06.12.1963
Neðri deild: 26. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 162 í B-deild Alþingistíðinda. (144)
95. mál, vegalög
Geir Gunnarsson:
Herra forseti. Ég hef ekki hugsað mér að ræða í heild um það frv., sem hér liggur fyrir, en nokkur einstök atriði vildi ég drepa á á þessu stigi málsins.
Frv. gerir ráð fyrir verulegri hækkun á benzíngjaldi, gúmmígjaldi og þungaskatti, en hækkuninni á allri að verja til vegagerðar í landinu. Um nokkurt skeið hefur sú öfugþróun átt sér stað, að hækkanir á þessum gjöldum hafa ekki fyrst og fremst runnið til samgöngumála, heldur orðið í ríkum mæli almennur eyðslueyrir ríkissjóðs, svo að í stað þess, að áður greiddi ríkið meira til vegabóta en tekjum þess nam af umferð, þá hefur nú í nokkur ár verið þannig á málum haldið, að ríkisstj. hefur haft meiri tekjur af gjöldum af farartækjum en varið hefur verið úr ríkissjóði til framkvæmda í vegagerð. Með þessu frv. er ætlunin að binda enda á þessa öfugþróun og hverfa aftur að fyrra hætti, að í okkar stóra, strjálbyggða og ógreiðfæra landi verji ríkissjóður sérstökum fjárhæðum til vegaframkvæmda umfram það, sem lagt er sem bein gjöld á ökutæki. Að vísu hefur svo verið og er svo enn, að ríkissjóður hefur ýmsar og miklar tekjur af aðflutningsgjöldum af farartækjum og varahlutum til þeirra þar fyrir utan. En sú aukning á fjárframlögum, sem nú er ætlunin að verja til samgöngubóta, er fengin með verulegri hækkun á benzíngjaldinu, gúmmígjaldi og þungaskatti, og ég fyrir mitt leyti tel, að það geti vel staðizt að hækka þessi gjöld, svo sem lagt er til, þegar það er beinlínis gert til þess að fá aukið fé til vegagerðar, því að betri vegir eru það, sem fyrst og fremst getur orðið til þess að lækka rekstrarkostnað bifreiða, þannig að bifreiðaeigendur endurheimta aftur það fé, sem nú er af þeim krafizt. Hitt er þó augljóst, að hækkunin á þessum gjöldum verður erfiðust í byrjun, erfiðust þeim aðilum, sem fá hækkanirnar strax, en njóta úrbótanna ekki fyrr en síðar og verða að búa við jafnmikinn annan rekstrarkostnað farartækjanna um alllangt skeið eða þar til árangur af auknum fjárveitingum til vegabóta fer að koma í ljós.
Tvennt er það, sem eigendur ökutækja, sem nú eiga að taka á sig stóraukin útgjöld, þurfa að eiga tryggt. Í fyrsta lagi, að allt það viðbótargjald, sem þeim er nú, ætlað að greiða sem álag á rekstrarvörur farartækjanna, gangi til vegagerðar og komi örugglega allt fram sem auknar framkvæmdir í vegamálum. Og í öðru lagi, að það fé, sem þannig er varið til vegagerðar, verði ekki sízt og í sem ríkustum mæli notað til úrbóta þar, sem umferð er mest, þannig að aukin skattheimta geti sem allra fyrst borið þann árangur, fyrir gjaldendur, að rekstrarkostnaður minnki vegna endurbættra vega og sem allra flestir njóti þeirra hagsbóta, og sérstök áherzla verði lögð á að gera stór átök, þar sem samgöngukerfið er nú næst því að bresta. Ég tel, að við mat á einstökum ákvæðum frv. þurfi að hafa þessi tvö skilyrði í huga, og í framhaldi af því vil ég minnast á nokkur atriði, sem mér sýnist í fljótu bragði a.m.k. að séu hæpin að því leyti til:
Í frv. er gert ráð fyrir þeim breytingum, að bæjar- og sveitarfélög, sem hafa 300 íbúa eða fleiri, fái í sinn hlut um 11% af heildartekjum vegamála hvers árs. Fyrir næsta ár er þessi tala áætluð 27 millj. kr. 8/10 hlutar þeirrar upphæðar koma til skipta eftir fólksfjölda, en 1/10 hluti er ætlaður til aukaframlaga eftir till. vegamálastjóra hverju sinni. Á móti þessu er svo sú skylda sveitarfélaga að sjá um lagningu, viðhald og endurbætur þess hluta af þjóðvegunum, sem liggur um kaupstaði og kauptún. Eftir að framkvæmdum í þessu efni er lokið, mega sveitarfélögin verja sínum hluta til almennrar gatnagerðar. Ég er þeirrar skoðunar, að framlagið til bæjar- og sveitarfélaga ætti að vera hærra til þess að tryggja betur annað skilyrðið, sem ég minntist á, það, að viðbótargjöldin, sem nú eru lögð á eigendur ökutækja, verði í sem ríkustum mæli notuð til úrbóta þar, sem umferð er mest, til þess að tryggja, að sem flestir njóti sem fyrst hagsbóta af bættum vegum. Ég tel líka hæpið með tilliti til þeirrar upphæðar, sem sveitarfélögin fá og ég tel of lága, að leggja samhliða á þau auknar skyldur varðandi þjóðvegina. Þetta á a.m.k. við um sum þeirra. Þetta getur staðizt, þar sem tiltölulega litlar úrbætur þarf á þessum hluta þjóðveganna, en ég tel, að það sé hæpnara annars staðar, þar sem ekki þarf aðeins að leggja eða viðhalda vegum, sem kallaðir eru þjóðbrautir í frv., þ.e.a.s. malarvegum með tvöfalda akbraut, heldur er málum svo háttað, að gera þarf þessa hluta þjóðveganna að þess konar vegum, sem kallaðir eru hraðbrautir B, þ.e.a.s. tvöföldum akbrautum með varanlegu slitlagi, eða hraðbrautum A, þ.e.a.s. fjórföldum akbrautum með varanlegu slitlagi. Ég held, að í slíkum tilfellum sé hlutur sveitarfélaganna engan veginn nógur. Í þessum tilfellum getur verið og er um að ræða stórframkvæmdir, og afleiðingin af því, að skyldurnar eru færðar á bæjarfélögin án nægra fjárveitinga, gætu orðið annars vegar þær, að þessi hluti þjóðveganna fengi of seint þær úrbætur, sem bráð þörf er á, og það yrði öllum þeim fjölda, sem um þá ekur, til stórtjóns, og hins vegar gætu afleiðingarnar orðið þær, að viðkomandi sveitarfélög gætu miklu seinna notað sinn hluta af vegafénu til almennrar gatnagerðar heldur en önnur sveitarfélög, sem geta tiltölulega fljótt notað sitt fé til þeirra verka.
Ég nefni hér sérstaklega Kópavogskaupstað, og svipað gæti átt við um Selfoss og sennilega fleiri staði, sem ég þekki ekki svo vel til. Að vísu gerir frv. ráð fyrir því, að 10% af þeim hluta, sem sveitarfélögunum er ætlaður, þ.e.a.s. um 2.7 millj. á næsta ári, megi veita sem aukaframlag til sérstakra verka til að flýta framkvæmdum, þar sem sérstök ástæða þykir til. En sá böggull fylgir skammrifi, að sveitarfélag, sem einu sinni hefur fengið slíkt aukaframlag, getur ekki fengið nema sitt afmarkaða fé í næstu 5 ár eftir aukagreiðslu. Það vita allir, sem til þekkja, að umferðarvandamálin á Hafnarfjarðarvegi og þá sérstaklega á þeim kafla, sem um Kópavogskaupstað liggur og bæjarfélaginu er nú ætlað að taka við samkv. frv., eru svo stórkostleg, að þau skera sig algerlega úr í öllum umferðarmálum landsins. Um þetta svæði fara nú um 15 þús. bifreiðar á sólarhring, og þar er málum svo komið, að ástandinu verður ekki lýst nema með einu orði: öngþveiti. Varðandi hinar nýju skyldur Kópavogskaupstaðar, sem ekki hefur séð um þennan hluta þjóðvegarins, að eiga nú að leysa þetta mál, er á það að líta, að af þeim 15 þús. bifreiðum, sem um þennan hluta þjóðvegarins fara, mun um helmingur eða um 7–8 þús. bifreiðar ekki eiga erindi sérstaklega í Kópavog, heldur fara til Hafnarfjarðar og Suðurnesja. Hafnarfjarðarbær hefur með hinum nýja steypta vegi ofan við bæinn verið að mestu losaður við þá umferð, sem beinist til Suðurnesja og áður fór öll um miðbæinn, og ég tel, að í næstu vegáætlun verði að vinna að sams konar úrbótum fyrir Kópavogskaupstað, til þess að létta á veginum um Kópavog og minnka hina stórfelldu slysahættu með því og gera ráð fyrir þjóðvegi frá Elliðaám á nýja steypta veginn fyrir ofan Sólvang í Hafnarfirði eða á annan stað, sem henta þætti.
