09.03.1964
Neðri deild: 67. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1847 í B-deild Alþingistíðinda. (1275)

88. mál, eyðing refa og minka

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að eyða löngu máli í að ræða þetta frv., en það er eitt atriði í því, sem ég er ekki sammála. Það er gert ráð fyrir því í 2. gr. frv., að fresta skuli ákvæði 11. gr. laganna um að eitra fyrir refi og minka á næstu 5 árum. Það er vitað mál, að á stórum heiðarlöndum hefur eitrunin gefizt langbezt til þess að eyða þessum meindýrum, og það mundi verða af því verulegt tjón, ef eitrun yrði lögð niður á þessum svæðum. Samkv. 11. gr. núgildandi laga er heimild fyrir veiðistjóra að banna viss svæði til þess að eitra á og fyrirskipa aftur eitrun á öðrum svæðum, og þess vegna hefur hann það nokkuð á valdi sínu, hvort eitrað verður eða ekki. En með þessu frv., ef að lögum verður, er hins vegar útilokað að eitra fyrir refi og minka á þeim svæðum eða alls staðar á landinu, og tel ég, að af þessu geti orðið mikið tjón. Ég hef sannar sagnir af því frá þeim mönnum, sem bezt eru kunnugir á stórum heiðarlöndum, eins og Arnarvatnsheiði, að það er óhugsandi að koma í veg fyrir það, að refir valdi þar stórtjóni, ef eitrun verði algerlega hætt. Þess vegna tel ég, að það sé tjón að því, ef þetta frv. verður samþ. eins og það liggur fyrir hér. Till. hv. þm. Jónasar Péturssonar er til bóta, að hér sé aðeins um 3 ár að ræða, en bezt af öllu væri að fella þetta niður.