21.04.1964
Neðri deild: 82. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1621 í B-deild Alþingistíðinda. (1144)
83. mál, Seðlabanki Íslands
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Ég held nú raunar, að í þeim löngu umr., sem fóru fram um þetta mál við 1. umr., hafi flest það verið sagt um efni málsins, sem brýn þörf er á að segja, en engu að síður virðist það ætla að gerast hér við 2. umr., að rangar staðhæfingar frá 1. umr. eru enn endurteknar, og þá vona ég, að hv. þdm. afsaki það, þó að ég telji mig til neyddan að andmæla þessum röngu staðhæfingum enn við þessa umr., en skal hins vegar nú gera það með í raun og veru sams konar rökum og ég gerði þá, en þó styðja mál mitt öðrum og nýrri tölum en ég átti kost á að gera þá, enda nokkur tími liðinn síðan.
Sú var meginstaðhæfing hv. síðasta ræðumanns, og það var í raun og veru líka aðalefni hv. málsvara Framsfl. hér í þessari umr. í gær, að vefengja, að hið bundna sparifé hafi í raun og veru farið til nytsamlegra hluta. Þeir hafa báðir látið orð að því liggja, að það, sem fyrir ríkisstj. og Seðlabankanum hafi vakað með því að hagnýta sér lagaregluna frá 1957 til þess að binda nokkurn hluta af sparifénu í Seðlabankanum, hafi verið það eitt að draga lánsfé úr umferð og að því er manni skilst skapa einhvers konar viðskiptakreppu hér í landinu. Í raun og veru ætti ekki að vera þörf á því að svara þessum staðhæfingum með öðru en benda til þess, að aldrei nokkru sinni í sögu íslenzkrar þjóðar hefur verið meira lánsfé í umferð en á undanförnum fjórum árum, aldrei nokkurn tíma hafa útlán íslenzka bankakerfisins verið meiri í sögu íslenzks efnahagslífs en þau hafa verið einmitt á undanförnum fjórum árum. Þetta eitt er í sjálfu sér nægilegt, þessi almenna staðhæfing nægir til að sýna fram á, að þessar staðhæfingar eru ekki réttar. En ég skal ekki láta við það sitja að andmæla hv. þm., sem báðir eru mikils metnir málsvarar sinna flokka, með svona almennum aths. Ég skal leitast við — og til þess nægir mér örstutt mál — að sýna fram á það með rökum og tölum, sem með engu móti verða vefengd, í hvaða skyni binding sparifjárins hefur verið framkvæmd síðan 1960 og hverju hún hefur áorkað.
Ég sagði það í framsöguræðu minni fyrir frv. og endurtók það enn í ræðu minni hér í gær, að tilgangur Seðlabankans og ríkisstj. með hagnýtingu heimildarinnar til bindingar hluta af sparifénu í Seðlabankanum hafi verið tvíþættur: Annars vegar að gera kleift að eignast gjaldeyrisforða og hins vegar að gera kleifa aukningu á afurðalánum til undirstöðuatvinnuveganna, sjávarútvegs og landbúnaðar. Og þetta tel ég nauðsynlegt að undirstrika mjög sterklega, af því að rökin fyrir rýmkun á þessum sömu heimildum nú eru nákvæmlega hin sömu, og þó mundi ég nefna ástæðurnar nú í öfugri röð. Nú segi ég: Ástæðan fyrir því, að Seðlabankanum er þörf á rýmkaðri heimild til að taka til sín hluta af sparifénu, er nú fyrst og fremst sú, að Seðlabankinn þarf og vill auka endurkaup á afurðalánum til sjávarútvegs, landbúnaðar og iðnaðar, og enn fremur til þess að auka smám saman, en miklu hægar en undanfarin ár, gjaldeyrisforðann. Þar sem á áranum 1960–64 var aðalnauðsynin að eignast gjaldeyrisvaraforða, og vegna þess, hvað hún var brýn, þá var aðeins lítið hægt að nota af þessu fé til að auka endurkaupin, þá gegnir nú alveg öfugu máli. Nú er höfuðverkefnið að auka endurkaupin til sjávarútvegs, landbúnaðar og þó sérstaklega til iðnaðar. en hins vegar miklu minni þörf á auknu ráðstöfunarfé Seðlabankanum til handa til að auka gjaldeyrisvarasjóðinn. Rökin eru því þau sömu, en það er rétt að nefna þau í öfugri röð nú í dag frá því, sem var fyrir fjórum árum.