Þrátt fyrir þá ráðstöfun, sem þyrfti að gera sem allra fyrst, þolir enga bið að gera fullnægjandi úrbætur á veginum um Kópavogsháls, og ég tel hæpið að ákvæði frv. séu fullnægjandi, til þess að þær framkvæmdir séu tryggðar svo fljótt sem þörf er á. Kópavogskaupstaður ætti samkv. frv. að fá í sinn hlut um 1 millj. kr. á ári, og þó svo að hann fengi allt aukaframlagið til úrbóta á mesta umferðaröngþveiti, sem um er að ræða í landinu, þá dugir það ekki til að gera það stóra átak, sem nauðsynlegt er, sé það einnig haft í huga, að eftir fyrsta aukaframlag getur ekki verið um það að ræða í 5 ár. Með því að fá sveitarfélaginu það verkefni að sjá þarna um þjóðveginn og sé litið á það, að þar er um að ræða stórfelldar framkvæmdir, sem enga bið þola og ríkið hefur komið sér undan að leysa undanfarin ár, en arfleiðir nú sveitarfélagið að, þá er líka á það að líta, að nauðsynlegu framkvæmdafé er með þessu móti dreift í skömmtum um allt landið í stað þess að tryggja, að það sé notað til þess að leysa þessi verkefni í skynsamlegri röð á hagkvæman hátt með því að beina verulegum upphæðum á þá staði, þar sem þörfin er brýnust.
Þar sem svo er komið á einstökum stöðum, að vegakerfið er að bresta, þarf að leysa málið með stórátaki og varanlegum framkvæmdum. Til þess verða ákveðin verkefni að fá að sitja fyrir í stað þess að dreifa fjármagninu til smáaðgerða á fjöldamörgum stöðum. Það væri meira í samræmi við þau vinnubrögð, sem unnið hefur verið að því að taka upp í sambandi við vegagerð hin síðari ár, að veita stærri upphæðir til færri verka í einu og vinna verkefnin síðan í skipulagðri röð. Þetta, að dreifa framkvæmdum við þá hluta þjóðveganna, sem um kaupstaði og kauptún liggja, þar sem mestu umferðarvandamálin eru á einstökum stöðum, tel ég vera spor aftur á bak. Ég held, að hlutur bæjar- og sveitarfélaganna sé með þessu frv. ekki gerður nógu stórir því ætti að bæta með því að láta ríkið sjá um þjóðvegi að öllu leyti, en bæjar- og sveitarfélögin halda a.m.k. 11% af vegafénu þrátt fyrir það. Með því ynnist það tvennt, að hægt væri að haga framkvæmdum við þennan hluta þjóðveganna á þann hátt að beina fjármagninu þannig til framkvæmdanna, að mestu vandamálin yrðu leyst fyrst, það væru hagkvæmustu vinnubrögðin, og með auknum hlut til gatnagerðar í bæjum kæmu hin auknu gjöld, sem á eigendur ökutækja eru lögð, þeim fyrst að gagni.
