11.05.1964
Efri deild: 87. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1355 í B-deild Alþingistíðinda. (1032)

205. mál, sóknargjöld

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Frv. þetta er komið frá hv. Nd., og er það, eins og grg. fyrir frv. ber með sér, flutt að ósk biskups á grundvelli samþykktar frá safnaðarráði Reykjavikur. Efni frv. er í stuttu máli það, að þar sem hámark fyrir sóknargjöldum er nú 100 kr.. þá er gert ráð fyrir því, að framvegis verði þessar 100 kr. lágmark sóknargjalda, en safnaðarstjórnum er heimilað að hækka það í 250 kr. Þetta frv. hefur, að því er ég veit bezt, verið afgreitt ágreiningslaust í hv. Nd. Fjhn. hefur haft það til meðferðar, og eins og nál. á þskj. 649 ber með sér, leggur n, einróma til, að það verði samþykkt óbreytt.