20.04.1964
Neðri deild: 81. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1592 í B-deild Alþingistíðinda. (1139)

83. mál, Seðlabanki Íslands

Frsm. meiri hl (Matthías A. Mathiesen):

Herra forseti. Hv. fjhn. þessarar hv. d. hefur haft frv, til l. um breyt. á l. nr. 10 frá 29. marz 1961, um Seðlabanka Íslands, til meðferðar, 83. mál þessa þings. Eins og fram kemur í nál. á þskj. 475, varð n. ekki sammála um afgreiðslu málsins, og meiri hl. skilar áliti og mælir með því, að frv. verði samþ. óbreytt, en mínni hl. hefur skilað séráliti, þeir Einar Ágústsson og Skúli Guðmundsson.

Þegar þetta frv. var hér til 1. umr., gerði hæstv. viðskmrh. mjög ýtarlega grein fyrir efni þess, og sé ég því ekki ástæðu til að fjölyrða um frv. Ég vil þó í örfáum orðum lýsa þeim sjónarmiðum, sem komu fram af hálfu meiri hl. og eru þess valdandi, að hann mælir með því, að frv, verði samþ. óbreytt.

Lög nr. 33 1957 höfðu inni að halda ákvæði, þar sem Seðlabanka Íslands var heimilað í reglugerð að kveða svo á, að viðskiptabankar og sparisjóðir yrðu skuldbundnir til að eiga inni á bundnum reikningi í Seðlabankanum ákveðinn hundraðshluta af því sparifé, sem þeir hefðu að geyma. Þetta var nýmæli í l. þá, og segir þar í grg:, að svo þýðingarmikill þáttur í þróun peningamála landsins geti slík binding verið, að nauðsynlegt sé talið, að stjórn Seðlabankans hafi heimild til slíkrar bindingar. Með l. um Seðlabanka Íslands, nr. 10 1961, er þetta ákvæði tekið inn í l. sjálf og þar ákveðið hámarkið, sem skyldi vera 15% af sparifjárinnstæðum og 20% af innstæðum, sem ávísa má á með tékka. Það, sem hér liggur til grundvallar, er mjög auðsætt. Hér er verið að láta ákveðinn hluta af sparifé landsmanna liggja í Seðlabanka Íslands, einfaldlega til þess að styrkja efnahagskerfið og gera Seðlabankanum kleift að sinna því hlutverki, sem honum er ætlað. Nú á s.l. ári, ég held í októberlok, eru innistæður viðskiptabanka og sparisjóða 756 millj., sem höfðu þá safnazt í Seðlabankanum á þessum árafjölda, eða frá því 1960, að Seðlabankinn beitti þessu ákvæði samkv. reglugerð. Þegar litið er á hag Seðlabankans og það, á hvern hátt gjaldeyrisstaða þjóðarinnar hefur batnað frá því um áramót 1959 og 1960, sýnir sig, að sú stefna, sem tekin er upp hér, að ákveðinn hluti sparifjárins skuli bundinn á reikningi í Seðlabankanum, er rétt. Hitt getur svo ætíð verið matsatriði, hversu upphæðin eða hversu prósentan skal vera há, og hér hefur líka aðeins verið um heimild að ræða, þannig að Seðlabankanum hefur ekki verið skylt að fara í hámarkið undir öðrum kringumstæðum en hann telji það nauðsynlegt.

Með því frv., sem hér liggur fyrir, er farið á leit við hið háa Alþingi, að það samþykki að veita Seðlabankanum heimild til að taka allt að 25% af öllum innistæðum og að það liggi á þessum bundna reikningi. Það er að mörgu leyti skiljanlegt, að þeir aðilar, sem starfa við viðskiptabanka eða sparisjóði, horfi á féð inni í Seðlabankanum, á bundnum reikningi þar, með því hugarfari, að þeir vildu gjarnan fremur hafa það í sínum eigin höndum til útlána. En því hefur verið lýst hér á Alþingi, hver hugsun er fyrir slíku, á þann hátt, að eins og einstaklingar þjóðfélagsins safna sér varasjóði í bönkum og sparisjóðum, þarf að sjálfsögðu þjóðarbúið í heild að safna sínum varasjóði og þá í Seðlabankanum, til þess að hann hafi tækifæri til þess að mynda þann varasjóð, sem við þurfum á að halda, þ.e.a.s. gjaldeyrisvarasjóð.

Eins og ég gat um áðan, er hér aðeins um heimildarákvæði að ræða, og mér er það fullljóst, að Seðlabankinn mun að sjálfsögðu ekki beita hámarksákvæðinu öðruvísi en honum þyki þurfa og getur lækkað það, ef efnahags- og peningamálum landsins hagar þannig. Hingað til hefur hámarkið verið notað, og þegar, eins og ég gat um áðan, athuguð er staða Seðlabankans, sjá menn augljóslega á síðustu 4 árum eða tæplega 4 árum, þar sem gjaldeyrisstaðan hefur batnað hjá Seðlabankanum um 1394 millj. og hann hefur fengið m.a. inn 756 millj. frá bankakerfinu, hversu þýðingarmikið þetta atriði hefur verið, þ.e. að Seðlabankinn fái af hálfu viðskiptabankanna og sparisjóðanna ákveðinn hundraðshluta til að sinna sínu hlutverki.