Þá vil ég minnast á annað ákvæði í frv. með hliðsjón af þeim tveimur skilyrðum, sem ég nefndi áðan og taldi, að ákvæðin þyrftu að uppfylla, og þá einkum fyrra skilyrðinu, sem ég nefndi, en þá hélt ég því fram, að það, sem eigendur ökutækja, sem nú eiga að taka á sig stóraukin útgjöld, þurfa að eiga tryggt, er, að allt það viðbótargjald, sem þeim er nú ætlað að greiða sem álag á rekstrarvörur farartækjanna, gangi til gatnagerðar og komi örugglega fram sem auknar framkvæmdir í vegamálum. Ég tel ástæðu til að ræða þetta atriði í sambandi við síðasta hluta 32. gr. frv., sem er þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Þegar lagningu vega samkv. 2. mgr.“ — þ.e.a.s. þjóðvegar um kaupstaði og kauptún — „er lokið að dómi vegamálastjóra, skal sveitarstjórn verja sínum hluta fjárframlags samkv. 1. mgr., að frádregnum viðhaldskostnaði þjóðveganna, til almennrar gatnagerðar.“
Ég tel, að til þess að tryggja það, sem ég áðan nefndi, að allt viðbótargjald, sem nú er lagt á eigendur ökutækja, komi örugglega fram sem viðbótarframkvæmdir í gatnagerðarmálum, og af öðrum ástæðum einnig ætti í lok greinarinnar ekki að standa „til almennrar gatnagerðar“, heldur „til þess að setja varanlegt slitlag á vegi í sveitarfélaginu“, og mætti þá gera ráð fyrir undantekningum frá þeirri aðalreglu varðandi sveitarfélag undir ákveðinni stærð, þar sem umferð er minni, og varðandi þau hin stærri, sem talið væri að hefðu þegar séð vel fyrir þessum málum. Ef verja má þessu fé til almennrar gatnagerðar, er ávallt hætta á því, að bæjarfélögin taki það fé inn á áætlanir sínar án þess í rauninni að auka á framkvæmdir í þeim efnum frá því, sem ella væri, en teldu sig þá jafnvel frekar geta varið meira af sínu fé til annarra nauðsynlegra framkvæmda, sem venjulega er nóg af í öllum sveitarfélögum. Ég sé ekki, hvernig á að tryggja það, að þetta vegafé, sem til sveitarfélaganna fer í almenna gatnagerð, verði með þeim hætti, sem lagt er til í þessu frv., endilega viðbót við framkvæmdir í gatnagerðarmálum: Á því væru a.m.k., miklu meiri líkur, ef það væri ætlað til varanlegrar gatnagerðar, til þess að leggja varanlegt slitlag á götur, þar sem sveitarfélögin kæmust ekki hjá því að sjá fyrir venjulegum gatnagerðarframkvæmdum í sambandi við byggingu nýrra íbúðarhverfa, en framlagið af vegafé kæmi þá fram sem viðbót, kæmi fram sem framkvæmdir við fullnaðarfrágang vega, sem mörg bæjarfélög og þau, sem vaxa mest, hafa lítið getað sinnt. Ég tel líka nauðsynlegt, að þessu fé sé varið til þess að tryggja, að ekki dragi sundur með þeim hluta gatnakerfisins í bæjum, sem er malargötur, og hins hlutans, sem hefur fengið endanlegt slitlag. Það er höfuðnauðsyn, að þessum hluta gatnagerðarinnar sé sinnt, en að bæir þenjist ekki sífellt út með lengri og lengri malargötur, á sama tíma og varanleg gatnagerð verður af fjárhagsástæðum að sitja á hakanum. Þetta frv. ætti að vera þannig úr garði gert, að það tryggði, að varanlegar bætur yrðu gerðar varðandi slitlag á götur, og ætti að tryggja það, að sá hluti veganna, sem lagður er varanlegu slitlagi, verði smám saman stærri og stærri, miðað við þann hlutann, sem er nánast bráðabirgðagötur. Ég held, að eigendur ökutækja, sem nú taka á sig stóraukin gjöld, eigi rétt á því, að þessum hluta, sem bæjarfélögin fá nú, verði fyrst og fremst varið til varanlegrar gatnagerðar. Þessum hluta mætti að vísu jafnframt verja til þess að leggja gangstéttir. Það er ekki síður ökumönnum en gangandi fólki til hagsbóta, að með góðum gangstéttum í bæjum sé gangandi fólki fenginn umferðarhæfur og afmarkaður hluti götunnar til afnota, í stað þess að öll umferð gangandi fólks og ökutækja renni út í eitt, eins og víða á sér stað og veldur auðvitað stórkostlegri slysahættu. Ég held, að gildi gangstétta hafi fram að þessu verið stórlega vanmetið við gatnagerð, þar sem víða er ekki einu sinni gerð tilraun til þess að afmarka gangstéttir.
