11.05.1964
Efri deild: 90. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1754 í B-deild Alþingistíðinda. (1185)
83. mál, Seðlabanki Íslands
Páll Þorsteinsson:
Herra forseti. Ég sakna þess, að hæstv. ráðh., sem er í forsvari fyrir ríkisstj. í þessu máli, er hér ekki í sæti sínu. En þegar þess er gætt, að hann hefur nú, — í gær, má segja, það er nú komið fram yfir miðnætti, lagt hér fram í raun og veru nýtt mál, sem er í eðli sínu mjög mikilvægt, þá tel ég það ekki benda á mikla þrautseigju eða þol af hálfu hæstv. ráðh. að fylgja ekki þessu máli fram og hlýða á þær athugasemdir, sem þm. hafa við það að gera. Ég get ekki látið hjá líða að endurtaka það, að hér er um næsta óvenjulega aðferð að ræða. Það má áreiðanlega leita nokkuð vel í þingsögunni til þess að finna alveg hliðstæð dæmi. Ég vil ekki segja, að hliðstæð dæmi séu ófinnanleg, en þau eru ekki mörg, að þegar mál hefur legið jafnlengi fyrir Alþingi eins og þetta frv., búið að ganga í gegnum aðra deildina, sem hefur haft það mjög lengi til athugunar, og er komið á allra siðasta stig í seinni deildinni, að þá sé komið með inn í málið alveg nýtt efnisatriði, stórfellt efnisatriði, og ætla að knýja það fram, helzt á örstuttri stund. Og ég hefði viljað fá svör frá hæstv. ráðh. um það, hvað hefur komið fyrir, sem knýr til þessarar aðferðar.
Það hefur verið vikið að því í þessum umræðum, að bankaútibú úti á landi séu víða færri en fólkið í héruðunum mundi gjarnan óska. Og það er sannast sagna, að það eru farnar margar leiðir til þess að draga hið lausa fjármagn utan af landsbyggðinni yfir í bankana og aðrar stofnanir hér í höfuðstað landsins. Hinir miklu fólksflutningar utan af landsbyggðinni og hingað, þar sem þéttbýlið er mest, hafa í för með sér mjög mikla flutninga á verðmætum. Fólkið, sem hefur unnið bezta starfstíma ævinnar úti á landsbyggðinni, en flytur síðan hingað í þéttbýlið, reynir að færa með sér eins mikið af verðmætum sínum og það frekast getur. Og þeir, sem eftir standa við atvinnurekstur og uppbyggingu úti á landsbyggðinni, verða í þess stað að safna skuldum til þess að komast yfir þær eignir, sem hinir, sem burt flytja, láta af hendi. Það er þó augljóst og skýrslur sýna það, að gjaldeyrisöflunin er mjög mikil t.d. í sjávarþorpunum úti um land og í sumum þeim stöðum hlutfallslega miklu meiri gjaldeyrisöflun á mann heldur en er þar, sem fjölmennið er mest. Hér eru starfsgreinar miklu fleiri og hlutfallslega miklu fleiri af íbúunum bundnir við störf í skrifstofum, opinberum stofnunum og ýmsum fyrirtækjum, þannig að fólkið í sjávarþorpunum víða úti um land tekur almennari þátt í gjaldeyrisöfluninni en þeir, sem eru hér í mesta þéttbýlinu. Opinberar stofnanir þjóðfélagsins eru einnig langsamlega flestar hér á tiltölulega litlum bletti: Þær draga að sér mikið fjármagn, t.d. Tryggingastofnunin, en iðgjöld til hennar eru eins konar skyldusparnaður, sem tekinn er af sérhverjum fullvinnandi manni í landinu. Og höfuðstöðvar Tryggingastofnunarinnar eru hér. Þannig er því háttað um atvinnuleysistryggingasjóðinn, sem er orðinn mjög fjársterk stofnun. Það fé, sem til þeirrar stofnunar er fengið, er tekið úr öllum hinum stærri sveitarfélögum um gjörvallt landið, en er dregið saman hér í höfuðstaðnum. Og í kjölfar þessa kemur svo það, að þeir, sem eru að halda uppi atvinnurekstri eða viðskiptum úti á landsbyggðinni, þurfa að verja mjög miklum tíma, fyrirhöfn og raunar fjármunum til þess að fá nauðsynlega fyrirgreiðslu hér í höfuðstaðnum. Stofnun bankaútibúa vegur á móti þessari þróun, svo langt sem það nær. Og þessi þróun er svo ör í þjóðfélaginu, að það er fyllilega réttmætt að styðja að og fremur að örva heldur en að bregða fæti fyrir stofnun bankaútibúa í flestum héruðum eða öllum héruðum landsins. Nú er stefnt að því með þessu frv. að koma í veg fyrir, að svo verði, nema þeim ráðh., sem fer með yfirstjórn bankamála, þóknist að leyfa slíkt.
Það er löng leiðin til keisarans, segir gamalt máltæki. Þó að fólkið úti í héruðunum fari að vinna að því t.d. að breyta sparisjóði í bankaútibú til þess að fá meira fjármagn inn í héraðið, þá á það ákaflega langa leið með þetta áhugamál sitt, þangað til það getur komið til úrslita. Það þarf vitanlega fyrst að leita samþykkis þess viðskiptabanka, sem ætlað er að stofna útibúið. Eins og fyrr hefur verið rakið, þá er viðskiptabankinn, ef þetta frv. verður samþ. með þeirri breytingu, sem hér er lagt til, ekki lengur frjáls að því, á ekki að hafa vald til þess að kveða á um slíkt. Hann verður að senda umsókn til Seðlabankans og Seðlabankinn að koma henni áleiðis upp í ráðuneytið. Og þá fer það alveg eftir áliti og geðþótta hins hæstv. ráðh., hvaða afgreiðslu slíkt mál fær. Ég verð að segja það eins og er, að hér þykir mér of langt gengið og ég get ekki fellt mig við svona löggjafaratriði. Mér finnst það blátt áfram benda á, að bankaráðunum sé ekki treyst. Það eru þó þingkjörnar nefndir og eru kosnar í hlutfalli við styrkleika flokkanna hér á Alþingi.
En þetta frv. í heild er mjög athyglisvert að ýmsu leyti. Þegar núv. stjórnarflokkar komu til valda 1960, auglýstu þeir það með óvenjulegum hætti, að hér ætti að taka upp nýja, heilbrigða, trausta stefnu í efnahagsmálum. Það var ekki nóg, að frá því væri skýrt í ræðum á Alþingi og yfirlýsingu ríkisstj. við stjórnarmyndun, heldur var gefin út sérstök bók til þess að gefa þetta til kynna, og grundvallaratriði í þessari nýju og traustu og varanlegu efnahagsstefnu átti að vera stóraukið frelsi í viðskiptum. Og þeir, sem áður höfðu haldið um stjórnvölinn, fengu ámæli fyrir það, hve langt þeir hefðu gengið í því að halda við höftum á ýmsum sviðum þjóðarbúskaparins. Og það er alloft á valdaferli núv. stjórnarflokka, sem á það er minnzt, að það sé hægt að stjórna þjóðfélaginu vel og heillavænlega með aðgerðum í peningamálum, eins og það er orðað.
Hinn almenni borgari í þessu landi hefur orðið 4–5 ára reynslu af þessu nýja kerfi —efnahagskerfi — og af þessari stjórn á peningamálum, sem Seðlabankinn á að hafa forustu um undir umsjón og áhrifavaldi ríkisstj. Lögin um Seðlabankann voru sett af núv. þingmeirihl., eins og áður hefur verið minnt á, en þetta frv. bendir til þess, að þau þyki ekki nú kveða nægilega fast að eða hafa nægilega sterk ákvæði um bindingu sparifjár í landinu, þar sem nú er stefnt að því að koma því í lög, að það sé heimilt að draga inn í Seðlabankann hvorki meira né minna en 25% af umráðafé viðskiptabankanna og annarra innlánsstofnana. Það hefur verið sagt í umræðum um þetta frv., að svo há bindingarskylda muni vera einsdæmi, og ég hef ekki heyrt því mótmælt. Og það hefur einnig verið sagt í þessum umræðum og færð að því gild rök, að svona há bindiskylda muni reynast óframkvæmanleg. Ég tel, að þeir, sem þessu halda fram, hafi fullkomin rök að mæla og reynslan muni staðfesta þetta álit. En hæstv. ráðh, hefur gefið þá skýringu á þessu ákvæði í umræðum um þetta frv., að með þessu eigi að tryggja nægilega öflugan gjaldeyrisvarasjóð og jafnframt draga saman nokkurt fé til að auka afurðalán úr Seðlabankanum til atvinnuveganna. Gjaldeyrisvarasjóður er nokkur fyrir hendi, en þó minni en ætla mætti, þegar þess er gætt, að á móti þessum fasta