27.04.1964
Neðri deild: 84. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1659 í B-deild Alþingistíðinda. (1152)

83. mál, Seðlabanki Íslands

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það voru nokkur orð, sem hæstv. menntmrh. eða viðskmrh. sagði, sem gefa mér tilefni til þess að taka hér til máls. Ég þarf litlu við það að bæta, sem forustumenn stjórnarandstöðunnar þegar hafa sagt um þetta mál, sem hér liggur fyrir, í höfuðatriðum, en mér þætti vænt um, að hæstv. viðskmrh. yrði látinn vita af því, ef hann er í húsinu, að ég ætla að ræða ofur lítið við hann atriði, sem hann minntist á.

Þetta frv. gengur út á það að auka vald Seðlabankans og seðlabankastjórnarinnar, og hæstv. viðskmrh. sagði í einni af sínum ræðum, að þetta frv. og það vald, sem Seðlabankanum hefði verið gefið með því, hefði gert ríkisstj. kleift að hafa skynsamlega heildarstjórn á atvinnulífinu. Og enn fremur sagði hann, að Seðlabankinn mundi beita þessu valdi eins og hingað til af fullri gát og festu og ef eitthvað hefði farið aflaga, þá væri það ekki vegna þess, að Seðlabankinn hefði brugðizt skyldu sinni. Þegar um svona mál er að ræða, sem raunverulega varða alla stjórn á okkar atvinnulífi og okkar efnahagslífi, og þegar á að gefa nokkrum embættismönnum utan þingsins vald til þess að ráða í þessum efnum og því er haldið fram við Alþingi, að Alþingi sé alveg óhætt að veita þetta vald, þessir menn hafi farið svo vel með þetta fram að þessu, þá er full ástæða til þess að rifja upp, hvað gerzt hefur í slíkum efnum og hvort Alþingi hefur ástæðu til þess að sýna þeirri stofnun, sem þarna er um að ræða, það traust, sem þarna er farið fram á. Hvernig hefur Seðlabankinn komið fram og beitt því valdi, sem honum hefur verið gefið fram að þessu? Seðlabankinn hefur misbeitt þessu valdi og það á einhvern hrottalegasta hátt, sem embættisvaldi hefur verið misbeitt á Íslandi. 1962 höfðu atvinnurekendur og verkamenn samið um það að hækka kaupgjald, og það lá fyrir yfirlýsing frá hæstv. ríkisstj. um, að það væri einkamál atvinnurekenda og verkamanna, hvaða kaupgjald skyldi vera í landinu, hún mundi ekki skipta sér af slíku. Það, sem þá gerðist, eins og menn muna, var það, að Seðlabankanum var skyndilega með brbl., sem vægast sagt voru tvíræð frá stjórnskipulegu sjónarmiði, að mínu áliti brot á stjórnarskránni, gefin heimild til þess að ráða genginu á íslenzkri krónu, þó skyldi samþykki ríkisstj. koma til. En í 4. gr. l. um Seðlabankann er, eins og menn muna, seðlabankastjórninni falið, að stjórna peningamálum landsins þannig, að verðlag haldist stöðugt.