Í frv. til 1., sem við nokkrir þm. Alþb. höfum flutt á undanförnum þingum, frv., sem fjallaði um gatnagerðarsjóð, var gert ráð fyrir því, að hluti af innflutningsgjaldi af benzíni rynni til gatnagerðarsjóðs, sem hefði þann tilgang að styrkja bæjar- og sveitarfélög til framkvæmda til varanlegrar gatnagerðar. En í því frv. var varanleg gatnagerð skilgreind þannig, að hún teldist lagning nýrra vega og gangstétta með slitlagi úr steinsteypu eða hverju öðru efni, sem metið er jafngildi hennar, svo og lagning varanlegs slitlags á eldri götur eða gangstéttir. Ég tel, að það framlag, sem sveitarfélögunum er nú ætlað í þessu frv., eigi að þjóna sama tilgangi, og ég vek athygli á því, að í samþykkt Sambands ísl. sveitarfélaga frá þingi þess 22.–24. ágúst s.l., sem hæstv. samgmrh. vitnaði í hér áðan, er einmitt lagt til, að stuðningur við sveitarfélög í gatnagerðarmálum miðist við varanlega gatnagerð. Þar segir m.a., með leyfi hæstv. forseta:
„Um úthlutun og lánveitingar úr sjóðnum,“ — þ.e.a.s. úr gatnagerðarsjóði, — „verði settar ákveðnar reglur, er m.a. tryggi, að fé sjóðsins verði eingöngu varið til varanlegrar gatna- og vegagerðar og mótframlög komi úr sveitarsjóði.“
Sýnt skal með þessu, að vilji er fyrir hendi hjá sveitarfélögunum að nota framlagið einmitt til varanlegrar gatnagerðar, og á því tel ég höfuðnauðsyn.
Þm. hafa ekki haft langan tíma til þess að meta þetta frv. í heild eða einstakar greinar þess, en ég tel rétt, að nú við 1. umr. komi fram þær aths., sem ástæða væri til, að sú hv. nefnd, sem fær frv. til meðferðar, taki til frekari athugunar. Ég vil á þessu stigi málsins óska eftir því, að hún kanni það, hvort ekki er unnt að tryggja betur en ég tel að frv. geri, að leyst verði án tafar þau vandamál, sem mest eru brennandi varðandi þá hluta þjóðvega, sem liggja um kaupstaði eða kauptún og sveitarfélögunum er nú ætlað að leysa, enn fremur, hvort það kemur ekki að meira gagni, að fjárframlag til sveitarfélaga verði hærra en frv. gerir ráð fyrir og það verði a.m.k. í stærstu bæjunum eingöngu notað til varanlegrar gatnagerðar. Með þessu móti, hærra framlagi til bæjar- og sveitarfélaga, sem notað yrði til þess að setja varanlegt slitlag á götur, fengju þeir, sem nú eiga að taka á sig stóraukin útgjöld, á skemmstum tíma fé sitt til baka, þannig að hækkun gjaldanna yrði sem fyrst raunverulegur sparnaður, og að því ber að sjálfsögðu að stefna.