14.12.1963
Neðri deild: 30. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 186 í B-deild Alþingistíðinda. (155)
95. mál, vegalög
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Mér sýnist, að þrjú atriði í þessu frv. séu mikilvægust til breytinga frá því, sem verið hefur um þessi atriði fram til þessa. í fyrsta lagi er nú gert ráð fyrir því, að nokkur skipulagsbreyting verði gerð á framkvæmd vegamálanna, og það merkilegasta í þeim efnum, að gert er nú ráð fyrir því, að gerð verði sérstök framkvæmdaáætlun yfir vegaframkvæmdir til fjögurra ára í senn. Þetta er fyrsta atriðið. Annað atriðið og það, sem er langmikilvægast í þessu frv. að mínum dómi, er það, sem snýr að fjárhagshlið vegamálanna, en með þessu frv. er gert ráð fyrir því að afla allmikils fjár til viðbótar við það, sem verið hefur, og auka þannig fjárveitingar til vegaframkvæmda í landinu. Þetta er í rauninni aðalatriði þessa frv. að mínum dómi. Í þriðja lagi er svo það nýmæli í þessu frv., að gert er nú ráð fyrir, að nokkurt fé verði veitt til vegaframkvæmda í kaupstöðum og þorpum landsins, en það hefur ekki verið til þessa.
Samkv. þessu frv. er gert ráð fyrir því að leggja á ný gjöld til vegaframkvæmdanna, sem nema 86.8 millj. kr. samkv. grg. frv., og þó mundi þar koma til viðbótar talsverð hækkun á gjöldum, sem leggja á á í sambandi við sýsluvegasjóði, svo að það mun ekki fara fjarri því, að hér sé gert ráð fyrir að afla nýrra tekna til vegaframkvæmda í landinu, sem nemur 90–100 millj. kr. á ári. Hér er því gert ráð fyrir nokkuð mikilli nýrri fjáröflun til vegagerðarmála, og það hefði sannarlega ekki verið óeðlilegt, að um þetta sérstaka atriði hefðu orðið hér nokkrar umr.
Ég hygg, að allir alþm. viðurkenni, að það sé brýn þörf á því, að hægt sé að gera meira en gert hefur verið á hverju ári í vegaframkvæmdum í landinu, og það þurfi því á meira framkvæmdafé í þessum efnum að halda. Og það er auðvitað á þessari samstöðu manna, sem það byggist, að það tekst hér allmikil og greið samstaða um það að greiða fyrir framgangi þessa máls, þó að um þetta mikla skattlagningu sé hér að ræða. Því er haldið fram í sambandi við þetta meginatriði frv., sem er ný tekjuöflun, að þessi nýja tekjuöflun eigi öll að fara til aukningar í framkvæmdum í vegamálum, allur hinn nýi skattur eigi að ganga sem aukning í vegaframkvæmdir. En mér sýnist, að eins og gengið er frá frv., sé engin trygging fyrir því, að þetta verði í framkvæmd, og það tel ég vera aðalatriði málsins. Í frv. er gert ráð fyrir því, að ríkissjóður leggi að vísu á næsta ári, árinu 1964 fram 47.1 millj. kr. á fjárlögum til viðbótar við hina föstu tekjustofna, sem gert er ráð fyrir samkv. þessu frv., og með því framlagi er gert ráð fyrir, að ríkissjóður sem slíkur geri hvorki að vinna né tapa fjárhagslega frá því fyrirkomulagi, sem verið hefur. En hvernig á þetta svo að verða samkv. þessum vegalögum á næstu árum? Þá stendur í þessu frv., í 89. gr., að til vegagerðarmálsins skuli vera það fé, sem tekjustofnar þessa frv. gera ráð fyrir, en auk þess skuli svo koma til það, sem árlega er veitt til vegamála á fjárlögum. En það getur verið bæði mikið og lítið. Mér sýnist því engin trygging vera fyrir því, eins og þetta frv. liggur fyrir, að sá nýi skattur, sem nú er verið að leggja á, fari sem viðaukaframlag til vegagerðarmála í landinu, ef ekki er gengið betur frá þessari grein en þarna er gert. Og það er algert skilyrði frá minni hálfu að vera með því að leggja á þennan nýja skatt, jafnmikill og hann er, í þessu skyni, að það sé tryggt, að þessi nýi skattur komi sem viðaukaframlag til vegagerðarmála í landinu, en verði ekki á beinan eða óbeinan hátt notaður sem raunverulegur tekjustofn handa ríkissjóði, miðað við það ástand, sem verið hefur til þessa.