gjaldeyrisvarasjóði hjá Seðlabankanum koma til frádráttar vörukaupalán og ýmis lán önnur, sem fyrirtæki hafa tekið til skamms tíma. Þessi gjaldeyrisvarasjóður er talinn nauðsynlegur til þess að halda uppi frelsi í erlendum viðskiptum, frjálsræði í viðskiptum til landsins. Og þetta má vissulega til sanns vegar færa. En þetta frelsi í innflutningi er fengið á kostnað frjálsræðis í innlendum viðskiptum, því að rekstrarfjárskorturinn er svo mikil í innanlandsviðskiptum, að til mikilla óþæginda er, svo að ekki sé fastar að orði kveðið. T.d. er því svo háttað, að rekstrarlánum til landbúnaðarins, þ.e.a.s. þeim hluta afurðalánanna, sem veittur er fyrir fram í mánuðunum frá marz til ágúst ár hvert og gengur til þess að kaupa nauðsynlegar rekstrarvörur, sem bændur þurfa að fá á fyrri hluta árs, þessum hluta afurðalánanna er enn haldið í svo föstum skorðum, að þau eru jöfn að krónutölu og þau voru 1958. En á sama tíma þarf miklu fleiri krónur fyrir hverja vörueiningu, sem kaupa þarf til búrekstrarins, heldur en 1958. Verðbólgan og verðlagsbreytingarnar hafa séð fyrir því. Til þessa er bara alls ekki tekið tillit í bankakerfinu, þannig að niðurstaðan er sú, að þó að gumað sé af hinum frjálsu viðskiptum í innflutningi til landsins, þá eru þau að verulegu leyti á kostnað þess, að innanlandsviðskiptin eru reyrð í fastari og fastari hnút.
Þá er það og mjög eftirtektarvert í sambandi við þau rök, sem færð eru fram fyrir þessu máli, að nauðsynlegt sé að fá lögfestingu á þessu frv. til þess að hafa heilbrigða stjórn á peningamálum í landinu, þá er þess að gæta, að sumar innlánsstofnanir, sem þetta lagaákvæði tekur til, ef samþ. verður, hafa svo takmarkað veltufé til umráða, að það hefur harla lítil eða í sumum tilfellum engin áhrif á heildarstjórn peningamálanna, þó að hinar smæstu innlánsstofnanir, eins og sparisjóðir sumir og hinar minni innlánsdeildir kaupfélaganna, væru undanþegnar þessari bindingarskyldu. Ég verð því að vekja athygli á því, að í hv. Nd. var flutt svo hljóðandi brtt. við þetta mál:
„Við útreikning á þeim upphæðum, sem skylt er að afhenda Seðlabankanum inn á bundinn reikning, skal þó aðeins reikna hundraðshluta af þeim innstæðum, sem eru umfram 15 millj. kr. hjá hverri innlánsstofnun.“
Þessi till. mun ekki hafa hlotið samþykki í hv. Nd., þar sem stjórnarflokkarnir munu hafa beitt sér gegn samþykkt hennar. Þessi till. er þó að mínum dómi fullkomlega réttmæt og sanngjörn. Með því að seilast svo langt að láta bindingarskylduna ná til sérhverrar innlánsstofnunar, hversu smá sem hún er, er ekki verið að keppa að því marki einungis, sem haft er þó á orði, að hér sé stefnt að því að hafa vald á peningamálunum, hafa stjórn á peningamálunum, heldur er beinlínis og vísvitandi stefnt að því að draga fjármagn frá fjárvana stofnunum úti á landsbyggðinni inn í Seðlabankann, og þetta markmið verð ég að átelja mjög, því að það er eitt af þeim atriðum, sem bætast við margt annað í þeirri þróun þjóðfélagsmála að draga fjármagnið utan úr héruðunum, þar sem langflestir vinna hörðum höndum við gjaldeyrisöflun og aðra framleiðslu, og færa það hér inn í Seðlabankann til ráðstöfunar fyrir þá, sem honum ráða hér í höfuðstað landsins. Þetta verð ég að leggja áherzlu á, og ég vil átelja mjög, hversu langt er gengið í þessu efni.
