11.05.1964
Efri deild: 87. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1342 í B-deild Alþingistíðinda. (1011)
148. mál, tollskrá o.fl.
Gils Guðmundsson:
Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð í sambandi við síðustu brtt. fjhn. á þskj. 625, þ.e.a.s. 2. brtt., b-lið, síðari hluta, þar sem segir, að heimilt skuli að ákveða, að aðflutningsgjöldum af sjónvarpstækjum og hlutum í þau megi verja til stofnkostnaðar sjónvarps. Ég vildi leyfa mér að fara um þetta atriði fáeinum orðum.
Það hefur hér á Alþingi alveg nýlega verið af hálfu hæstv. menntmrh. gefin skýrsla um það, hvernig nú stendur undirbúningur að íslenzku sjónvarpi. Frá því hefur verið skýrt, að útvarpsráð hafi haft slíkan undirbúning og slíkar áætlanir með höndum og hafi nú nýlega skilað til hæstv. ríkisstj. till. sínum og áætlunum. Það er einnig upplýst, að þessar till. og áætlanir liggja nú hjá ríkisstj. til athugunar, og þess er ekki að vænta, þar sem þingi er nú að ljúka, að þær komi í einu eða öðru formi til kasta þessa Alþingis, sem nú er senn að ljúka störfum.
Hér er, eins og öllum er þegar kunnugt, um allmikið má að ræða. Á okkar mælikvarða er hér um stórmál að ræða, ekki sízt fjárhagslega. Stofnkostnaður íslenzks sjónvarps, sem yrði þó ekki nema tvær klst. á dag, er talinn mundu verða hátt á annað hundrað milljóna, en jafnframt mundi að sjálfsögðu vera um að ræða kostnað við kaup sjónvarpstækja fyrir mjög háar upphæðir, hundruð millj. kr., þegar fram í sækti, þannig að hér er að sjálfsögðu um mikið fjárhagsatriði að ræða, auk þess sem þetta mál hefur ýmsar aðrar hliðar.
Það er þess vegna eðlilegt og sjálfsagt, að slíkt mál sem þetta komi til kasta Alþingis, þegar undirbúningi er að fullu lokið,þegar hæstv. ríkisstj. hefur tekið afstöðu til þeirra athugana, sem gerðar hafa verið, og þeirra till., sem útvarpsráð hefur fyrir hana lagt. Þá tel ég eðlilegt og sjálfsagt, að þetta mál komi til kasta Alþingis og því gefist kostur á að móta heildarstefnuna í þessum málum.
Þar sem undirbúningur þessa máls er ekki lengra kominn en raun ber vitni, tel ég óeðlilegt að slá því föstu nú á þessu stigi, að einhver ákveðinn tekjuliður skuli til þess ætlaður að standa undir stofnkostnaði sjónvarps. Meðan ekki er enn einu sinni tekin lögformleg ákvörðun um, að stofna skuli íslenzkt sjónvarp, og því síður, að Alþingi hafi haft tækifæri til að segja eitt eða neitt um það, með hverjum hætti skipulag þess og fyrirkomulag eigi að vera, þá tel ég það í fyllsta máta ótímabært og óeðlilegt, að farið sé að ákveða sérstakan tekjulið til þess að standa undir stofnkostnaði við íslenzkt sjónvarp. Það hlýtur skv. eðli málsins að eiga að koma á undan að taka prinsip-ákvörðun um þetta mál, og síðan er að sjálfsögðu eðlilegt að fara að afla fjár til undirbúnings framkvæmda.
