05.12.1963
Neðri deild: 25. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1541 í B-deild Alþingistíðinda. (1126)
83. mál, Seðlabanki Íslands
Eysteinn Jónsson:
Hera forseti. Þetta frv. sem hér liggur fyrir um breyt. á seðlabankalögunum, stefnir að því að draga enn þá meira en áður af sparifénu út úr viðskiptabönkunum, sparisjóðunum og innlánsdeildum kaupfélaganna og inn í Seðlabankann til bindingar í honum. Í þessu frv. eru engin ákvæði , sem tryggja að þetta fé verði notað til að lána atvinnuvegunum. Allt bendir þvert á móti til þess, að með aukinni sparifjárbindingu núna eigi að ganga raunverulega lengra en nokkru sinni áður á þeirri braut að draga sparifé landsmanna úr umferð og reyna að komast út úr því öngþveiti, sem orðið er í efnahagsmálunum, með harðvítugum lánsfjársamdrætti. En þá leið tel ég alls ekki þá réttu og ófæra raunar og mun reyna að rökstyðja það síðar í þessari umræðu.
Ég er því að móti þessu frv. og álít að eigi að fella það. Þetta frv. sýnir því miður að mínum dómi að hæstv. ríkisstj. heldur sér enn við sömu aðferðirnar til þess að stjórna, sem hafa gefist fjarskalega illa, eins og öllum landsmönnum er nú vafalítið mun ljósara en áður. Það er enginn vafi á því, að ef hæstv. ríkisstj. fær þessa löggjöf og beitir henni, þá verður mjög þrengt að viðskiptabönkunum, sparisjóðunum og samvinnufélögunum, og við getum ímyndað okkur, hvernig ástatt muni verða um möguleika viðskiptabankanna og sparisjóðanna t.d. til að sinna lífsnauðsynlegustu lánbeiðnum fyrirtækjanna og almennings, þegar búið yrði að binda inni í Seðlabankanum 25% eða ¼ — ekki af innstæðuaukningunni eins og hún verður á hverjum tíma, heldur ¼ af öllum innistæðum þessara stofnana, bæði á sparisjóðsbókum og ávísanareikningum, þegar svo ofan á þetta væri bætt, — og það liggur enginn yfirlýsing fyrir um, að svo verði ekki, — væri bætt, að Seðlabankanum sé falið að ná 15% af aukningu sparifjárins út úr þessum stofnunum til að lána í fjárfestingarlán eða opinber lán á vegum ríkisstj., þegar það bættist svo ofna á , sem vafalaust verður haldið áfram, þá sjáum við hvernig ástatt verður: Fjórði partur af öllu fé, bæði eldri innistæðum og yngri innistæðum, beint í bindinguna og 15% af aukningunni ætti svo að láta inn í Seðlabankann, til þess að hanngæti annazt opinberar lánveitingar til ríkissj.
Mér kæmi ekkert á óvart, þó að það sýndi sig, að þetta yrði í raun óframkvæmanlegt, því að það gæti vel farið svo, að ýmsar af þessum stofnunum, viðskiptabönkum eða sparisjóðum, yrðu að láta alla sparifjáraukninguna inn í Seðlabankann og yrðu að draga nær alveg saman — og jafnvel hætta um skeið kannske sumar, þar sem mest væri þjarmað að, allri venjulegri útlánastarfsemi, a.m.k. gæti hæglega svo farið, ef drægi úr sparifjármyndun í landinu.
En með þessu er þó ekki öll sagan sögð um það, hvernig þetta frv. horfir við þessum stofnunum, þessum þjónustustofnunum almennings, því að ofan á þetta á svo Seðlabankinn að fá einn allra stofnana í landinu heimild til að gefa út gengistryggð verðbréf, verðbréf sem eru tryggð fyrir verðfalli, og Seðlabankinn á að fá í því sambandi ótakmarkaða heimild. Þegar þetta allt er tekið til athugunar og svo enn eitt atriði í viðbót, sem sé að ef lánasamdrátturinn verður framkvæmdur, eins og gert er ráð fyrir í þessu frv. fer sífellt meira af umráðafé manna utan við sjálfa bankanna, utan við viðskiptabankana, utan við sparisjóðina, þá sjáum við, hvernig horfir fyrir þessum stofnunum, ef þessi stefna frv. verður raunverulega framkvæmd.
Ég tel að sú stefna, sem frv. markar, sé óskynsamleg, muni ekki bera þann árangur sem hæstv, ríkisstj. vonast eftir, og muni í raun og veru reynast óframkvæmanleg. Þegar til kemur, en samt gera mikið tjón, á meðan reynt verður að framkvæma hana.
Ég tel, að sú stefna, sem frv. markar, sé óskynsamleg, muni ekki bera þann árangur sem hæstv. ríkisstj. vonast eftir, og muni í raun og veru reynast óframkvæmanleg, þegar til kemur, en samt gera mikið tjón, á meðan reynt verður að framkvæma hana.
Samkv. upplýsingum hæstv. viðskmrh. — og það hefur raunar komið fram annars staðar — mun bundna spariféð, sem dregið hefur verið úr umferð inn í Seðlabankann, að því er stjórnin segir til þess að stuðla að jafnvægi í efnahagsmálum, nema 741 millj. kr. En mér telst svo til, og það verður þá leiðrétt, ef þar er einhver misskilningur á ferðinni, að ef þetta frv. hefði verið framkvæmt nú undanfarið og dregið inn í Seðlabankann út þessum stofnunum eins og frv. gerir ráð fyrir að megi gera mest, þá hefðu þessar innistæður getað verið komnar upp í 1329 millj. Mér reiknast svo til, að 25% af sparisjóðsreikningunum og innlánsreikningunum í bönkunum nemi 1329 millj., og er það fyllilega 80% meiri binding en sú, sem farmkvæmd hefur verið undanfarið, og hefur þó flestum þótt nóg um.
Nú er það látið í veðri vaka í þessu sambandi að auka eigi inndráttinn á sparifénu til að auka endurkaup á afurðavíxlum, og það sé ekki hægt að auka slík endurkaup nema með því að draga sparifé á móti inn í Seðlabankann. En ég álít, að þetta muni í reyndinni alls ekki verða framkvæmdin, þetta verði ekki gert nema að litlu leyti, heldur sé hér hreinlega á ferðinni frv. til að tryggja frekari raunverulegan samdrátt og það fé, sem dregið verður inn, verði ekki lánað út, nema þá að einhverju takmörkuðu leyti. En ef hæstv. viðskmrh. telur ósanngjarnt að álykta slíkt, og ef það er með öllu ástæðulaust, vil ég, að hann lýsi yfir því skýrt og skorinort við umr., að allt það fé, sem dregið verður inn frá gildistöku þessara laga í Seðlabankanum og bundið þar, verði lánað aftur út til atvinnuveganna í afurðalánum. Eða a.m.k. skora ég á hann að lýsa yfir því til að fyrirbyggja allar getsakir, að það fjármagn, sem dregið verður til viðbótar inn í Seðlabankann, frá því að þetta frv. öðlast gildi, verði lánað atvinnuvegunum í auknum afurðalánum, þau verði hækkuð, afurðalánin, sem því svarar, frá því, sem þau eru nú. Ef hæstv. ráðh. lýsir þessu skýrt og skorinort yfir eða setur ákvæði um þetta inn í frv., þá má segja, að með þessu frv. sé ekki aukinn lánasamdrátturinn frá því, sem hann hefur verið. En ef hæstv. ráðh. lýsir ekki yfir þessu og í frv. verða engin ákvæði, sem tryggi það, að þetta verði lánað út atvinnuvegunum, þá er ekki hægt að álykta annað — enda ber allur málatilbúnaðurinn það með sér — en hér sé verið að stíga risaskref í þá átt að auka lánasamdráttinn frá því, sem hann hefur verið.