Þá virðist svo sem með þessu máli sé stefnt að því að hafa bindingarskylduna svo mikla sem þetta frv. gerir ráð fyrir í því skyni að geta látið fjárfestingu einstaklinganna leika lausum hala. En skipulagsleysið á fjárfestingunni er þjóðarbúinu dýrt. Það er stefnt að því, að á þessu sviði sé frelsi fyrir vissa aðila í landinu, — þ.e.a.s. þeir, sem bezta hafa aðstöðuna, mikið eigið fjármagn og mikið lánstraust, megi án afskipta ríkisvaldsins hafast að í framkvæmdum eins og þeim þykir henta, og þá mun fremur gróðasjónarmið vera sett í öndvegi heldur en horft sé á hag þjóðarinnar í heild. En þetta frelsi er einnig dýru verði keypt, vegna þess að það er fengið að vissu leyti á kostnað annarra framkvæmda, sem meiri þjóðhagslega þýðingu hafa heldur en fjárfesting einstaklinga, og í því sambandi er þess skemmst að minnast, að svo langt er gengið í frelsisskerðingu á sviði fjárfestingarmála, þar sem aðrir eiga í hlut en hinir fésterku einstaklingar, að ríkisstj. hefur aflað sér sérstakrar heimildar til þess að takmarka að miklum mun þær framkvæmdir, sem hv. Alþingi veitti fé til með samþykkt fjárl. fyrir þetta ár undir síðustu árslok. Og nú mun vera komið að því, að það sé verið að ákveða, að hve miklu leyti á að fella niður þær framkvæmdir, sem þingmeirihl. veitti fé til að unnar yrðu á þessu ári. Ég hef það fyrir satt, að nú séu uppi ráðagerðir um það, að ýmsar af þeim framkvæmdum, sem fé er veitt til í fjárl. þessa árs og heyra undir rn. hæstv. menntmrh„ þess sama ráðh., sem er í forsvari fyrir ríkisstj. um þetta mál, eigi að takmarka, svo sem ýmsar skólaframkvæmdir, og ég vænti þess, að ef þetta er rétt, sem ég hef fyrir satt að þessu leyti, gefi hæstv. ráðh. fullnægjandi skýringar á því.
Nei, frelsinu, sem hæstv. ríkisstj. telur sig vera að keppa að og grundvalla stefnu sína á, því er næsta misskipt og það nær ekki til allra þegna þjóðfélagsins eða allra þátta í framkvæmdum í þjóðarbúinu. Og þess má enn fremur geta, að þessi bindingarskylda, sem hér er keppt að því að koma í lög, takmarkar frelsi sparifjáreigendanna yfir sínu eigin sparifé, takmarkar frelsi þeirra til að ráða því, hvar þeir geyma sparifé sitt. Og það kynni svo að fara, þegar svo langt er gengið að takmarka frelsi einstaklinganna yfir sínu eigin sparifé svo mjög sem hér er stefnt að, að það beinlínis drægi úr hneigð manns til þess að geyma sparifé sitt í innlánsstofnunum. Og þá er vissulega ekki stefnt í rétta átt, því að undirstaða þess, að hægt sé að halda uppi framkvæmdum og frelsi í viðskiptum, eins og hæstv. ríkisstj. hefur á orði, þótt frá því sé vikið á borði, eins og ég hef nú drepið á, — undirstaða þess er að örva sparifjársöfnun í landinu, en ekki gera ráðstafanir til þess, að úr henni sé dregið.
Frelsið er einnig takmarkað með þeim hömlum, sem settar eru á útlán úr bankakerfinu. Það er ekki svo, að með þeirri stefnu, sem fylgt er, og þeirri stjórn á peningamálum, sem haldið er uppi, séu raunverulega öll höft lögð niður. Höftin eru færð úr skrifstofunni, sem áður var hérna uppi á Skólavörðustíg og kölluð inn flutningsskrifstofa, inn í bankana. Það er það, sem hefur gerzt við þessa stefnubreytingu. Hvort hinn almenni borgari er nokkuð betur settur með þau höft, sem framkvæmd eru í húsakynnum bankanna, heldur en þau, sem áður voru framkvæmd í opinberum skrifstofum hér uppi á Skólavörðustíg, skal alveg ósagt látið.
Þá má einnig minna á viðhorf hæstv. ríkisstj. til frjálsra samninga um kaup og kjör. Það er vaxandi tilhneiging hjá hæstv. ríkisstj. að láta ákveða kaup sem víðast með gerðardómum. Það sýnir reynslan og margar stjórnarathafnir, sem framkvæmdar hafa verið á undanförnum missirum, og enn má minna á þá atlögu, sem gerð var á s.l. hausti að verkalýðshreyfingunni í landinu, þó að þar færi raunar betur og giftusamlegar á síðustu stundu heldur en á horfðist um skeið.
