20.04.1964
Neðri deild: 81. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1595 í B-deild Alþingistíðinda. (1140)
83. mál, Seðlabanki Íslands
Frsm. minni hl. (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Eins og hv. frsm. meiri hl., sem síðast talaði hér, gerði grein fyrir, varð ekki samkomulag í fjhn. þessarar hv. d. um afgreiðslu þess frv., sem hér liggur fyrir til umr. En nál. okkar minni hl. liggur ekki fyrir prentað, hefur ekki verið útbýtt, en ég mun þó gera grein fyrir afstöðu okkar til frv. þrátt fyrir þetta, með því að lögð er áherzla á, að þetta mál fái nú afgreiðslu hér, enda þótt nokkur aðdragandi hafi verið að því, eins og kunnugt er.
Það frv., sem hér er til umr., er um breyt. á I. nr. 10 1961, um Seðlabanka Íslands. Eins og hér hefur fram komið, eru aðallega tvær breytingar ráðgerðar frá núgildandi ástandi í frv, þessu. Sú fyrri lýtur að því, að innlánsstofnanir skuli eiga fé á bundnum reikningi í Seðlabankanum, og er það nýmæli, að í l. er nú gerð grein fyrir því, í hvaða skyni svo er fyrir mælt. En í 1. gr. frv. segir, að megintilgangur þessarar innlánsbindingar sé að afla fjár frá bankakerfinu í heild til að standa undir lánveitingum Seðlabankans innanlands, þ. á m. endurkaupum afurðavíxla. Þá segir enn fremur í 1. gr. frv., að innistæðubinding megi hæst nema 25% af heildarinnstæðufé hjá hverri stofnun.
Hin breytingin er fólgin í því, að í 2. gr. frv. ér lagt til, að Seðlabankanum skuli heimilt að stofna til skuldbindinga innanlands með útgáfu verðbréfa með ákvæðum þess efnis, að höfuðstóll og/eða vextir sé bundið gengi erlends gjaldeyris og skuli slík verðbréf og vextir af þeim undanþegin framtalsskyldu og skattlagningu á sama hátt og sparifé. Hér er um veigamiklar breytingar að ræða, sem miða að því að draga enn úr því fjármagni, sem viðskiptabankarnir og sparisjóðirnir í landinu hafa yfir að ráða, en þeirra kostur hefur, sem kunnugt er, mjög mikið verið þrengdur á undanförnum árum. Innstæðubindingin hefur verið gildandi undanfarin 4 ár, og hefur mikið fé verið á þann hátt tekið undan ráðstöfunum bankanna og flutt í Seðlabankann. Eru nú í vörzlu Seðlabankans um s.l. áramót 785 millj. kr., sem aflað hefur verið á þennan hátt. Nú stendur til að auka enn hlut Seðlabankans með því að hækka hámark innstæðubindingar upp í 25% af öllu innistæðufé, en reglurnar hafa sem kunnugt er að undanförnu verið þær, að innlánsstofnanir hafa orðið að færa á bundna reikninginn 25% af sparifjáraukningu frá mánuði til mánaðar. En sá öryggisventill hefur þó verið þarna, að innstæðubinding má samkv. gildandi lögum ekki fara fram úr 15% af sparifjárinnstæðum og 20% af veltiinnlögum, þ.e. þeim innstæðum, sem ávísa má á með tékka. Auk þessa hefur ríkisstj. samið við bankana og einhverja af stærri sparisjóðunum um það, að þeir skyldu kaupa ríkisskuldabréf fyrir 15% af innstæðuaukningunni, eða eins og segir í umsögn Iðnaðarbankans, sem lögð hefur verið fram: „Bindiskyldan var lækkuð frá 1. jan. 1963 í 25%, en um sama leyti urðu bankarnir við þeim tilmælum ríkisstj., er nálguðust valdboð, að skuldbinda sig til þess að kaupa íbúðarlánabréf fyrir 15% aukningarinnar.“ Þannig fara nú 40 kr. af hverjum 100, sem við bætast, til ráðstöfunar ríkisvaldsins í einni eða annarri mynd. Og þessa skerðingu á enn að auka til mikilla muna, þar sem nú á að taka fyrir það, að nokkur stofnun geti notið góðs af þeim takmörkunum; sem í seðlabankalögunum eru.