Mér þykir ástæða til að ætlast til þess, að hæstv. ríkisstj. hafi gert sér grein fyrir því, hvernig hún ætlar að nota þetta frv., ef það verður að lögum, því að raunverulega er það hún, sem stjórnar Seðlabankanum algerlega. Seðlabankinn er í framkvæmdinni ekkert annað en skrifstofa í stjórnarráðinu, og ég er í sjálfu sér ekkert að finna að því, því að stjórnin verður að mínu viti að hafa talsvert mikið vald á Seðlabankanum. En þess vegna tala ég hér ekki um stjórn Seðlabankans í þessu sambandi — það tekur því alls ekki — eða fyrirætlanir hennar. Ég býst ekki við, að það skipti miklu máli í þessu sambandi, hvað bankastjórar hans segja, nema að því leyti sem þeir eru ráðunautar ríkisstj. Ég tala því hér um ríkisstj., og ég geri ráð fyrir því, að ríkisstj. hafi gert sér grein fyrir því, hvernig hún ætlar að framkvæma þessi lög. Og því spyr ég hæstv. viðskmrh. og bið hann að leysa úr því, vegna þess að það er ákaflega þýðingarmikið í sambandi við þetta mál allt saman: Hvað ætlar ríkisstj. að auka mikið lánin út á sjávarafurðir úr Seðlabankanum, ef þetta frv, verður að lögum? Það er núna lánað úr Seðlabankanum eða endurkeyptir víxlar sem svara 55% út á sjávarafurðir, sumir segja nú raunar 53% út á sjávarafurðir, en ég spyr: Hvað er ætlunin að hækka þessa prósentu mikið, og hvað mundi það t.d. vera mikið fé, sem Seðlabankinn þyrfti til þess að hækka þessa prósentu upp í skulum við segja 70% eða 80%? En aðalatriðið er: Hvað ætlar ríkisstj. að hækka endurkaupaprósentuna? Hvað ætlar hún að auka endurkaupin á afurðavíxlunum út á sjávarafurðirnar? Ég ætlast til þess, að ríkisstj. hafi alveg gert sér grein fyrir þessu, og það er mjög þýðingarmikið atriði í sambandi við sjávarútveginn og fyrir marga, að hve miklu leyti hægt er að treysta því, að hér sé dregið inn fé til að lána það út aftur atvinnuvegunum eða að hve miklu leyti hér á að auka sjálfa sparifjárfrystinguna eða raunverulegan samdrátt í lánakerfinu.
Og ég spyr hæstv. ráðh.: Hvað ætlar ríkisstj. að auka mikið lán út á landbúnaðarafurðir? Þessi lán eru núna 53% út á birgðir, — það er nú stundum talað um 55%, en þau eru ekki nema 53%. Hvað ætlar hæstv, ríkisstj. að auka mikið lán úr Seðlabankanum út á landbúnaðarafurðir, ef hún fær þetta frv. samþykkt um að draga enn meira inn í Seðlabankann? Þessari spurningu er líka ákaflega nauðsynlegt að fá svarað. Það er nauðsynlegt fyrir þingheim og alla að fá þessari spurningu svarað, og þá einnig, hvað hæstv. ríkisstj. ætlar að auka þau lán, sem eru lánuð fyrir fram út á landbúnaðarafurðirnar, því að nokkuð af lánum hefur verið lánað á afurðavíxlum fyrir fram út á landbúnaðarafurðirnar, en þau lán hafa verið í vaxandi mæli skorin við nögl. Þau hafa raunverulega verið skorin niður, því að þau hafa verið látin standa í krónutölu, fyrirframlánin, og eru látin standa enn þrátt fyrir miklar verðhækkanir, þannig að rekstrarvörukaupalánin út á landbúnaðarafurðirnar, sem hafa verið lánuð frá því í marz og þangað til í okt., hafa verið skorin stórkostlega niður undanfarið. Þetta munar mjög stórum fjárhæðum fyrir landbúnaðinn, og það er komið þannig núna, að það er mjög erfitt undir þessum lánaniðurskurði að rísa og mjög vandséð, hvernig landbúnaðurinn muni geta staðið undir kaupum á rekstrarvörum á næsta vori, ef þessi lán verða ekki aukin stórlega frá því, sem nú er, a.m.k. í það horf, sem þau voru fyrir „viðreisn“, og þó meira verða menn að búast við, miðað við þær yfirlýsingar, sem þessu frv. fylgja um, að það sé flutt til að auka raunverulega afurðalánin úr Seðlabankanum. Ég vænti ekki, að það séu í þessu þeir hrekkir af hendi hæstv. ríkisstj., að þegar hún talar um að auka lánin, þá eigi hún bara við þá aukningu, sem leiðir af sjálfu sér af aukinni framleiðslu með sömu lánaprósentu og áður. Það væru hrekkir að nota slíkt orðalag, og ég ætla hæstv. ríkisstj. það ekki, og því ætla ég, að hún hljóti að hafa gert ráð fyrir einhverri aukningu á afurðalánunum í sambandi við þetta mál, bæði til landbúnaðar og sjávarútvegs, og þá er það mjög þýðingarmikið fyrir hv. þingheim og alla, sem þessi mál snerta, og það eru mjög margir, að fá að heyra frá hæstv. ráðh., hversu mikið á að auka þessi lán.
