14.11.1963
Neðri deild: 15. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1390 í B-deild Alþingistíðinda. (1070)
36. mál, lausn kjaradeilu verkfræðinga
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Hv. 5. þm. Reykv. minntist á, að það liti út fyrir, að ég hafi ekki fylgzt með, hvað var verið að ræða um hér á þinginu undanfarna daga. Það er um launafrv. Ég hafði nú búizt við því, af því að hv. 5. þm. Reykv. tók þátt í umr. um þetta mál og talaði mikið, að hann hefði gert sér grein fyrir því, hvað í þessu frv. stóð. En það kom ekki fram í þeirri ræðu, sem hann flutti hér áðan, og ég vil minna hv. þm. á, að það frv, var ekki flutt til þess, að verkamenn hefðu lægri laun en hjá ríkinu, eins og hv. þm. sagði hér áðan, heldur til þess að finna leiðir til að bæta kjör þeirra lægst launuðu. Og ég kemst ekki hjá því að vekja athygli á, að hv. þm. varð fótaskortur í rökvísinni hér áðan, og það hefði ekki átt að ske, þótt hann hafi fundið skyldu sína til að taka undir með hv. 5. þm. Austf., það kom mér ekkert á óvart, og ekki öðrum hv. þm. En það getur stundum verið svo erfitt að þóknast því atriði, að menn renni á svellinu um leið, og það gerði hv. þm. hér áðan.
Ég veit, að hv. þm. hafa tekið eftir því ósamræmi, sem kom fram, þegar hv. þm. fullyrðir, að úrskurður gerðardóms verði til þess að flæma verkfræðinga úr landi. Hvers vegna ætti það að vera? Það hlyti að vera vegna þess, að hv. þm. finnst gerðardómurinn ekki skapa þeim nógu góð kjör. En finnst nú hv. þm. þetta vera í samræmi við það, sem sagt var hér áðan? Ég held ekki. Það er alveg í ósamræmi, vegna þess að áður var hv. þm. búinn að eyða löngum tíma í það, að úrskurður gerðardóms og sú stefna, sem kæmi fram í l., hlyti að leiða til þess, að það væri grundvöllur fyrir hækkuðum kröfum hjá öðrum stéttum. Það þarf ekki að orðlengja mikið um þetta. Þetta er skýrt, og þetta sjá allir, þegar menn velta því fyrir sér, og hv. 5. þm. Reykv. var algerlega í ósamræmi í niðurlagi ræðu sinnar við það, sem hann hafði eytt mestum tíma í að tala um fyrri hlutann. Sannleikurinn er sá, að gerðardómurinn, eins og ég áðan sagði, markar nýja stefnu að því leyti, að hann dregur úr launamismuninum, sem var hjá einkafyrirtækjum og ríkinu áður.
Það er, eins og kunnugt er, orðin hefð, hefur verið um langt skeið, að verkfræðingar hjá einkafyrirtækjum hafa fengið miklu hærri laun en verkfræðingar hjá ríkinu. Það hefur hins vegar ekki átt sér almennt stað með aðrar stéttir þjóðfélagsins, hvað sem kynni að verða.
Hv. 5. þm. Austf. og hv. 5. þm. Reykv. voru að sjálfsögðu sammála í afstöðu sinni gegn þessu frv., eins og oftast áður, þegar um mál er að ræða, sem ríkisstj. flytur, og nægja þá svör mín til að svara þeim báðum. Fullyrðingar þeirra um það, að útgáfa þessara laga og hinna fyrri laga hafi orðið til þess að spilla fyrir hér og auka á dýrtíð, eru náttúrlega ekki þess virði að eyða orðum að þeim, vegna þess að það liggur alveg ljóst fyrir, að einmitt vegna þess að ríkisvaldið greip inn í, þegar málin voru að stranda, þá varð fært að fá verkfræðilega þjónustu fyrir sæmileg kjör, sem ekki hefði verið mögulegt, ef ekki hefði verið gripið inn í þessi mál. Og það út af fyrir sig er ekkert við það að athuga, þótt verkfræðingar vinni að einhverju leyti í ákvæðisvinnu. Það, sem máli skiptir, er, hvernig þeir samningar eru, sem gerðir eru þar um, og það er hægt að leita sér upplýsinga um það, að í mörgum tilfellum má nefna dæmi, þar sem báðir hafa þénað, verkfræðingurinn og sá, sem keypti vinnuna. Og það fer vitanlega vel á því, þegar það getur þannig orð.
Hv. 5. þm. Austf. sagði hér áðan, að verkfræðingar hafi horfið frá störfum frá ríkinu, eftir að þessi lög voru sett. Það er náttúrlega alveg öfugt. Verkfræðingar hafa ráðið sig hjá ríkinu, síðan þessi lög voru sett. Það eru t.d. 6 verkfræðingar nú þegar ráðnir hjá vegagerðinni. Það munu vera 2 eða 3 fastráðnir verkfræðingar hjá vitamálastjóra. Það er einn verkfræðingur, sem hefur nú þegar sótt um starf hjá raforkumálaskrifstofunni. Og það munu vera 4 verkfræðingar, sem eru í þann veginn að ráða sig hjá landssímanum. En ekkert af þessu hefði getað gerzt, ef engin afskipti hefða orðið af þessum málum. Og það er enginn vafi á því, að það eru fleiri verkfræðingar, sem munn sækja um stöðu hjá ríkinu, eftir að gerðardómurinn er fallinn, því að ýmsir verkfræðingar vildu bíða eftir úrskurði hans.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða meira um þetta. Mér sýnist það alveg ljóst, þar sem hv. 5. þm. Reykv. var að tala hér áðan um nýja stefnu í þessum málum, að ef það er um nýja stefnu að ræða, þá er það alveg í öfuga átt við það, sem hann hefur viljað halda fram. Og ég er viss um, að harm er nú þegar orðinn sannfærður um, að það er rétt, sem ég held fram um það.