Ekkert kemur fram í grg, frv. eða ræðum hæstv. viðskmrh. hér við 1. umr., sem þó hafa verið bæði langar og að ýmsu leyti ýtarlegar, sem gefi ástæðu til að ætla, að slakað verði á kvöðinni um kaup bankanna á ríkisskuldabréfum. Mundi þess þó sjálfsagt vera getið, ef slíkt stæði til, enda er um miklar fjárhæðir þar að ræða. Þá er heldur ekkert ,að finna um það, á hvern hátt þessum málum verði hagað í framkvæmd, en þar koma vitanlega ýmsar leiðir til greina og þær svo misjafnar, að óhugsandi er, að hv. alþm. geti í rauninni tekið afstöðu til frv. án þess að fá nákvæmar upplýsingar um þau efni. Samkv. frv. er ekkert, sem bannaði Seðlabankanum, eftir að frv. væri orðið að lögum, að ákveða, að fyrir einhvern tiltekinn tíma skyldu bankar og sparisjóðir hafa flutt 1/4 hluta af öllu innstæðufé sínu til Seðlabankans. Heildarspariféð var um s.l. áramót 5364.9 millj. kr. 25% af því er 1341.2 millj. kr. Bundið fé var á sama tíma 785.5 millj. kr. Ef l. yrðu framkvæmd svona, mundi það þýða, að flytja þyrfti 555.7 millj. kr. úr viðskiptabönkunum og sparisjóðunum yfir í Seðlabankann. Slík blóðtaka yrði bankakerfinu algerlega um megn og mundi gera viðskiptabankana alveg ófæra um að gegna hlutverki sínu. Nú vil ég ekki segja, að þetta standi til, og hæstv. viðskmrh. hefur sagt hér við umr., að framkvæmdin muni ekki verða á þennan hátt. En í frv. er ekkert, sem bannar, að þannig verði farið að, og aths. segja heldur ekkert um þetta. Þar segir ekkert um það, hversu fljótt ríkisstj, ætlar að ná þessu marki, að 25% verði bundin, en slíkt skiptir meginmáli og er alveg nauðsynlegt að fá að vita við afgreiðslu málsins hér á hv. Alþingi. Hver á bindingarprósentan af innstæðuaukningunni að verða eftir breytinguna eða á hún kannske ekkert að breytast eða á að hætta að miða bindinguna við aukningu sparifjárins, við aukningu innstæðnanna? Við þessum spurningum á frv. ekkert svar, aths. þegja, og hæstv. viðskmrh. hefur ekki upplýst þetta. Hér eru þó mikilvægar forsendur fyrir því, hver afstaða manna til frv. verður, og alveg nauðsynlegt, að þessi atriði verði tekin til rækilegrar athugunar í sambandi við meðferð málsins hér.
Þá er tekið upp það nýmæli, að inn í l. er felld ákvörðun um það, í hvaða tilgangi skuli nota það fé, sem safnast í Seðlabankann með þessum hætti. Tilgangurinn er samkv. frv. að afla fjár til að standa undir lánve3tingum Seðlabankans innanlands, þ. á m endurkaupum afurðavíxla. Hér kveður við nýjan tón í rökstuðningi, þar sem fram undir þetta hefur því síður en svo verið haldið fram, að bundna féð skyldi endurlánað. Frv. segir þó ekkert um það, hversu mikið eigi að auka endurkaup afurðavíxlanna. Hver verður hundraðshluti endurkaupanna hjá sjávarútvegi t.d. og landbúnaði? Þessir atvinnuvegir stynja undan rekstrarfjárskorti, og þeim er vissulega nauðsyn á að fá lagfæringu. Eða í öðru lagi, á t.d. að framkvæma það nú, sem Alþingi hefur fyrir löngu samþykkt í formi þál., að endurkeyptir verði víxlar iðnaðarins? Þessi atriði hafa ekki verið upplýst hér á hv. Alþingi til hlítar, enda þótt ákveðnum fsp. þar að lútandi hafi verið beint til hæstv. ríkisstj, við 1. umr. málsins. Svör við þessum atriðum skipta þó meginmáli, vegna þess að án þess, að þetta liggi fyrir skírt og ótvírætt, er engin leið að gera sér grein fyrir áhrifum frv., ef að lögum verður, á afkomu þessara höfuðatvinnugreina þjóðarinnar, því að fyrirsjáanlegt er, að viðskiptabankarnir verða að miklum mun minna megnugir að veita nauðsynlega fyrirgreiðslu en þeir eru nú, þegar í framkvæmd verða komnar þær ráðstafanir, sem frv. fjallar um. Hér er að mínum dómi afar þýðingarmikið atriði, og ég vil leyfa mér að ítreka enn þær fsp., sem bornar hafa verið fram um þetta atriði.
