með mjög miklu fjárframlagi, væntanlega þá frá ríkissjóði, og hikaði nú ríkisstj. við að gera það. En svo vildi það til á öndverðu ári 1962, að annar togari bæjarútgerðar Siglufjarðar fórst, og þá var ekki nema annar togarinn eftir og skuldir fyrirtækisins að miklu greiddar af vátryggingarverði Elliða, en nokkuð af vátryggingarverðinu þó ákveðið að nota til bátakaupa. Þá var það, að möguleikarnir á því að samræma þessi sjónarmið n., sem skipuð var 1960, jukust, og nú hefur stjórn síldarverksmiðja ríkisins í heild lagt til, að ríkíssjóður heimili, að í þetta fyrirtæki verði ráðizt. Að vísu mun hafa verið nokkur ágreiningur um það, hvort togarinn ætti að vera þar með, sem eftir var, en þó mun fyrir því hafa verið meiri hl, í stjórn síldarverksmiðjanna.
Sem sagt, þó að á sínum tíma hafi ekki verið leitað lagaheimildar til að stofna hraðfrystihús síldarverksmiðja ríkisins, var talið eðlilegt, að þessarar heimildar yrði leitað, en ekki farið út í þessa starfsemi með einfaldri stjórnarákvörðun, eins og gert var 1953. Þess vegna er þetta frv. fram borið, og ég vildi vænta, að hv. alþm. gætu á það fallizt. Þá væri úr sögunni erfitt mál, sem nokkrum ágreiningi hefur valdið nú um skeið, og þó að afkomuskilyrðin á Siglufirði séu í dag með hinni mikið auknu síldargengd þar önnur en voru fyrrum, þá er talið, að með þessu verði hægt að skjóta enn styrkari stoðum undir atvinnurekstur bæjarfélagsins, og þess vegna er þetta frv. flutt.
Ég vildi leyfa mér, herra forseti., að leggja til, að frv. yrði að lokinni þessari umr. vísað til 2, umr. og hv. sjútvn.