11.05.1964
Sameinað þing: 76. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1974 í B-deild Alþingistíðinda. (1563)

Almennar stjórnmálaumræður

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Góðir hlustendur. Menn hafa heyrt nokkuð af öfugmælum og köpuryrðum hv. stjórnarandstæðinga. Um þau þarf ég ekki að fara mörgum orðum. Allur almenningur hefur lært að meta ásakanir stjórnarandstæðinga með varúð og draga því meira frá sem gífuryrðin verða stærri. Um þetta báru úrslit kosninganna á s.l. sumri glöggt vitni. Núv. stjórnarflokkar hlutu þá ótvíræða traustsyfirlýsingu kjósenda til áframhaldandi samstarfs um stjórn landsins. Ríkisstj. fékk aukið fylgi kjósenda, vegna þess að þeir töldu, að ásökunarefnin gegn henni hefðu ekki við rök að styðjast, eða a.m.k. meira væri vert um það, sem vel hefði tekizt, en hitt, er miður hefði farið.

Ári síðar minnast jafnvei sjálfir stjórnarandstæðingar lítt eða ekki á ýmis þau atriði, sem þeir þá þrástöguðust á til áfellis stjórninni. Glumrugangurinn út af Efnahagsbandalaginu er t.d. ólíkt lægri nú en fyrir ári. Allt, sem stjórnin sagði um það mál, hefur reynzt rétt, en getsakir stjórnarandstæðinganna tilhæfulausar. Sama máli gegnir um landhelgissamninginn við Breta. Nú varð hv. þm. Lúðvík Jósefsson að eyða verulegum hluta ræðu sinnar til þess að verja sín eigin afglöp í þessu máll. Eða öll lætin út af brezka togaranum Milwood. Hver heyrir framar á hann minnzt eða man nú, að fullyrt var, að meðferð þess máls mundi leiða til þess, að ágengni erlendra togara mundi stóraukast. Reynslan hefur feykt blekkingunum á burtu og dómgreind kjósenda sannazt að vera heilbrigð.

Fullyrðingar um síversnandi lífskjör almennings urðu og máttlausar, vegna þess að allur fjöldinn vissi allt annað af eigin raun. Ekkert talnamoldviðri megnar að slá menn slíkri blíndu, að þeir sjái ekki., að aldrei hafa jafnmargir búið við jafngóð kjör hér á landi eins og nú. Þúsundir ferðalanga, sem nú fara árlega til annarra landa, sjá með eigin augum, að óvíða líður almenningi betur en hér. Auðvitað er hér mörgu ábótavant. Hvarvetna í mannheimi amar eitthvað að. Aðalmeinsemd okkar nú, eins og allan síðasta aldarfjórðung, er verðbólgan. Engin tilraun hefur verið gerð til þess af hálfu ríkisstj. að draga dul á tilveru þeirrar meinsemdar eða á hættuna af henni. Fyrrv. forsrh., Ólafur Thors, gerði hana einmitt að aðalumræðuefni í ræðu sinni í árslok 1962, og sjálfur ræddi ég þennan vanda á landsfundi Sjálfstfl. í apríl 1963 og sagði þá m.a.:

„Að sjálfsögðu bitnar það jafnt á allra flokka mönnum í hinum miklu almannasamtökum, ef þeim er beitt til að efla verðbólgu, auka dýrtíð og torvelda löglega lýðræðisstjórn í landinu. Verðbólgumeinið verður vafalaust seinlæknað, meðan vald þessara miklu samtaka er notað heilbrigðum stjórnarháttum til hindrunar. Hitt yrði þó enn skaðlegra, ef látið yrði undan ofbeldinu og meiri hl. þjóðarinnar kúgaður til að láta af stefnu sinni. Slíkt má aldrei verða.“

Þetta sagði ég fyrir ári.

Í lýðræðisþjóðfélagi hlýtur meiri hluti kjósenda að ráða stefnunni, en Alþingi og ríkisstj. ber að taka hæfilegt tillit til hinna miklu almenningssamtaka í landinu. Enn hefur okkur Íslendingum ekki tekizt að rata í þessu hið rétta meðalhóf.