Í aths. með frv. segir, að viðskiptabankarnir eigi erfitt með að sjá atvinnuvegunum fyrir viðunandi rekstrarlánum, enda nýtur sjávarútvegurinn svo að segja rekstrarfjárfyrirgreiðslu eingöngu í Landsbanka og Útvegsbanka, en hlutdeild þessara banka í heildarsparifé þjóðarinnar hefur farið minnkandi með tilkomu nýrra lánastofnana. Þetta segir í aths. Þeir bankar og aðrar innlánsstofnanir, sem þessi fyrirhugaða breyting snertir tilfinnanlegast að óbreyttum bindingarreglum að öðru leyti en því, að hámarkið er hækkað í 25%, eru þær stofnanir, sem eru ungar að árum og hafa fengið mestan hluta sparifjár síns á því tímabili, sem bindingarreglurnar hafa verið í gildi. Þessar stofnanir hafa notið góðs af hámarksákvæðum 11. gr. seðlabankalaganna, vegna þess að 25% af sparifjáraukningu þeirra á tímabilinu hafa nú þegar náð 15 og 20% af heildarinnstæðunum. Eldri peningastofnanir, sem höfðu hundrað millj. kr. innstæður í upphafi bindingartímabilsins, hafa hins vegar ekki enn náð þessu marki þrátt fyrir mikla sparifjáraukningu. Nú mætti kannske segja, að einmitt vegna þess væri nauðsynlegt að breyta hámarkinu, til þess að allar lánastofnanir sætu við sama borð að þessu leyti. En þá er þess að gæta, að þær eidri peningastofnanir, sem hér um ræðir, eru einmitt þær, sem njóta þess að geta endurselt Seðlabankanum víxla sína, og þá er sýnt, að þeirra vegna þarf ekki að breyta reglunum. Þær breytingar, sem hér eru fyrirhugaðar, koma því harðast niður á nýjum bönkum, sem eru að byrja rekstur sinn, ef svo mætti segja, það eru þeir, sem notið hafa góðs af takmörkunum seðlabankalaganna á bindiskyldunni, sem nú á að draga svona mikið úr, enda þarf ekki að fara í neinar grafgötur með það, hver tilgangurinn er. Um það taka aths. allan vafa af. Til frekari áréttingar hafa birzt í málgögnum ríkisstj. hugleiðingar um þetta. Í forustugrein í Alþýðublaðinu fyrir nokkrum vikum segir t.d. svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Hér á landi gegnir Seðlabankinn óvenjulegu hlutverki, þar sem eru endurkaup afurðavíxla. Þetta ættu viðskiptabankarnir að annast, en hér hafa aðeins tveir aðalbankar öll þessi viðskipti, en aðeins hluta ef sparifénu. Eina leiðin til að ná spariinnstæðum nýju bankanna og sparisjóðanna og beina til framleiðslunnar er, að féð renni um Seðlabankann.“
Hverjir eru þá þessir nýju bankar, sem hér þarf að ná til? Landsbankinn, Útvegsbankinn og Búnaðarbankinn eru ekki nýir bankar í þessu sambandi, enda eru ráðstafanirnar a.m.k. öðrum þræði gerðar til þess að auðvelda þeim verkefni sín, eins og tilgangur bindingarinnar nú er skilgreindur. Eftir eru þá Iðnaðarbankinn, Verzlunarbankinn og Samvinnubankinn og svo sparisjóðirnir. Svo mikil er þörfin að ná fjármagninu frá þeim, að nýja lagasetningu þarf að setja. En hvernig kemur það þá heim við lagasetninguna um þessa banka? Mætti athuga það.
Elztur af þessum bönkum er Iðnaðarbankinn. Hann var stofnaður vegna þess, að mjög háværar kröfur komu um það frá iðnaðarmönnum í landinu, að þessi þriðja höfuðatvinnugrein þjóðarinnar hefði sína eigin peningastofnun, eins og hinar aðalatvinnugreinarnar höfðu áður fengið. Á þessi rök féllst Alþingi. Lög um Iðnaðarbankann voru hér samþykkt. Hann hefur síðan starfað til mikilla hagsbóta fyrir iðnaðinn, held ég, að mér sé óhætt að segja.
Lögin um Verzlunarbankann eru nr. 46 frá 1960. Þau eru 4 ára gömul. Með þeim var merkilegt spor stigið í íslenzkri bankalöggjöf, þar sem Verzlunarbankinn er fyrsti einkabankinn, sem leyfður hefur verið hér á landi. Þegar þau lög voru til meðferðar hér á hv. Alþingi, voru haldnar margar ræður um nauðsyn þessarar bankastofnunar. Og ég vil eindregið taka undir þau rök, enda voru l. samþykkt ágreiningslaust og með atkv., að ég má segja; flestra þm. Tilgangur bankans er, eins og kunnugt er, að styðja verzlun landsmanna, og þótti eðlilegt, að verzlunarsamtök landsins hefðu sína eigin peningastofnun, eins og svo margir aðrir höfðu á undan þeim fengið.
Svipað er að segja um Samvinnubankann. Samvinnumenn höfðu fyrir nokkrum árum stofnað sparisjóð, sem fljótlega fékk aukin verkefni og sprengdi af sér sparisjóðsformið, eins og Verzlunarsparisjóðurinn hafði áður gert.
Þegar l. um Verzlunarbankann höfðu verið sett og fyrsti einkabankinn þannig stofnaður, fóru forráðamenn Samvinnusparisjóðsins fram á það við ríkisstj. að flutt yrði frv. um stofnun Samvinnubankans. Við þessum tilmælum varð ríkisstj. fúslega, og frv. var flutt um stofnun Samvinnubankans fyrir 2 árum. Við samvinnumenn erum þakklátir hæstv. ríkisstj. og þáv: alþm. öllum fyrir þann skilning, sem okkur var sýndur í þessu máli, það skal ég fúslega votta. Tilgangur bankans skyldi samkvæmt 2. gr. l. vera að styðja samvinnurekstur landsmanna. Þessi lög voru sett í apríl 1962, og þar með hafði áratugagamall draumur íslenzkra samvinnumanna um eigin bankastofnun rætzt, þótt í smáum stíl væri og margir örðugleikar vissulega á veginum. En viðurkenningin var fengin, viðurkenningin á því, að samvinnuhreyfingin ætti lagalegan rétt á bankastofnun, sem hefði það að markmiði að styðja samvinnurekstur landsmanna. Nú er þessum bönkum í vaxandi mæli gert ókleift að rækja hlutverk sitt samkv. þeim lögum, sem svo nýlega hafa verið sett hér á hv. Alþingi. Hér skýtur óneitanlega nokkuð skökku við frá því, sem talað var við fyrrgreinda lagasetningu. Þessir þrír bankar eru ungir og ráða yfir fremur litlu fjármagni, held ég, að sé óhætt að segja. Mikið skortir því enn á, að þeir geti gegnt sem skyldi því þýðingarmikla hlutverki, sem Alþingi hefur falið þeim. Samt á nú að þrengja kosti þeirra til mikilla muna og það af sjálfu Alþingi, sem hefur þó viðurkennt nauðsyn þessara banka með lagasetningu fyrir aðeins örfáum árum.