Ég hef því hugsað mér að flytja brtt, við þessa grein frv. Brtt. mín er, með leyfi forseta, á þessa leið, að við 89. gr. frv. bætist: „Og sé það eigi lægra en ¼ hluti þess fjár, sem fæst samkv. ákvæðum 85.–87. gr.“ Ég vil binda það fast í l., að það framlag, sem tekið skal upp á fjárlög hverju sinni, skuli vera eftirleiðis í sömu hlutföllum við tekjustofnana, sem ákveðnir eru í frv., eins og framlag ríkisins á að vera á árinu 1964, sem lágmark. Það er sem sagt hægt að auka við það, ef þörfin virðist vera sú, að gert sé meira, en ég álít, að það eigi að binda sig við þetta sem lágmark, því að ef það er ekki gert, er ríkissjóður á óbeinan hátt að taka handa sér þann nýja tekjustofn, sem nú er gert ráð fyrir að lögleiða.
Sú aths., sem hæstv. samgmrh. gerði hér í sambandi við þetta, að það sé í rauninni ekki hægt að tryggja það, að þetta framlag verði veitt á fjárl., vegna þess að það sé í rauninni alltaf hægt að breyta því af Alþingi, er í rauninni alveg ófullnægjandi skýring hjá hæstv. ráðh. Auðvitað vitum við það, að Alþingi getur breytt öllu því, sem í lögum stendur. En um leið og Alþingi samþykkir nýjan tekjustofn á þeim forsendum, að hann skuli allur ganga sem viðaukafé til vegagerðarmála, þá er rétt, að hitt fylgi með, að sá hluti, sem ríkið hefur lagt fram á móti og á að leggja hér fram á móti samkv. því hlutfalli, sem ráðgert hefur verið, sé líka bundinn í l. um leið, að það skuli vera að lágmarki þetta. Ég tel, að þetta skipti alveg meginmáli.
Það er augljóst, að gerð er grundvallarskipulagsbreyting samkv. þessu frv. á fjárveitingum öllum til vegagerðarmála. Eins og málin standa nú, þarf, til þess að nýi skatturinn komi allur sem hreint viðaukafé, á árinu 1964 að leggja fram á fjárl. 47.1 millj. kr. En hvernig verður þetta svo í framkvæmd, t.d. á árinu 1965 eða næstu árum þar á eftir? Þá er í rauninni þetta hlutfall týnt og gleymt, og það er hægt að togast lengi á um það, hvað ríkissjóður á þá að leggja mikið fram til vegagerðarmála, til þess að það sé áfram tryggt, að sá nýi skattur, sem á er lagður, hafi farið sem viðaukafé til framkvæmdanna. Það er því í rauninni, ef menn vilja halda sig við það í framkvæmdinni, sem þeir lýsa yfir í þessum efnum, óhjákvæmilegt að binda nú fastmælum hlutfallið á milli þess, sem veitt er á fjárlögum og tekjustofnanna.
Eins og ég sagði áður, mun ég verða með því, að þessi nýju gjöld verði á lögð, vegna þess að ég viðurkenni þörfina á því, að unnið sé meira en gert hefur verið að undanförnu að vegagerðarmálum í landinu. En ég get ekki verið með í því að leggja á svona háan skatt eins og hér um ræðir, ef það á að vera opið á eftir með lítils háttar framkvæmdatilhögun, að þessi skattur komi raunverulega fyrir það framlag, sem hingað til hefur verið frá hálfu ríkisins til vegagerðarmála, - ef hinn nýi skattur á að koma í staðinn fyrir það, sem hingað til hefur verið lagt til þessara mála af ríkinu.
