29.04.1964
Neðri deild: 86. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1911 í B-deild Alþingistíðinda. (1420)

200. mál, vegalög

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að koma hér með litla brtt., skriflega, við frv., 1. gr. þess, þar sem gert er ráð fyrir gjalddaga á skattinum á árinu 1964. Í frv. segir, að gjalddagi skuli vera á árinu 1964 15. apríl. 15. apríl er liðinn, en í brtt., sem hér er lögð fram, er sagt, að í stað „15. apríl“ í 1. mgr. 1. gr. komi: 15. maí 1964. — Vil ég biðja hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir þessari till.

Í sambandi við brtt. á þskj. 526 vil ég aðeins segja það, að undanþágur samkv. nýju vegal. eru nokkru fyllri og á engan hátt minni en voru í vegal, frá 1949, og af sérstöku tilefni hef ég látið rannsaka þetta og bera saman og sannprófa það, að ákvæði um endurgreiðslu á benzíni til jeppa er sízt lakara í nýju I. heldur en í þeim gömlu, þannig að ef heimild hefur veríð til þess samkv. gömlu l. að endurgreiða benzínskatt af benzínjeppum, er það einnig samkv. nýju 1., og það hefði vissulega verið betra, ef hv. flm. till, á þskj. 526 hefðu gert aths. við þetta, þegar vegal. voru til meðferðar hér í vetur, heldur en nú. Ég vil aðeins vekja athygli á þessu, að þær undanþágur, sem voru í gömlu l., eru allar fyrir hendi í nýju 1. og þó nokkuð viðtækari.

Hv. flm. finna helzt að því, að eigendum dísiljeppa sé ívilnað og það sé nokkurt ósamræmi þarna á milli, þeir, sem eiga dísiljeppa, borgi tiltölulega minna í skatt heldur en hinir.

Þetta má vel vera. Þetta hef ég ekki borið saman. Ég er hins vegar algerlega á móti því, að það verði farið að auka eða lagfæra samræmið með því t.d. að afnema þá undanþágu, sem veitt er dísiljeppunum. En það er vitanlega á valdi þingsins að ákveða það, hvort nú á að fara að samþykkja brtt. við vegalögin, eins og hér er farið fram á, og auka þannig undanþáguréttinn frá því, sem var í gömlu l. Því var margyfirlýst í vetur, þegar þetta mál var til meðferðar, að það væri á engan hátt gengið skemmra í þessu efni heldur en áður var, og þá virtust allir þm. vera ásáttir um þetta.