Við skulum hreinskilnislega játa, að ein af orsökum þess, hversu erfitt hefur reynzt að ráða við verðbólguna, er, að allt of margir, sem í orði kveðnu eru henni andvígir, óttast hana þó ekki í hjarta sínu og stuðla að henni með gerðum sínum. Jafnvel ýmsir, sem hafa andúð á öllu braski, ímynda sér, að þeir geti komizt yfir eignir, t.d. húsnæði handa sjálfum sér, með þessu móti. Aðrir kjósa verðbólguna fremur en atvinnuleysi, sem sárlega bitnaði á mönnum á árunum 1930–1940 vegna þeirrar stefnu í efnahagsmálum, sem þá var fylgt og þeir umfram allt vilja forðast. En langvinn vaxandi verðbólga, slík og við eigum við að búa, horfir almenningi sízt til góðs. Hún eykur mun á fátækum og ríkum og gefur þeim, sem óprúttnir eru, færi á að afla sér óverðskuldaðra fjármuna. Ef svo fer fram, hlýtur, áður en yfir lýkur, ranglætið, sem af verðbólgunni stafar, að leiða til endurmats á eignum og skuldum, er komi í veg fyrir slíka óheilbrigða gróðamyndun. Eftir standa þá erfiðleikar, sem atvinnurekstur í landinu hefur hlotið af verðbólgunni, erfiðleikar, sem áður en varir geta leitt til atvinnuleysis og örbirgðar, einmitt þess, sem allir vilja umfram allt forðast.

Í sjálfu sér skiptir ekki öllu máli, hvort menn segja, að verðlagshækkanir eða kauphækkanir ráði meira um vöxt verðbólgunnar. Aðalatriðið er, að hér er um víxláhrif að ræða. Ef kauphækkanir fara fram úr raunverulegri greiðslugetu atvinnuvega og eru ekki í samræmi við vöxt þjóðartekna, hljóta þær að leiða til verðlagshækkana, og verðlagshækkanir ýta mjög á eftir kauphækkunum. Þegar kauphækkanir voru umsamdar í desember s.l., var þegar á það bent, að þeim hlytu að fylgja margs konar verðlagshækkanir. Þetta var að mestu hægt að reikna út fyrir fram, þó að stjórnarandstæðingar virtust þá hafa. furðulega lítinn áhuga á að kynna sér hina fyrirsjáanlegu þróun.

Mönnum blöskrar að vonum verðlagshækkanirnar, sem urðu á árinu 1963 og það sem af er þessu ári. Þess vegna er fróðlegt fyrir alla að kynna sér orsakir þessara hækkana. Ég hef með höndum áætlun um skiptingu vísitöluhækkunar eftir orsökum frá 1. jan. 1963 til 1. apríl 1964, sem samin er af hagstofunni. Þessi áætlun hljóðar svo:

„Hækkun fob.-verðs á kaffi og sykri er 3.1 stig. Niðurfelling niðurgreiðslu á kaffi, fóðurbæti og áburði gerir 0.6 stig. Hækkun söluskatts úr 3% í 51/2% gerir 2.3 stig. Hækkun tekjuskatts, útsvars, almannatryggingagjalds og sjúkrasamlagsgjalds og lækkun fjölskyldubóta úr 3077 kr. í 3000 kr. gera 3.9 stig. Hækkun prósentuálagningar vegna launahækkana o.fl. gerir 1 stig. Hækkun fiskverðs gerir 1.1 stig. Hækkun á áfengi og tóbaki gerir 0.8 stig. Stéttarfélagsgjöld gera 0.5 stig. Hækkun landbúnaðarvöruverðs vegna hækkunar á tekjum atvinnustétta gerir 2.3 stig. Almennar launahækkanir gera 14 stig. Ymislegt (lagfæringar á verðlagsgrundvelli, ýmsar verðlagshækkanir, sem ekki er hægt að rekja beint til launahækkana, hækkun benzínverðs, hækkun á fragt, leiðrétting á húsnæðislið og ýmsar aðrar hækkanir, frá dregst lækkun á tollum o.fl.) gerir samtals 3.7 stig. Samtals gerir þetta 33.3 stig. — Þetta var áætlun hagstofunnar.