Rétt er að minnast þess í sambandi við mál þetta, að tveir ríkisbankanna, þ.e. Landsbankinn og Útvegsbankinn, hafa einkarétt á því, sem kunnugt er, að verzla með erlendan gjaldeyri. Aðrir bankar, a.m.k. Verzlunarbankinn, munu hafa leitað nokkuð fast eftir því að fá einnig að inna þessa þjónustu af hendi gagnvart sínum viðskiptamönnum. Það er öðrum bönkum auðvitað líka þeim mun fúsara að fá að inna þessa þjónustu af hendi, sem vitað er, að hér er um mjög arðvænlega þjónustu að ræða fyrir banka og það gefur viðkomandi aðilum talsvert í aðra hönd. Öllum málaleitunum annarra banka til að öðlast þessi réttindi einnig hefur jafnan verið svarað ákveðið neitandi. Rökstuðningur þeirrar neitunar er aðallega sá, að á umræddum bönkum hvíli sú skylda að lána til atvinnuveganna og því sé sanngjarnt, að þessi forréttindi komi á móti. Með því að nú er ráðgert að skylda alla aðra banka til þess að lána líka til atvinnuveganna gegnum innstæðubindingu Seðlabankans, sýnist þessi röksemd að verulegu leyti úr gildi fallin. Sagt hefur verið hér, að aðstaða umræddra banka til samkeppni við aðra um spariféð sé slæm vegna þeirra kvaða um lán til atvinnuveganna, sem á þeim hvíla, og að þetta þurfi að laga. Ég hef hér leyft mér að benda á það, að hinir svokölluðu nýju bankar hafa einnig sínar skyldur lögum samkvæmt og eru vitanlega bundnir af þeim. Hér er því verið að fara fram á það við Alþingi, að það afturkalli a.m.k. að nokkru leyti þær heimildir, sem það hefur nýlega veitt nýjum bönkum í sérstöku skyni. Þetta kemur líka fram af umsögnum þeirra banka, sem sent hafa svör við fsp. hv. fjhn. um frv. T.d. segja bankaráðsformaður og bankastjóri Iðnaðarbankans svo um þetta, með leyfi hæstv. forseta:
„Í l. um Iðnaðarbankann er svo ákveðið, að meginhlutverk hans og markmið skuli vera að styðja verksmiðju- og handiðn landsmanna, og þar sem þessi tilgangur er alkunnur, er ekki óeðlilegt að gera ráð fyrir því, að meginhlutinn af því sparifé, sem bankinn hefur fengið til varðveizlu, sé þangað kominn vegna þessa tilgangs hans. Það gefur auga leið, að því stærri hluti sem bundinn verður af innstæðuaukningu bankans, þeim mun minni verður hvöt þeirra, sem styrkja vilja iðnaðinn með því að fela bankanum sparifé sitt til ráðstöfunar.“
Hér er vissulega alveg rétt með farið og bent á þýðingarmikið atriði, sem gildir um Iðnaðarbankann og hina aðra banka, sem ég hef hér talað um í sömu andránni, og ber að gefa gaum.
Í sambandi við þessa auknu innstæðubindingu mætti vekja athygli á því, sem hér hefur raunar áður verið gert, að rekstur þeirra peningastofnana, sem eru ungar að árum og eiga lítið eigið fé, verður mjög erfiður, ef lengra verður gengið í því en nú er gert að skylda þær til að eiga miklar fjárhæðir bundnar í Seðlabankanum á þeim vaxtakjörum, sem þar ríkja, rúmlega 7%, á sama tíma sem innlánsstofnanirnar verða að taka á móti sparifé á hærri vöxtum, 8, 9 og jafnvel 91/2.%. Með því móti er þessum stofnunum gert erfiðara fyrir um að veita viðskiptavinum sínum þá þjónustu, sem gerðar eru kröfur til í nútímaþjóðfélagi. Bankar og sparisjóðir eiga vaxandi hlutverki að gegna hér á landi. Fleiri og fleiri notfæra sér þá fyrirgreiðslu, sem peningastofnanirnar veita, og á ég þá ekki fyrst og fremst við lántökur, heldur miklu fremur ýmsa umsýslu og þjónustu, sem slíkar stofnanir láta í té fólki til margs konar hagræðis. Slík starfsemi kostar mikið fé og bankarnir eru ekki, hvaða skoðanir sem ýmsir kunna að hafa á því, ofhaldnir af þeim vaxtamismun, sem hér gerist. Þegar bindingarákvæðin eru tekin til endurskoðunar, mætti vei rannsaka, hvort hér sé ekki einnig breytinga þörf. Verzlunarbankinn og Iðnaðarbankinn, sem sent hafa svör við fsp. fjhn., leggja mjög ríka áherzlu á þetta, og ég ætla að leyfa mér í örstuttu máli að gera grein fyrir því, sem þeir segja, með leyfi hæstv. forseta. Iðnaðarbankinn segir:
„Á þessu ári lækkaði Seðlabankinn vexti þá, sem hann greiðir af hinum bundnu innstæðum, úr 9% p.a. í vexti, sem eiga að vera 1% hærri en meðalvextir þeir, sem við greiðum af hinum mismunandi tegundum innstæðufjár, og reyndist vaxtagreiðsla Seðlabankans til Iðnaðarbankans á s.l. ári 7.4%... Með vaxtaákvörðun 20. febr. 1960 var vaxtamunur útlánsvaxta og innlánsvaxta lækkaður um 1/2 %, úr 21/2 í 2%... Það er auðsætt, að allar þessar ákvarðanir stefna rekstrarafkomu banka, sem hefur til umráða mjög lítið eigið fé og nærri eingöngu vaxtatekjur af útlánum, í beinan voða.“
Og Verzlunarbankinn segir svo um þetta: „Ef frv. það, sem hér er gert að umtalsefni, verður að lögum, heimilar það Seðlabankanum að ganga lengra en nú er í innstæðubindingu. Verður þá sífellt vaxandi hluti innstæðna vorra bundinn þar og vaxtakjör um 20% lægri en hinn almenni lánamarkaður tekur. Það gefur auga leið, að slíkri þróun mála er eigi hægt að taka með þögn. Hvort tveggja er, að starfsfé vort þolir eigi þá skerðingu, sem hin háa innstæðubinding hefur í för með sér, og eins er algerlega óþolandi að hlíta þeim vaxtakjörum, sem bundið innstæðufé sætir.“
Í samræmi við þetta leggja svo báðir þessir bankar til, að frv. verði vísað frá.
Eins og hv. frsm. meiri hl. gat um, voru í l. nr. 33 frá 1957 fyrst tekin upp ákvæði, sem heimiluðu Seðlabankanum að binda innstæður á bundnum reikningi hjá sér. Þessi heimild var þó ekki notuð fyrr en á árinu 1960, en þá ákvað núv. ríkisstj. að skylda innlánsstofnanir til að binda verulegan hluta af innstæðuaukningunni á þennan hátt í Seðlabankanum. Jafnframt var svo l. breytt, eins og hv. alþm, minnast, á þann hátt, að umrædd skylda var einnig látin ná til Söfnunarsjóðs Íslands og innlánsdeilda samvinnufélaganna. Það var í upphafi augljóst, eins og ég hef drepið á, að þessar ráðstafanir hlutu að torvelda viðkomandi peningastofnunum að gegna hlutverki sínu og að of langt var í upphafi gengið á þeirri braut að svipta þær ráðstöfunarrétti yfir starfsfé sínu. Auk þess var bundna féð svo innheimt hjá ýmsum innlánsstofnunum, sem von: svo smáar, að þeirra tillaga gat engu máli skipt um þróun peningamálanna í landinu. En framkvæmdin varð viðkomandi stofnunum engu að síður talsverður fjötur um fót. Á árinu 1961 var slakað nokkuð á bindiskyldunni. Og þá vonuðu margir, að ríkisstj. mundi sjá að sér og afnema lánsfjárhöftin í áföngum. Þær vonir eru nú að engu orðnar, þar sem, eins og frv. ber með sér, sjáanlegt er, að tökin á að herða nú enn að miklum mun, m.a. með þeim afleiðingum, að rekstrarafkomu bankanna, a.m.k. þeirra nýrri, og sparisjóðanna, er stefnt í beinan voða, eins og raunar hv. frsm. meiri hl. gerði hér að umtalsefni. Og ég get lýst ánægju minni yfir því út af fyrir sig, að augu hans hafa opnazt og að hann skuli hafa opnað augu ráðamanna í þessu máli fyrir því, að hér sé breytinga þörf, og vil ég leyfa mér þá að vonast eftir því, að það geti orðið, eins og hann var að gefa hér í skyn. Það er vissulega góðra gjalda vert og bjargar einhverju a.m.k.
