12.05.1964
Neðri deild: 99. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1816 í B-deild Alþingistíðinda. (1203)
83. mál, Seðlabanki Íslands
Vilhjálmur Hjálmarsson:
Herra forseti. Ekki fæ ég varizt þeirri hugsun, að unnt hefði verið að komast hjá því að þurfa nú tvívegis að skera niður umr., ef þessi mál hefðu verið rekin af nokkru meira kappi fyrr á þessu hv. þingi. Það er æðilangt síðan þetta mál var lagt fyrir þingið og það er ákaflega erfitt að sjá, að nokkur nauðsyn hafi borið til þess að haga meðferð þess á þann hátt. sem gert hefur verið. Alveg sérstaklega hlýtur maður að undrast þá aðferð, sem hér er höfð í frammi og ítrekað hefur verið mótmælt hér af ýmsum hv. alþm. á undan mér, að varna nú inn á síðustu fundum þingsins till. líkri þeirri, sem hér hefur mest verið um rædd. Manni verður að hugsa, hvar sé nú allt frelsistalið hjá hv. stjórnarliði, sem klingt hefur í eyrum landsmanna ár eftir ár, allan þann tíma, sem núverandi stjórnarflokkar hafa farið með völd í landinu. Það er heldur ekki fátítt, að slegið sé á þá strengi að þjóðinni sé það höfuðnauðsyn að standa saman um málin. Því furðulegar kemur hún fyrir sjónir sú málsmeðferð, sem hér er höfð í frammi.
Það er ómögulegt að sjá nokkur rök fyrir því, að þetta þurfi að knýjast fram nú. Það, sem hæstv. viðskmrh. hefur sagt hér, að komin sé upp samkeppni milli bankanna um að stofna útibú, þetta eru náttúrlega engin rök og sízt frá þeim, sem er málsvari fyrir stjórnarstefnu samkeppninnar.
Það getur verið fróðlegt að athuga í örstuttu máli, hvað hefur verið að gerast undanfarið í þessum málum. Það hefur verið stofnaður hver bankinn af öðrum. Lengi vel voru þrír bankar í landinu, en á örfáum árum koma fram ný nöfn og nýjar stofnanir, Seðlabanki, Framkvæmdabanki, Iðnaðarbanki, Samvinnubanki o.s.frv. Og það er ekki verið að stinga við fótum, á meðan þetta var að gerast. En kannske það hafi þá verið reynt í leiðinni að gera yfirstjórn hvers banka einfaldari og léttari í sniðum? Það var nú ekki heldur, heldur þvert á móti, því að það hefur verið unnið að því að þenja út yfirstjórn bankanna, fjölga bankastjórum og bankaráðsmönnum o.s.frv. Nei, það var ekki verið að spyrna við fótum, á meðan þessi þróun átti sér stað, enda voru allir bankarnir staðsettir í höfuðstaðnum. Og svo er haldið áfram: Það eru stofnuð útibú á öðru hverju götuhorni í höfuðstaðnum. Og meðan því fer fram, er heldur ekki talin ástæða til að stinga við fótum, — engin. öll þessi útibú veita bæjarbúum vafalaust góða og vel þegna þjónustu, en þó fær maður ekki varizt þeirri hugsun, að auðveldara hefði nú verið fyrir íbúa höfuðstaðarins að ná í banka, jafnvel þó að þeir þyrftu allir að fara niður í Austurstræti, heldur en t.d. fólk, við skulum segja suður á Djúpavogi, að komast til bankaútibúsins á Eskifirði, svo að dæmi sé nefnt annars staðar á landinu. En það er alveg talandi tákn um vinnubrögðin hjá núv. hæstv. ríkisstj. gagnvart dreifbýlinu, að það er fyrst núna, þegar það virðist nokkur skriður uppi um það hjá bönkunum að veita einnig fólkinu úti á landi þá þjónustu, sem bankaútibúin veita, sem á að fara að spyrna við fótum.