Af öllum þeim orsökum, sem hagstofan telur, ber almennar launahækkanir langhæst eða beinlínis 14 stig af 33. En hækkanir kauptaxta eða tekna eru bein eða óbein orsök hækkana margra annarra liða. Þannig stafar hækkun tekjuskatts og útsvars ekki af hækkuðum skattstigum, heldur af meiri tekjum skattgreiðenda á árinu 1962 en á árinu 1961. En þær vaxandi tekjur eiga á hinn bóginn rót sína að rekja sumpart til góðærisins 1962 og sumpart til kauphækkana á því ári. Hækkun almannatryggingagjalds og sjúkrasamlagsgjalds stafar beinlínis af kauphækkunum. Kauphækkanir á s.l. ári gerðu hækkun söluskatts úr 3% í 51/2% óumflýjanlega. Þær eru því óbein orsök þeirrar verðhækkunar, sem hækkun söluskattsins leiddi af sér. Svipuðu máli gegnir um ýmsa aðra liði, svo sem hækkun prósentuálagningar, hækkun fiskverðs, hækkun stéttarfélagsgjalda og hækkun farmgjalda í millilandasiglingum o.fl. Að baki allra þessara hækkana liggja kauphækkanir, ef ekki að öllu, þá að langmestu leyti. Loks hefur sú tekjuhækkun, sem varð á árinu 1962 umfram hækkun kauptaxta, leitt til hækkunar á verði landbúnaðarafurða um 2.3 stig. Hækkanir þeirra liða, sem ég hef nú nefnt, nema samtals um 12 stigum, er koma til viðbótar þeim 14 stigum, sem áður eru nefnd og beinlínis voru almennar launahækkanir. Þá eru eftir um 7 stig af 33 stiga hækkuninni, sem ekki verða rakin beint eða óbeint til hækkunar kauptaxta eða tekna, nema þá að litlu leyti. Hverjar eru orsakir þessarar 7 stiga hækkunar? Þær eru ýmsar og flestar þess eðlis, að stjórnarvöldin hafa ekki getað haft tök á að ráða við þær. Hækkun á fob.- verði kaffis og sykurs hefur t.d. valdið 3 stiga hækkun og lagfæringar á verðlagsgrundvelli landbúnaðarafurða 1–11/2 stigs hækkun.

Allt er þetta saman slungið, en víxláhrifin eru greinileg. En óumdeilanlegt er hvílíka úrslitaþýðingu sjálfar kauphækkanirnar hafa, hvernig þær, áður en varir, eyða þeim ávinningi, sem ætlað var að ná.

Þeir, sem ásaka ríkisstj. fyrir þessar verðlagshækkanir, verða að svara nokkrum spurningum. Telja þeir hlut bænda nú vera of mikinn? Ef svo, hverjar ráðstafanir vilja þeir gera til að rýra hann? Er það rétt, að kaupmenn og kaupfélög, þ. á m. KRON, hafi lagt fram óyggjandi gögn fyrir, að álagning hafi verið orðin of lág? Er það rangt, að fulltrúar Framsfl. hafi nú í vetur í verðlagsnefnd lagt til, að álagning yrði hækkuð meira en fulltrúar stjórnarflokkanna samþykktu? Hverjir telja það horfa til heilla fyrir sjómenn, verkamenn og íslenzku þjóðina í heild, að alþjóðarfyrirtæki eins og Eimskipafélag Íslands sé látið hanga á horrim vegna ranglátra farmgjaldsákvarðana og þar með hindrað í eðlilegri endurnýjun skipastólsins? Hverjir voru það, sem á s.l. ári töldu tilboð ríkisstj. um launahækkun opinberra starfsmanna allt of lágt? Og hverjir voru það, sem býsnuðust yfir, að þeir skyldu ekki enn fá hækkanir með úrskurði kjaradóms um mánaðamótin marz–apríl? Kemur nokkrum til hugar, að hægt sé að greiða hundruð millj. í auknar kaupgreiðslur opinberra starfsmanna, án þess að opinberir sjóðir fái einhvers staðar að fé til þess?