Í 2. gr. frv. er svo fjallað um þá nýju verðbréfaútgáfu, sem heimila skal Seðlabankanum, þar sem hann á einn allra að fá réttindi til að gefa út gengistryggð skuldabréf. Slík forréttindaaðstaða eins aðila er mjög uggvænleg fyrir allar aðrar peningastofnanir í landinu, og það er mikil þörf á því, að fyllsta aðgát sé höfð, þegar slík ákvæði eru lögleidd, ef þau verða lögleidd, sem auðvitað bezt væri, að ekki væri gert. Á tímum mikillar verðbólgu og þenslu í efnahagslífinu er það að sjálfsögðu geysileg freisting fyrir sparifjáreigendur, sem alltaf sjá hlut sinn rýrna dag frá degi, að eignast eitthvað það, sem heldur gildi sínu þrátt fyrir fallandi gengi. Það segir sig því alveg sjálft, að þeim aðila, sem einn allra getur boðið þannig löguð verðbréf, er sköpuð geysileg forréttindaaðstaða fram yfir alla hina, sem keppa um sparifé án þess að geta eða mega bjóða neitt þessu líkt. Það er sannarlega góðra gjalda vert, ef hægt er að skapa sparifjáreigendum raunhæfa verðtryggingu peninganna. Á því er full þörf, svo mjög sem hlutur þeirra er oft lítill gerður. Og ég vil í því sambandi leyfa mér að minna á till. til þál., sem hér liggur fyrir hv. Alþingi til meðferðar um verðtryggingu sparifjár. Þessi till. er flutt af 4 þm. Framsfl. og ályktar um það, að Alþingi kjósi 5 manna mþn. til að athuga, með hverjum hætti verði við komið verðtryggingu sparifjár. Ég vil enn fremur minna á það, að þetta er ekki í fyrsta skipti, sem þm. framsfl. flytja slíka till. hér á hv. Alþingi. Það hefur oft verið gert áður, en það hefur ekki verið framkvæmt, það er önnur saga. Þess vegna erum við, og ég vil ekki undanskilja mig þar, — síður en svo mótfallnir því, að sparifjáreigendum verði sköpuð verðtrygging fyrir spariféð, það er nauðsyn. En við teljum, að slíka verðtryggingu þurfi að framkvæma þannig, að ekki sé um leið allt banka- og lánakerfi landsins sporðreist. Verði það gert, sem hér er lagt til, að einum aðila aðeins sé veittur réttur til raunverulegrar verðtryggingar sparifjár, hlýtur fjármagnið að leita til þess aðila í stórum stíl, og það fjármagn kemur þá vitanlega fyrst og fremst frá viðskiptabönkunum og sparisjóðunum og innlánsdeildunum, sem nú hefur verið trúað fyrir varðveizlu þess. Þessir aðilar mega ekkert slíkt bjóða, það er lögbannað, og auk þess hafa þeir ekki bolmagn til þess að mæta þeim skakkaföllum, sem af slíku kynnu að hljótast.
Í frv. eru engin ákvæði um það, með hvaða kjörum þessi bréf eigi að vera, engin ákvæði um lánstíma, engin ákvæði um vexti eða yfirleitt neitt það, sem máli skiptir í þessu sambandi. Ég tel, að það sé alveg nauðsynlegt að fá úr því skorið, hvernig kjörin eiga að vera, áður en hægt er að afgreiða frv. hér á hv. Alþingi, því að ef ekki verður dregið úr sölugildi bréfanna, t.d. með ákvæðum um vexti eða lánstímalengd, þá er augljóst, að til stórvandræða leiðir fyrir aðrar innlánsstofnanir og að þær verða alveg getulausar til þess að gegna hlutverki sínu. Þetta er þeim viðskiptabönkum, sem sent hafa umsagnir, alveg sérstaklega ljóst, og ég vil máli mínu til staðfestingar leyfa mér að vitna til þess, sem þar er sagt. Í umsögn Iðnaðarbankans segir, með leyfi forseta:
„Í 2. gr. fyrrnefnds frv. er Seðlabankanum heimiluð útgáfa gengistryggðra verðbréfa. Verði þessi heimild notuð, svo að nokkru nemi, má ganga út frá því, að spariféð leiti úr bönkunum í þessi bréf, og teljum vér, að mjög varlega verði að fara í útgáfu slíkra bréfa.“
Þetta segir í umsögn Iðnaðarbankans. Í umsögn Verzlunarbankans segir svo:
„Ekki er með öllu óeðlilegt, að sparifjáreigendur séu verndaðir fyrir verðbólguþróun þeirri, sem hér ríkir og hefur ríkt. En sú lausn, sem í frv. er farið inn á, gengur allt of skammt, og er hætt við, að hún mundi hafa í för með sér, að spariféð flyttist úr hinum almennu peningastofnunum beint í Seðlabankann. Slík þróun er óæskileg. Réttara væri, að komið yrði á almennri verðtryggingu sparifjár í formi lánavísitölu, þannig að þjóðfélagsþegnarnir geti aldrei hagnazt á skuldasöfnun og sparifjáreigendur tapað verðgildi peninga sinna sökum verðbólgu í þjóðfélaginu.“
Þetta var umsögn Verzlunarbankans um þetta atriði, og er sýnilegt, að það eru fleiri en minni hl. fjhn. þessarar hv. d., sem hafa áhyggjur af þeirri þróun, sem leiða muni af þessum ákvæðum, ef lögfest verða. Vegna sparifjáraukningar eru bankarnir nú vanmegnugir að greiða úr þeirri gífurlegu lánsfjárþörf, sem fyrir hendi er í landinu. Þeir, sem bönkunum stjórna, verða því að láta þá mörgu, sem til þeirra leita, synjandi frá sér fara, enda þótt í mörgum tilfellum sé þörf lánbeiðenda augljós og fullar tryggingar í boði. Afleiðingin er sú, að spariféð leitar fram hjá bönkunum, aukningin minnkar og sums staðar jafnvel lækka innstæður. Menn leitast við að leysa fjárhagsvandræði sín án milligöngu lánastofnana, og ýmis fjármálaviðskipti fara fram manna á meðal, sem eðlilegast væri að bankar önnuðust. Þannig verður afleiðingin oft margvíslegir vafasamir viðskiptagerningar, sem í mörgum tilfellum væri hægt að komast hjá, því að langflestir vilja helzt skipta við banka, bæði um innlán sín og útlán, sé þess kostur, en þegar þar er ævinlega komið að lokuðum dyrum, þá er annarra ráða leitað. Það er mín skoðun, að ekki eigi að ganga lengra í því en gert hefur verið að minnka hlutverk peningastofnana í þjóðfélaginu og því beri að athuga vel sinn gang, áður en þau ákvæði eru lögfest, sem hér eru ráðgerð.
