30.04.1964
Neðri deild: 88. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1356 í B-deild Alþingistíðinda. (1039)
220. mál, ávöxtun fjár tryggingafélaga
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Með þessu frv. er ætlunin að auka dálítið útlánafé íbúðalánakerfisins. Ég hef ekki hug á að setja fótinn fyrir þetta og ætla að styðja frv., en ég vildi nota þetta tækifæri til að benda á nokkur atriði í sambandi við húsnæðismálin, því að þau gefa nokkra mynd af efnahagsmálaástandinu almennt, og einnig að láta í ljós skoðanir mínar á nokkrum atriðum í sambandi við þau. En allt verður þetta í mjög stuttu máli.
Það er ekki stór íbúð, sem kostar núna 600 þús. kr. Eins og vaxtagreiðslur eru nú, þá eru vextirnir einir út af fyrir sig af verði tiltölulega lítillar íbúðar þess vegna um 50 þús. kr. fyrir utan kostnað við íbúðina og afborganir, sem verður að bæta við, ef á að gera sér grein fyrir því, hvað það kostar nú orðið að búa í lítilli, nýrri íbúð.
Húsaleiga er orðin 4–5 þús. kr. fyrir litla íbúð og fer síhækkandi nálega dag frá degi. Húsnæðiskostnaður er orðinn geigvænlegur, og æðimargir, sem ekkert húsnæði fá, nálega hvað sem í boði er.
Verkamannakaupið fyrir 8 klst. vinnu alla virka daga ársins er 77 þús. kr. á ári.
Þetta eru tölur, sem tala um það ástand, sem skapazt hefur í landinu.
Hinir háu vextir, sem innleiddir voru sem liður í efnahagsmálakerfinu, eru nú að byrja að koma inn í húsnæðismálin. Og þá er spurningin: Hvað verður kaupið orðið, þegar það er orðið tilsvarandi húsaleigunni, þessari nýju, og húsnæðiskostnaðinum? Hvað verður kaupið orðið, þegar það er orðið tilsvarandi kostnaðinum við að búa í nýju húsnæði og nýju húsaleigunni? Nú er sagt, að atvinnuvegunum gangi í ýmsum greinum illa að borga það kaup, sem sett hefur veríð, þ.e.a.s. 77 þús. kr. á ári fyrir 8 stunda vinnudag allan ársins hring. Og það mun vera rétt um ýmsar greinar, því að þannig er að þeim búið. En hún er áleitin þessi spurning: Hvernig gengur þá atvinnuvegum Íslendinga að borga það kaup, sem dæmzt getur tilsvarandi við húsnæðiskostnaðinn, eins og hann er núna? En enginn þarf að halda, hvernig sem farið er að, að það sé hægt að halda þessum hlutum föstum. Kaupgjaldið hlýtur að leita samræmis við kostnaðinn við að lifa. Menn geta ekki hætt að búa í húsum, og kaupið lagar sig smátt og smátt og hlýtur að verða að laga sig eftir kostnaðinum við að framfleyta fjölskyldu í nýju húsnæði. Og þannig er það, sem hin nýja óðaverðbólga kemur inn í efnahagskerfið, kaupgjaldið og framleiðslukostnaðinn smátt og smátt. Og það eru ekki aðeins þeir, sem búa í nýja húsnæðinu, sem þurfa að fá kaup í samræmi við þessi nýju skilyrði, heldur taka allir aðrir vitanlega sama kaup og þeir. Það verður til þess, að allir þeir, sem búa í gömlum húsum og eiga gamlar eignir, fá til sín í skjóli hins nýja kaupgjalds hina sömu stórlega hækkuðu vexti af því fjármagni, sem þeir eiga í eignunum. Bæði ég og aðrir, sem eigum íbúð, fáum þetta fé í skjóli háu vaxtanna, í skjóli hins nýja, háa stofnkostnaðar. En atvinnuvegirnir borga að lokum. Fyrst er reynt að halda kaupinu niðri og klemma menn á þann hátt, því að það er svo erfitt fyrir atvinnuvegina að halda í horfinu og hækka nógu ört, til þess að þetta geti staðizt. En að lokum fer auðvitað svo, að þetta er knúið inn í framleiðslukostnaðinn, og atvinnuvegirnir verða að borga.