Þeir, sem halda því fram, að atvinnurekendur og ríkissjóður hefðu getað tekið á sig kauphækkanir, án þess að þær kæmu fram í verðlagi og sköttum, verða að svara þessum spurningum og raunar ýmsum fleiri. Hugleiðum aðeins hækkun söluskattsins. Ef ríkissjóður hefði ekki þurft að taka á sig auknar byrðar vegna launa opinberra starfsmanna og greiðslna úr almannatryggingum, er leiddi af almennum launahækkunum, hefði ekki þurft að hækka hann eins og gert var. Úr því sem komið var, varð það ekki umflúið, ef veita átti sjávarútveginum þá aðstoð, sem var óhjákvæmileg afleiðing kauphækkananna í desember og stjórnarandstæðingar töldu þá of litla, þótt þeir væru andvígir hækkun söluskattsins, af því að þeir sögðu ærna fjármuni fyrir hendi í ríkissjóði. Alveg samtímis voru þeir hins vegar alveg eindregnir fylgismenn þess að leggja á nýjan skatt til aukinna vegaframkvæmda. Þar var um að ræða ópólitískt mál, sem allir töldu sér hag af að styðja. Þá blindaði pólitískt ofstæki stjórnarandstæðinga ekki fyrir þeirri staðreynd, að úr ríkissjóði verður ekki goldið fé, nema þess sé áður í hann aflað.

En látum þetta allt vera. Afleiðingar verðbólgunnar eru hinar sömu, hvort sem menn telja, að hún eigi fremur rætur sínar að rekja til vöruverðshækkana eða kauphækkana. Óvissan og vandræðin, sem af henni stafa, bitna hvort heldur er jafnt á öllum almenningi. Verkamenn dæma sjálfir um það, hvert gagn þeir hafa af kaupdeilum, verkföllum og kauphækkunum, sem áður en varir eyðast að mestu eða öllu. Atvinnurekendur segja til um, hver áhrif hefur á athafnir og framkvæmdir, að aldrei er hægt að gera áætlanir fyrir fram, meðan ný og ný verkföll skella á áður en varir með stórkostlega auknum tilkostnaði. Sjálfur þekki ég, hverjir erfiðleikar eru á stjórnarframkvæmd, meðan svo stendur. Megintími bæði ríkisstj. og margra aðstoðarmanna hennar fer í að reyna að leysa úr daglegum vandamálum, afstýra atvinnustöðvun og yfirvofandi öngþveiti. Allt of litill tími gefst til að sinna þeim verkefnum, sem varanlega þýðingu hafa og öllum, mundu verða til góðs, ef stjórnvöldin, hver sem þau eru á hverjum tíma, gætu gefið sig að þeim.

Tökum t.d. framkvæmdaáætlunina, sem allir hafa bundið miklar vonir við. Á meðan alger óvissa ríkir um framþróun efnahagsmála, er þvílík framkvæmdaáætlun ríkis jafnt sem einstaklinga harla gagnslítil. Á undanförnum mánuðum hefur mikið verk verið unnið til að semja áætlun fyrir þetta og næsta ár innan þess heildarramma, sem í fyrra var birtur. En óvissan hefur verið of mikil til þess, að því verki yrði lokið á viðhlítandi hátt, enda hafa þeir starfsmenn, sem að þessu hafa unnið, einnig haft ærnu öðru að sinna, þ.e. að undirbúa úrræði, sem geri mögulegt að áætla eitthvað fram í tímann.

Um áramótin bjuggust flestir við, að nú í vor yrði ekki komizt hjá róttækum aðgerðum, annaðhvort allsherjar kaupgjalds- og verðlagslækkun eða gengislækkun, sem gerði útflutningsatvinnuvegunum fært að starfa áfram og forðaði frá því, að gjaldeyrissjóðir, sem safnað hafði verið með fyrirhyggju, en ærnum erfiðleikum, gengju til þurrðar. Þá voru það einmitt þessir gjaldeyrissjóðir, er gagnstætt því, sem óhjákvæmilegt var sumarið 1961, gerðu það fært að komast hjá algerum neyðarráðstöfunum þegar í stað. Í bili var unnt að láta sitja við þær ráðstafanir vegna sjávarútvegsins, sem samþykktar voru eftir áramótin. Nú hefur skipazt betur en á horfðist. Hvort tveggja er, að þær varúðarráðstafanir, sem þegar voru gerðar á s.l. sumri til að tryggja gjaldeyrisstöðuna, hafa haft heillavænlegri áhrif en menn þorðu að vona, og aflabrögð hafa í heild reynzt óvenjugóð. Þess vegna er nú unnt að komast hjá þeim neyðarráðstöfunum, sem ýmsir óttuðust, að gera þyrfti. Það tekst þó því aðeins, að menn stöðvi sig nú, að þeir hefji ekki nýtt kapphlaup milli kaupgjalds og verðlags öllum til ills.