Hvað gerði nú seðlabankastjórn í ágústbyrjun 1961, þegar hún hafði fengið þetta vald í hendur, og hvernig var ástandið í landinu, þegar hún gerði það, sem hún gerði þá? Afstaða landsins út á við, eins og skýrslur sjálfrar seðlabankastjórnarinnar sanna, hafði batnað um ca. 12%. Þær vörur, sem við flytjum út, höfðu hækkað, þær vörur, sem við fluttum inn, höfðu lækkað, þannig að verzlunarleg aðstaða landsins hafði stórbatnað hvað verðið snertir. Öll venjuleg hagfræðileg rök voru þess vegna meðmælt því, að þessi kauphækkun, sem samið hafði verið um, væri látin standa. En hvað gerði þá seðlabankastjórnin? Seðlabankastjórnin felldi gengi íslenzku krónunnar, og ríkisstj. samþykkti þetta. Þessi verknaður seðlabankastjórnarinnar þá var í mótsetningu við öll hagfræðileg lögmál, þverbrot á öllum klassískum lögmálum borgaralegrar hagfræði. Þessi verknaður seðlabankastjórnarinnar var, þó að maður geti aldrei rannsakað neinar hvatir, þá virtist hann gerður einvörðungu til þess að ná sér niðri á verkalýðshreyfingunni og til þess að sýna henni, að það væri til í landinu sterkara vald en atvinnurekendavaldið, sem gæti svipt hana afleiðingunum af hennar frjálsu samningum, ef því valdi væri beitt. M.ö.o.: seðlabankastjórnin, sem Alþingi á nú að fara að sýna svo mikið traust, að gefa henni aukið vald, var að misbeita sínu valdi í þágu nokkurra braskara í landinu á móti verkalýðshreyfingunni og móti öllum venjulegum lögmálum atvinnulífs og efnahagslífs og móti lögum um Seðlabankann, sem henni bar að starfa eftir.

Ef einhver skyldi ætla, að ég gerði kannske seðlabankastjórninni þarna órétt til og hún hefði ekki verið inni á þessu, heldur hefði hæstv. ríkisstj. knúið þetta fram, þá vil ég minna á, að ef stjórn Seðlabankans hefur haft eitthvað við þetta að athuga, þá er henni beinlínis fyrirlagt í 4. gr. l. um Seðlabanka, ef hún er ekki sammála ríkisstj., að láta það koma fram sem sitt sérstaka álit, þannig að svo framarlega sem henni frá almennu þjóðhagslegu sjónarmiði virtist þetta ekki rétt, bar henni að láta það koma fram. Það hefur sýnt sig, að gengislækkunin í ágúst 1962 var að öllu leyti hringavitlaus ráðstöfun, fyrir utan hve svívirðileg hún var gagnvart verkalýðnum í landinu. En hún var sérstaklega alröng ráðstöfun af hálfu þeirrar stofnunar, sem átti að sjá um að halda verðlaginu í landinu stöðugu, því að einmitt þessi gengislækkun varð til þess að hleypa af stað nýjum verðlagshækkunum og þar af leiðandi náttúrlega nýjum vinnudeilum og nýjum samningum um kaupgjald.

Ég held þess vegna, að hæstv. viðskmrh. verði að segja okkur sannleikann um, hvað gerðist í þessum efnum og hvort hæstv. ríkisstj. og seðlabankastjórnin þá álíti, að það hefði verið réttur verknaður í ágúst 1961 að lækka gengið á íslenzku krónunni. Það er þess vegna óhjákvæmilegt, þegar verið er að fara fram á það við Alþingi að veita Seðlabankanum aukið vald og hans stjórn með, að það sé úr því skorið, hvort sú stjórn, sem seðlabankastjórnin hefur framkvæmt fram að þessu á efnahagslífi landsins, sé álitin rétt eða ekki. Menn geta gert vitleysur, og þá er bezt, að menn kannist við þær á eftir. Hingað til hefur ekki fengizt fram neitt annað en að það, sem þá hafi verið gert, hafi verið rétt og maður megi eiga von á því, að þess háttar aðferðum sé máske beitt aftur, sérstaklega ef kosningar eru fjarri. Seðlabankastjórnin var hræddari við slíkt, þegar kosningar komu nær, en óhrædd 1961.

