12.05.1964
Neðri deild: 99. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1513 í B-deild Alþingistíðinda. (1117)
36. mál, lausn kjaradeilu verkfræðinga
Forseti (SB):
Umr. um 3. dagskrármálið hafa nú staðið á fimmta klukkutíma að þessu sinni. Samkv. 37. gr. þingskapa segir, að ef umr. dragist úr hófi fram, geti forseti úrskurðað, að ræðutími hvers þm. skuli ekki fara fram úr ákveðinni tímalengd. Ég leyfi mér því að neyta þessarar heimildar og leggja til, að ræðutími verði takmarkaður nokkuð, og treysti því, að hv. þdm. finnist ekki gengið á sinn hlut með því. Ég leyfi mér að leggja til, að ræðutími verði takmarkaður við 10 mínútur, og skoðast það samþykkt, ef enginn mælir því gegn.