05.04.1963
Neðri deild: 66. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1051 í B-deild Alþingistíðinda. (997)
214. mál, þátttaka síldarverksmiðja ríkisins í útgerðarfélagi
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég hef ásamt öðrum nm. úr sjútvn. skrifað undir það nál., sem prentað er á þskj. 524 og hv. frsm. n. hefur nú lýst. Og ég er samþykkur því álíti n., að það beri að mæla með því frv. um þátttöku síldarverksmiðja ríkisins í útgerðarfélagi á Siglufirði, sem hér liggur fyrir á þskj. 446. Aðeins vildi ég nota tækifærið til þess í sambandi við þetta mál að vekja máls á því, að mér virðist það fyrirkomulag, sem hér er gert ráð fyrir um samvinnu ríkis og bæjar á Siglufirði, athyglisvert. Og það gæti verið ástæða til þess að hafa það í huga framvegis, hvort ekki er ástæða til þess, t.d. norðanlands, að taka upp slíka samvinnu á breiðari grundvelli á milli ríkisins og bæjar- eða sveitarfélaga um rekstur atvinnufyrirtækja, sem eru nauðsynleg, bæði fyrir ríki og hlutaðeigandi byggðarlag, en hlutaðeigandi byggðarlög kunna að eiga í erfiðleikum með að eiga og reka.
Í því sambandi vil ég minna á, að í frv. um ráðstafanir til að stuðla að jafnvægi í byggð landsins, sem nýlega var til umr, hér í hv. d. og hlaut því miður ekki æskilegar undirtektir að þessu sinni hjá meiri hl, d., þá var m.a. gert ráð fyrir því, að jafnvægissjóður gæti, þegar sérstaklega stæði á, gerzt meðeigandi í atvinnutækjum, sem nauðsynleg teldust til þess að halda uppi og efla atvinnulif og byggð á einhverjum svæðum. Og ég vil nú, eins og ég sagði áðan, aðeins nota tækifærið, af því að frv. af þessu tagi er nú á ferðinni, til að vekja máls á því, að framvegis kunni það úrræði, sem hér er gripið til, að vera æskilegt úrræði á fleiri stöðum og að því beri að gefa gaum.