12.03.1964
Efri deild: 59. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1403 í B-deild Alþingistíðinda. (1086)

36. mál, lausn kjaradeilu verkfræðinga

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Ég leyfði mér áðan að vefengja þær tölur, sem hv. þm. var með, en svo segir hann, að það sé staðfest í skýrslu í þessari bók, sem hann rétti mér áðan. Ég hef ekki lesið þessa bók, ég skal gera það, en ég veit ekkert, hvort þessar tölur eru í þessu hefti, sem hann rétti mér áðan; það tekur talsverðan tíma að átta sig á því. En jafnvel þótt þessar tölur séu réttar, þá rennir það engum stoðum undir málflutning þm., vegna þess að allir vita, að kjör verkfræðinga á Íslandi voru ekkert betri 1957 og 1958 en þau voru áður og miklu lakari en þau eru nú orðin, — miklu lakari. Þetta er þess vegna eins og hvert annað hálmstrá, sem hv. þm, grípur til, og er ég dálítið undrandi á því, að hann skuli vera að minnast á verkfræðingana og árin 1957 og 1958, vegna þess að vinstri stjórnin notaði alls ekki tækifærið til þess að rétta hlut verkfræðinganna á þessum tímum. Það væri þó eðlilegt, ef hv. þm. vildi vera í samræmi við sig og hans flokkur, að það hefði verið gert. En verkfræðingar bjuggu þá við miklu lakari kjör en þeir búa nú.

Hv. þm. sagði hér þjóðsögu áðan um verkfræðing, sem póst- og símamálastjórnin hefði átt að panta í sambandi við lagningu sæsímans. Ekki er mér kunnugt um þetta. En hann segist hafa lesið þessa sögu í blaði. Þjóðsaga getur það verið fyrir því. Það má vel vera, að símamálastjóri hafi pantað útlendan mann til þess að geta lokið lagningu sæsímans, og þá gæti það hafa verið í samráði við Stóra norræna símafélagið og alls ekki, að Íslendingar ættu að greiða þessum verkfræðingi. Hitt er svo rétt, að verkfræðingar erlendis viða hafa hærri laun en gerist á Íslandi. En við búum á Íslandi, og stéttir þessa þjóðfélags, hinar ýmsu stéttir, mynda þjóðfélagið, og það verður að vera samræmi í kröfum og kjörum hinna ýmsu þjóðfélagsstétta, til þess að unnt sé að halda þjóðfélaginu uppi með eðlilegum hætti.

Hv. þm, spyr hér áðan: Mega aðrar stéttir skammta sér kjör, ef verkfræðingum er bannað það? Verkfræðingum er bannað að skammta sér kjör. Ég spyr nú: Hvenær hefur það verið leyft á Íslandi, að sérhver stétt skammtaði sér kaup og kjör? Til hvers höfum við vinnulöggjöf? Er það ekki til þess, að það séu gerðir samningar á milli launþega og atvinnurekenda? Ég segi: Þetta er fávís spurning. Kaup og kjör ákvarðast hér að öllum jafnaði með samningum. Og verkfræðingar stóðu í samningum við atvinnurekendur frá 27. júní til 17. ágúst án árangurs. Það var ekki fyrr en sýnt var, að samningar næðust ekki, að brbl. voru gefin út. Og ríkisstj. hefur vissulega ekki viljað, fyrr en í óefni var komið. blanda sér inn í slíkar deilur. En eins og fyrir liggur, varð að gefa þessi lög út til þess að forða atvinnulífinu frá öngþveiti, til þess að koma í veg fyrir algera stöðvun hinna ýmsu framkvæmda, sem unnið var að í landinu, til þess að tryggja það, að atvinnuleysi sækti ekki fábækar alþýðufjölskyldur heim. Og svo kemur hv. 9. þm. Reykv. hér til þess að mótmæla þessari nauðsynlegu og sjálfsögðu aðgerð ríkisstj. Ég gæti trúað því, að þess verði minnzt í þingsögunni og í þjóðarsögunni, að á Alþ. 1964 mælti hv. 9. þm. Reykv. gegn svo sjálfsagðri ráðstöfun sem þeirri að tryggja atvinnu á Íslandi og að unnt væri að halda áfram framkvæmdum á árinu 1963.