13.04.1964
Efri deild: 67. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1937 í B-deild Alþingistíðinda. (1448)

128. mál, búfjárhald í kaupstöðum og kauptúnum

Karl Kristjánsson:

Herra forseti. Ég hef ekki ástæðu til þess að ýfast neitt við þeim góðlátlegu aths., sem hv. 2. þm. Reykv. (AuA) gerði við ræðu mína frá síðasta fundi. Og í raun og veru er það svo, að okkur greinir ekki heldur á um það, að skipulag þarf að hafa á búfjárhaldi í bæjum. En okkur greinir á um það, hvort rétt sé að heimila bann, algert bann við búfjárhaldi nú þegar. Í þessum málum standa öndverðir fyrst og fremst búfjáreigendur og garðlandaeigendur, skrúðgarða og annarra garðlanda eigendur. Báðir þessir hópar telja það mannréttindi að mega stunda þá grein starfa, sem þeir gera hér í bænum. Hins vegar er ekki alltaf nægilega litið á það, að í þéttbýlinu reynir á sambúðarhæfileika manna, og verður að gera kröfu til þess, að menn taki tillit hver til annars. Ég hef hitt skrúðgarðaeigendur, sem líta jafnvel á sauðkindur álíka og almennt er litið á mink. Ég hef líka hitt sauðfjáreigendur, sem leggja ekkí mikið upp úr skrúðgarðaeign. En almennt mun það nú vera svo samt, að fólk telur nauðsynlegt að hafa frelsi, og það er litið svo á það, að það sé eðlilegt, að frelsi sé til að sinna hugðarefnum hjá báðum þessum aðilum, og þurfi að vera.

Ég lagði áherzlu á það, m.a. í ræðu minni um daginn, að það væri hægt að verjast sauðfé með girðingum, og eitt af því, sem ræktunarme verða að leggja á sig vegna sambúðarskyldunnar, samkomulags- og sambúðarskyldunnar, það er að girða. Og girðingalög eru ströng, og gera ráð fyrir því, að þær skepnur, sem lögheldar girðingar halda ekki, séu réttdræpar, og ég veit ekki til þess, að á móti því sé haft.

Hv. 2. þm. Reykv. hélt því fram, og það mátti skilja það á ræðu hennar, að í raun og veru lægi það ekki fyrir að setja á algert bann við skepnuhaldi, þó að heimild til þess yrði leidd í lög. Það mundi ekki verða vilji fyrir því. Og hún benti á, að það væri líklegast, að ég væri þessu kunnugur, þar sem ég væri sveitarstjórnarmaður. Ég þekki þann anda hjá sveitarstjórnarmönnum að telja, að það sé algerlega óþarft að hafa nokkurt skepnuhald í bæjum. Þetta er ekki pólitískt mál, þetta er geðþekkni- og lífsskoðunarmál, og þess vegna er ekkert að tala um í þessu sambandi pólitískan meiri hl. eða þvílíkt. En vel getur svo verið, ef skyndilega er að þessum málum undið og litið verður svo á, að Alþ. hafi lýst yfir vilja sínum í þessu efni með því að gefa heimildina, að þá verði hlaupið í það að ganga nokkuð langt í banni, og þess vegna held ég, að það sé mjög svo viðeigandi að hafa fyrirvara u , að heimildin gangi í gildi.

Hv. 2 þm. Reykv. gat réttilega um það, að í heilbr. og félmn. hefði hún gefið kost á samkomula í um það, að aldrei megi nota heimild nema eð árs fyrirvara. Þetta er alveg rétt. En hér er ekki að ræða um slíkan fyrirvara. Frestun á ákvörðun er annað en frestun á framkvæmd. Það er það, sem verður að koma í veg fyrir og við, sem flytjum till., viljum koma í veg fyrir, að of skyndilega sé ákvarðað að banna skepnuhald. Hitt segir sig svo sjálft, að ef eyða á skepnum, verður það að gerast með einhverjum fyrirvara, aðvörunarfyrirvara, og á sérstakri árstíð. En ég bauð annað fyrir mitt leyti, og ég held, að hinir tillögumennirnir hefðu líka fallizt á það, og það er að stytta ákvörðunarfrestinn ofan í 3 ár. Á það vildi hv. 2. þm. Reykv. ekki fallast, og sýndist mér á því, að það væri undarlega mikil áherzla lögð á það að vinda að þessu bráðan bug að setja bannið.