Enn fremur sagði hæstv, viðskmrh., að það vald, sem Seðlabankanum hefði verið gefið með þessum lögum, hefði gert ríkisstj. kleift að hafa skynsamlega heildarstjórn á atvinnulífinu. Ég hef satt að segja ekki orðið var við þessa skynsamlegu heildarstjórn á atvinnulífinu, og ef hún er til, þætti mér vænt um, að það yrði bent á hana. Ég held, að stjórnin á atvinnulífinu, sem fyrst og fremst er náttúrlega það, sem Seðlabankinn og hæstv. ríkisstj. geta haft vald á, þ.e. fjárfestingin í atvinnulífinu, hún hafi verið ákaflega stjórnlaus allan þennan tíma. Eða mundu menn vilja halda því fram, bæði hæstv. viðskmrh. og seðlabankastjórnin, að t.d. bílaumboðshallirnar inn við Suðurlandsbraut hafi verið æskilegasta og nauðsynlegasta fjárfestingin í íslenzku atvinnulífi núna? Ég held, að Seðlabankinn hafi ekki notað það vald, sem hann að ýmsu leyti gæti haft, til þess að hafa skynsamlega stjórn á atvinnulífinu, heldur þvert á móti, hann hafi ýtt undir óstjórn á atvinnulífinu. E.t.v. hafa einhverjir af þeim mönnum, sem Seðlabankanum stjórna, gengið með þær hugmyndir, að það væri hægt með svipaðri peningapólitík og hægt er í Bandaríkjunum eða Bretlandi að hafa stjórn á atvinnulífinu hér. Það er ekki hægt, og það er ekki heldur nema að litlu leyti hægt í þeim stóru löndum, en þó þægilegra að koma því við. En það er hrein bábilja skólapilta, sem eru útlærðir frá skólum þar, ef þeir halda, að það sé hægt að stjórna atvinnulífi Íslands með einhverju slíku, og þeir menn þurfa að læra og kannske eru þeir eitthvað að læra. Það er ekki hægt að stjórna atvinnulífinu hér á Íslandi, svona litlu landi, nema með því beinlínis að grípa inn í það og skipta sér af því. Ég held þess vegna, að það sé ekki hægt að fara fram á það við Alþingi, að það samþykki þetta frv., út frá því sjónarmiði að veita Seðlabankanum meira vald til að hjálpa ríkisstj. til að hafa skynsamlega heildarstjórn á atvinnulífinu, því að hún hefur ekki verið fyrir hendi, svo að það hefur ekki heldur verið hjálpað til slíks fram að þessu. Ef Seðlabankinn hefði haft verulegan áhuga á slíku, hefði hann átt að beita sér fyrir því, að tekin væri upp áætlunargerð, ekki aðeins um ríkisbúskapinn, heldur um allan þjóðarbúskapinn fram í tímann. Maður heyrir varla svo fréttir nú, að það séu ekki einhverjir og einhverjir aðilar að fara fram á það, að það séu gerðar áætlanir. Seinast vorum við að heyra í gær, held ég, að læknarnir í Reykjavík væru að fara fram á 10 ára áætlanir um spítalabyggingar. En hvernig dettur mönnum í hug, að það sé hægt að gera einhverjar áætlanir, sem að gagni koma í þjóðfélaginu, áætlanir kannske um spítalabyggingar út af fyrir sig, um vegi út af fyrir sig, um landbúnað út af fyrir sig, um alla þætti þjóðarbúskaparins út af fyrir sig og enga áætlun um þjóðarbúskapinn í heild? Sjá menn ekki, að slíkt er tóm vitleysa? Allar áætlanir, sem búnar eru til um einstaka þætti þjóðarbúskaparins, verða ekki nema óskadraumar og óskalistar, alveg eins og sú heildaráætlun, sem hæstv. ríkisstj. sendi út fyrir kosningarnar og hún sjálf eyðilagði með einni lítilli gr., sem hún lét bæta við lög, sem hér voru samþykkt í vetur um, að það skyldi fresta meira eða minna öllum framkvæmdum samkv. fjárl., nema því aðeins að það væri álitið heppilegt að vinna að því, eða hvernig sem það var nú orðað.

