12.05.1964
Sameinað þing: 77. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2046 í B-deild Alþingistíðinda. (1581)

Almennar stjórnmálaumræður

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Að réttu lagi samkv. þingsköpum Alþingis eiga eldhúsdagsumræður að fara fram við framhald I. umr. fjárlaga. Nú er þeim að beiðni stjórnarinnar frestað til síðustu stundar, allt fram að þinglausnum, sem áformað er að fari fram á morgun. Mundi þetta nú svo, ef stjórnarliðinu þætti það fagnaðar- og tilhlökkunarefni að túlka ágæti stefnu sinnar frammi fyrir alþjóð? Ég held tæpast. Enda hafa menn heyrt í þessum umræðum, að það er eins og ráðh. vilji helzt um allt annað tala en pólitík, og sízt af öllu vilja þeir minnast á stjórnarstefnuna, hún er orðin eins og snara í hengds manns húsi. Þetta held ég, að þjóðin muni nú virða við þá. Það er játning, sem fullvel skilst. Það skýrir líka seinkun eldhúsumræðnanna, því að með þessu segir ríkisstj. raunar: „frestur er á illu beztur“. Það er ljóst, að við höfum stjórn, sem kvíðir því sjálf, að stefna hennar sé rædd við þjóðina. Þess vegna er ríkisútvarpinu nú lokað fyrir forustumönnum launþegasamtakanna á alþjóðabaráttudegi verkalýðsins 1. maí. Orð þeirra mega ekki heyrast. Þetta er mikill aumingjaskapur. Venjur eru brotnar, andi stjórnarskrár um óheft skoðanafrelsi er sniðgenginn. Auk þess er þetta óhyggilegt, heimskulegt. Um þetta hitti Skúli bóndi á Ljótunnarstöðum naglann á höfuðið eins og oftar, þegar hann sagði: „Víst mundu orð Hannibals Valdimarssonar og Kristjáns Thorlacius hafa haft mikið áróðursgildi, en vitneskjan um það, að valdamenn þjóðarinnar skuli vera svo ofstækisfullir, skammsýnir, hræddir og heimskir, að þeir þora ekki að gefa pólitískum andstæðingum sínum orðið í útvarpinu í nokkrar mínútur, það hefur þó mörgum sinnum meira áróðursgildi.“

Sama hræðslan og heimskan hefur nú komið í ljós í því, að prófessor Þórhalli Vilmundarsyni var neitað um flutning á snjöllu erindi, þar sem hann túlkaði málstað þjóðar sinnar gagnvart þeirri menningarlegu forsmán, sem dátasjónvarpið á Keflavíkurflugvelli er. Það væri gustukaverk, að þjóðin leysti þessa hræddu og huglausu valdhafa frá ótta sínum.

Hæstv. forsrh., Bjarni Benediktsson, varði mestum tíma ræðu sinnar til að játa, að ríkisstj. réði ekkert við verðbólguna. Sú játning var nú næsta óþörf, því að þjóðin öll veitt þetta, og slík stjórn á auðvitað að segja af sér.

Hæstv. menntmrh. valdi sér hið góða hlutskipti í gærkvöld. Hann lýsti yfir stuðningi við öll góð mál. Hann kvaðst meira að segja vera hlynntur bændum og vilja þeim vel. Göfugar hugsjónir væru takmarkið æðsta. Framleiðni væri mál málanna, en hækkað kaup væri algert aukaatriði. En ráðherralaun munu þó hafa hækkað um 100% á s.l. ári. En af hverju svona ópólitískur ráðh. á uppgjörs- og eldhúsdegi? Sleppum því, við skulum heldur tala um eitthvað annað.

Hv. 5. þm. Vesturl., Benedikt Gröndal, kom með skemmtilega sögu um Emil og það, hvernig atvinnuleysistryggingarnar urðu til. Emil sat og tottaði pípu sína og þá kom andinn yfir hann, eins og fjandinn sjálfur: atvinnuleysistryggingar, já, það var lausnin á verkfallinu 1955. En sannleikurinn er sá, að krafan um atvinnuleysistryggingar var margsinnis fram borin og nokkrum sínnum felld og var þess vegna ekki nein uppgötvun herra Emils Jónssonar.