Hv. þm. sagði, að með því að nema burt heimildina úr frv., þannig að hún mætti ekki koma í gildi fyrr en eftir 41/2 ár, væri eyðilagt gildi frv. þennan tíma. Ég verð að líta svo á, að þetta sé mikið ofsagt, og ég er algerlega á annarri skoðun. Fyrst og fremst er 5 frv. heimild til að takmarka skepnuhald og ekkert tekið fram um það, hvað langt eða skammt megi ganga. Sú heimild er mjög rúm í takmörkuninni. Sú heimild gengur vitanlega í gildi þrátt fyrir þá brtt., sem við leggjum til að verði samþ. og ég tel að eigi að samþykkja. En svo er annað, ég álít, að það sé alveg rétt, sem fjáreigendur í Reykjavík segja, að þeir vilji leita samkomulags við bæjarstjórn Reykjavíkur, og svo mun sjálfsagt vera um fjáreigendur í hinum þéttbýlisstöðunum, sem l. eiga að ná til, og ég álít nauðsynlegt að gefa ráðrúmstíma til þess að leita þessa samkomulags. Ég lít svo á, að þessi tími verði sáttatími og skipulagningartími í þessum málum, og ég er trúaður á það, að samkomulag náist, eða ég tel þá, að þeir, sem með málið fara sem stjórnendur bæjanna, standi ekki vei í stöðu sinni, ef á þessum tíma tekst ekki að ná sáttum. Og alltaf hafa þeir, eins og til áherzlu til að ná samningum, viðunandi samkomulagi, viðunandi skipulagi í þessum málum, þá hafa þeir alltaf á bak við sig réttinn, sem þeir fá til að banna algerlega skepnuhaldið eftir 41/2 ár frá þessu ári að telja. Þeir hafa þess vegna vopnið í hendi sér, en hinir alls ekki.

Hv. 2. þm. Reykv. sagði, að sveitarstjórnirnar mundu hika við að fara geyst í þessum efnum, að banna, þar sem l. gerðu ráð fyrir, að betur yrði að greiða af hálfu bæjarfélaganna vegna atvinnutjóns til þeirra, sem yrðu að fella fénað sinn. Ég álít, að slíkar bætur vegna atvinnutjóns mundu varla verða dæmdar í stórum stíl, því að yfirleitt lít ég ekki á þetta skepnuhald sem atvinnu. Ég lít á það sem tómstundaiðju, holla tómstundaiðju, sem ekki megi taka af því fólki, fyrr en óhjákvæmilegt er vegna sambúðarinnar í þéttbýlinu. — taka af því fólki, sem hefur upplag til að sinna þessu. Og ég álít, eins og ég sagði um daginn, að það sé skerðing fyrir bæjarlífið, fyrir fólkið að nema burt rétt fólks til þess að sinna skepnuhaldi. Gamlir menn fullnægja þar þrá sinni eftir því, sem þeir hafa gjarnan stundað alla ævi, og æskulýður hefur gott af því að ganga með slíkum mönnum að skepnuhirðingu. Umgengni við skepnur er mannbætandi. Ég sé ekki, að bæjarfélögin hafi upp á svo mikið að bjóða, sem er jafnhollt og þessi störf sem tómstundaiðja.

Hv. 2. þm. Reykv. lagði dálitla áherzlu á, að það væri nokkur almennur kostnaður fyrir borgina af skepnuhaldinu, því að eftirlitsmaður væri hafður vegna garðlandanna og til þess að annast það, að sauðfé færi ekki til skemmda. Mér er sagt, að hins vegar taki fjáreigendur á sig kvöð, sem hvert sveitarfélag — og þá borgin sem sveitarfélag — verður að inna af höndum, en það er að annast smalanir og fjallskil í landi byggðarinnar og enn fremur í fjárskil til nágrannabyggða.