Hv. meiri hl. fjhn. segir í sínu nál., að efnahagsráðstafanirnar 1960 hafi borið tilætlaðan árangar. Í því sambandi væri e.t.v. rétt, af því eð það skiptir líka máli um meðferð þessa máls, að rifja upp, hvað það var, sem hæstv. ríkisstj. ætlaði sér að koma fram með viðreisn sinni, en tímans vegna mun ég ekki drepa á nema örfá atriði af því, en af nógu er að taka.
Í fyrsta lagi nefni ég það, að ríkisstj. kvaðst ætla að koma atvinnulífi þjóðarinnar á traustan og heilbrigðan grundvöll. Það átti að vera fyrsti árangur viðreisnarinnar. Og hvernig hefur það tekizt? Í ársbyrjun þess árs, 1964, var lagt fyrir Alþingi frv. til l. um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins o.fl. Þar segir í fyrsta lagi, að í sambandi við lausn kjaradeilnanna í des. 1963 hafi ríkisstj. lýst því yfir, að ráðstafanir skyldu gerðar til að bæta hraðfrystihúsunum með einum eða öðrum hætti þá 15% kauphækkun, sem um var samið. í umr. um þetta mál kom það fram, að þetta fyrirheit varð hæstv. ríkisstj. að gefa vegna þess, að frystihúsin höfðu fært sönnur á það, að rekstur þeirra mundi ekki þola kauphækkunina, reksturinn mundi ella stöðvast. Hæstv. ríkisstj. efndi þetta fyrirheit og lagði á þjóðina nýjan söluskatt, til þess að hægt væri að taka á ný upp uppbótakerfið, sem þó hafði fengið mjög óvirðuleg eftirmæli, svo að ekki sé meira sagt, einmitt hjá hæstv. stuðningsmönnum ríkisstj. Þannig var nauðsynlegt, til þess að rekstur hraðfrystihúsanna stöðvaðist ekki, að úthluta hraðfrystihúsunum uppbótum, sem námu 62 millj. kr. Í öðru lagi fengu framleiðendur saltfisks og skreiðar líka nokkrar uppbætur, 11 millj. kr., og þeir töldu sig ekki heldur geta án þeirra verið. Í þriðja lagi var skýrt frá því í aths. með þessu frv., að nefnd, sem sjútvmrh. hefði skipað til að rannsaka hag togaraútgerðarinnar, hefði komizt að þeirri niðurstöðu, að togaraútgerðin væri rekin með miklum stig vaxandi halla. Þess vegna var um leið farið fram á heimild Alþingis til að greiða togurunum 51 millj. kr. uppbætur á þessu ári. Meðan á afgreiðslu þessa máls stóð hér á hv. Alþingi, bárust fréttir um það, að úrskurður um fiskverðið væri fallinn. Þá kom í ljós, að sjómenn sættu sig ekki við dómsniðurstöðuna, þ.e. að fá enga hækkun, en útgerðin og vinnslustöðvarnar svöruðu því jafnskjótt til, að útilokað væri, að þær gætu greitt hærra verð, reksturinn þyldi það ekki. Niðurstaðan varð sú, sem allir vita, að hæstv. ríkisstj. ákvað að greiða uppbætur á fiskverðið. Þannig hefur þá þetta tekizt, að koma sjávarútveginum á traustan og heilbrigðan grundvöll þrátt fyrir mikinn og yfirleitt vaxandi afla ár frá ári. Um landbúnað er það að segja, að rannsóknir hagstofunnar sýna, nýjar rannsóknir, að bændur eru tekjulægsta stétt þjóðfélagsins, og virðist það satt að segja ekki benda til, að grundvöllur þessa annars aðalatvinnuvegar þjóðarinnar sé svo traustur og heilbrigður sem skyldi. Iðnaðurinn á einnig við mikla rekstrarörðugleika að stríða. Nú fyrir nokkrum dögum hefur þessi hv. þd. samþykkt fyrir sitt leyti frv. til l. um ráðstafanir til úrbóta fyrir þann atvinnuveg, sem taldar eru nauðsynleg aðstoð honum til handa. Þannig er þá umhorfs í atvinnulífi þjóðarinnar í dag og verður af því tæplega sú ályktun dregin, að hv. meiri hl. fjhn. eigi við það í nál. sínu, að þessi viðreisnarráðstöfun hafi borið tilætlaðan árangur. Þeir hljóta að meina eitthvað annað.
Annað fyrirheit hæstv. ríkisstj, var, að það skyldi vera verkefni samtaka launþega og atvinnurekenda að semja um kaup og kjör. Það loforð stóð til að efna þannig, að snemma á þessu þingi var borið fram frv. um að binda kaup og laun og annað þess háttar með lögum og fara þar með inn á alveg nýja braut í meðferð þessara mála. Eins og kunnugt er, var horfið frá þessu ráði. Það var horfið frá því að framkvæma þennan vilja hæstv. ríkisstj. vegna harðrar baráttu stjórnarandstöðunnar hér á Alþingi og þó kannske miklu fremur vegna gífurlegrar andúðaröldu mikils meiri hl. þjóðarinnar, jafnt meðal stuðningsmanna hæstv. ríkisstj. sem andstæðinga hennar. Þannig er það nánast af óviðráðanlegum aðstæðum, sem þetta fyrirheit hefur ekki fengið sömu meðferð og þau önnur, sem ég hér nefni.