Það er annar þáttur, sem varðar viðskiptabankana og sparisjóðina, sem ég mundi gjarnan vilja gera hér að umræðuefni. Það eru þau kjör, sem þessar stofnanir hafa búið við, þ.e.a.s. þau vaxtakjör, sem þær hafa búið við hjá Seðlabankanum. Seðlabankinn hefur greitt af bundnum reikningi peningastofnunum 1% fram yfir þá meðalvexti, sem viðkomandi viðskiptabanki eða sparisjóður greiðir. Þetta eru þó töluvert lægri vextir en viðkomandi peningastofnun gæti fengið með frjálsum útlánum og kemur vissulega niður á þeim stofnunum, sem hafa ekki mikið eigið fé til þess að lána. Ég hef hins vegar nú í sambandi við þetta frv. rætt þetta mál við formann seðlabankastjórnar ásamt viðskmrh., og ég ætla, að þetta mál verði tekið til athugunar og vaxtakjörin verði athuguð, þannig að viðkomandi peningastofnanir fái hærri vexti greidda af þeim innstæðum, sem þær eiga á hinum bundna reikningi. Ég efast ekki um, að Seðlabankinn, sem er banki bankanna, skilur og sér, að það fé, sem inn í viðskiptabankana og sparisjóðina kemur, þær stofnanir þurfa að sjálfsögðu að fá þá vexti, sem þær mögulega geta fengið, og Seðlabankinn verður að sjálfsögðu að. taka þar tillit til, og hef ég ekki ástæðu til að ætla annað en þetta mái verði athugað af seðlabankastjórninni og hæstv. ríkisstj.

Ég vildi láta þetta kom hér fram, því að mér er það ljást og ég hef orðið mjög var við það frá þeim mönnum, sem veita peningastofnunum forstöðu, að þeir hafa verið óánægðir með þau vaxtakjör, sem þeir hafa orðið að hlíta af hálfu Seðlabankans, og þess vegna hefur þetta mál nú verið tekið upp.

Síðara atriðið, þ.e.a.s. 2. gr. frv., er um, að Seðlabankanum sé heimilt að stofna til skuldbindinga innanlands með útgáfu verðbréfa, með ákvæði þess efnis, að höfuðstóll eða vextir sé bundið gengi erlends gjaldeyris. Eins og segir í gr., skulu slík verðbréf og vextir af þeim undanþegin framtalsskyldu og skattlagningu á sama hátt og sparifé, sbr. 23. gr. l. nr. 70 1962. Þegar ráðstafanir um efnahagsmál voru gerðar á Alþingi 1960, var reynt að haga ráðstöfunum á þann veg, að þær mundu leiða til mjög aukinnar sparifjáraukningar í landinu. Þetta hefur tekizt mjög vel, og eins og skýrt er frá í Fjármálatíðindum, 3. hefti þessa árs, eru innistæður 1959, 31. des., 2646 millj., en 31. des. 1963 5365 millj: Hér er um að ræða heildarinnistæður í bönkum og sparisjóðum, og þar er um að ræða rúmlega 100% aukningu. Vissulega getur það ástand ævinlega skapazt, að sparifjáraukning verði ekki eins mikil og hér hefur átt sér stað, og að þannig skapizt ástand í landinu, að einstaklingar hafi kannske minni trú á sparifé en þeir hafa haft undanfarin ár. Það er hins vegar grundvallaratriði, að Seðlabankinn, sem fer með þessi mál öll, hafi í sinni hendi tæki til þess að vega á móti, ef þær sveiflur kæmu, og gera ráðstafanir til að skapa á ný trú á sparifé og auka þannig aftur sparifé landsmanna. Þessi heimild, sem Seðlabankanum er ætlað að fá með 2. gr. þessa frv., er gerð með tilliti til þessa; og sýnist mér, að eins og rétt hafi verið 1957 að veita Seðlabankanum heimild til að binda ákveðinn hluta sparifjárins inni í Seðlabankanum vegna ráðstafana í peninga- og efnahagsmálum, þá sé einnig rétt, að Seðlabankinn hafi þessa heimild, enda þótt ástandið í dag gefi e.t.v. ekkí ástæðu til að ætla, að þessu ákvæði þyrfti að beita. Þó getum við gert okkur grein fyrir því, að aukning sparifjárins á s.l. ári, síðustu mánuðina, varð ekki eins mikil og hafði verið að undanförnu og þess vegna þeirri hugmynd skotið upp, hvort ekki væri rétt, að Seðlabankinn hefði heimild til slíkra hluta, eins og hér kemur fram, ef þetta ástand mundi verða á einhvern hátt þannig, að efnahagskerfið biði tjón af.

Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða meira um þetta. Eins og ég gat um áðan, gerði hæstv. viðskmrh. mjög ýtarlega grein fyrir því, á hvern hátt þetta frv. er upp byggt og hvernig því er ætlað að koma að gagni í sambandi við efnahags- og peningamálin. Ég hef sjálfur reifað hér örfá atriði, en meiri hl. n., eins og ég gat um áðan, mælir með því, að frv, verði samþ. óbreytt.