M.ö.o.: hvar sem við berum niður í þjóðfélaginu, er sama nauðsyn á því, að það sé heildaráætlun um allan þjóðarbúskapinn. Sú seðlabankastjórn, sem þykist vera að stjórna einu þjóðfélagi og stjórna skynsamlega atvinnulífinu og þykist vera sérfræðingur í þessum málum og segir ekki hæstv. ríkisstj. slíkt, stendur ekki í stöðu sinni, eins og hún á að gera. Hver einasta stjórn á seðlabanka í allri Evrópu gerir meira eða minna af slíku, og það eru þá tiltölulega þekkingarlitlir menn á þarfir íslenzks atvinnulífs, ef þeir hafa aldrei sagt hæstv. ríkisstj. slíkt.

Það má vera, að bæði hjá hæstv. ríkisstj. og stjórn Seðlabankans hafi gætt nokkuð mikið þess kapps að reyna að sýna verkalýðshreyfingunni í landinu fram á, að hún gæti ekki hækkað kaup meira en ríkisstj. á hverjum tíma áliti heppilegt. En ég held, að ein seðlabankastjórn eigi ekki að láta stéttapólitíska afstöðu móta sínar hugmyndir og sínar framkvæmdir, svo framarlega sem hún vill vinna í þágu atvinnulífsins í heild.

Seðlabankastjórn þarf að þora að hugsa eins og aðili, sem væri að ala upp þá, sem hann hefur með að gera. Og það er mín skoðun, að eitt af því, sem íslenzkt atvinnulíf, — nú tala ég um atvinnulífið, en ekki verkalýð og launþega almennt út af fyrir sig og þeirra hagsmuni, — eitt af því, sem íslenzkt atvinnulíf þurfi alveg sérstaklega á að halda sjálfs sín vegna, þ.e. vegna framfara og betri skipulagningar atvinnulífsins sjálfs, það sé veruleg kauphækkun, sem atvinnurekendur fái að velta yfir á verðlagið. Það er eitt af því, sem stendur íslenzku atvinnulífi fyrir þrifum og hefur staðið um áratugi, að kauphækkanir, sem samið hefur verið um, hafa ekki fengið að hafa þau áhrif að knýja fram sífelldar breytingar og sífelldar framfarir í skipulagningu og tækni atvinnulífsins sjálfs.

Við vitum af því, að í skipaútbúnaði okkar og veiðitækni og öðru slíku hafa orðið stórkostlegar framfarir, einmitt þar sem svo að segja hagsmunir atvinnurekendanna og sjómannanna fara að miklu leyti saman vegna hlutafyrirkomulagsins, en hins vegar ríkir raunverulega meiri eða minni stöðnun í sjálfri tækni eða skipulagningu atvinnutækjanna í landinu, sérstaklega þó í skipulagningu þeirra. Og má það undarlegt vera, af því að ég veit nú, að okkar atvinnurekendur hafa það mikil sambönd og sigla það mikið, að þeir sjá fyrir sér, hvernig verksmiðjur eru reknar erlendis, að þeir hljóta að vera farnir að reka augun í það t.d., að þessi þorskhausadans eins og hér í Reykjavík, það er úrelt fyrirkomulag í atvinnurekstri. Og af því að margir af okkar atvinnurekendum hafa nú ekki beina andúð á Bandaríkjunum og þeirra atvinnulífi. þá ættu þeir a.m.k. að hafa gert sér nokkurn veginn ljóst, að eitt af því, sem var aðalhreyfiafl tæknilegra framfara í Bandaríkjunum, voru sífelldar kauphækkanir verkamanna, sem þeir gátu ekki velt yfir á verðlagið.

Í okkar iðnaði í landi, í okkar verzlun í landi, þá er þessi siður að láta velta yfir á verðlagið tillum hækkunum, ekki aðeins rán gagnvart verkalýð og launþegum, heldur stórtjón fyrir atvinnulífið og atvinnureksturinn sjálfan, vegna þess að það staðnar. Kauphækkanir fá ekki að njóta sín sem hreyfiafl, sem knýr fram framfarirnar, svo fremi að verðlagið er alltaf látið hækka. Þetta á seðlabankastjórn að sjá, og þetta á hún að þora að segja við atvinnurekendur, og þetta á hún að þora að knýja fram. Ein seðlabankastjórn, sem stjórnar raunverulega öllum öðrum bönkum og ræður þeirra pólitík í þessum efnum, hefur fulla aðstöðu til þess, og hennar vald er ekki svo litið hér á Íslandi, enda hefur hún sýnt það, að hún á að geta knúið slíkt fram. Hún á ekki að smitast svo sjálf af afturhaldssömum hugsunarhætti gamaldags atvinnurekenda, sem eru að dragast aftur úr öllu, að hún fari að gera slíka pólitík úrelts atvinnurekstrar að meginpólitík í íslenzku atvinnulífi.