Hv. 5. þm. Vesturl., Benedikt Gröndal, gerðist annars leiðsögumaður verkalýðshreyfingarinnar og fann þar að mörgu, sumu réttilega. En þeir tala stundum mest um Ólaf konung, sem hvorki hafa heyrt hann né séð. Og ekki er mér kunnugt um margt úr baráttusögu þessa unga manns í íslenzkri verkalýðshreyfingu. Hann fordæmdi verkföll og undraðist það, að ekki hefði orðið hér á landi sami árangur af baráttu verkalýðshreyfingarinnar eins og á Norðurlöndum. Er honum þetta ráðgáta? Veit hann ekki, að á Norðurlöndum styðja flokkar jafnaðarmanna verkalýðsfélögin með ráðum og dáð í baráttu þeirra fyrir bættum lífskjörum, en hér stendur Alþfl, að stjórnarstefnu, sem í öllum aðalatriðum er stríð við almenning og stríð við framleiðsluatvinnuvegi þjóðarinnar? Viðreisnir, var óframkvæmanleg nema með stuðningi Alþfl., og þegar hann hættir að vera hækja íhaldsins, er hún búin að vera. Og alþýða landsins spyr: Hvenær hættir Alþfl. að leika það hlutverk?

Hv. þm. hafði nafn Jóns Baldvinssonar mjög á vörunum og sagði Alþfl. hafa fylgt hans leið fram á þennan dag. Það hefur flokkurinn því miður ekki gert. Jón Baldvinsson sagði í þingræðu einu sinni: „Ég held, að stefnan eigi ekki að vera sú að ganga lengra í áttina til íhaldsins“, sjá bók Vilhjálms Þ. Gíslasonar, „Mannfundir“, bls. 406. En það er þó einmitt það, sem flokkurinn hefur vissulega gert og þar með yfirgefið leið Jóns Baldvinssonar. Hans nafn eigið þið Alþfl.-leiðtogar því ekki að bera ykkur í munn, meðan þið þjónið undir íhaldið. Einnig mætti Alþýðuflokksfólk vel fá að heyra aðvörunarorð annars sinna gömlu foringja, Haralds Guðmundssonar, er hann mælti 9. jan. s.l., en þau voru á þessa leið: „Þó að þið vinnið með íhaldinu, verðið þið þó vandlega að gæta þess að verða ekki íhaldsmenn sjálfir.“ Já, gætið þess, Alþfl.-leiðtogar, að verða ekki íhaldsmenn sjálfir.

Hv. 7. þm. Reykv. virtist eiga það erindi helzt í útvarpið að tortryggja heilindi verkalýðshreyfingarinnar í samningum við ríkisstj. og hrakyrða mig persónulega í leiðinni. Þetta er sá íhaldsprins, sem hirða á Sjómannafélag Reykjavíkur af Alþfl. og Jóni Sigurðssyni, eins og íhaldsmaður hefur nú hirt Múrarafélag Reykjavíkur af Alþfl.-manninum Eggert G. Þorsteinssyni. Þannig geldur Alþfl. torfalögin fyrir íhaldsþjónustu sína samkv. afborgunarkerfi. Ég held, að ég standi jafnréttur í verkalýðshreyfingunni, þó að þessi hv. þm. sendi mér tóninn, og því tel ég bezta svarið til hans vera það að svara honum engu.

Ég mun nú helga aðalkafla ræðu minnar verðbólguófreskjunni, sem tekið hefur alla stjórnartauma úr greipum hæstv. ríkisstj. Ríkisstjórnin, áróðursmenn hennar og málgögn halda því sífellt fram, að hin óhugnanlega dýrtíðar- og verðbólguþróun hér á landi sé alls ekki stjórnarstefnunni að kenna, heldur verkalýðshreyfingunni. Ef þetta væri nú rétt, væri það raunar viðurkenning þess, að stjórnin hefði alls ekki ráðið við þessi þýðingarmiklu mál, heldur misst þau úr böndunum. Þannig væri hlutur stjórnarinnar þá alls ekki of góður, þó að þessi kenning væri rétt. En þessi kenning er röng með öllu.

