13.12.1963
Efri deild: 27. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 125 í B-deild Alþingistíðinda. (114)
97. mál, ríkisreikningurinn 1962
Frsm. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Ég skal nú ekki lengja þessar umr., enda hefur hæstv. fjmrh. svarað því, sem svara þurfti eftir aths., sem komu fram hjá hv. 1. þm. Norðurl. e. En það er aðeins eitt atriði, sem ég vildi minnast á hér, og það er í tilefni af hugleiðingum hv. þm. og aðfinnslum varðandi 19. gr. fjárlaga. 19. gr. fjárlaga hefur oft verið mönnum ásteytingarsteinn og þá ekki síður að sjálfsögðu 19. gr. eins og hún hefur komið út í ríkisreikningi, vegna þess að í fjárlögum eru ríkisstj. veittar í raun og veru töluvert óbundnar hendur í þessu efni, þar sem er aðeins ein tiltekin fjárveiting til óvissra útgjalda, og undir þann lið koma svo alls konar útgjöld, sem fara nokkuð eftir því, hvernig á hverjum tíma tekst að halda í hemilinn á þeim gjöldum. Það er vitanlega ógerlegt að komast undan ýmsum útgjöldum, sem ekki er gert ráð fyrir í fjárlögum, og ég hygg, að það hafi aldrei neinum hv. þm. dottið í hug. Hitt hefur jafnan verið nokkurt fróðleiksefni, að kynna sér eftir á, hver reyndin hefur orðið um útgjöld í sambandi við óviss útgjöld á 19. gr. Ég verð að segja það, að enda þótt ég sé hv. 1. þm. Norðurl. e. sammála um, að það ber að sjálfsögðu að halda þessum útgjöldum innan eðlilegra marka, en ekki langt umfram fjárlög, þá hygg ég, að sjaldan hafi verið minni þörf á beinum aðfinnslum út af þessari grein heldur en nú og því í rauninni lítil ástæða til að gera hana fremur að umtalsefni en oft á undanförnum árum. Ég skal ekki heldur langt út í þá sálma fara hér. En með hliðsjón af því, sem hv. þm. sagði um, að það væri óhæfilegt, hvað þessi grein hefði farið fram úr áætlun, þá greip ég af tilviljun ríkisreikninginn fyrir árið 1958, og þar sé ég, að í fjárlögum er áætlað til óvissra útgjalda 3.1 millj., en óviss útgjöld hafa orðið 8.4 millj., þannig að sé mikil sök, hvað óviss gjöld hafa nú farið fram úr áætlun, þá virðist þetta vera dauðasök, enda þótt þetta muni að vísu ekki hafa verið banamein þeirrar hæstv. ríkisstj., sem bar ábyrgð á þessum reikningi.
Hv. þm. vildi einnig telja, að það væri óeðlilegur samanburður að bera saman nefndirnar og tölu þeirra, svo sem yfirskoðunarmenn ríkisreiknings hafa gert og hæstv. fjmrh, hér minntist á, og sagði, að í ríkisreikningnum nú væri að finna nýjar aðferðir til þess að fela nefndir, vegna þess að þar væri talað um athugun á hinu og öðru, sem auðvitað væri ekki annað en nefndarstörf, og það auðvitað væri alltaf álitamál, hvað mætti segja að nefnd hefði unnið, hvort tiltekinn maður starfaði sem nefnd eða ekki nefnd. Það má auðvitað segja, að æðimörg störf, ef ætti að fara út í það, væri hugsanlegt að láta nefnd vinna, og mætti þá eins heimfæra þær undir sömu röksemdir, að þar væri verið að fela kostnað, sem hefði vel mátt kalla nefndarkostnað. En það, sem ég tel ástæðu til að benda á í þessu efni, er, að hér er ekkert nýtt á ferðinni. Ef á að fá eðlilegan samanburð í þessu efni, þá verður jafnframt að hafa samanburð um það hvað hefur verið gert í þessu efni áður.
Er það þá svo, að það sé fyrst núna, sem er farið að taka upp þann hátt að nefna öðru nafni en nefndarstörf ýmis störf, sem greidd eru með óvissum útgjöldum á hverju ári, en eru þar ekki flokkuð undir nefndakostnað? Það er auðvitað það, sem skiptir máli, ef á að fá eðlilegan samanburð og komast að raun um, hvort það er rétt, sem hv. þm. hélt fram, að hér væri farið að taka upp nýjung til að fela nefndarstörf. En því fer víðs fjarri. Þetta er nákvæmlega það, sem alltaf hefur verið gert í stórum stíl, og það er gerður annars vegar munur á nefndakostnaði og það flokkað undir vissan lið, en svo er í mörgum greinum öðrum talað um athugun á einu og öðru, sem vitanlega er alveg rétt, að má alveg eins kalla í mörgum tilfellum nefndakostnað. En þessari venju hefur verið fylgt árum saman og þar af leiðandi ekki verið að taka upp neitt nýtt nú til þess að reyna að fela nefndarstörf umfram það, sem áður hefur verið gert. Ég skal aðeins nefna örfá atriði úr ríkisreikningnum 1958. Þar er talað um athugun á afkomu bátaútvegsmanna, athugun í fjármálum Flugfélags Íslands, athugun á fjármálum hafna og rafveitna, athugun á kjördæmaskipun og stjórnarskrá, athugun á lífeyrisréttindum yfirmanna á skipum, athugun á framkvæmdum í raforkumálum, athugun á rekstri báta og togara, athugun á skattamálum í Danmörku, Svíþjóð og Þýzkalandi, athugun á undirbúningi að stofnun vistheimilis fyrir afvegaleiddar stúlkur, athugun á þjóðhagslegu gildi íslenzks neyzluvöruiðnaðar og mörg önnur atriði, sem eru flokkuð undir athugun. (KK: Því var ekki neitað, að þetta væru nefndarstörf.) Var því ekki neitað? (KK: Nei.) Af hverju er þá alveg sérstakur liður í 19. gr., þar sem sagt er: Nefndakostnaður? Það er alveg sýnilegt, að það er ekki átt við, að hitt sé nefndakostnaður, og þetta er nákvæmlega sambærilegt við það, sem hv. þm. var að lesa hér upp áðan úr ríkisreikningnum fyrir árið 1962, þannig að það er hreinlega verið að bera málið villandi á borð með því að halda því fram, að hér sé verið að taka upp einhvern nýjan hátt á. Þetta er nákvæmlega sama og áður hefur verið gert, og af því leiðir, að samanburðurinn á nefndunum er alveg eðlilegur, svo sem hæstv. fjmrh. minntist á. Ég hefði ekki sérstaklega farið að ræða þetta að öðru leyti en því, að mér finnst óviðeigandi að vera að reyna að koma því hér að, að það sé farið að taka upp einhverja nýja starfshætti hér í því skyni að fela nefndarstörf, alveg þvert ofan í það, sem áður hefur verið gert í því efni.