Ég vil sérstaklega segja þetta núna vegna þess, að samningar standa fyrir dyrum milli verkamanna og atvinnurekenda: Eitt af því, sem íslenzkt atvinnulíf þarf á að halda, er aðhald að okkar eigin atvinnurekendum, og það aðhald hefði stjórn Seðlabankans fyrir löngu átt að sýna. Það þarf aðhald að okkar eigin atvinnurekendum í landinu til þess að ala þá upp, til þess að láta þá í sífellu breyta um tækni í sínum fyrirtækjum, til þess að láta þá steypa fyrirtækjunum saman, til þess að gera þau svo stór, að það sé hægt að koma við einhverri almennilegri hagræðingu.

Það er sérstaklega eðlilegt, að ég segi þetta, þegar íslenzkur verkalýður og íslenzkir launþegar hafa enga kauphækkun fengið í 20 ár, heldur búa við upp undir 20% lægra kaupgjald, þeir lægst launuðu þeirra, heldur en var fyrir 20 árum, og þegar skammsýnir menn bera því í sífellu við, að það séu kauphækkanirnar á Íslandi, sem að einhverju leyti valdi þeim erfiðleikum, sem íslenzkir atvinnuvegir verða öðru hverju við að búa.

Kaupmáttur tímakaupsins í dag er miklu lægri en var fyrir 20 árum, og er Ísland þó allmiklu ríkara og tækni Íslands öll margföld á við það, sem þá var. Og það er óeðlilegt, að slíkt ófremdarástand skuli eiga sér stað, á sama tíma sem þau lönd í kringum okkur, sem urðu illa út úr stríðinu, á meðan Ísland græddi á því, hafa byggt sig upp, hafa hjá sínum verkalýð alls staðar hærri og betri lífskjör en núna er hjá okkur, bæði hér á Norðurlöndum og Bretlandi, og dettur sízt af öllu í hug að leggja annan eins vinnutíma á verkamenn og hér er gert. Þá er svo sannarlega tími til kominn, að menn í tíma athugi, að hér þarf að brjóta í blað.