Hv. 5. þm. Austf., Lúðvík Jósefsson, sýndi ljóslega fram á það í gærkvöld, hvernig dýrtíðin er búin til og til hvers það er gert. Stefna stjórnarinnar er gengislækkunarstefna og dýrtíðarstefna. Getur nokkur maður nefnt nokkra ráðstöfun, sem þessi stjórn hafi frá upphafi sinna vega gert til þess að sporna við dýrtíð eða draga úr verðbólgu? Það getur auðvitað enginn. Dýrtíðin óx um 4–5% á ári í tíð vinstri stjórnarinnar, og þótti flestum meira en nóg, og töluðu þá sumir um hengiflug. En undir viðreisn hefur dýrtíðin ætt áfram um 15% á ári og herðir nú skriðinn allt hvað af tekur, enda spyr nú maður mann, jafnt úr stjórnarherbúðunum sem stjórnarandstæðingar: Hvar endar þetta? Síðan í ársbyrjun 1960 hefur kaup hækkað um 55%. Verðlag vöru og þjónustu hefur á sama tíma hækkað um 84%, og vitað, að það mun hækka enn um 3% í þessum mánuði; en um 8–10 stig fyrir lok þessa árs, þó að engin kauphækkun yrði. Þetta síðasta er niðurstaða stjórnarhagfræðinga, og tökum nú eftir: Í árslok 1963 höfðu þjóðartekjurnar samt vaxið um 107%, miðað við ársbyrjun 1959. Það er tvöfalt meira en kaupið hafði hækkað. Hver getur nú, þegar svona tölur blasa við, haldið því fram, að kaupgjald verkafólks sé ógæfuvaldurinn í dýrtíðarmálunum, að ofstæki verkalýðsforustunnar og kröfufrekja sé að steypa þjóðinni í glötun, að of hátt kaup sé skemmda tönnin í þjóðfélaginu, eins og hæstv. forsrh., Bjarni Benediktsson, komst að orði í áramótaboðskap sínum?

Í des. s.l. stóðu sakir þannig, að þá hafði kaup verkamanna aðeins hækkað um 28.2% síðan í okt. 1958, en þjóðartekjurnar hins vegar á sama tíma um 88% á mann. Og þá var það, eins og menn muna, sem ríkisstj. Íslands ætlaði að binda kaup verkafólks með lögum. Ja, þvílík réttlætistilfinning. En þá fór nú líka sem fór. Þeir spiluðu nefnilega rassinn úr buxunum sínum, sprengdu sig á afli einhuga verkalýðshreyfingar og fordæmingu heilbrigðs almenningsálits og létu undan síga í bili. Samkv. gildandi kaupgjaldssamningum frá í desember fær verkamaður, sem vinnur alla virka daga allan ársins hring 8 stundir á dag, 77 þús. kr. í árstekjur. Þetta er kaupið, sem á að vera að steypa fjárhagslegu sjálfstæði þjóðarinnar í glötun. Finnst þér það trúleg saga, hlustandi góður? Og hver kann nú þá list, spyr ég, að framfleyta meðalfjölskyldu á slíkum tekjum? Kannt þú það, hlustandi? Ætli höfundar stjórnarstefnunnar kunni það? Ég hygg ekki. Og svo mikið er víst, að ekki kann ég það. Þetta kaup, sem hér er um samið, er fullum fjórðungi lægra en verkamannakaup í næstu nágrannalöndum okkar. Það er því víst, að þess vegna stöndum við ekki verr að vígi í samkeppni framleiðslu og viðskipta við neina þeirra þjóða. Og ef svo er, þá liggja til þess allt aðrar orsakir. En samt er fullyrt: Of hátt kaup verkafólks er undirrót óðaverðbólgu og dýrtíðar, kaupið verður að lækka, verkalýðshreyfingin hefur knúið fram allt of hátt kaup. — Og þá spyr ég, og ég á heimtingu á svari: Hve mikið er kaupið of hátt? Hvað þarf það að lækka mikið? Hvað teljið þið mátulegt verkamannakaup, miðað við dýrtíðarástandið í dag? Og ég vona, að málsvörum stjórnarstefnunnar verði ekki svarafátt við svo sjálfsögðum spurningum.

