05.05.1964
Efri deild: 81. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1961 í B-deild Alþingistíðinda. (1529)
217. mál, lögsagnarumdæmi Akraneskaupstaðar
Frsm. (Jón Þorsteinsson):
Herra forseti. Frv. þessu til l. um stækkun lögsagnarumdæmis Akraneskaupstaðar hefur verið vísað til heilbr.- og félmn. Í 1. gr. frv. er nánar tiltekið um hin nýju mörk, sem eiga að gilda, ef frv. þetta verður samþ.
Frv. er flutt að beiðni bæjarstjórnar Akraness, og kaupstaðnum er mikil þörf á því að fá lögsagnarumdæmi sitt stækkað, eins og greint er frá í frv. Þetta er vaxandi kaupstaður, og þetta svæði þarf að taka til skipulags og undir byggingar, enda eru þessar jarðir eða landssvæði, sem þarna er um að ræða, í eign Akraneskaupstaðar, þótt þær hafi legið innan marka Innri-Akraneshrepps.
N. hefur kynnt sér það, að ekkert er því til fyrirstöðu af hálfu Innri-Akraneshrepps, að lögsagnarumdæmi hans verði skert og lögsagnarumdæmi Akraneskaupstaðar stækkað, annað en að það er ágreiningur um bætur fyrir tekjurýrnun Innri-Akraneshreppi til handa, er mundi leiða af þessari breytingu. Í 3. gr. frv. er sérstakt ákvæði um það, hvernig þessar bætur skuli ákvarðast, en þar segir, að þær skuli ákveðnar af gerðardómi, sem skipaður sé þremur mönnum og tilnefni aðilar sinn mann hvor í dóminn, en hæstiréttur tilnefni oddamann, sem er formaður dómsins. Þetta vandamál er leyst í þessu frv. á mjög svipaðan hátt og í öðrum tilfellum, þegar kaupstaður hefur þurft á stækkun lögsagnarumdæmis að halda, og munu báðir aðilar una vel við, að það verði gert á þennan hátt. Heilbr.- og félmn. hefur því mælt með því einróma, að frv. verði samþykkt óbreytt: