09.05.1964
Efri deild: 86. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1431 í B-deild Alþingistíðinda. (1095)
36. mál, lausn kjaradeilu verkfræðinga
Jón Þorsteinsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá atriði í þessu máli, sem mig langar til að drepa lítillega á.
Hv. 9. þm. Reykv. var að lesa hér úr bréfum frá samtökum verkfræðinga. Ég held, að ég hafi tekið rétt eftir því, að í bréfi frá Stéttarfélagi verkfræðinga hafi staðið eitthvað á þá leið, að kjaradómur opinberra starfsmanna gæti ekki orðið fordæmi að kjörum annarra stétta, vegna þess að kjaradómurinn ætti að samræma kjör ríkisstarfsmanna við þau kjör, sem sambærilegar stéttir hefðu á vinnumarkaðnum, og þess vegna gætu niðurstöður kjaradóms ekki orðið til þess að ýta undir kaupkröfur hjá öðrum stéttum eða vera fordæmi að þeim.
Þetta er því miður hinn herfilegasti misskilningur. Um það er öllum kunnugt, að kjaradómur kvað upp sinn úrskurð um launakjör opinberra starfsmanna hinn 3. júlí í fyrra, og það er líka sjálfsagt öllum kunnugt um, hverjar afleiðingar urðu af því og hverjar undirtektir verkalýðshreyfingarinnar urðu, þegar þessi úrslit birtust. Í þeirri kjarabaráttu, sem verkalýðsfélögin hófu svo á s.l. hausti og endaði með samningunum í des., var það alltaf ein aðalröksemdin fyrir þeim kröfum, sem þar voru hafðar í frammi, að þær stéttir ættu rétt á sambærilegri hækkun og opinberir starfsmenn hefðu fengið með kjaradómnum 3. júlí. Og meira að segja ein stétt, sú stéttin, sem fékk mesta kauphækkun um áramótin, þ.e.a.s. verzlunarmennirnir, þeir beinlínis gerðu þá samþykkt á fundi eða ráðstefnu, sem þeir tóku þátt í, að þeir heimtuðu sömu kjör og verzlunar- og skrifstofufólk hefði hjá ríkinu. Ég hef að vísu ekki þau gögn öll við höndina, en það er hægt að vitna í fjöldamörg blaðaummæli og samþykktir frá verkalýðshreyfingunni, þar sem kjarakröfur þeirra eru rökstuddar með þeirri kauphækkun, sem opinberir starfsmenn fengu með kjaradómi í júlí í fyrra. Og þetta var einmitt ein aðalástæðan fyrir því, að kjaradómurinn synjaði ríkisstarfsmönnum um 15% hækkun 1. apríl s.l., eða sú hækkun átti að gilda, ef veitt hefði verið, frá s.l. áramótum, einmitt vegna þess að kjaradómurinn taldi, að það væri ekki hægt að veita ríkisstarfsmönnum kauphækkun vegna kauphækkana annarra stétta, sem beinlínis hefði leitt af kauphækkunum opinberra starfsmanna árið áður, þannig að því væri ekki hægt að halda áfram. Ég tel því, að þessi tilvitnuðu orð um það, að kjaradómur um kjör opinberra starfsmanna gæti ekki orðið fordæmi að kjarakröfum fyrir aðrar stéttir, séu á algerum misskilningi byggð og reynslan hafi tvímælalaust sýnt það.
Hér í þessum umr. hefur gjaldskrá verkfræðinga nokkuð borið á góma, og ég get vel fallizt á það, að almennt séð gegni nokkuð öðru máli um gjaldskrá heldur en launakjör þeirra verkfræðinga, sem eru launþegar eða taka mánaðarkaup. Og það hefur réttilega verið bent á það, að aðrar stéttir hafi um sínar gjaldskrár ekki þurft að mæta slíkum skilmálum sem verkfræðingarnir eða slíkri meðferð. Ég held, að ástæðan til þessa liggi fyrst og fremst í því, að hjá verkfræðingastéttinni sé tiltölulega auðvelt að skipta úr mánaðarkaupi eða föstum launakjörum og yfir í gjaldskrárkjör. Meðan þessir svokölluðu ráðningarskilmálar verkfræðinga voru í gildi, sem voru ekki viðurkenndir nema af einhverjum takmörkuðum hópi atvinnurekenda, þá hygg ég, að málið hafi gengið þannig fyrir sig, að þeir verkfræðingar, sem áður höfðu verið mánaðarkaupsmenn eða launþegar, réðu sig raunverulega upp á gjaldskrárkjör, en það voru dregnar frá einhverjar prósentur vegna vinnuaðstöðu og húsnæðis, sem atvinnuveitandinn veitti. Þannig gat það vel komið út, að verkfræðingurinn gagnvart sínu stéttarfélagi gat sýnt fram á það, að hann næði þeim kjörum, sem ráðningarskilmálarnir heimtuðu, þó að hann gagnvart atvinnurekandanum tæki þóknun fyrir sín störf skv. gjaldskrá. Og einmitt þessi nánu tengsl, sem þannig gátu átt sér stað á milli gjaldskrárinnar og almennra launakjara, hvernig hægt væri að nota þessa gjaldskrá sem dulbúna kjaraákvörðun fyrir þá, sem raunverulega voru launþegar, voru orsök þess, að óhjákvæmilegt var að taka gjaldskrána með, ef slík lög sem þessi áttu að ná tilgangi sínum.
En það hefur borið hér nokkuð á góma gjaldskrár annarra stétta, við skulum segja t.d. lögfræðinga, tannlækna, endurskoðenda, arkitekta og annarra þvílíkra, og yfirleitt er það svo, að þessar stéttir hafa fullt frelsi um það að ákveða sínar gjaldskrár. Nú vita allir, að það eru ákaflega fáar stéttir og naumast nokkrar, sem hafa fullt frelsi, eða ef maður orðaði það svo sjálfdæmi um sín kjör. Launþegar í landinu verða yfirleitt að semja um sín kjör við atvinnurekendur, og því hefur verið lýst hér í umr., hvernig kjör bænda eru ákveðin, hvernig fiskverð er ákveðið, hvernig kjör opinberra starfsmanna eru ákveðin o.s.frv. Kaupmenn og atvinnurekendur verða í mjög mörgum tilfellum að sæta verðlagsákvörðunum um verð á þjónustu og vörum, sem þeir selja. Ég er persónulega þeirrar skoðunar, að raunverulega ættu gjaldskrár allra þessara stétta, sem ég var að tala um áðan, verkfræðinga, lögfræðinga, arkitekta, endurskoðenda og hverjir það nú eru, allar gjaldskrár allra þessara stétta ættu að sæta verðlagsákvæðum. Ég sé í raun og veru ekkert réttlæti í því, að þegar t.d. láglaunafólk eða aðrar stéttir þjóðfélagsins þurfa að heyja harða kjarabaráttu og oft og tíðum fyrir því að fá kjör sín bætt og fá kannske 5 eða 10 eða 15% kauphækkun eða hvað það er í hverju tilfelli, þá geti aðrar stéttir hálaunamanna, eins og lögfræðingar, verkfræðingar eða hverjir það nú eru, með einu pennastriki hækkað sín laun margfalt meira. En það get ég þó tekið skýrt fram, að hvað sem skoðunum mínum á þessu liður, þá getur það auðvitað ekki staðizt til frambúðar, að um þessar gjaldskrár gildi mismunandi reglur, þær verða allar að sæta sömu örlögum.