Þá væri einnig fróðlegt að fá að vita, hverjar eru fyrirætlanir hæstv. ríkisstj. varðandi lán til iðnaðarins í þessu sambandi. Það er dálítið vikið að þeim fyrirætlunum í frv., en ekki gerð nánari grein fyrir þeim. En ég geri ráð fyrir því, að hæstv. ríkisstj. hafi gert um það einhverja áætlun, að hve miklu leyti hún vill, að Seðlabankinn endurkaupi vöruvíxla af iðnaðinum eða láni iðnaðinum raunveruleg rekstrarlán.
Ef hæstv. ráðh. vildi gefa þessar upplýsingar, mundi fást miklu skýrari mynd af málinu en áður, og þá mundi koma í ljós, að hve miklu leyti hér er stefnt að miklum lánasamdrætti raunverulega eða að hve miklu leyti stefnt er að því að ná í sparifé til þess að auka raunverulega lánin út á afurðir landsmanna. En ég fyrir mitt leyti er ekki í neinum vafa um það, því miður, af því, sem hefur komið fram hjá hæstv. ráðh. og svo hæstv. ríkisstj., að ástæðan til þess, að nú er farið að tala um, að bundna féð eigi að standa á móti afurðavíxlum, er að verulegu leyti tilraun til þess að gera sjálfa frystinguna og lánasamdráttinn eitthvað vinsælli en áður var, og þess vegna er ég ekki í neinum vafa um, að það er raunverulega stefnt að því með þessu frv. að fá aðstöðu til þess að auka lánasamdráttinn í heild, þótt um annað sé talað jafnframt.
Nú kemur spurningin, hvort hægt er að leysa þessi mál, nauðsyn atvinnuveganna fyrir meiri afurðalán, meiri rekstrarlán, á einhvern annan hátt en með því að draga enn meira af sparifé landsmanna inn í Seðlabankann. Um þetta er ágreiningur, því að hæstv. ráðh. segir, að það sé alls ekki hægt, og manni skilst, að frá hans sjónarmiði séu öll víxlendurkaup, endurkaup á afurðavíxlum í Seðlabankanum, gersamlega óheilbrigð og megi í raun og veru alls ekki eiga sér stað, nema á móti standi beinhörð innstæða frá viðskiptabankanum og sparisjóðunum og innlánsdeildum kaupfélaganna, sem sagt beinhörð innstæða á sparifé landsmanna. Hún verði að standa á móti. Öll önnur afurðaendurkaup séu með öllu óeðlileg og setji efnahagskerfið úr skorðum, og á því sé þessi nýja stefna byggð. Þetta er gersamlega ný kenning og nýr þáttur í þessari nýju stefnu, sem núv. ríkisstj. hefur tekið upp. En þá kemur spurningin: Geta aðrir bent á aðra leið en þá að draga inn sparifé til að auka afurðavíxlendurkaupin? Til þess að átta sig á svari við þessari spurningu er alveg lífsnauðsynlegt að gera sér grein fyrir því, hvernig þessum málum var háttað, áður en sú stefna var tekin upp, sem nú er fylgt í þessum málum, hvernig hún var, og bera hana síðan saman við þá stefnu, sem nú hefur verið fylgt um skeið, og svo ástandið, eins og það var og eins og það er, reyna með þessu að átta sig á því, hvernig þetta hefur þróazt og hvort þessi nýja kenning er rétt, að það eigi ekki að koma til mála, sé ekkert vit í því, að Seðlabankinn endurkaupi afurðavíxla, nema á móti standi beinharðir spariskildingar almennings í landinu.
Í þessu sambandi er fyrst að rifja upp, að áður en lánasamdráttarpólitíkin var tekin upp, var sá háttur á hafður, að Seðlabankinn endurkeypti afurðavíxla út á sjávarafurðir sem svaraði til 67% af verði þeirra, og þetta hefur verið skorið niður í 55% og það er raunverulega hreinn lánasamdráttur í bankakerfinu, landbúnaðinum var lánað sem svaraði 67%, og það hefur verið skorið niður í 55 eða öllu heldur 53% af skilaverðinu og þ6 í raun og veru mun meira, vegna þess að grundvelli fyrir fyrirframlánunum hefur verið breytt stórlega þar til viðbótar. Þar hefur því líka átt sér stað raunverulegur niðurskurður á lánveitingum í bankakerfinu. Þarna hefur því átt sér stað lánasamdráttur sem þessu svarar: Á sama tíma sem endurkaupunum hjá Seðlabankanum var hagað á þessa lund, þ.e.a.s. miðað við 67%, var ekkert af sparifénu dregið inn í Seðlabankann, heldur yfirleitt höfð sú stefna, að bankarnir lánuðu spariféð út, það var haft í umferð í landinu jafnhliða þessu fjármagni, sem út úr Seðlabankanum kom út á afurðirnar. Þetta var sú stefna, sem hér var fylgt mjög lengi og allir töldu í raun og veru sjálfsagða. Ég átti lengi við þessi mál, og þá heyrði maður aldrei annað, m.a. frá hagfræðingum, en að þetta væri talið eðlilegt og af þessu gæti ekkert tjón stafað fyrir neinn, þetta væri eðlilegt fyrir fjármagnsfátæka þjóð, það yrði að reyna að koma veltu á hlutina með því að haga þessu svona. Sem sagt, spariféð var yfirleitt lánað út og endurkaupunum hagað á þessa lund.
