12.05.1964
Neðri deild: 99. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1766 í B-deild Alþingistíðinda. (1191)
83. mál, Seðlabanki Íslands
Forseti (SB). Af tilefni þessarar öskar hv. 1. þm. Austf. vil ég aðeins segja, að forseti hefur fulla samúð með hv. þm. og öðrum hv. þm., sem hér verða að sitja fund nú að næturlagi, og hefur enga löngun til þess að þröngva kosti þm. Hins vegar er hv. þdm. kunnugt um það, að hér hafa staðið mjög langar umr. í dag, bæði hér í hv. þd. og einnig útvarpsumr. Enn fremur er svo komið þingstörfum, að líklegt er, að þinglausnir verði á fimmtudag. Á morgun er hins vegar ekki fullur vinnudagur, þar sem hv. þdm, er kunnugt um það, að forseti Íslands á þá afmæli. Af þessum ástæðum á forseti mjög erfitt með að verða við óskum hv. 1. þm. Austf., þótt hann væri allur af vilja gerður og skilji, eins og ég sagði, þreytu hv. þm., hafandi setið svo lengi og haldið svo margar ræður og unnið svo mjög sem raun ber vitni. Þess vegna mun forseti freista þess a.m.k. að hefja umr. og sjá hvað setur.