Það rifjast upp fyrir mönnum gamla slagorðið um pólitíska fjárfestingu, sem notað var á sínum tíma. Og okkur er það slagorð dálitið minnisstætt, Austfirðingunum, vegna þess að þar eystra fundu höfundar þess sérstakt dæmi til þess að sýna spillinguna í hinni pólitísku fjárfestingu, en það voru vissar framkvæmdir á Austurlandi, sem byrjað var á á dögum vinstri stjórnarinnar. Það voru m.a. síldarverksmiðjurnar. Og það er kannske ekki óeðlilegt, að mönnum sé þetta nokkuð minnisstætt þar eystra, einnig af þeim ástæðum, að það hefur síðan sannazt eftirminnilega, að sú pólitíska fjárfesting varð til þess að bjarga ekki milljónum og ekki milljónatugum, heldur hundruðum milljóna verðmæta fyrir þjóðarbúið. Manni skilst eiginlega, að núna séu bankaútibúin komin undir sama flokk og þessi og önnur fjárfestingarplön, sem þá voru uppi og fengu nafnið pólitísk fjárfesting hjá því liði, sem styður núv. ríkisstj.
Það er, eins og þegar hefur verið tekið fram, alveg vitað mál, að bankaútibúin úti í dreifbýlinu eru lyftistöng í atvinnulífi og verzlunarmálum viðkomandi byggðarlaga, enda hefur verið sótt eftir því að fá slík útibú sett á stofn. Þetta er ákaflega skiljanlegt. Hvernig væru þeir staðir úti á landi settir, sem hafa haft útibú, hvernig mundi fólki þar verða við, ef bankaútibúunum væri kippt í burtu? Hvernig mundi fólki á Seyðisfirði bregða við það, ef Útvegsbankinn, sem starfað hefur þar lengi, væri þar ekki til staðar lengur? Þá gefur það auga leið, að aðrir staðir, sem ekki hafa notið slíkrar fyrirgreiðslu, æskja þess að fá hana. En nú virðist sem sagt eiga að spyrna við fótum í þessu efni, því að til einhvers er verið að berjast fyrir því nú með oddi og egg að koma þessu stöðvunarákvæði inn í löggjöfina.
Það hefði verið rétt að vinna í gagnstæða stefnu og m.a. greiða fyrir því, að útibúin úti á landi gætu veitt meiri þjónustu en þau hafa gert til þessa. Það er alveg opin leið. Ég tek það sem dæmi, að útibú Búnaðarbankans afgreiði fastalánin. Þetta eru lán, sem fara eftir mjög föstum formum. Og jafnvel þó að lánsskjöl væru send aðalbankanum til úrskurðar, þá er náttúrlega alveg gefið að láta greiðslur fara fram í útibúunum, til gífurlegs hagræðis fyrir alla, sem hlut eiga að máli, og enn sjálfsagðara að láta afborganir og vaxtagreiðslur af þessum lánum ganga í gegnum útibúin. Þetta hefur ekki verið gert, verður vafalaust tekið upp einhvern tíma, þó að það kannske kunni að dragast, því að þetta er ekki annað en það, sem sjálfsagt er. En það er nú eitthvað annað, að því er virðist, en það eigi að stuðla að slíku og þvílíku, heldur hið gagnstæða, heldur á að fá ríkisstj. í hendur heimild til þess að stöðva frekari þjónustu við fólkið á landsbyggðinni.
Ég mun að sjálfsögðu ekki brjóta þær reglur, sem hér hafa verið settar um ræðutíma, þó að margt fleira mætti um þetta segja. Ég vil að lokum aðeins segja þetta: Hæstv. viðskmrh., sem ber þetta mál svo mjög fyrir brjósti, hefur setið hér undir alllöngum umr., sem eru þó í sjálfu sér alls ekki óeðlilega langar, því að þetta er ekkert smámál, sem þarna er á ferð, ef nánar er að gáð, án þess að segja hér eitt orð eða svara að nokkru þeim fsp., sem til hans hefur verið beint. Ég vil enn að lokum, um leið og ég lýk máli mínu, spyrja hæstv. ráðherra: Hvað veldur þessu, hvað veldur því, að nú þykir svo nauðsynlegt að koma inn í lög heimild fyrir ríkisstj. til þess að stöðva fjölgun bankaútibúa á landinu?
Hvað veldur þessu? Hvers vegna er þetta borið fram núna? Hver er sú knýjandi nauðsyn, sem rekur hæstv. ríkisstj. til þess að heyja þögula baráttu fyrir þessu máli á löngum næturfundi og komið fast að þinglausnum?