En svo þegar núv. stjórn tekur við og fær sumpart nýja ráðunauta í þessum málum, þá er sagt, að þetta sé undirrót hinnar ferlegustu verðbólgu í landinu og dýrtíðarþróunar og til þess að fá jafnvægi í þjóðarbúskapinn og stuðla að stöðugu verðlagi og jafnvægi í efnahagsmálum verði að breyta þessu og draga stórkostlega inn þessi óheilbrigðu lán. Það verði að færa endurkaupin úr 67% niður í 55%, bæði fyrir sjávarútveg og landbúnað, og þó enn meira í landbúnaðinum. Einnig verði að binda verulegan hluta af sparifénu þar til viðbótar inni í Seðlabankanum til að halda fénu úr umferð, því að yfirleitt hefur verið stefnt að því að halda því fé úr umferð, sem dregið hefur verið inn í Seðlabankann, raunverulega að öllu leyti, eins og staðfest var, að því er ég bezt man, í ræðu hæstv. viðskmrh. Þetta allt samanlagt átti sem sagt að vera allra meina bót. Þetta væri einn aðalþátturinn í stjórnarstefnunni nýju og ætti að tryggja jafnvægi í efnahagsmálunum, stöðuga verðlagsþróun, draga úr verðbólgunni.
En nú skulum við athuga útkomuna. Hér er ekki um neitt smámál að ræða. Hér er um það að ræða, hvað óhætt er að sigla djarft í þessum efnum varðandi rekstrarlán t.d., fyrirgreiðslu fyrir almenning í lánum og rekstrarlán fyrir atvinnuvegina. Og hvernig hefur svo þróunin orðið? Ég hef ekki aðstöðu til þess að gefa um það tæmandi yfirlit, en ég ætla aðeins að drepa hér á nokkra þætti sem sýna það. Samkv. þessu hefði vitaskuld átt að verða miklu minni dýrtíðarþróun á síðara tímabilinu, eftir að þessi nýja lánamálastefna var tekin upp, því að þetta var á menn lagt, að því er mönnum hefur skilizt, til að koma á jafnvægi í efnahagsmálum. Það hefði því átt að vera ólíkt betur ástatt að því leyti en á fyrra tímabilinu, þegar ógætilega var farið í lánamálunum, eins og hæstv. viðskmrh. lagði talsvert mikla áherzlu á. en ég bendi á dýrtíðarþróunina. á árunum 1954–1959, en á þeim árum taldi hæstv. viðskmrh. sérstaklega ógætilega farið í lánamálum yfirleitt, og þá var verið að byggja upp útlánakerfið á landbúnaðarvörur og auka nokkuð afurðalánin, — það er alveg rétt hjá honum, — sem sagt hann taldi alveg sérstaklega skaðlega og ógætilega að farið á þessum árum. Dýrtíðarvísitalan hækkaði á þessu tímabili úr 158 stigum í 121 stig, eða um 54 stig. Þetta var náttúrulega talsverð dýrtíðaraukning. Ég vil ekki segja að víslitalan gefi alveg nákvæma mynd af dýrtíðarþróuninni, en hún er þó það skásta, sem við höfum til að gefa hugmynd um dýrtíðarþróunina, og vænti ég að það sé ekki ágreiningur um það, þótt margt ljótt megi um hana segja. Þá mundi þetta ef það bæri gert til að gera myndina skýrari að taka meðaltal, vera hækkun upp á 6.8% að meðaltali á ári á þessu tímabili eftir þessum mælikvarða, eða samtals 34% hækkun á vísitölunni á þessum 5 árum, þegar svona djarflega var siglt í lánamálum að dómi hæstv. viðskmrh. En ef við svo tökum aftur síðara tímabilið, eftir að farið er að nota lánsfjársamdráttinn, afurðalánin stórskorin niður til framleiðslunnar og verulegur hluti af sparifjáraukningunni lokaður inni og ekki leyft að koma í umferð, þá verður myndin þannig, eftir því sem ég bezt fæ séð. — og þetta verður þá leiðrétt, ef mér skeikar, en það held ég geti alls ekki verið, því að