Við skulum gera okkur grein fyrir því, til hvers bundna féð hefur verið notað. Þetta margumtalaða bundna fé, sem nú nemur um 800 millj. kr. í Seðlabankanum, er að því leyti rangt að kalla bundið fé, því að það er auðvitað ekki bundið, það er allt fólgið í eignum Seðlabankans, þ. á m. í útlánum hans til sjávarútvegs og landbúnaðar, svo að nafngiftin „bundið fé“ er í raun og veru alveg villandi. Sú nafngift hefur komizt á vegna þess, að það er lagaskylda af hálfu viðskiptabankanna að leggja þetta fé inn í Seðlabankann. Að því leyti má segja, að þeir séu skyldaðir til þess að leggja fé inn í Seðlabankann. En að kalla það bundið í þeim skilningi, að það sé fryst, það er auðvitað algerlega villandi, því að Seðlabankinn hefur allt þetta fé bundið í sínum eignum í umferð. Þetta voru raunar aukaatriði. — Skýrasta aðferðin, gleggsta og einfaldasta aðferðin til að gera sér grein fyrir því, hvað orðið hefur um þetta svokallaða bundna fé, er einfaldlega að bera saman efnahagsreikning Seðlabankans í lok þess árs, sem við hv. 5. þm. Austf. (LJós) létum af sameiginlegum stjórnarstörfum, þ.e. í árslok 1955, og í lok s.l. árs, og um þetta liggja fyrir heimildir í birtum reikningum Seðlabankans. Þessir reikningar eru að vísu flókið plagg fyrir þá, sem eru ekki vanir að lesa slíka reikninga, en þá má gera mjög einfalda og auðskýrða fyrir þá, sem slíkum plöggum eru vanir.
Niðurstöðutala reiknings Seðlabankans í árslok 1958, þegar við Lúðvík Jósefsson létum sameiginlega af stjórn þjóðarskútunnar, var 940 millj. kr. Niðurstöðutala reikninga Seðlabankans í lok s.l. árs var 2600 millj. kr. Ráðstöfunarfé og þar með eignir Seðlabankans hafa því aukizt á þessu tímabili um 1660 millj. kr. Og nú er rétt að gera sér grein fyrir því fyrst, hvaða ráðstöfunarfé Seðlabankans hefur aukizt. Eigið fé var í árslok 1958 200 millj. Það er enn 200 millj. Eigið fé hefur ekkert aukizt. Svokallað mótvirðisfé, sem allir hv. þm. vita, hvað er, var 180 millj. kr. í árslok 1958, en 250 millj. kr. í lok s.l. árs, það hefur aukizt um 70 millj. kr. Aukning mótvirðissjóðs hefur fært Seðlabankanum 70 millj. kr. Seðlaveltan var í árslok 1958 400 millj. kr. í lok s.l. árs var seðlaveltan 650 millj. kr., þannig að seðlaveltan hefur aukizt um 250 millj. kr. í árslok 1958 skuldaði Seðlabankinn erlendis, fyrst og fremst svonefnda skuld við Greiðslubandalag Evrópu, svonefnda EPU-skuld, 160 millj. kr. Sú skuld var greidd við s.l. áramót, svo að þar hafa skuldir Seðlabankans minnkað um 160 millj. kr. Yfir öðru fé hafði Seðlabankinn þá ekki að ráða, og þetta eru 940 millj. kr. En nú hefur Seðlabankinn yfir að ráða miklu fé til viðbótar, svo sem hér segir: Bundnum innstæðum frá viðskiptabankakerfinu 800 millj. kr., frjálsum innstæðum frá bankakerfinu 200 millj. kr. og innstæðum hjá ríkissjóði, sem nú á inní í Seðlabankanum í staðinn fyrir að skulda honum, eins og hann gerði áður og ég kem að seinna, nú á ríkissjóður inni í Seðlabankanum og sömuleiðis ýmsar aðrar opinberar stofnanir samtals 500 millj. kr. Heildarniðurstaðan af þessu verður 2600 millj. kr. Við sjáum m.ö.o. að aukningin, þessi 1660 millj. kr. aukning, sem Seðlabankinn hefur fengið í ráðstöfunarfé, hún er að helmingi þessara bundnu innstæðna frá viðskiptakerfinu, 800 millj. kr., auk þess frjálsar innstæður frá kerfinu og svo innstæða ríkissjóðs og opinberra stofnana. Það aukna starfsfé, sem Seðlabankinn hefur fengið síðan í árslok 1958, er m.ö.o. að meira en hálfu leyti fengið í gegnum hagnýtingu á þessum bindingarreglum laganna frá 1957, sem fyrst var beitt 1960.