Mjög er nú látið í það skína, að ef kaupið hækki ekki, þá skuli verðbólgan verða stöðvuð. Þetta er þó loforð upp í ermina sína, ef ekkert er annað gert. Fullvíst er, að verðbólgan stöðvast ekki, þó að kaup standi óbreytt, þar þarf miklu fleira til að koma. Spyrjum reynsluna, hún er ólygnust. Á tímabilinu frá jan. 1959 til júní 1961 urðu alls engar kauphækkanir hér á landi. En hver var þróunin samt í verðlagsmálunum? Kaupmáttur launa lækkaði fyrst um 5.4% og síðan um 18% eða samtals um rúm 23%. Útilokað er með öllu að kenna hækkun kaupgjalds um þá þróun verðlagsmála, sem varð á þessu tímabili, enda munu engir reyna það. Og því er spurningin: Eigum við að gera slíka tilraun aftur? Þurfum við þess?

Sannleikurinn er sá, að það er hið innihaldslausasta tal, að kaup hinna lægst launuðu valdi allri verðbólgu. Hið réttara er, að í slíku eindæma góðæri til lands og sjávar, sem hér hefur ríkt frá náttúrunnar hendi, er ekki hægt að halda niðri kaupi, nema gróðamyndunin í landinu sé tekin undir fasta stjórn ásamt öllum meiri háttar fjárfestingarframkvæmdum í landinu. Þetta hefur núv. ríkisstj. hliðrað sér hjá að gera. Á þessu sviði hefur ríkt stjórnleysi og glundroði, eins og á mörgum fleiri sviðum. Gróðamyndunin hefur fengið að flæða óhindrað um alla farvegi efnahagslífsins með auðsöfnun eina að leiðarljósi, án alls tillits til þess, hvað nauðsynlegt væri eða skynsamlegt til frambúðar fyrir þjóðina. íbúðarhúsabyggingar hafa t.d. algerlega setið á hakanum, sem hefði þó verið heldur skynsamlegra að láta sitja í fyrirrúmi. Peningamönnunum, brjóstabörnum stjórnarinnar, hefur legið mikið á að koma gróða sínum í fasteignir. Verðbólgan hefur rekið á eftir þeim. Þannig urðu þær til, iðnaðar- og kaupsýsluhallirnar, sem þotið hafa upp í Reykjavík seinustu árin. Þannig skapaðist hin margnefnda spenna í efnahagslífinu, og ef það gekk ekki nógu fljótt að koma milljónahöllunum upp, þá var það hégómi einber fyrir þá að yfirborga verkamenn og iðnaðarmenn til þess að koma kaupsýslustórhýsunum sem fyrst í gagnið. Þannig fór vinnuaflið á uppboð í mörgum tilfellum. Nákvæmlega það sama gerðist hjá öðrum gróðamönnum, síldarsaltendum, síldarverksmiðjubyggjendum í Vestmannaeyjum og annars staðar o.s.frv., o.s.frv. Þetta hefur gengið stjórnlaust fyrir sig. Hvers vegna? Af því að ríkisstj. hefur ekki viljað hefta frelsi iðjuhölda, heildsala eða annarra peningafursta. Það eru hennar menn. En hrópað hefur verið: Stöðvum verðbólguna, höldum kaupi verkafólksins í skefjum. — En þar er ekki gripið á kýlinu.

Skilur þú nú. hlustandi góður, af hverju þessi ríkisstjórn stöðvar ekki verðbólguna? Hún vill ekki skerða frelsi gróðamannanna. Hún vanrækir að stjórna gróðamynduninni. Hún forðast að stjórna fjárfestingunni. Hún er verðbólgustjórn og vill vera það. Hún mun aldrei temja verðbólgu- og dýrtíðarófreskjuna ótilneydd.