Í þriðja lagi var því lofað að stöðva verðbólguna og halda dýrtíðinni í skefjum. Kannske það sé sú efnahagsráðstöfun, sem hv. meiri hl. hefur í huga. Það, sem öðru fremur skiptir máli í þessu sambandi, er annars vegar, hvað það kostar að lifa, og um það gefur vísitala framfærslukostnaðar vísbendingu og vísitala vöru og þjónustu kannske þó enn réttari mælikvarða, og hins vegar byggingar- og húsnæðiskostnaðurinn, og einnig um þetta gefur hagstofan áreiðanleg svör. Hvað segja þá þessar staðreyndir? Þær segja, að í marzmánuði 1960, skömmu eftir að l. voru sett, var vísitala framfærslukostnaðar 101. stig. Þessi sama vísitala er nú hinn 1. þ. m. 161 stig. Á 4 árum hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um rúm 60%, eða 15% á ári að meðaltali. Þetta er ekki góður árangur af baráttu hæstv. ríkisstj. við að stöðva verðbólguna. Sé litið á vísitölu vöru og þjónustu, sem raunar gefur kannske réttari mynd af ástandinu, tekur ekki betra við. Sú vísitala var hinn 1. marz 1960 einnig 101 stig, þ.e. eins og vísitala framfærslukostnaðar. Þessi vísitala var hinn 1. þ. m. 184 stig. Hún hefur ekki aðeins aukizt um 60%, heldur um nærri 84%. Þetta er ekki heldur góður árangur af baráttu hæstv. ríkisstj. við að halda dýrtíðinni í skefjum. Ef litið er á hitt atriðið, sem ég nefndi, byggingar- og húsnæðiskostnaðinn, kemur í ljós, að byggingarvísitalan var í febr. 1960 132 stig. Réttum 4 árum síðar, 1. febr. s.l., er þessi vísitala komin upp í 211 stig. Þarna er um 60% hækkun að ræða. Byggingarkostnaður er nú samkv. útreikningi hagstofunnar, þ.e. 1. febr. s.l., 195.9 kr. á rúmmetra, en var 1231 kr. fyrir 4 árum. Samkv. þessu kostaði 350 teningsmetra íbúð 685 þús. kr. í byggingu hinn 1. febr. s.l. Núna kostar hún enn þá meira, teningsmetrinn er kominn yfir 2000 kr., eins og nýafstaðin útboð, sem mér eru kunn, gefa upplýsingar um. Tæplega meinar hv. meiri hl. fjhn., að baráttan við verðbólguna hafi borið tilætlaðan árangur, þegar þessa er gætt.
Síðasta atriðið, sem ég nefni úr viðreisnarbók hæstv. ríkisstj., er hið hátíðlega loforð um að fullnægja eftirspurn eftir lánsfé án strangrar skömmtunar. Hvernig skyldi það þá hafa tekizt? Til þess að ná fram þessu mjög svo æskilega takmarki voru teknir upp hér einhverjir þeir hæstu útláns- og innlánsvextir, sem um getur í veraldarsögunni. Sagt var, að hækkun vaxtanna mundi draga úr eftirspurn eftir lánsfé. Sú kenning reyndist röng, enda hafa aðgerðir ríkisstj. í efnahagsmálum og þ. á m. vaxtahækkunin sjálf aukið þörfina fyrir stofnlán og rekstrarlán stórkostlega. Ástandið er nú þannig í dag, að bankarnir eru fjær því nú en nokkru sinni fyrr að fullnægja hinni gífurlegu lánaeftirspurn þrátt fyrir háu vextina. Ég skal ekki þreyta hv. alþm. á því að fara að lýsa ástandinu í lánamálum bankanna í dag. Þess gerist heldur engin þörf, það er okkur öllum svo kunnugt. Þess vegna hlýtur öllum að vera ljóst, að svo víðs fjarri fer, að þessi efnahagsráðstöfun hafi borið tilætlaðan árangur, að nær sanni er, að hún sé argasta öfugmæli þeirra allra, og er þó samkeppnin næsta hörð á þeim vettvangi.
Ef hv. samnm. mínir í fjhn. Nd., þeir sem undirrita nál. á þskj. 475, byggja fylgi sitt við frv. á þeirri forsendu, að efnahagsráðstafanirnar 1960 hafi borið tilætlaðan árangur, þá held ég, að þeir ættu að endurskoða afstöðu sína í ljósi þeirra staðreynda, sem ég hef hér leyft mér að minna á. Frv. á þskj. 91 er liður í því að halda áfram þeirri stjórnarstefnu, sem framkvæmd hefur verið að undanförnu í tíð núv. hæstv. ríkisstj., og herða enn tökin. Ég hef hér leitazt við að sýna fram á það, að sú stefna hafi ekki reynzt þjóðinni vel og að ekki hafi tekizt að framkvæma það, sem lofað var, jafnvel ekki þau atriði, sem mest áherzla var lögð á í upphafi. Við í minni hl. fjhn. erum þeirrar skoðunar, að taka beri upp aðra hætti í stjórn landsins, og leggjum til, að byrjað verði á því að fella það frv., sem hér er til umr.