Ég þekki ekki, hvað gerzt hefur í viðskiptum seðlabankastjórnar og hæstv. ríkisstj. um öll þessi mál á undanförnum árum, en mér þætti þó vænt um að fá upplýsingar um það, t.d. þegar enska lánið var ákveðið og tekið. Hafði seðlabankastjórn nokkurn tíma nokkurn skapaðan hlut við það að athuga, eða áleit hún það í samræmi við þá stefnu í útlánamálum, sem hún hafði framfylgt? Maður á stundum dálítið erfitt með að skilja, að það sé nauðsynlegt að taka stór lán í útlendum gjaldeyri, á sama tíma sem við eigum stórfé í íslenzkum gjaldeyri hér heima. Eða í öðru lagi: á þeim tíma sem innflytjendum var gefinn kostur á allmiklum lánamöguleikum erlendis og það var m.a. notað í þessi geigvænlegu bílakaup, sem setja mark sitt ekki sízt á síðasta ár, hafði seðlabankastjórnin ekki nokkurn skapaðan hlut að athuga við þá pólitík og fannst henni hún vera í samræmi við hennar útlánapólitík? Það er aðeins gaman að fá upplýsingar um þetta til þess að vita, hve mikið megi treysta þessari stjórn Seðlabankans út frá Seðlabankans eigin yfirlýsingum og efnahagspólitík. Ég er hræddur um, að það megi ekki vera of mikið samband þarna á milli. Það er að vísu rétt, að ein ríkisstjórn á að ráða stefnu Seðlabankans. En þeir menn, sem settir eru hér í stjórn Seðlabankans, eiga í fyrsta lagi að hafa eitthvert vit úr atvinnulífinu, og þeir eiga í öðru lagi að vera það sjálfstæðir menn, að þeir þori að standa við sínar skoðanir, ef þeir hafa þær. Það þýðir í þessum tilfellum, sem ég hef nefnt, ekki þó sízt um gengisskráninguna 1961, að annaðhvort eru þeir menn, sem stjórna Seðlabankanum, tæki í höndum ríkisstj., og þá eiga þeir ekki að vera þar, ef þeir hafa enga sjálfstæða skoðun á þessum málum, eða þá að þeir taka upp hjá sjálfum sér að gera aðra eins herjans vitleysu og þarna hefur verið gerð, og þá eiga þeir satt að segja ekki heldur að vera þar. Mér þætti mjög gaman að vita, hvort það sé algert samræmi að hafa þessa verönd þarna á milli, því að þeir menn, sem stjórna seðlabanka hjá einu þjóðfélagi, ekki sízt þar sem það hefur eins mikið vald og okkar, þeir eiga vissulega að vita meira en hæstv. ráðh. í ríkisstj., og þeir eiga sérstaklega að vera færir um, vegna þess að þeir eiga að hafa þekkingu á þessum málum, einmitt að ráðleggja ríkisstj. heilt, að beita valdi heilt, og þess vegna eiga þeir að geta komið í veg fyrir ýmsar þær vitleysur, sem gerðar hafa verið.

Ég vil alveg sérstaklega leggja áherzlu á, að það væru gefin sem bezt svör við þessum spurningum núna, þegar við erum að ræða þessi efnahagsmál og þegar samningar eru fram undan um kaupgjald í landinu, þegar vitað er, að okkar atvinnulíf, að því er snertir afköst okkar sjávarútvegs, stendur betur en nokkurn tíma áður, af því að flotinn er meiri og sjórinn gjöfulli, en skipulagið á allri móttöku innanlands aftur á móti og því að hagnýta þennan sjávarafla þannig, að menn kvarta yfir því, þeir sem bera mesta afla að landi, sem nokkurn tíma hefur komið á land á Íslandi á skömmum tíma, að það sé ekki hægt að taka við honum. Skipulagið á okkar móttöku í landi er ekki skynsamlegra og betra en það, að það er ekki hægt að hafa stjórn á því að einbeita vinnuaflinu á hverjum tíma að því, sem nauðsynlegt er. Í smáu vinnustöðunum úti á landi er það oft svo, að allt fólk, allar húsmæður og allir fara að vinna, ef liggur á að bjarga aflanum. Hér í Reykjavík mætti sannarlega stundum loka einhverju af skrifstofum og iðnfyrirtækjum til þess að sjá um, að það yrði tekið á móti þeim afla, sem í land bærist, og hér er alltaf nægur mannafli til þess að geta séð um allt það, sem sjórinn gefur okkur. Og það er satt að segja hart, að þegar við getum ausið upp auðnum úr sjónum, þá skuli það vera skipulagið í landi, sem vantar til þess að geta hagnýtt þennan auð, geta komið þessum fiski í peninga. Þegar þess vegna möguleikarnir á að geta hækkað kaup og hækka kaup mikið og hækka raunverulegan kaupmátt tímakaups verulega, þegar allar aðstæður þjóðfélagsins mæla með því, þá er nauðsynlegt, að Alþingi viti af því, hvort stjórn Seðlabankans er enn þá nokkuð farin að læra af þeim vitleysum, sem hún hefur gert undanfarin ár, hvort hún lítur einhverjum öðrum augum á slíkt og mundi ráðleggja hæstv. ríkisstj. betur en hún hefur gert í þessum efnum undanfarið.