Það fer ekki á milli mála, að á fyrri hluta þessa árs hefur orðið gífurleg aukning framleiðslutekna og þjóðartekna. Mestu uppgripavertíð í allri þjóðarsögunni lauk í gær. Hér er lagður grunnur að mikilli gróðamyndun. Og hvernig á sá gróði að skiptast? Á verkafólk engan hlut í þessari aukningu þjóðartekna að fá? Jú, vissulega. Til þess á það fyllsta rétt. En víst er um það, að þessi mikla gróðamyndun mun leiða til verðbólgu, ef engar ráðstafanir eru gerðar til þess að afstýra því. Hvert fer þessi gróði? Hann fer til einstakra atvinnurekenda, hann síast fljótlega út í verzlunina, hann kemur við í bönkum og öðrum peningastofnunum, hann verður verðbólguvaldur. En er nú ekki öllum voða afstýrt, bara ef kaupið er lækkað eða kauphækkanir stöðvaðar? Því fer suðvitað víðs fjarri, að svo sé, því að þá mundi það eitt ske, að enn meiri gróði léki lausum hala. Lækkun eða stöðvun kaupgjalds er því fjarri því að vera allsherjarlækning á vexti verðbólgu og dýrtíðar ein út af fyrir sig.

Ég hef hér sýnt fram á það, að núv. ríkisstj. er sannkölluð verðbólgustjórn. En í vitund þjóðarinnar er hún fyrst og fremst gengislækkunarstjórn. Hún hefur, sem kunnugt er, lækkað gengið tvisvar. En hefur hún þá ekki horfið frá þeirri stefnu? Jú, seinustu mánuðina hefur mjög kveðið við í herbúðum stjórnarinnar, að gengislækkun leysi engan vanda og endurteknar gengislækkanir spilli áliti og virðingu þjóðarinnar út á við, hvað rétt er. Mun ýmsum minnisstætt hróp hæstv. forsrh., Bjarna Benediktssonar, þegar hann sagði: „Gengislækkunarleiknum verður að linna.“ En þrátt fyrir þetta getur enginn annað séð en að gengislækkunarstefnunni sé haldið áfram fyrir fullum seglum. Öll ytri merki viðskiptalífsins benda því miður í sömu átt. T.d. keppast bankar og heildsalar enn ákaft við að borga niður erlendar skuldir. Þá er síður en svo minnkunarmót á byggingaræði stórlaxanna: kaupsýslumannanna, stórútgerðarmannanna, iðjuhöldanna og sjálfra bankanna. Allt bendir þetta til þess, að enn ein gengislækkun sé ekki langt undan. Með tilliti til þess, sem áður hefur verið gert, gæti vei svo farið, að einhvern góðan veðurdag í sumar eða haust yrði tilkynnt í formi brbl.: Gengið er fallið. Seðlabankanum þykir ekki hlýða annað en viðurkenna orðinn hlut. — En vafalaust verður kauphækkun eða einhver slík algerlega fölsk forsenda notuð sem skálkaskjól og talin valda gengisfallinu.

Alþýðusamband Íslands hefur nú átt frumkvæði að því að bjóða ríkisstj. samstarf um að stöðva verðbólguþróunina. Þetta tilboð hefur vakið þjóðarathygli og margir á það minnzt í þessum umr. Niðurlag orðsendingar Alþýðusambands Íslands til ríkisstj. var á þessa leið:

„Verkalýðssamtökin hafa verið í varnarbaráttu síðustu árin og reynt að verja meðlimi sína fyrir áföllum dýrtíðarstefnunnar. Um þessar mundir standa málin þannig, að dagkaup verkamanna hefur hækkað frá febrúarmánuði 1960 að telja um 55% , en á sama tíma hefur vöruverð og þjónusta hækkað um 84%. Verkalýðssamtökin verða því enn að krefjast leiðréttingar á kaupmætti tímakaupsins.

Verkalýðssamtökin eru andvíg dýrtíðarstefnunni: Þau telja, að sívaxandi þjóðartekjur og hækkandi útflutningsverð á afurðum landsins geri mögulegt, að hægt sé að tryggja raunhæfar kjarabætur og stöðva hina óheilbrigðu verðbólguþróun.

Reynslan hefur sýnt, að vandamál efnahagsmálanna verða ekki leyst í stríði við verkafólk í landinu og með sífelldum kauplækkunum. Sú leið hefur verið reynd til þrautar. Hún er ófær. Miðstjórn Alþýðusambandsins á erfitt með að trúa því, að ríkisstj. landsins telji enn óhjákvæmilegt að halda niðri launakjörum verkafólks með slíkri dýrtíðarstefnu, sem hér hefur ríkt. Þess vegna vill hún með grg, þessari snúa sér til ríkisstj. með áskorun um eftirfarandi:

1) Þegar í stað verði teknar upp viðræður milli ríkisstj. og verkalýðshreyfingarinnar um tilraun til stöðvunar verðbólgunnar og um réttlátar og óhjákvæmilegar launa- og kjarabætur.

