11.05.1964
Efri deild: 87. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1374 í B-deild Alþingistíðinda. (1057)
220. mál, ávöxtun fjár tryggingafélaga
Frsm. (Þorvaldur G. Kristjánsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir á þskj. 611, hefur heilbr.- og félmn. athugað, og n. mælir með því, að frv. verði samþ.
Frv. þetta er um ávöxtun fjár tryggingafélaga. Í 1. gr. frv. eru ákvæði um það, hvaða tryggingafélög eru undanþegin þessum lögum. Í 2. gr. frv. er kveðið á um það, hvernig skuli ávaxta fé tryggingasjóða líftrygginga. Og í 3. gr. eru ákvæði um það, hvernig skuli ávaxta fé tryggingafélaga, annað en fé tryggingasjóða líftrygginga. En meginefni þessa frv. er að finna í 4. gr., og þar er kveðið svo á, að árlega skuli verja 25% af ráðstöfunarfé tryggingasjóðs líftrygginga til kaupa á íbúðarlánabréfum húsnæðismálastofnunar ríkisins. Enn fremur getur félmrh. ákveðið fyrir fram fyrir eitt ár í senn, að 25% af öðrum verðbréfa- og víxlakaupum tryggingafélaga skuli vera með sama hætti.
Ástæðan til, að frv. þetta er borið fram, er sú, að það þykir rétt, að vátryggingafélögin leggi fram nokkurt fé til íbúðalána. Þegar almenna veðlánakerfið var stofnað árið 1956, var gert ráð fyrir því, að líftryggingafélögin legðu fram nokkurt fé árlega til kerfisins. Þetta var ekki lögbundið, og það var byggt á frjálsum samningum um þetta efni milli ríkisstj. og vátryggingafélaga. En það kom brátt í ljós, að það fé, sem almenna veðlánakerfið fékk til ráðstöfunar frá vátryggingafélögunum með þessum hætti, varð í reynd miklum mun minna en ráð var fyrir gert og vonir höfðu staðið til. Og þó var það svo, að fyrstu árin munaði nokkuð um þetta framlag vátryggingafélaganna, en það hefur farið minnkandi, eftir því sem á hefur liðið, og s.l. ár fékk almenna veðlánakerfið til ráðstöfunar aðeins 1 millj. og 860 kr. frá vátryggingafélögunum í formi kaupa á bankavaxtabréfum kerfisins. Á öllu tímabilinu, sem liðið er, frá því að almenna veðlánakerfið var stofnað fram til ársloka 1963, hefur kerfið fengið með þessum hætti aðeins 18 millj. 664 þús. kr. Til þess að ráða bót á þessu og fá til umráða meira af fé vátryggingafélaganna er frv. það, sem hér liggur fyrir, fram borið. Og það er gert ráð fyrir því, að skv. ákvæðum frv. megi reikna með því, að almenna veðlánakerfið fái fé frá vátryggingafélögunum sem svarar um 30 millj. kr. árlega með þessum hætti. Það kann að vera, að þessi upphæð geti lækkað eitthvað, vegna þess að vátryggingafélögin hafa yfirleitt bundið fé það, sem þau hafa lánað, í lánum til skemmri tíma en íbúðalánin eru og bankavaxtabréf almenna veðlánakerfisins. En samt sem áður er enginn vafi á því, að með samþykkt þessa frv. eru gerðar raunhæfar ráðstafanir til þess að auka ráðstöfunarfé húsnæðismálastofnunarinnar og almenna veðlánakerfisins verulega, og heilbr.- og félmn. mælir eindregið með því, að frv. verði samþykkt.