04.05.1964
Efri deild: 79. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1894 í B-deild Alþingistíðinda. (1368)
68. mál, lausaskuldir iðnaðarins
Helgi Bergs:
Herra forseti. Eins og fram kom í framsöguræðu hv. frsm. fjhn., var ekki ágreiningur um það í n. að samþ. þetta frv., þó að nm. hafi að sjálfsögðu gert sér ljóst, eins og hv. frsm. orðaði það, að frv. væri fyrst og fremst umgerð og það réðist alveg af framkvæmdinni, að hve miklu gagni þetta kæmi í fjhn. tókst okkur ekki að fá upplýsingar um það, hvernig þessi lög, ef þetta frv. verður að lögum, yrðu framkvæmd, og mig langaði þess vegna. til þess í örfáum orðum að beina nokkrum fsp. að þessu lútandi til hæstv. iðnmrh.
Það er lítið á þetta frv. sem hliðstæðu við tilsvarandi löggjöf fyrir aðra atvinnuvegi, nefnilega lög um lausaskuldir bænda og lög um opnun nýrra lánaflokka við stofnlánadeild sjávarútvegsins. Ég tók eftir því, að við 2. umr. þessa máls í hv. Nd, lýsti hæstv. iðnmrh. yfir, að hann mundi líta svo á, að sér væri skylt að beita sér fyrir því, að framkvæmdin yrði í samræmi við það, sem verið hefði í hinum atvinnuvegunum tveimur, sem ég nefndi. Ég veit, að hæstv, iðnmrh. hefur ekki sagt þetta nema af því, að hann hefur þá þegar gert sér nokkra grein fyrir því, með hverjum hætti framkvæmd þessara laga skyldi verða. Málið liggur að vísu dálítið öðruvísi fyrir hv. Alþingi nú en frv, til l. um lausaskuldir bænda og frv. til 1. um opnun nýrra lánaflokka við stofnlánadeild sjávarútvegsins gerðu á sínum tíma, vegna þess að þá lágu fyrir hv. Alþingi, a.m.k. á seinni stigum þessara mála, áætlanir frá hæstv. ríkisstj. um það, hverju sú fjárþörf mundi nema, sem gert var ráð fyrir að þarna væri fyrir hendi, og hvernig hugsað var að leysa úr henni. Stofnlánadeild sjávarútvegsins tryggði öllum, sem uppfylltu ákveðin skilyrði, úrlausn í þessum málum með aðstoð Seðlabankans, og Seðlabankinn hafði einnig að vísu nokkuð á seinna stigi þess máls lofað ákveðinni fyrirgreiðslu fyrir bréfakaupum frá veðdeild Búnaðarbankans í sambandi við lausaskuldir bændanna. Það lágu einnig fyrir, þegar þessi mál voru til meðferðar, áætlanir frá hæstv. ríkisstj. um það, hverjar upphæðir þarna mundi verða um að ræða, og ég minnist þess, að í sambandi við lána-konverteringuna fyrir sjávarútveginn var talað um milli 300 og 400 millj., sem mér skilst að hafi látið nærri, og einnig var talað um nokkuð ákveðnar upphæðir í sambandi við Búnaðarbankann, veðdeildarbréf Búnaðarbankans vegna þessarar lána-konverteringar bænda. Hér liggur ekki neitt slíkt fyrir, og mig langaði þess vegna til að nota þetta tækifæri til þess að beina nokkrum spurningum til hæstv. iðnmrh.
Þau atriði, sem mig langaði til að biðja hæstv. iðnmrh, um frekari upplýsingar um, eru þá í fyrsta lagi, hvort gerðir hafi verið nokkrir samningar eða leitað nokkurra samninga við ákveðna aðila um kaup þessara bréfa eða hvort hver einstakur lántaki yrði sjálfur að semja um og sjá fyrir sölu bréfa sinna. Í öðru lagi, hvort gert sé ráð fyrir því, að Seðlabankinn leggi ákveðnar summur til lausnar þessa máls, á sama hátt og í hinum atvinnuvegunum tveimur, sem rætt hefur verið um sem hliðstæður. Í þriðja lagi, hvort nokkur áætlun hafi verið gerð um það, hvað miklu þessar lánveitingar þyrftu að nema til þess að ná tilgangi sínum. Og í fjórða lagi, hvað eru lausaskuldir í þessu sambandi, og hvernig yrðu þær þekktar frá öðrum skuldum iðnaðarins. Ég skal gera svolítið betur grein fyrir þessari spurningu. Mér virðist, að þetta sé kannske eilítið flóknara í sambandi við iðnaðinn heldur en í sambandi við sjávarútveginn og landbúnaðinn, sökum þess að rekstrarlán þessara atvinnuvega eru í tiltölulega föstum skorðum og verða þess vegna strax sorteruð frá tiltölulega auðveldlega. Og í fimmta lagi er ein spurning enn, sem mig langar að beina til hæstv. iðnmrh., en hún er sú, hvað hann mundi hugsa sér eðlilegan lánstíma í sambandi við lánveitingar af þessu tagi. Og ég skal gera svolítið betur grein fyrir þessari spurningu. Þegar þetta frv. var fyrst lagt fyrir hv. Nd., var gert ráð fyrir 7 ára lánum út á vélar og 15 ára lánum út á fasteignir. Þetta ákvæði var fellt burt úr frv. í meðferð Nd, og í staðinn tekið ákvæði um það, að þetta skyldi ákveðið í reglugerð. Fulltrúar Framsfl, í hv. fjhn. Nd. höfðu lagt til, að lánstíminn væri lengdur frá því, sem gert var í frv., en niðurstaðan varð þessi, að þetta var algerlega tekið út úr. En einmitt með tilliti til þess, að hæstv. iðnmrh, hefur vísað til framkvæmda á l. viðvíkjandi hinum atvinnuvegunum tveim, þá vildi ég hafa það seinustu spurninguna í þessu sambandi, hvort hann teldi þá ekki einnig eðlilegt, að lánstíminn yrði sá sami og hjá þeim og þess mætti vænta, að það yrði ákveðið í þeirri reglugerð, sem hæstv. ráðh. eða hans ráðuneyti setur.
Ég skal þá ekki orðlengja meira um þetta frv. Ef það verður að lögum, er það, eins og hæstv. frsm. fjhn. sagði, umgerð um úrlausn á vanda, og það á auðvitað eftir að fylla innan í þá umgerð alveg, og í versta falli getur frv. orðið einskis nýtt, en aldrei verra. Hins vegar getur það orðið til mjög mikilla bóta, og þess vegna er ég samþykkur meðnefndarmönnum mínum í fjhn. að mæla með samþykkt frv.