Ríkisstj. hefur að sjálfsögðu fylgzt náið með allri þessari þróun og hefur eftir föngum haft samráð við þá aðila, sem mestu geta ráðið um, hver stefna verður nú valin. Stjórnin fagnaði þess vegna, þegar Alþýðusambandið fyrir skömmu ritaði henni og óskaði eftir samvinnu um stöðvun verðbólgunnar. Síðan hafa margháttaðar undirbúningsviðræður átt sér stað. Um árangur þeirra skal ég ekkert fullyrða á þessu stigi. Ég skal einungis staðfesta það, sem raunar kom fram af hálfu ríkisstj. þegar í vetur, að hún telur fyllilega athugandi, að settar verði reglur um verðtryggingu kaups, en forsenda þess er, að nú verði ekki á ný gerðar grunnkaupshækkanir. Ástæðan til þess, að áður varð að hverfa frá verðtryggingu kaups, þ.e. banna vísitölubindingu þess, var einmitt sú, að ekki var látið sitja við kauphækkanir af þeim sökum og grunnkaupshækkanir í samræmi við greiðslugetu atvinnuvega, heldur voru þær ætíð öðru hvoru knúðar fram, þótt öllum mætti vera augljóst, að vís voði stafaði af. Sú óheillaþróun leiddi til örðugleika, sem vinstri stjórnin vék af hólmi fyrir í árslok 1958, þ. á m. sá ræðumaður, sem áðan talaði digurbarkalega. Ef tekst að semja til langs tíma um vinnufrið, horfir málið allt öðruvísi við en áður. Jafnframt er eðlilegt, að kannað sé hvort samkomulag næst um frekari ráðstafanir almenningi til heilla, svo sem aukið fé til húsnæðismála, um raunverulegar aðgerðir til styttingar vinnutíma o.fl. Þar koma einnig til greina þau skattalækkunarfrv., sem ríkisstj. hefur nú fengið samþykkt á Alþingi. Samningar um þetta takast ekki, nema því aðeins að góðvild og skilningur ríki á alla vegu, bæði skilningur á þjóðarhag og hvað hverjum er fyrir beztu. Í sjálfu sér þarf ekki að biðja neinn um að gera neitt sjálfum sér til óhagræðis eða fórna neinu, heldur einungis að íhuga vendilega, hvað honum sjálfum er fyrir beztu.

Við þurfum umfram allt að leita orsaka þess, sem aflaga hefur farið, og láta okkur skiljast, að hin voldugu almannasamtök og ríkisvaldið verða sameiginlega og af gagnkvæmri góðvild að finna þá leið, hvernig árekstraminnst verður framfylgt þeirri stefnu, sem kjósendur marka við kosningar hverju sinni. Ef menn aldrei læra, hvað er framkvæmanlegt, og eyða orku sinni í tilgangslausa togstreitu, er eigi kyn, þótt margt fari miður en skyldi. En ef allir þeir, sem vei vilja, og hver hefur miklu verkefni að gegna á sínum vettvangi, læra, að þeir eru ekki hver um sig einn í heiminum, heldur þurfa þeir hver og einn að vinna með öðrum og virða einnig þeirra verkefni, þá mun vel fara. Þá munu menn hætta að metast um, hver verði eða hafi orðið ofan á í einskisnýtum erjum, en leggja sig fram um að leysa þann vanda, sem þjakað hefur þjóðfélagið nú í aldarfjórðung, en auðleystur er, ef þekking, reynsla og samhugur fá að ráða. — Góða nótt.