28.01.1964
Efri deild: 38. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1853 í B-deild Alþingistíðinda. (1285)
123. mál, sala hluta úr landi Miðhúsa í Egilsstaðahreppi
Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):
Herra forseti. Þetta frv. er flutt að beiðni landbrn: og var á einum tíma gert ráð fyrir, að það yrði tengt við annað frv., þ.e.a.s. heimild til sölu á Litla-Gerði, en við nánari athugun var talið, að það væri réttara að flytja sérstakt frv.
Um þetta mál er að sjálfsögðu svo sem ekkert að segja. Það er aðeins beiðni um að fá lagaheimild til að selja hluta úr hliðhúsum í Egilsstaðahreppi; sem eru eign Skógræktarinnar. Þessi beiðni er fram komin eftir ósk frá Skógræktinni, sem vill selja jörðina, en hún á 11/12 jarðarinnar, en 1/12 hafði verið undanskilinn við sölu, þegar jörðin var seld Skógræktinni, og er í eigu fyrrverandi eiganda jarðarinnar, sem mun ætla að byggja sér þar sumarbústað eða eitthvað slíkt.
Ég hef leitað upplýsinga um þessa jörð hjá Landnámi ríkisins, Pálma Einarssyni, og hann telur, að þessi hluti jarðarinnar, sem til talast um að verði seldur, sé talsverð jörð með talsverða búskaparmöguleika, a.m.k. 60 ha. ræktanlegt land, og þar af leiðandi telji hann eðlilegt, að þarna geti verið stofnað sjálfseignarbýli, en Skógræktin ætlar að taka undan það land jarðarinnar, sem skógur vex á eða er fallið til skógræktar.
Ég hef svo ekki ástæðu til að ræða þetta mál frekar, en tel einboðið að leyfa þessa sölu, þar sem hér er ekki um neitt annað en aðeins formsatriði að ræða, þar sem lagaheimild er talin þurfa til að Skógræktin megi gera sér verð úr því, sem ekki er fallið til skógræktar á þessari jörð.