Fyrir u.þ.b. 10 árum, — ég man ekki nákvæmlega, hversu langt það er, það skiptir ekki heldur höfuðmáli, — þá brutust verkfræðingar út úr launakerfi ríkisins. Þá var stofnað stéttarfélag. Þetta stéttarfélag gerði ekki eingöngu samninga við vinnuveitendur, heldur einnig við opinbera aðila, bæjarfélög og ríki, og reyndin varð sú, að svo að segja allir verkfræðingar, sem unnu hjá ríkinu, og ekki voru þeir yfirmenn eða forstöðumenn stofnana, þeir hurfu úr þjónustu ríkisins sem opinberir starfsmenn, en unnu áfram í sínu starfi eftir þeim kjörum, sem kjarasamningar stéttarfélagsins við ríkið sögðu fyrir um. Með þessu móti náði þessi stétt miklu betri kjörum en aðrar hliðstæðar stéttir í þjónustu ríkisins. Og ég hygg, að í raun og veru hafi verkfræðingar á þeim tíma haft samúð ákaflega margra manna í þessari kjarabaráttu sinni vegna þess, hve launin hjá ríkinu og hinu opinbera fyrir störf manna, sem eru menntaðir og gegna ábyrgðarmiklum störfum, voru mjög svo lág. Síðan líður langur tími, og ég skal ekki rekja þá sögu, nema verkfræðingarnir halda áfram, þeir sem unnu hjá ríkinu, að starfa samkv. gildandi kjarasamningi stéttarfélagsins, eins og hann var á hverjum tíma. Og í raun og veru má segja, að verkfræðingarnir hafi brotið ísinn, að það hafi e.t.v. að verulegu leyti verið þeirra verk, að um síðir fengu þeir ríkisstarfsmenn, sem vinna störf, þar sem sérstaklega eru gerðar kröfur til menntunar og ábyrgðar, miklar kjarabætur með þeim kjaradómi, sem kveðinn var upp í fyrra og grundvallaðist á l. frá 1962, um kjarasamninga opinberra starfsmanna, og þeim samningsrétti, sem Bandalag starfsmanna ríkis og bæja fékk þá fyrir sína meðlimi, en ef ekki tækjust samningar, þá átti kjaradómur að skera úr, eins og kunnugt er. Það var þannig í fyrsta skipti, að það náðust aðeins samningar um skipunina í launaflokka, en ekki um launin sjálf, og það var kjaradómurinn, sem ákvað þau. Við uppkvaðningu kjaradóms fengu ýmsar stéttir, þessar betur launuðu, þær sem kallaðar eru hátekjustéttir, þá fengu þær mjög mikla kauphækkun, og satt að segja þótti mörgum meira en nóg um þá miklu hækkun, sem þá átti sér stað. En þá skeður það, sem ég tel, að hafi mjög miður farið, að Stéttarfélag verkfræðinga ætlar sér eða virðist hafa ætlað sér, á sama hátt og það braut niður launakerfi ríkisins fyrir 10 árum, eða hversu langt það er, það ætlar sér nú á nýjan leik að brjóta niður þetta nýja launakerfi hjá ríkinu, þó að það kerfi væri verkfræðingastéttinni og öðrum hliðstæðum stéttum miklu hagstæðara en gamla kerfið var. Þetta sést ljóslega af því, að Stéttarfélag verkfræðinga boðar til verkfallsins 27. júní, þ.e.a.s. 3 dögum áður en von var á því, að kjaradómurinn kvæði upp úrskurð sinn, sem reyndar varð ekki fyrr en 3. júlí. Svo er ekki nóg með það, að þeir láti við þetta sitja gagnvart ríkinu. Strax eftir uppkvaðningu kjaradóms fer ríkið að gera ráðstafanir til að ráða verkfræðinga til ríkisstofnana á grundvelli kjaradómskjara, ráða þá til sín sem opinbera starfsmenn samkv. l., þannig að þeirra réttarstaða færi eftir l. um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Og í sjálfu sér hefði þetta allt átt að ganga