2) Lögð verði áherzla á að verðtryggja kaupið og ná samkomulagi um örugga og jafna hækkun á kaupmætti launa, svo að unnt verði að gera varanlega samninga, sem tryggi vinnufrið.

3) Reynt verði að ná samkomulagi um framkvæmd á raunverulegri styttingu vinnudagsins án skerðingar heildartekna.

4) Samkomulag verði gert um ýmis réttinda- og hagsmunamál alþýðufólks, vinnuverndarmál og orlofsréttindi, svo og nauðsynlegar ráðstafanir í húsnæðismálum almennings.

Alþýðusambandið býður samstarf um lausn á þeim miklu vandamálum, sem við er að glíma í þessum efnum. Það samstarf verður að byggjast á réttlátri afstöðu til brýnustu hagsmunamála verkalýðsins, er varða launa- og kjaramál, og að frjáls samningsréttur sé virtur. Verkalýðssamtökin vilja vissulega friðsamlega lausn á vandamálunum, en þau hljóta að beita sínu mikla samtakavaldi, ef réttlátir samningar geta ekki fengizt um kjaramálin.“

Þetta var niðurlagið á tilboði Alþýðusambands Íslands til ríkisstj.

Hæstv. ríkisstj. tók þessu tilboði A.S.Í. og samkomulag hefur orðið um tilhögun viðræðna, hver svo sem árangurinn verður. En það vil ég segja á þessari stundu, að við þessar viðræður bind ég miklar vonir. Verkalýðshreyfingin í Reykjavik sameinaðist 1. maí um fram settar kröfur í tilboði A. S. Í. Um þær sagði Jón Sigurðsson í 1. maí-ræðu sinni m, a. þetta: „Þrátt fyrir 15% hækkun launa í des. s.l. er nú svo komið, að kjarabarátta er óumflýjanleg að nýju. Verzlunin hefur nú nýlega fengið það rausnarlega álagningarhækkun, að hún getur vei tekið á sig án bóta, þó að verkafólk fengi nokkra kauphækkun. Sama er að segja um flestan iðnað. Verkalýðssamtökin ætlast til þess, að rætt verði um þetta í fullri alvöru og einlægni með það í huga, að árangur náist til stöðvunar þeirrar óheillaþróunar, sem verið hefur og er í launa- og verðlagsmálum, og að orðið verði við þeim meginkröfum, er verkalýðssamtökin hafa sett fram, þ.e. kauphækkun eða verðlækkanir, aukinn kaupmáttur, verðtrygging launa, stytting vinnudags, aukið orlof, umbætur í húsnæðismálum.“ Þannig stendur verkalýðshreyfingin sameinuð og samstillt um viðræðurnar við ríkisstj. og kröfur samtakanna. Leiði viðræðurnar við ríkisstj. til myndarlegrar úrlausnar um verðtryggingu kaupsins og hækkun þess í áföngum, um styttingu vinnudagsins, um lagasetningu um lengt orlof, um vinnuvernd og síðast, en ekki sízt, um myndarlegt stórátak í húsnæðismálunum, þá mun slíkt að verulegu leyti auðvelda samningana um aðild vinnumarkaðarins, þ.e.a.s. sjálf launamálin.

En stöðvun verðbólgu og dýrtíðar útheimtir stefnubreytingu og fasta stjórn á fjárfestingu og gróðamyndun í landinu. Stjórnarstefnan verður að miðast við framleiðsluatvinnuvegi þjóðarinnar, en ekki við milliliðastarfsemi, það skiptir líka meginmáli sem grundvallaratriði. Það er svo vissulega von verkalýðssamtakanna, að giftusamlega takist um þessar þýðingarmiklu viðræður og samninga og að friður góður verði í landi á 20 ára afmæli hins íslenzka lýðveldis. — Góða nótt.