18.12.1963
Sameinað þing: 30. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 137 í B-deild Alþingistíðinda. (135)
98. mál, fjáraukalög 1962
Frsm. (Birgir Finnsson):
Herra forseti. Frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1962 er að venju samið þannig, að veittar eru aukafjárveitingar fyrir öllum umframgreiðslum ríkisreikningsins árið 1962, og er við samningu frv. farið eftir till. yfirskoðunarmanna ríkisreikningsins. Athugun fjvn. á frv. er eingöngu fólgin í því að bera tölur þess saman við tölur ríkisreikningsins, og hefur það verið gert að þessu sinni, svo sem venja er. Við þá endurskoðun hefur komið í ljós, að talan, sem tilgreind er í 1. gr. frv., kr. 2 812 342.31 er of lág og þarf því að leiðréttast. Enn fremur hefur komið í ljós, að í 2. gr. er vanreiknuð aukafjárveiting til viðbótar á 16. gr. B um 10 þús. kr., og breytist niðurstöðutala á greininni til samræmis við það. Fjvn. leggur til, að frv. verði samþykkt með þessum leiðréttingum, eins og fram kemur í nál. á þskj. 142.
Ég legg til, herra forseti, fyrir hönd fjvn., að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem greinir á þskj. 142, og því síðan vísað til 3. umr.