ég hef tekið hér inn opinberar tölur, — þá er þróunin þessi: Frá því í jan. 1960, að sett er talan 100, þangað til í okt. í haust hækkar vísitalan um 44 stig, sem mun jafngilda 86 stigum eftir gamla mælikvarðanum. Það skilst mér vera 44 stiga hækkun eða 88 eftir gamla laginu, á tæplega 4 árum eða 44% hækkun á framfærsluvísitölunni á þessum tæplega 4 árum. En ef maður til þess að glöggva sig skiptir enn í meðaltal. Þá er þetta um 11% dýrtíðaraukning að meðaltali á ári, en á fyrra tímabilinu var dýrtíðaraukningin um 6.8% að meðaltali á ári. M.ö.o.: að verðbólguþróun, ef við eigum að kalla þetta það, eða dýrtíðarþróunin eða dýrtíðarvöxturinn er stórlega miklu meiri en áður á þessu síðara tímabili, eftir að tekin er upp þessi nýja stefna í lánamálum, em átti að vera öruggt lyf til að draga stórlega úr dýrtíðarþróuninni og skapa jafnvægi í efnahagsmálum. Og skapa jafnbægi í efnahagsmálunum. Og það var einmitt sagt, að menn yrður að leggja þetta á sig eða taka á sig þessar búsifjar, sem af því stöfuðu, að rekstrarlán yrður dregin sama og dregin saman lánastarfsemi bankanna, til að fá í staðinn stöðugra verðlag og meira jafnbægi í þjóðarbúskapinn. En þannig hefur þetta farið. Þetta er öruggur mælikvarði á, að þessi samdráttur í lánakerfinu, sem hæstv. ríkisstj. hefur beitt sér fyrir, hefur alls ekki verkað á þann hátt sem gert var ráð fyrir í upphafi.
Ég gat um áðan, hvaða stefna í lánamálum hefði verið höfð áður, og ég vil segja sem mína skoðun, að hægt sé að auka endurkaup Seðlabankans á afurðavíxlum upp í það, sem áður var, og gera iðnaðinum úrlausn, og það sé því fremur hægt að gera það núna sem Seðlabankinn hefur dregið inn svo mikið sparifé sem hér hefur verið upplýst, því að hann hefur dregið inn nú þegar af sparifénu um 741 millj. Bankinn stendur því mun betur að vígi nú en áður, vegna þess að þetta sparifé hefur verið dregið inn í hann.
Ég mundi ekki telja það á nokkurn hátt óheilbrigt að taka upp þessa stefnu á ný í lánamálunum og hjálpa þannig til að leysa að nokkru leyti þann stórkostlega vanda, sem atvinnuvegirnir eru nú í vegna skorts á ódýru rekstrarfé, jafnhliða því sem sjálfsagt væri að lækka vextina á þessum lánum, ein og ég hef margoft áður bent á. Að mínu viti nær það þess vegna engri átt að fara að draga nú enn meira af sparifé landsmanna inn í Seðlabankann undir því yfirskini, að það þurfi að gera það til að auka afurðalánin. Það er engin nauðsyn á að gera það til þess. Það er hægt að auka afurðalánin. Það er engin nauðsyn á að gera það til þess. Það er hægt að auka afurðalán upp í það, sem þau voru, án þess að gera nokkrara slíkar ráðstafanir.
Það er ekki hægt að slíta einstök atriði í þessum málum svona út úr samhengi, ein sog mögum hættir til að gera, og segja , að lánasamdráttur sé einhlítt úrræði til að bæta úr jafnvægisskorti í efnahagsmálunum. Ef menn bíta sig í þess háttar án þess að líta á samhengið, þá fer illa, og það mun vafalaust fara áfram á þessari braut og herða enn lánasamdráttinn. Mun ég sýna fram á það síðar í þessari ræðu, hvað ég held, að af því muni leiða. (Forseti: Ég vil spyrja hv. þm., hvort hann óski eftir að ljúka ræðu sinni eða fresta henni?) Ég á talsvert mikið eftir, sjálfsagt hálftíma eða svo.[Frh.]