11.05.1964
Efri deild: 87. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1728 í B-deild Alþingistíðinda. (1175)

83. mál, Seðlabanki Íslands

Alfreð Gíslason:

Herra forseti. Það er mikið rétt, að bankaútibúum hefur fjölgað mjög að undanförnu og að áliti margra ískyggilega mikið ört. Að því leyti til er það ekki út í hött, að það mál sé tekið til umr. hér á Alþingi. Hins vegar finnst mér þetta mál bera mjög óheppilega að nú í þinglokin, því að þótt við séum sammála um, að hér þurfi að spyrna við fæti, er ekki þar með sagt, að við séum allir á einu máli um, með hverjum hætti það skuli gert.

Eins og fram hefur verið tekið hér í umr., hafa a.m.k. ríkisbankarnir fullt vald til að stofna útibú að lögum. Með þessari brtt., sem hér liggur frammi, er ákveðið að svipta bankana að fullu þessum rétti. Ég hefði getað hugsað mér, að einhver önnur leið kæmi til greina, t.d. að málið væri athugað á þeim grundvelli, að réttur bankanna til stofnunar útibúa yrði takmarkaður, án þess að hann yrði að fullu af þeim tekinn. Og í öllu falli er ég alveg sammála því, sem hv. 3. þm. Norðurl. v. lagði áherzlu á, að hv. þdm. þurfa að fá tíma til að athuga þetta mál, svo og það, sem í 2. brtt. felst og ég skal ekki ræða um hér. Þess vegna vil ég fyrir hönd okkar Alþb.-manna hér í hv. d. fara fram á það við hæstv. ráðh., að hann dragi þessa till. til baka nú í þetta sinn og málið verði betur athugað og síðan lagt fyrir t.d. næsta þing í byrjun. Ég held, að það sé enginn voði á ferðum, þótt þessir mánuðir liði þangað til þing kemur saman að nýju á n. k. hausti.

Ef hæstv. ráðh. vill ekki verða við þessari bón minni hl., vil ég mælast til þess við hæstv. forseta, að hann taki málið af dagskrá, þannig að þdm, gefist kostur á að athuga málið a.m.k. þar til á morgun.