En það er jafnframt önnur hlið á þessu máli, sem ég vil vekja athygli á og engin ástæða er til að gera litið úr. Hér ríkir nú mjög óvenjulegt ástand í sjónvarpsmálum. Hér er starfandi erlent sjónvarp, sem rekið er fyrir erlenda herstöð fyrst og fremst, og eingöngu að því er þeir, sem það reka, telja. Hins vegar hefur því sjónvarpi fyrir nokkru verið breytt á þann veg, að það nær nú til allmikils hluta landsmanna, og þeim fer fjölgandi, sem koma sér upp sjónvarpstækjum og nota þetta erlenda sjónvarp. Það er vitað, að þó að það komi í ljós, að ekkert kunni að vera því til fyrirstöðu að halda áfram á þeirri braut, sem mörkuð hefur verið af útvarpsráði um undirbúning íslenzks sjónvarps, þá verður þetta erlenda hermannasjónvarp eitt um hituna hér næstu 2—3 árin a.m.k., og ég tel óheppilegt og óæskilegt að gera þetta óeðlilega ástand í sjónvarpsmálum að eins konar grundvelli fyrir tekjuöflun handa íslenzku sjónvarpi. Það er að mínu viti óeðlilegt og það er tæplega sæmandi.
Ég vil leggja áherzlu á þetta, að það virðist eðlilegast og raunar sjálfsagt, að Alþingi fái þess kost á sínum tíma að taka formlegar ákvarðanir um stofnun sjónvarps á Íslandi og á hvern hátt því skuli komið upp og það skuli rekið. Síðan eða jafnframt því ber að ákvarða slíku sjónvarpi tekjustofna. Þar kemur að sjálfsögðu ýmislegt til greina og m.a. á sínum tíma, skömmu áður eða um það leyti sem íslenzkt sjónvarp tæki til starfa, þá sýndist mér ekki óeðlilegt, þó að þessi tekjustofn, sem um ræðir í brtt. á þskj. 625, kæmi til álita. En við það óvenjulega ástand í þessum málum, sem nú ríkir, tel ég mjög eðlilegt að ákveða hann.
Ég vil aðeins í sambandi við þetta mál vekja athygli á því, að hér hefur legið fyrir Alþingi alllengi þáltill. í Sþ. í sambandi við það ástand í sjónvarpsmálum á Íslandi, sem nú ríkir. Þessi till. er flutt að vissu leyti í framhaldi af mjög svo umræddri áskorun, sem 60 þjóðkunnir menn sendu til Alþingis og mun hafa komið fram um miðjan marzmánuð. Síðan var lögð fram í Sþ. þáltill. um þetta efni, að því er mig minnir í aprílmánuði snemma. Þessi till. hefur, að ég held, tvívegis verið á dagskrá, en ekki komið til umr., og eru sennilega litlar líkur til þess, að það verði úr þessu. En ég vil aðeins minna á það, að í þeirri áskorun, sem fyrir Alþingi liggur frá hinum 60 þjóðkunnu mönnum, er á engan hátt tekin afstaða gegn íslenzku sjónvarpi og gegn því, að það verði undirbúið og fái að þróast með eðlilegum hætti. En það er hins vegar lögð á það áherzla, að íslenzkt sjónvarp verði ekki knúið fram með óeðlilegum hætti vegna þess ástands, sem nú ríkir, það fái sem sagt að þróast á eðlilegan máta.
Mér sýnist, að með því að flytja þá till., sem ég hef hér gert sérstaklega að umræðuefni, sé verið að slá hlut föstum, sem ætti að koma í annarri eða þriðju röð. Fyrst er að sjálfsögðu að taka prinsip-ákvörðun um stofnun íslenzks sjónvarps og að Alþingi gefist kostur á að móta heildarstefnuna í þeim málum, en síðan eða þá jafnframt ber svo að leggja fram að mínu viti tillögur um tekjuöflun til þess að standa undir stofnkostnaði.
Mér finnst þess vegna, að þessi till., eins og hún er nú fram komin og eins og hún liggur fyrir, þá sé hún þess eðlis, að það er eins og verið sé að koma þessu máli að einhverju leyti inn um bakdyr Alþingis, í staðinn fyrir að það væri sjálfsagt, að það kæmi inn um fordyrið og væri tekið til athugunar og umræðu í heild, en ekki reynt að knýja það fram með óeðlilegum hætti.