12.05.1964
Neðri deild: 99. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1766 í B-deild Alþingistíðinda. (1190)

83. mál, Seðlabanki Íslands

Eysteinn jónsson:

Herra forseti. Klukkan er að verða eitt að nóttu. Ég vil leyfa mér að fara fram á það við hæstv. forseta, að hann taki ekki þetta mál fyrir nú um hánótt, eins og hér er allt í pottinn búið varðandi málið. Málinu hefur verið gerbreytt í Ed., sett inn í það ákvæði, sem eru mjög þýðingarmikil og snerta stefnur í peningamálum og raunar atvinnurekstrarmálum, og þetta var sett inn þar á síðustu stundu.

Ég vil leyfa mér að fara fram á það við forseta, að hann láti nú ræða þetta mál á venjulegum fundartíma, en efni ekki til þess að byrja umr. um málið, eins og þetta horfir allt saman við, kl. eitt að nóttu til. Ég tel ekki sæmilegt að gera slíkt og vil fara fram á það við hæstv. forseta,. að hann taki þessa ósk til greina.

Það væri ekki svo mikið við þessu að segja, ef málið hefði komið hingað vegna einhverrar smávægilegrar formsbreytingar, en það er ekki. Þetta er orðið að nýju máli. Og það er ekki rétt vegna Alþingis að taka upp þann sið að byrja á umr. á þessum tíma nætur. Ég vil því fara fram á þetta við hæstv. forseta.