05.05.1964
Neðri deild: 90. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1337 í B-deild Alþingistíðinda. (1000)
148. mál, tollskrá o.fl.
Frsm. minni hl. (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð út af þeirri aths., sem fram kom hjá hæstv. fjmrh. Hann telur, að missagt sé í nál. okkar í minni hl. fjhn. það, sem þar segir um breyt. á tollheimtu, sem gerðar hafi verið á undanförnum árum. Ég skal út af fyrir sig viðurkenna það, að með tollskránni var upphæðum nokkuð breytt. En þá er þess að gæta, að áður en það var gert, höfðu verið framkvæmdar hér tvær stórfelldar gengislækkanir, þannig að stofn sá, sem tollarnir voru lagðir á, var vitanlega stórhækkaður. Annars eru tölur um gjaldheimtuna sjálfa ólygnasti vitnisburðurinn um það, hvernig þessari tollheimtu hefur verið varið á undanförnum árum, og í tilefni af þessum orðum hæstv. fjmrh. ætla ég að leyfa mér að rifja þar upp, hvernig þær eru.
Aðflutningsgjöld á fjárl. hafa að undanförnu verið sem hér segir: Í fjárl. fyrir árið 1960 677 millj. kr., 1961 814 millj., 1962 914 millj., 1963 1190 millj., 1964 1337 millj. Þetta eru þær raunverulegu tollalækkanir, sem framkvæmdar hafa verið á undanförnum árum, í tölum taldar. Það er tvöföldun á tollinum. Við þetta bætist svo það, að söluskatturinn, sem tekinn var upp 1960 til bráðabirgða og átti að gilda í 8 mánuði, hefur nú verið lögfestur til frambúðar, tekinn inn í aðflutningsgjöldin, og er áætlað, að hann nemi 552 millj. kr. til ríkissjóðs. Heildargjaldheimtan er orðin samkv. fjárl. á 4. þús. millj. kr., var fyrir nokkrum árum, 4 eða 5 árum, 800 millj. kr. Þetta er sú mynd, sem tölurnar gefa af þróuninni á undanförnum árum. Ég er ekki viss um, að það sé hægt að segja með rétti, að það sé mjög mikið missagt í því nál., sem hér var gert að umtalsefni.
Hæstv. fjmrh. sagði, að það væri ekki við öðru að búast frá okkur þm. Framsfl. en því, að við kæmum með yfirboð, það gerðum við ávallt og ævinlega, yfirboð eða undirboð eftir því, hvort ætti betur við. Hæstv. fjmrh. er það auðvitað guðvelkomið mín vegna að kalla það yfirboð, að það sé gerð till. um að rétta svolítið hlut þeirra, sem eru að byggja sér hús, t.d. með því að slaka til á innflutningsgjöldum, sem nemur 35 þús. kr. á hverja meðalíbúð. En ég vil meina, að það sé réttlætismál, og ég vil halda því fram, að aðgerðir hæstv. ríkisstj. í húsnæðismálunum geri það ekki óeðlilegt a.m.k., að farið sé fram á það við hæstv. ríkisstj., að hún láti koma einhverja lagfæringu á móti, t.d. þá, sem hér er gert ráð fyrir.
Það er út af fyrir sig gott að eiga von á því, sem hæstv. fjmrh. sagði í sinni ræðu, að tollar á vélum væru til athugunar. Það var raunar vitað. Það er gott að eiga von á því, en betra hefði þó verið, ef hæstv. ríkisstj. hefði séð sér fært að láta þessa lagfæringu, sem nú er talað um að nauðsynlegt sé að komi, — að láta hana koma strax, fyrst lagfæringar á tollskránni eru hér til meðferðar. Ég vil þess vegna, ekki sízt eftir þau ummæli, sem hér féllu hjá hæstv. fjmrh., vænta þess, að þær till., sem við höfum borið fram á þskj. 572, verði samþykktar.