Nú er ég að segja þetta til að koma því að enn einu sinni, að þarna sjáum við afleiðingarnar af þeirri stefnu, sem tekin hefur verið upp: að reyna að halda jafnvægi í þjóðarbúskapnum með því að hækka verðlagið á framkvæmdunum, að hækka framkvæmdirnar og reyna þannig að takmarka þær, þ. á m. íbúðabyggingarnar, því að það hefur verið stefnan, og gera fjármagnið dýrt til þess að skapa jafnvægi á þá lund.
Það hefnir sín grimmilega að viðhafa þessar aðferðir, eins og við erum núna að sjá á ástandinu í húsnæðismálunum betur en í nokkurri annarri grein í þjóðarbúskapnum. Það kemur þar gleggra fram, þetta æpandi ósamræmi, sem verður á milli þeirra, sem eiga gömlu eignirnar, og hinna, sem eiga nýju eignirnar, og hvernig unga fólkið verður að hafa tekjur í samræmi við nýja kostnaðinn, hvernig þetta kemur svo niður fyrir atvinnuvegina og setur allt úr skorðum.
Og í framhaldi af þessu vil ég aðeins segja enn, að það er eitt hið nauðsynlegasta í þjóðarbúskapnum að söðla alveg um í húsnæðismálunum, einmitt í húsnæðismálunum, því að ef það tekst ekki, þá verða af þessu ömurlegar afleiðingar, — snúa blaðinu alveg við og í stað þess að nota þá aðferð að reyna að leita jafnvægis með því að láta verðíð á framkvæmdunum hækka, líka verðið á íbúðunum, og halda háu vöxtunum, þá verði snúizt í það af fullri alvöru að reyna að lækka verðið á íbúðunum, auka lánin og lækka fjármagnskostnaðinn, vextina, alveg sérstaklega á íbúðalánunum.
Ég vil nefna í þessu sambandi fjögur atriði, það mætti nefna mörg fleiri.
Í fyrsta lagi vil ég nefna bætt skipulag á byggingum og meiri tækni í þeim efnum og vinnuhagræðingu. Það verður að skerast í það af fullri alvöru og mikilli atorku að imileiða betra skipulag, betri tækni og meiri vinnuhagræðingu.
Þar næst hygg ég, að sé ómögulegt að komast hjá því, ef þetta á ekki að ríða atvinnuvegunum gersamlega á slig, að fara inn á þá braut að lækka verðið á íbúðunum, hæfilega stórum íbúðum, með beinum ráðstöfunum, t.d. eins og því að endurgreiða tolla af byggingarefni til hæfilega stórra íbúða, eða öðrum slíkum beinum stuðningi.