Þá benti hv. frsm. á það, að girðingarkostnaður væri mikill, bæði hjá sveitarfélaginu og einstaklingum, vegna þess að sumir hefðu skepnur, sem þyrfti að stemma stigu fyrir að skemmdu gróður. En í sauðfjárræktarlandi er ekki hægt að komast hjá girðingum, og þó nú að Reykvíkingum yrði ekki leyft skepnuhald, verða byggðirnar umhverfis Reykjavík alltaf með búfjárhald, og mér skilst á því, sem hér hefur sagt verið, a.m.k. af þeim, sem mikið fara með þessi mál, að allmikil brögð séu að því, að fénaður úr nágrannabyggðunum komi inn í borgarlandið og geri þar usla og eitthvað af því fé, sem kom fram í skýrslu þeirri, sem hv. 2. þm. Reykv. las upp úr áðan, að valdið hefur hér óþægindum og usla, mun hafa verið aðkomufé, svo að þau dæmi, sem þar koma fram, geta ekki eingöngu reiknazt til usla af hálfu búfjár þeirra Reykvíkinga, sem hafa fé.

Hv. 5. þm. Sunnl. gerði hér aths. við frv. og taldi, að till. okkar þremenninganna næði ekki nógu langt til þess að koma í veg fyrir þann ágalla eða bæta úr þeim ágalla, sem hann taldi vera á frv. fyrst og fremst, en það er, að þar væru ekki undanskildir banni reiðhestar. Reiðhestahaldið væri sett á bekk með sauðfjárhaldinu og eftir l. yrði þá gefin heimild til að banna það. Ég er honum alveg samdóma í því, að það er reginfjarstæða að hugsa sér það, að farið verði að banna reiðhestahald í þéttbýlinu. Ég lýsti afstöðu minni til þess á síðasta fundi. Og ég skil varla í því, satt að segja, að þó að mig gruni, að það gæti farið svo, að sauðfjárhald yrði í fljótræði bannað, þá gengi það svo langt, að reiðhestahald yrði bannað. Fyrr mætti nú vera. En ég flutti ekki till. um það að undanþiggja hestahald sérstaklega, því að ég vildi í raun og veru ekki styrkja frv. gegn sauðfjárhaldinu með því að taka hestahaldið út úr, og ég hef hugsað mér það, að fresturinn, sem till. okkar þremenninganna vill að verði á heimildinni til þess að banna búfjárhald, geti orðið til þess, að hestaeigendur geti fullkomlega tryggt sig í samningum við borgar- og bæjarvöldin í þessu efni. Auðvitað hef ég ekkert á móti því fyrir mitt leyti að ræða málið aftur í heilbr.- og félmn., taka þátt í að ræða það aftur þar og hlusta á till. hv. 5. þm. Sunnl. Og alls ekki mundi ég líka vera frá því að ræða um breyt. á minni till. um það að færa frestinn ofan í 3 ár, því að ég álít, að hann mundi hafa ekki ólíkt gildi þannig, ef hv. 2. þm. Reykv. vildi nú fallast á að breyta frv. á þá leið og sættir gætu orðið um það.

Ég tel, að í raun og veru sé n. klofin, eins og ég sagði um daginn. Hún er klofin um þetta meginatriði. En hinir almennu töfrar konunnar gerðu það að verkum, að n. skilaði ekki tveimur álitum. En nál. er þannig orðað, að ég tel mér alls ekki skylt að greiða atkv. með því. Ég tel mig ekki í nál. leggja til, að frv. verði samþ., ef brtt. gengur ekki fram. Svo langt tel ég ekki, að tillitssemi við konu megi ganga, að menn fari ekki að sinni skoðun.

Ég sé varla ástæðu til þess að orðlengja þetta meira. Ég hygg, að hv. þdm. muni öllum vera það ljóst, að það, sem á milli ber, er ekki, að við þrír, sem flytjum till., viljum ekki, að fullkomin skipun sé á þessu máll. Við viljum, að það sé fullkomin skipun. Við viljum ekki, að troðið sé á mannréttindum, en við viljum, að knúið sé til þess, að samningar séu gerðir og sættir komist á milli þeirra aðila, sem hér eiga gagnstæðra hagsmuna að gæta, sem sveitarstjórnir, borgarstjórn og bæjarstjórnir verða að vinna að því að komist á. Ef formaður heilbr.- og félmn. verður ekki við ósk hv. 5. þm. Sunnl. um að taka málið til umr. á ný í n., sýnist mér þó, að allir þeir, sem eru sömu skoðunar og hann um, að fjarstæða sé að hugsa sér bann á hestahaldi, telji, að frv. sé þó betra gagnvart því atriði með því að hafa þennan umþóttunartíma, sem lagt er til í till. okkar þremenninganna, og ég vona raunar, að allir hv. þdm. geti fallizt á þá miðlunartillögu.