Nú skulum við sjá, hvað Seðlabankinn hefur gert við féð. Nú skulum við athuga mjög stuttlega, hvernig hann hefur notað féð, því að það auðvitað sker úr um það, hvort Seðlabankinn hefur notað það til samdráttar eða hvort hann hefur notað það í verzlun, en þá ályktun mátti draga af ræðu hv. síðasta ræðumanns, að verslunin hefði fengið einhvern verulegan hluta af þessu bundna fé, sem er auðvitað alger misskilningur. Seðlabankinn á ekki eina krónu bundna í verzlun og raunar ekki heldur í iðnaði eða samgöngum. Öll hans útlán eru í sjávarútvegi og landbúnaði, enda voru það tölur og útlán viðskiptabankakerfisins í heild, sem þm. var að nefna, en ekki útlán Seðlabankans. Nú skulum við sjá, hvað Seðlabankinn hefur gert við þessa aukningu, og það gerum við bezt með því að bera saman eignaliði Seðlabankans í árslok 1958 og eignaliði Seðlabankans í lok s.l. árs.
Í lok ársins 1958, þegar við hv. þm. skildum við, var gjaldeyrisvarasjóðurinn 100 millj. kr. Hann var tæpar 100 millj. kr. Við s.l. áramót var gjaldeyrisvarasjóðurinn 1400 millj. kr. Og eitthvert fé varð Seðlabankinn náttúrlega að fá til að festa í þessum gjaldeyrisvarasjóði. Afurðalán til sjávarútvegs og landbúnaðar voru í árslok 1958 640 millj. kr., en í árslok s.l. árs, 1963, 750 millj. kr., og hafa því aukizt á þessu tímabili um 110 millj. kr. En í raun og veru hafa þau aukizt meir, vegna þess að í árslok 1958 voru birgðir, sérstaklega af sjávarafurðum, óvenjulega miklar, en við s.l. áramót, eins og allir vita, voru birgðir af sjávarafurðum óvenjulega litlar, svo að raunveruleg aukning á afurðalánum Seðlabankans er í raun og veru mun meiri en þessi 110 millj. kr. mismunur bendir til, af því að hann er miðaður við áramótatölur. Útlán stofnlánadeildar og verðbréfaeign Seðlabankans voru í árslok 1958 100 millj. kr., en í lok s.l. árs 450 millj. kr. Þar er aukning um 350 millj. kr. Svo er þess að geta, að í árslok 1958 skuldaði ríkissjóður Seðlabankanum, þ.e. Seðlabankinn átti inneign hjá ríkissjóði að upphæð 50 millj. kr., og bankar og peningastofnanir skulduðu þá Seðlabankanum, — þar var flest á sömu bókina lært í þann tíð, því miður, — peningastofnanir skulduðu Seðlabankanum 50 millj. kr. M.ö.o.: Seðlabankinn átti inneign hjá bönkum og peningastofnunum að upphæð 50 millj. kr., en hvorugt á sér stað núna, eins og ég gat um áðan. Nú á ríkissjóður verulegar inneignir í Seðlabankanum, og frjálsar innstæður banka og peningakerfisins hjá Seðlabankanum eru hvorki meira né minna en 200 millj. kr.
Þá getum við séð, í hvað þetta 1660 millj. kr. aukna ráðstöfunarfé Seðlabankans hefur farið: 1300 millj, kr. af því hafa farið í gjaldeyrisvarasjóðinn, eins og við höfum verið að segja í almennum orðum og margsegja hér, og þarna er talan, sem tekur af öll tvímæli um það, 110 millj. kr. hafa farið í aukin afurðalán, og 350 millj. kr. hafa farið í aukin útlán stofnlánadeildarinnar og aukin verðbréfakaup. Þetta eru samtals 1760 millj. kr. En á móti því kemur minnkuð skuld ríkissjóðs og minnkuð skuld banka- og peningastofnana, 100 millj., þannig að niðurstaðan verður 1660 millj. kr., og þar með er það endanlega og óvefengjanlega skýrt, hvað Seðlabankinn hefur gert við þetta aukna ráðstöfunarfé sitt, sem að hálfu leyti hefur verið hinar svokölluðu bundnu innstæður í Seðlabankanum.
Mér finnst því í raun og veru, að um þessi efni ætti ekki að þurfa að deila jafnlangvarandi og rækilega og gert er hér á hinu háa Alþingi. Þessar tölur, sem ég nú nefndi, þessi rök, sem ég nú nefndi, taka af öll tvímæli um það, hvernig Seðlabankinn mundi hagnýta sér aukna hlutdeild í sparifjáraukningunni, ef Alþingi veitti honum heimild til þess.
Ég vil ljúka þessum orðum mínum með því að ítreka það, sem ég í raun og veru hóf mál mitt með, og segja:
Seðlabankinn hefur á undanförnum árum notað aukna hlutdeild sína í sparifé þjóðarinnar fyrst og fremst til að byggja upp gjaldeyrisvarasjóðinn, að langmestu leyti til að byggja upp gjaldeyrisvarasjóðinn, en að nokkru leyti til að auka útlán til undirstöðuatvinnuveganna, sjávarútvegs og landbúnaðar, með endurkaupum á afurðavíxlum þeirra. Framvegis mun Seðlabankinn nota aukna hlutdeild sína í sparifé þjóðarinnar fyrst og fremst til að auka útlán sin til undirstöðuatvinnuveganna, sjávarútvegs, landbúnaðar og iðnaðar, að langmestu leyti til þess, en einnig að nokkru leyti til að halda áfram að auka og styrkja gjaldeyrisvarasjóðinn.