Í þriðja lagi verði að lækka almennu vextina, það verði að lækka almennu vextina í landinu, því að enginn atvinnurekstur getur risið undir þessum vöxtum til lengdar, enda áttu þessir vextir aðeins að vera, að því er sagt var, í stuttan tíma, til þess að koma jafnvæginu á. Það mistókst, en vextirnir eru látnir standa, og nú eru þeir að vefja sig inn í atvinnulífið með sívaxandi hraða. Þá kemur það æ betur og betur í ljós, að ráðstöfunum til að lækka almennu vextina verða vafalaust að fylgja nýjar ráðstafanir til að verðtryggja spariféð. Og nú fáum við þær fréttir úr öðrum löndum, þar sem vextir eru miklu lægri en hér, þar sem verðbólga er nálega engin á íslenzkan mælikvarða að þar sé óðfluga verið að íhuga og undirbúa að fara inn á þá braut að innleiða verðtryggingu á sparifé til þess að geta haft vextina enn lægri. Þeim er það ljóst í þessum löndum vafalaust, hvað stórkostleg hætta er því samfara að hafa gífurlega háa vexti, og vilja því íhuga, hvort þeir geti ekki lækkað enn vexti hjá sér, enda komi verðtrygging á spariféð. Þó eru í þessum löndum, þar sem verið er að íhuga þessi efni af ábyrgum mönnum, vextirnir miklu lægri en hér. Ég er alveg sannfærður um, að þeim mun lengur sem dregið verður að ganga inn á þessa braut, þeim mun meira tjón verður af því. Enda hygg ég, að hver einasti skynsamur maður, sem athugar, hvernig þessi þróun er orðin um framfærslukostnaðinn og húsnæðiskostnaðinn sérstaklega og kaupgjaldið og hvert stefnir, hljóti að sjá, að það verður að snúa við.
Fjórða höfuðatriðið sýnist mér svo vera, að það muni ekki verða komizt hjá því, auk þess að stórhækka íbúðalánin, að verja einhverju af almannafé til þess að borga niður sérstaklega vextina af íbúðalánunum, til þess að koma í veg fyrir þær óskaplegu kauphækkanir, sem annars hljóta að vera fram undan, lækka vextina sérstaklega með niðurgreiðslum, svipað og gert var í sumum öðrum greinum hér áður, áður en vaxtapólitíkinni var breytt. Þá voru borgaðir niður vextir af landbúnaðarlánum og eitthvað lítils háttar líka í sambandi við stofnlán sjávarútvegs og raunar íbúðalán að einhverju litlu leyti líka. Ég sé ekki annað en það þurfi að nota almannafé til þess að borga verulega niður vexti af íbúðalánum. Annars hlýtur þetta að ganga áfram í þessa átt, sem nú horfir, og stranda þessu öllu saman. Þessi nýi vaxtakostnaður fléttar sig inn í kaupgjaldið, og atvinnuvegirnir ráða ekki við neitt. Og það eru ekki bara vextirnir, sem koma inn í kaupgjaldið, það eru ekki bara vextir þeirra, sem skulda, t.d. út á nýju íbúðirnar, heldur allur fjármagnskostnaður í landinu, sem fer óðfluga hækkandi. Og þeir, sem eiga eldri eignir í landinu, hirða gífurlega fjármuni í skjóli þeirra, sem þurfa að geta lifað í nýja húsnæðinu. Þannig blæðir atvinnuvegunum, og þannig lenda þessi mál í slíkan hnút, að enginn fær ráðið við neitt. Og þetta er ein aðalskýringin á því, hvernig á þeim ósköpum stendur, að í hínum mestu uppgripum, sem íslendingar hafa nokkru sinni lifað, er kaupið orðið svona lágt, samanborið við nýja húsnæðiskostnaðinn, en atvinnuvegirnir samt í erfiðleikum að borga það.
Húsnæðismálin eru einn allra stórfelldasti liðurinn í þessurri málum, og þar dugir ekkert minna en að snúa blaðinu við, söðla um og taka upp nýja stefnu, sem er miðuð við að lækka húsnæðiskostnaðinn og gefa kost á meira fjármagni og ódýrara fjármagni en verið hefur til þessa í húsnæðismálum. Þess munu allir njóta, bæði þeir, sem eiga eftir að koma sér upp húsnæði, og ekkert síður atvinnuvegirnir, sem munu ekki geta ráðið við neitt, ef þannig verður haldið áfram sem nú hefur verið um sinn.
Ég vildi nota þetta tækifæri, vegna þess að þetta mál er beinlínis tengt við húsnæðismálin, til að segja þessi örfáu orð, benda á þessar fáu staðreyndir, sem blasa við og ekki er hægt að komast fram hjá, og þá nýju stefnu, sem verður að taka upp.