16.04.1964
Efri deild: 69. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1943 í B-deild Alþingistíðinda. (1454)
128. mál, búfjárhald í kaupstöðum og kauptúnum
Frsm. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Ég vil með fáum orðum lýsa afstöðu minni til brtt., sem fram eru komnar við frv.
Það er þá fyrst á þskj. 466 brtt, frá hv. 9. landsk, þm. (JÞ). Það er skemmst af að segja, að ég fylgi þeirri brtt., og ég vil vitna til þess, sem ég sagði við 2. umr. málsins, að í heilbr.- og félmn. hefði ég lýst því yfir, að ég vildi standa að eða beita mér fyrir flutningi slíkrar brtt., ef samstaða fengist um í n., en um það var ekki að ræða, vegna þess að þá höfðu 3 nm. ákveðið og lýst því yfir, að þeir mundu flytja brtt., sem þeir hafa sjálfsagt talið, að gengi lengra en þetta, og hv. flm. sagði áðan, þegar hann mælti fyrir sinni till., að þessi brtt. gengi skemmra en till. þeirra þremenninganna hefði gert. Það er rétt, svo langt sem það nær. Hún gengur að vissu leyti lengra, því að sú brtt. átti að gilda til bráðabirgða, 41/2 ár, en þessi till. mundi án tímamarks þýða það, að algert bann kæmi ekki til framkvæmda, nema boðað hefði verið með ársfresti, og ég er sem sagt fylgjandi þeirri brtt.
Þá er brtt. á þskj. 465 frá Steinþóri Gestssyni um að undanþiggja reiðhestahald með vissum skilyrðum. Ég mun hins vegar ekki telja mig geta fylgt þeirri brtt. Ég held, þótt það sé að vísu svo, eins og ég hef áður sagt í umr. um þetta frv., að þannig hagi hér í Reykjavík t.d., að hestahald skapi engin vandamál, svo að teljandi sé eða að ráði, skulum við segja, þá þykir mér þó, að það sé varla sanngjarnt að gera þarna upp á milli, því að vitanlega er heimild til algers banns, — það dettur engum í hug, að borgar- eða bæjarstjórn mundi notfæra sér þá heimild, nema hið tiltekna búfjárhald væri orðið hreint vandamál í bænum, og þá tel ég, að gilda eigi sömu reglur um reiðhesta og sauðfé. Og ég býst nú við því, að þessar tvær tegundir skepnuhalds, hvor um sig, séu alveg jafnviðkvæmar þeim, sem þetta skepnuhald hafa með höndum, og út frá því, sem ég áður sagði, finnst, mér það ekki sanngjarnt að undanþiggja tiltekið skepnuhald ákvæðum frv., þó að það hagi að vísu þannig til, eins og ég sagði áður í dag, að það sé sjálfsagt ekki orðið beint verulegt vandamál í neinum kaupstað.