Ég gat um það, að ég teldi þrjú atriði mikilvægust til breytinga í þessu frv., og hef nú vikið að tveimur, þ.e.a.s. vegagerðaráætlun og framkvæmd samkv. áætlun og í öðru lagi þeirri grundvallarbreytingu, sem hér er gerð á tekjuöflun til vegagerðarframkvæmda. En þriðja breytingin er svo varðandi það ákvæði, að nú er gert ráð fyrir því, að nokkurt fé verði veitt til kaupstaða og kauptúna í landinu til. vegagerðarmála þar. Hér er um nýmæli að ræða. Samkv. þeim áætlunum, sem liggja fyrir í grg. frv., er gert ráð fyrir því, að á næsta ári geti á þennan hátt runnið um 27 millj. kr. til vegagerðarmála í kauptúnum og kaupstöðum landsins. Þetta framlag hrekkur auðvitað skammt til þeirra miklu framkvæmda, sem þarna er þörf, það vita menn. En óneitanlega mundi þarna samt sem áður verða um nokkra aðstoð að ræða í mörgum tilfellum og er ekki óeðlilegt, að þetta sé gert, þegar horfið er að því ráði að skattleggja umferðina í landinu á þann hátt, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., vegna þess að umferðin í landinu fer auðvitað að yfirgnæfandi meiri hl. fram einmitt í kaupstöðum og kauptúnum landsins. En ég verð að segja það, að mér sýnist, eins og hér hefur komið fram í þessum umr., að ákvæði bæði 30, gr. og 32. gr. séu með þeim hætti, að þessi hlutur, sem nú á að renna til kaupstaða og kauptúna í landinu, komi mjög misjafnlega stöðunum til góða. Mér sýnist t.d., að sá litli hluti, sem á að koma í hluta míns heimabyggðarlags, Neskaupstaðar, sá litli hluti kemur allur sem hreint umframfé fram yfir það, sem við höfum haft hingað til, til okkar vegagerðarmála, — hvort sem sú upphæð verður heldur 250 eða 300 þús. kr., þá rennur sú upphæð til kaupstaðarins, til vegagerðarmála í kaupstaðnum, en hingað til hefur sá kaupstaður ekki fengið einn einasta eyri til sinna vegagerðarmála frá öðrum en útsvarsgreiðendum í kaupstaðnum. Hins vegar verður framkvæmdin sýnilega sú, að aðrir staðir, t.d. eins og Kópavogur, sem hér hefur verið nefndur, geta mjög knapplega fengið nokkurn hluta af þessum skatti, sem sagt er að eigi að renna til vegagerðarmála í kaupstöðum og kauptúnum, til þeirra framkvæmda, sem hingað til hafa hvílt á kaupstaðnum, vegna þess að það er sýnilega gert ráð fyrir því, að þessi hluti verði um ófyrirsjáanlega framtíð eða langa framtíð a.m.k. að renna til þess að gera þann þjóðveg, sem liggur í gegnum kaupstaðinn. En kostnaður af þeim vegi hefur hingað til verið á herðum ríkisins, að ég ætla. Ég verð að segja það, að mér þykir það meira en lítið hagstæð túlkun á lagagrein að ætla að túlka 30. gr. þannig, að það megi ákveða samkvæmt 30. gr., að nokkur hluti af þjóðveginum, sem liggur nú í gegnum Kópavog, eigi að tilheyra kaupstaðnum, en meginhlutinn af honum eigi að tilheyra ríkinu, vegna þess að í 30. gr. segir, að fyrsta aðalskilyrðið, sem miðað skuli við í sambandi við ákvörðun á þjóðvegi, sem tilheyri kaupstað, sé, að eðlilegt samhengi vegakerfisins sé ekki rofið. Það er alveg greinilegt, að til þess er ætlazt, að þjóðvegur sá, sem tilheyrir kaupstaðnum, sé í eðlilegu samhengi við annað þjóðvegakerfi.
Mér sýnist, að þetta mundi fara nokkuð svipað um framkvæmdir í öðrum byggðarlögum. Þar mundi sá litli hluti, sem viðkomandi sveitarfélag á að fá af þessum benzínskatti, raunverulega fara til þess að gera þann þjóðveg, sem gengur á gegnum byggðarlagið, en hingað til hefur að litlu eða engu leyti tilheyrt viðkomandi byggðarlagi. Sá hluti benzínskattsins, sem ætlað er því að renna til þorpa og kaupstaða, mér sýnist, að samkv. ákvæðum þessa kafla mundi sá hluti koma mjög misjafnlega byggðarlögunum til góða. Ég er því á því, að það sé réttmætt að breyta orðalagi í þessum kafla til þess að fá þarna fram alveg merkingarmun.
Það eru auðvitað ýmis önnur ákvæði, sem ég hefði gjarnan viljað ræða um, í þessu frv., en ég skal nú hverfa frá því, því að ekki vil ég standa á neinn hátt í vegi fyrir því, að hægt sé að koma þessu máli í gegnum þingið á þeim skamma tíma, sem eftir er til starfa fyrir jól, þó að það sé hins vegar augljóst mál, að við höfum ýmsir haft allsendis ófullnægjandi tíma til þess að geta kynnt okkur málið og það sé í rauninni farið fram á mjög mikið af hæstv. ríkisstj. að fara fram á það, að málið fái slíka afgreiðslu eins og hér er farið fram á, svo seint sem það hefur komið fram hér í þinginu. En sem sagt, ég legg hér fram eina brtt. við 89. gr., og í mínum augum skiptir afgreiðsla þeirrar till. grundvallarmáli, því að það, hvort hún fæst samþykkt eða ekki, segir að mínum dómi alveg til um það, hvort Alþingi vill fastákveða, að þau nýju gjöld, sem hér er verið að leggja á, skuli verða lögð á í því skyni, að fyrir það fé allt skuli unnin viðbótarverk við það, sem hingað til hefur verið unnið að í vegagerðarmálum.
Ég vil svo óska, að forseti leiti afbrigða um þessa till., svo sem hún megi koma hér fyrir.