11.05.1964
Efri deild: 90. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1449 í B-deild Alþingistíðinda. (1104)

36. mál, lausn kjaradeilu verkfræðinga

Helgi Bergs [frh.]:

Herra forseti. Ég hafði aðeins hafið þessa ræðu mína, áður en fundi var frestað og þetta mál látið bíða, til þess að ég gæti fengið að flytja ræðu mína, meðan hæstv. ráðh. væri í d. Ég hafði gert grein fyrir því, að ég hef ekki áður tekið þátt í umr, um þetta mál við fyrri umr. þess, og ég ætla raunar ekki heldur núna að halda langa ræðu um þetta mál. Kemur það bæði til, að málið er mér nokkuð skylt, og líka hitt, að mér hefur verið það ákaflega kært, að aðrir hv. dm. hafa tekið upp hanzkann í þessu máli, og bæði hv. 3. þm. Norðurl. v. og hv. 9. þm. Reykv. hafa gert það myndarlega, og mér virtist, að efnislega hefði hv. 3. þm. Norðurl. v. gert málinu þau skil, að frá minni hálfu væri ekki miklu við að bæta. En hins vegar langaði mig til þess að ræða örlítið um meðferð málsins við hæstv. ráðh.

Þetta mál er um staðfestingu á brbl., sem gefin voru út í ágústmánuði í fyrra, og það var, eins og venja er til, lagt fyrir Alþingi strax í upphafi þessa þinghalds og kom fyrir Nd. í októbermánuði, geri ég ráð fyrir. Samt er ekki enn búið að afgreiða þetta frv. á neinn veg, og mér sýnist það augljóslega bera því vott, að frv. hafi ekki átt eins greiðan gang gegnum Alþingi og hæstv. ráðh. hefur sennilega vænzt. Mér er líka fyllilega kunnugt um það, að mörgum hv. þm. stjórnarflokkanna er þetta frv. í hæsta máta ógeðfellt. Það kom raunar fram hjá hv. frsm. allshn., hv. 6. þm. Norðurl. e., þegar hann gerði grein fyrir málinu, að hann harmaði það, að það skyldi þurfa að setja lög af þessu tagi. En þar kom hann einmitt að því atriði, sem ég geri ráð fyrir að ýmsum hv. þm. stjórnarflokkanna hafi þótt vera einna erfiðast að komast yfir, en það var það, að auk þess sem þeim var frv. ógeðfellt, munu margir þeirra hafa álitið eins og við, að það væri þarflaust, vegna þess að menn hafa litið svo á, að ef þetta frv. hefur nokkurn tíma gert nokkuð gagn, þá sé það búið að því og eigi ekki eftir að gera það. Mér hefur því virzt, meðan málið hefur verið til meðferðar, að það sé fyrst og fremst metnaðarmál hæstv. ráðh. að fá staðfestingu hæstv. Alþ. á þeim brbl., sem hann gaf út, og hann leggi þess vegna allfast að sínu líði að samþ. þetta frv. og staðfesta þar með brbl. Þessi afstaða hæstv. ráðh. er í sjálfu sér skiljanleg, hún er mannleg, en hún er að mínum dómi ekki eins stórmannleg og helzt hefði verið á kosið.

Hæstv. ráðh. lýsti því yfir fyrr í umr. um þetta mál, að hann væri reiðubúinn að taka á sig óvinsældir af málinu, og er það í sjálfu sér lofsvert, enda ekki til þess vitað, að hann ætli að hafna neinum vinsældum, sem af því kynni að leiða. En mér virðist á hinn bóginn, að það skjóti nokkuð skökku við þessa yfirlýsingu hæstv. ráðh., hvað hann leggur mikið kapp á það, að Alþ. staðfesti þessi brbl., sem hafa þegar gegnt hlutverki sínu til góðs eða ills.

Fyrir réttu hálfu ári, eða tveimur dögum betur, þá var mál ekki óskylt þessu til meðferðar hér í þessari hv. deild. Umr. og atkvgr. um það var lokið við allar 3 umr, í Nd., og 3 umr. og 2 atkvgr. var lokið hér í þessari hv. deild. Það var aðeins eftir ein atkvgr. hér í deildinni, til þess að það mál yrði að lögum. Það lá ljóst fyrir þá, að hæstv. ríkisstj. hafði það í hendi sér að fá það frv. samþ. af liði sínu óskiptu þrátt fyrir harða andstöðu okkar stjórnarandstæðinga hér á hv. Alþ. En þá ákvað hæstv. ríkisstj. að fresta þessari seinustu atkvgr. um málið. Málið var tekið út af dagskrá, og síðan hefur það ekki sézt. Þetta var myndarlega gert hjá hæstv. ríkisstj., og þetta var eini þátturinn í því máli að mínum dómi, sem hæstv, ríkisstj. hafði sóma af. Margir stuðningsmenn hennar önduðu léttara við það, að þessi bikar var frá þeim tekinn. Um leið og ég minni á þetta og svo hitt, að hæstv. ráðh. lýsti því yfir hér í gær, að þegar hann undirskrifaði þessi brbl., þá hafi hann talið sig vera að gegna skyldu sinni, eins og hann leit á hana á þeirri stundu, og var reiðubúinn til þess að taka afleiðingunum af því, þá tel ég það ekki stórmannlegt af hæstv. ráðh. að leggja svo mikið kapp á að fá staðfestingu félaga sinna í stjórnarfl. á þessum brbl. eins og hann nú gerir, þegar á það er litið, að brbl. hafa gegnt hlutverki sínu til góðs eða ills, og mun ekki máli skipta, hvort þau hljóta staðfestingu eða ekki. Þess vegna er það áskorun mín til hæstv. ráðh., að hann taki þennan bikar frá flokksbræðrum sínum og þm. hins stuðningsfl. ríkisstj. og að hann hafi svipaðan hátt á og hafður var hér í þessari deild fyrir hálfu ári. Við það mundi hæstv. ráðh. vaxa í virðingu og áliti allra réttsýnna manna. Það eru eindregin og ákveðin tilmæli mín til hæstv. ráðh., að hann lýsi því nú yfir, að hann muni biðja forseta að fresta þessari atkvgr. og taka málið æ dagskrá.