18.11.1963
Neðri deild: 17. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1879 í B-deild Alþingistíðinda. (1343)
68. mál, lausaskuldir iðnaðarins
Þórarinn Þórarinsson:
Herra forseti. Hv. flm. hefur nú upplýst, að sögusögn hans um, að Framsfl. hafi verið á móti þáltill. 1958 um endurkaup á hráefnavíxlum iðnaðarins, hafi verið byggð á furðulegum misskilningi. Það er rétt hjá hv. þm., að það var nokkur ágreiningur um það, hvort þessa till. ætti að setja í nefnd eða ekki. Flm. fór fram á það, að hún yrði afgreidd nefndarlaust, en eins og hv. þm. vita, er það yfirleitt ekki vani að afgreiða till. frá Alþingi, án þess að þær hafi farið í nefnd, og fara yfirleitt flestir fram á það, að till. fari í nefnd til athugunar. Og þessi atkvgr. fjallaði ekki um neitt annað en það, hvort fylgja ætti þeirri hefðbundnu þingvenju að láta mál fá athugun í nefnd, áður en það er endanlega afgreitt í þinginu, en sú afgreiðsla sagði vitanlega ekki neitt til um það, hvort menn væru með málinu eða á móti, þótt þeir vildu láta það fara í nefnd, enda sýndi það sig, þegar málið kom til nefndar, að þá var það afgreitt þar með meiri hraða en sennilega dæmi eru til um flest mál a.m.k. hér í þinginu og afgreitt þaðan samhljóða og svo samhljóða frá þinginu, svo að um þetta mál var alger samstaða milli allra þingflokka. Þess vegna er algerlega rangt að ætla að halda því fram, að einn flokkurinn hafi verið þar frekar með eða á móti en annar, því að þeir stóðu allir saman að þessari afgreiðslu, eins og hv. flm. viðurkenndi líka að hefði verið við endanlega afgreiðslu málsins.
Ég verð nú að segja það, að mér finnst harla undarlegur útreikningur hæstv. ráðh., hverjir það muni hafa verið, sem hafi samþykkt till. endanlega héðan frá þinginu. Hann sér það í þingtíðindum, að það eru 30 þm. eða 29, sem hafa greitt atkv. með því endanlega, og síðan reiknar hann út: það eru þetta margir sjálfstæðismenn og þetta margir Alþfl.-menn o.s.frv. Ég hélt nú, að hæstv. ráðh., sem þekkir mikið til afgreiðslu þingmála hér, viti ósköp vel, að þegar slík mál eru afgreidd í þinginu, þá vantar talsvert upp á það, að allir þm. séu viðstaddir, og það er ákaflega erfitt að reikna það út, hvort það hafi frekar verið af þessum flokki eða öðrum flokki, að þm. hafi verið fjarverandi í þetta skipti, og ég býst við, að niðurstaðan hafi líka verið sú eins og í allshn., að það hafi greitt atkv. með henni menn úr öllum flokkum og líka menn úr öllum flokkum verið fjarverandi, eins og venja er hér við atkvgr.
En vegna þess að hæstv. viðskmrh. er alltaf að klifa á andstöðu á Framsfl. gegn þessu máli, sem ekki var á sínum tíma, þá finnst mér rétt að upplýsa, að það var aðeins einn þm., sem talaði á móti till. Sveins Guðmundssonar hér á þinginu og það mjög ákveðið. Þessi þm. lét m.a. þannig um mælt um till., með leyfi hæstv. forseta, þ.e. um till. Sveins Guðmundssonar: „Í fyrsta lagi er þetta orðalag svo ákveðið,“ þ.e. orðalag á till. Sveins, „að það mun ekki standast í lögum, að því er mér er tjáð, að ríkisstj geti beinlínis fyrirskipað Seðlabankanum, hvernig hann skuli haga sínum útlánum. Í öðru lagi er augljóst mál, að það er óraunhæft og ábyrgðarlaust að ætlast til þess, að slík ákvörðun sé tekin með stuttum fyrirvara, vegna þess að hún mundi geta haft gífurlega truflandi áhrif á allt lánakerfi bankans.“
Úr hvaða flokki skyldi nú sá þm. hafa verið, sem sagði þetta um till. Sveins Guðmundssonar? Hæstv. viðskmrh, er náttúrlega ekki í neinum vanda að svara því. Náttúrlega hefur hann verið úr Framsfl. — eða kannske úr Alþb.? En hann var nú hvorki úr Framsfl. né Alþb. Þessi þm., sem lét þessi orð falla, var úr Alþfl., eins og hæstv. ráðh. getur kynnt sér með því að lesa þessar umr., og læt ég svo útrætt um það atriði.
En í tilefni af því, sem hæstv. viðskmrh. sagðist aðallega hafa komið hér upp til þess að gera að umtalsefni, því, að Framsfl. hefði aðra stefnu í stjórnarandstöðu en í stjórn, þá vil ég aðeins benda honum á, að þær umr., sem hér hafa farið fram, hafa upplýst það alveg fullkomlega, að Framsfl. hefur sömu stefnu í þessum málum nú og hann hafði á þingi 1958. Hann greiddi atkv. með þessari till. einróma á þingi 1958, og hann stendur að henni í dag. Það er ekki hann, sem hefur brugðizt, það eru aðrir, sem hafa brugðizt. Það eru Alþfl. og Sjálfstfl., sem hafa brugðizt. Og þess vegna er ekki farið að framkvæma þessa till. enn í dag, þó að liðið sé á sjötta ár, síðan hún var samþykkt hér á Alþingi.