Það má því segja, að hvert sem litið er, blasir við tilhneiging hæstv. ríkisstj. til þess að skerða frelsi borgaranna og draga vald, sem aðrir hafa haft og öðrum ber að gildandi lögum, í sínar hendur. Og sú brtt., sem hæstv. viðskmrh. beitir sér fyrir að fá lögfesta í sambandi við þetta frv., er einn vottur þessa. Hún er einn þáttur í þessari viðleitni hæstv. ríkisstj., og m.a. af þeim sökum er þetta mál næsta varhugavert. Það hefur verið talið til þessa grundvallaratriði í okkar stjórnarkerfi, að það væri hæfileg skipting valdsins — greining valdsins milli löggjafarvalds, framkvæmdavalds og dómsvalds — og einn þáttur í þessari greiningu valdsins er sjálfstætt bankakerfi, bankakerfi, sem þarf ekki að lúta í einu og öllu valdboði ríkisstj. Og eins og ég drap á í fyrri ræðu minni um þetta mál, var sú skipan, sem gilti eftir eldri l. um Landsbankann, beinlínis grundvölluð á þessu sjónarmiði. Þingið kaus svonefnda landsbankanefnd, og það kaus hana ekki alla í einu. Af því leiddi það, að landsbankanefndin var ekki á hverjum tíma skipuð í sama hlutfalli og þingflokkarnir hverju sinni, því að styrkleiki þingflokkanna breytist að jafnaði eitthvað við hverjar almennar kosningar. Þessi landsbankanefnd kaus síðan bankaráðið og bankaráðið réð svo bankastjórana. Þetta kerfi var beinlínis við það miðað, að Landsbankinn væri fjármálastofnun, sem þyrfti ekki að lúta ríkisstj. á hverjum tíma. En með þeirri nýju skipan, sem upp var tekin um stjórn Seðlabankans, var þessu breytt, og nú er enn gengið á það lagið að draga meira af þessu sjálfstæða valdi, sem Seðlabankanum eðlilega ber, yfir til rn. Þetta tel ég mjög varhugavert.
Ég vil svo leyfa mér, af því að hæstv. viðskmrh. er hér nærstaddur nú við þessa umr., en var ekki viðstaddur hér, þegar ég flutti fyrri ræðu mína um þetta mál í dag, að endurtaka efnislega örfá orð af því, sem ég þá dró fram.
Nú er stefnt að því, að þinglausnir geti orðið innan skamms, og þegar komið er að þinglausnum að þessu sinni, er komið fram undir miðjan maímánuð. Alþingi hefur þegar samþykkt, að næsta reglulegt löggjafarþing skuli koma saman eigi síðar en 10. okt. næsta haust. Það er ekki um að ræða nema 4–5 mánaða sumarfrí eða hlé milli löggjafarþinga. Hvað er það þá, sem knýr svo fast á, að það þurfi að gera þá breytingu, sem hæstv. viðskmrh. keppir að því að fá lögfesta, nú á þessum síðustu klukkutímum, sem hv. Alþingi á setu að þessu sinni? Hvers vegna má ekki þetta mál bíða, þangað til næsta löggjafarþing kemur saman, eigi síðar en 10. okt. næsta haust? Og ég endurtek þá fsp. mína, sem ég bar fram í dag til hæstv. viðskmrh., af því að ég veit, að hann hefur nú kost á að heyra mál mitt: Hvað er það í bankamálum, sem hefur komið fram svo nýlega, að það knýi á að fá þetta mál lögfest nú, og hvað álítur ráðh. að gerist, ef afgreiðslu þessa efnisatriðis, sem um er fjallað í till. hans, er frestað nú og málið skoðað allt betur um það leyti, sem næsta reglulegt Alþingi hefst? Ég vænti þess, að hæstv. ráðh. geri að því leyti hreint fyrir sínum dyrum, að hann skýri frá því, hvað það er að hans dómi, sem knýr á um svo skjóta afgreiðslu á þessu máli.
Ég hef þá farið nokkrum orðum um þetta mál. Vitanlega gæti verið ástæða til miklu fyllri aths. um málið heldur en enn eru fram komnar, og mun ég geyma mér þann rétt, sem ég á eftir í því efni, ef tilefni gefst til, en mun nú að sinni ljúka máli mínu.