08.05.1964
Neðri deild: 95. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1947 í B-deild Alþingistíðinda. (1463)

128. mál, búfjárhald í kaupstöðum og kauptúnum

Forsrh. (Bjarni Benediksson):

Herra forseti. Það er einungis smáathugasemd, sem skiptir þó ekki miklu máll. Ég vil taka það fram, að ég er sammála fyrri hluta brtt. við 1. gr., en sannast að segja finnst mér síðari hlutinn naumast vera viðeigandi. Er hægt að gera ráð fyrir því, að borgarstjórn Reykjavíkur eða aðrar sveitarstjórnir, þar sem slíkar tilraunastöðvar eru, beiti þessari heimild svo að gera starfsemi þeirra ómögulega? Það væri svipaðast því eins og ef rottueitrun værir fyrirskipuð, þá þyrfti að taka það fram í lögum, að ekki mætti eitra fyrir tilraunamýs, sem eru hafðar á vísindastofnunum. Mér finnst, að það sé gert ráð fyrir því, að í borgarstjórn Reykjavíkur séu svo ósanngjarnir menn, að það sé naumast hægt að samþykkja þetta, nema maður heyri þá frekari grg. frá forsvarsmönnum á Keldum um, í hvaða hættu þeir telja sig vera. En við verðum að gá að því, að hér er ekki um að ræða fyrirskipun um að banna þetta, heldur einungis heimild til handa sveitarstjórnunum, og þá heimild er ekki hægt að veita, ef menn gera ráð fyrir slíkri ósanngirni, sem hér er verið að fyrirbyggja.

Þetta skiptir auðvitað ekki miklu máll. Efnislega erum við sammála um, að það kemur ekki til mála að stöðva rekstur á þessari vísindastöð á Keldum, en ég mundi kunna betur við að eiga kost á því að greiða atkvæði á móti seinni hlutanum, og vildi ég því skora á n. að láta bera upp þessa till. í tvennu lagi og spyr, hvort hún hafi nokkuð á móti því.