sæmilega auðveldlega fyrir sig. En reyndin varð allt önnur. Stéttarfélag verkfræðinga rís upp og segir, að með þessum ráðningum sé ríkisvaldið að fremja verkfallsbrot, þetta sé algerlega óleyfilegt. Og Stéttarfélag verkfræðinga ræðst í mjög vanhugsaða málssókn fyrir félagsdómi, þar sem það ákærir ríkið fyrir verkfallsbrot og ætlar að reyna með málaferlum að stöðva ráðningu verkfræðinga til ríkisstofnana samkvæmt kjaradómskjörum. Þessi málssókn þeirra mistókst nú, því að dómurinn, félagsdómur, dæmdi ríkinu þetta fyllilega heimilt, eins og kunnugt er. En þegar það lá ljóst fyrir, að ríkið hafði allan rétt í þessum efnum, þá var samt ekki numið staðar, heldur tók Stéttarfélag verkfræðinga upp skæruhernað gagnvart ríkinu, því að ýmsar ríkisstofnanir gripu til þess ráðs, eftir að félagsdómur hafði kveðið upp sinn úrskurð, að auglýsa eftir verkfræðingum, og sumar þeirra fengu eitthvað af verkfræðingum, en hjá öðrum gekk þetta miklu miður, og það var vitað mál, að Stéttarfélag verkfræðinga beitti áhrifum sínum og samtakamætti sínum og ákvæðum sínum á félaga sína til þess að koma í veg fyrir, að þeir sæktu um þessar stöður, þ.e.a.s. með þessu móti var raunverulega tekinn upp skæruhernaður gagnvart ríkisvaldinu, og það má kannske segja, að það sé skiljanlegt og mannlegt, að Stéttarfélagi verkfræðinga hafi fallið það miður, að ýmsir verkfræðingar voru að ráða sig hjá ríkinu sem opinberir starfsmenn, þ.e.a.s. sem menn, sem ekki mættu gera verkfall, og Stéttarfélaginu hafi fundizt, að þar með væri aðstaða þeirra á ýmsan hátt lakari en áður í kjarabaráttunni, þegar þessi hópur manna var kominn þarna undan þeirra kjarasamningum. En það var auðvitað augljóst mál, að það var ekki hægt fyrir ríkisvaldið að láta svona vinnubrögð viðgangast. Og ég tel einmitt, þó að það væri um þessi mál öll hægt að segja margt, að þetta hafi í raun og veru verið undirstaðan að því, að óhjákvæmilegt reyndist, því miður, að grípa til þessarar lagasetningar. Það var það, að Stéttarfélag verkfræðinga hafði lagt þá áætlun að brjóta hin nýju kjaradómskjör, brjóta það kerfi á bak aftur, alveg eins og þeim tókst fyrir 10 eða 12 árum eða hvað það er langt. Þá gegndi allt öðru máli en nú, og það þarf auðvitað ekki að lýsa því, á meðan ríkisstofnanir bjuggu við alvarlegan verkfræðingaskort, hvaða afleiðingar það hafði fyrir allar framkvæmdir í landinu.
Ég vil að lokum leyfa mér að vona, að Stéttarfélag verkfræðinga sé nú reynslunni ríkara og það sjái, að með því framferði, sem það viðhafði gagnvart ríkisvaldinu á s.l. sumri, var það að reisa sér hurðarás um öxl. Og ég vænti þess, þegar þessi lög eru úr gildi fallin, að þá muni viðhorf þeirra breytast í þessum málum og þeir ekki framar reyna að koma í veg fyrir það, að ríkið ráði til sín verkfræðinga, eins og menn úr öllum öðrum stéttum, sem það ræður sem opinbera starfsmenn og eru þá að sjálfsögðu komnir út fyrir það svið, sem kjarasamningar sambærilegra stéttarfélaga á frjálsum vinnumarkaði ná til. Þegar verkfræðingasamtökin átta sig á þessu, þá tel ég, að þegar þessi lög eru úr gildi fallin, þá muni vera miklu ríkari ástæða til þess að vænta friðar og sátta í þessum málum.