Ástæðan til þess, að það er rétt að hafa þennan vaxandi stuðning við sjávarútveg, landbúnað og iðnað í þessu formi, að viðskiptabankarnir láti Seðlabankann fá nokkurn hluta af sparifé sínu og Seðlabankinn endurláni það svo í formi kaupa á afurðavíxlum, er sú, eins og ég mun hafa sagt áður við þessar umr., að það er auðveldara að tryggja fullkomið réttlæti í dreifingu þessa hluta lánsfjárins, það er auðveldara að tryggja réttlæti og skynsemi og hagsýni í dreifingu þessa hluta lánsfjárins með því að beina honum um farveg Seðlabankans, sem er vanur og hefur fastar reglur til þess að endurkaupa afurðavíxla eftir, heldur en að láta viðskiptabankakerfið algerlega eitt um að sinna lánsfjárþörfum þessara atvinnugreina.
Það er rétt að bæta því við, að þó að ég hafi sagt hér áðan, að afurðalán Seðlabankans til sjávarútvegs og landbúnaðar hafi í árslok 1958 verið 640 millj. og við s.l. áramót 750 millj., þ.e. aukizt um 110 millj. kr., þá má auðvitað ekki af þessu draga þá ályktun, að sjávarútvegur og landbúnaður hafi ekki haft nema 110 millj. kr. meira lánsfé til umráða í lok s.l. árs en í lok ársins 1958. Þetta hafa þeir haft meira til umráða úr Seðlabankanum, sem í öðrum löndum yfirleitt veitir alls ekki slík lán. Að sjálfsögðu hafa svo bæði sjávarútvegur og landbúnaður fengið miklu, miklu meira aukið fé til umráða frá hinu almenna viðskiptabankakerfi, sem á að hafa það sem sína höfuðskyldu að sinna þörfum sjávarútvegs, landbúnaðar, iðnaðar og verzlunar og samgangna, atvinnulífsins yfirleitt. Það, sem ég hef verið að tala um, er eingöngu hlutdeild sjálfs Seðlabankans í útlánum til atvinnuveganna. Ef menn vildu vega og meta, hvernig séð hefur verið fyrir þörfum helztu atvinnuveganna yfirleitt, þarf náttúrlega að taka heildarútlán allra banka og sparisjóða í landinu og þá auðvitað að Seðlabankanum meðtöldum.
Ég vildi því slá botn í þetta með því að leggja áherzlu á, að til þess ber brýna nauðsyn, að þetta frv, verði samþ. og Seðlabankinn fái þær rýmkuðu heimildir til yfirráða yfir sparifjáraukningu þjóðarinnar, sem þar er gert ráð fyrir, því að á því er ekki nokkur minnsti vafi, að með því móti verður sparifjáraukningin hagkvæmar og skynsamlegar hagnýtt en ef þetta væri látið undir höfuð leggjast. Það er engin gagnrýni á viðskiptabankana, siður en svo, þótt ég fullyrði, að ef það fé, sem t.d. á s.l. ári fór í Seðlabankann og var endurlánað af honum til sjávarútvegs og landbúnaðar, hefði ekki gengið í Seðlabankann og viðskiptabankarnir sjálfir hefðu átt að ráðstafa þessu sama fé, þá hefði það komið að verri notum en það raunverulega kom, með því að viðskiptabankarnir voru lögum samkvæmt skyldaðir til þess að leggja 25% af sinni innstæðuaukningu inn í Seðlabankann og hann endurlánaði síðan féð aftur. Ég vil undirstrika það, því að það vil ég ekki láta misskilja, að í þessu felst engin gagnrýni í sjálfu sér á störf, hvorki einstakra viðskiptabanka né heldur viðskiptabankanna í heild, en þeir eru orðnir margir, og nokkrir þeirra eru einkabankar, sem ríkisvaldið hefur mjög takmörkuð afskipti af og á að hafa mjög takmörkuð afskipti af, fyrir því er beinlínis ráð gert. Einmitt þess vegna er þetta vísasti og vænlegasti vegurinn til að tryggja skynsamlega og hagkvæma hagnýtingu lánsfjárins, að beina nokkrum hluta sparifjáraukningarinnar á hverju ári um hendur Seðlabankans og láta hann endurveita féð til undirstöðuatvinnuveganna, sjávarútvegs, landbúnaðar og iðnaðar, eftir föstum reglum, sem Seðlabankinn hefur þegar árareynslu í að framkvæma, þessum atvinnuvegum eða tveim þeim fyrrnefndu til mikils góðs.