24.02.1964
Efri deild: 51. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1829 í B-deild Alþingistíðinda. (1254)
146. mál, þingfararkaup alþingismanna
Frsm. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, felur í sér tvenns konar breytingar frá því, sem gilt hefur um þingfararkaup alþingismanna. Í fyrsta lagi er hér um að ræða formsbreytingu, þannig að þingfararkaupið skal eftirleiðis vera mánaðarkaup, en ekki dagkaup eins og nú. En í öðru lagi er um að ræða breytingu til hækkunar á laununum sjálfum. Hvað snertir fyrra atriðið, að taka upp það fyrirkomulag, að framvegis verði greitt mánaðarkaup, en ekki dagkaup, þá held ég, að ekki sé ágreiningur um, að það sé til bóta. Hitt atriðið, hversu hátt þingfararkaup eigi að vera hverju sinni, getur auðvitað verið álitamál, og munu sjálfsagt skiptar skoðanir um það milli hv. þm., þannig að sumir munu telja það kaup, sem lagt er til að ákveðið verði samkv. þessum lögum, of hátt, en aðrir of lágt, og má færa fram rök fyrir hvorri skoðuninni sem er. En eins og flutningur frv. ber með sér, hefur orðið um það samkomulag milli þingflokkanna að ákveða þetta á þann veg, sem frv. gerir ráð fyrir.
Fjhn, hefur haft málið til meðferðar, og eins og nál. á þskj. 302 ber með sér, er hún sammála um að leggja til, að það verði samþ. óbreytt.