11.05.1964
Efri deild: 87. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1959 í B-deild Alþingistíðinda. (1518)

224. mál, atvinnuleysistryggingar

Frsm. (Auður Auðuns):

Herra forseti. Síðan á s.l. sumri hefur starfað n., sem hefur hlotið nafnið kjararannsóknarnefnd. Verkefni hennar hefur verið gagnaöflun og rannsóknir, sem auðveldað gætu gerð kjarasamninga. í sambandi við lausn vinnudeilnanna í júlí á s.l. sumri varð samkomulag um það milli samtaka launþega og atvinnurekenda að setja á stofn slíka nefnd. Í henni eiga sæti fulltrúar tilnefndir af launþegum og atvinnuveitendum. Með frv. þessu er lagt til, að kostnaður af nefndarstörfunum verði greiddur úr atvinnuleysistryggingasjóði.

Það hefur verið leitað álits aðila, þ.e.a.s. launþega og vinnuveitenda, um efni frv. Þeir hafa allir tjáð sig því samþykka, að kostnaðurinn verði greiddur úr atvinnuleysistryggingasjóði.

Heilbr.- og félmn. þessarar hv. þd. hefur atbugað frv., og eins og fram kemur í nál. á þskj. 636 leggur n. einróma til, að frv. verði samþykkt óbreytt.