12.05.1964
Sameinað þing: 77. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2057 í B-deild Alþingistíðinda. (1583)
Almennar stjórnmálaumræður
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Góðir hlustendur. Í orðræðum þeirra alþm., sem ákafast deila á ríkisstj. og störf hennar, hafa fallið orð í þá átt, að létta þurfi ógnarfarg álagnanna. Því er lýst í sterkum litum, hversu ofboðslegar séu álögur hins opinbera, þær taki öllu fram, sem áður er þekkt, þær eigi meginþáttinn í dýrtíð og verðbólgu, séu svo þungbærar, að vart eigi sinn líka í öðrum löndum. Og þegar ríkisstj. leggur fram frv. um það, sem hún kallar skatta- og tollalækkun, þá heitir það á máli stjórnarandstæðinga hækkun á hækkun ofan.
Það er nú sérstakt vandamál, sem þyrfti að taka til gaumgæfilegrar meðferðar, hvort ekki sé unnt að ná samkomulagi milli stjórnmálaflokkanna um skilgreiningu og túlkun á vissum hugtökum. Ég geri ráð fyrir því, að með nokkurri vinnu og velvilja mætti ná samstöðu Sjálfstæðis-, Framsóknar- og Alþýðufl. um hugtakið lýðræði og þau meginatriði, sem í því felast. Við fjórða flokkinn yrði væntanlega erfiðara að ná samstöðu um túlkun á lýðræðinu, því að Marxistar, Lenínistar og Stalínistar hafa töluvert aðrar hugmyndir um það en við hinir. En ósköp væri það æskilegt t.d., ef stjórnarsinnar og stjórnarandstæðingar gætu komið sér saman um það, hvað felst í hugtakinu að hækka tolla eða skatta og hvað felst í hugtakinu að lækka tolla og skatta.
Kerlingarnar körpuðu um það fram í rauðan dauðann, hvort grasið á þúfunni væri klippt eða skorið, og fólkið í landinu verður að hlusta á karp íslenzkra stjórnmálamanna um það, hvort tiltekin ráðstöfun í skatta- eða tollamálum þýði hækkun eða lækkun. Til skamms tíma hefur það að vísu verið viðurkennt, að þótt óbreyttir eða lækkaðir skattstigar skiluðu ríkissjóði eða sveitarsjóðum hærri heildarupphæð vegna aukinna tekna manna, héti það ekki skatta- eða útsvarshækkun. Á sama hátt hefur það verið kölluð tollalækkun, þegar hundraðshluti tolla hefur verið lækkaður af vörueiningu, þó að heildarupphæð tollsins í ríkissjóð verði hærri, vegna þess að innflutningur vex. Og það hefur ekki verið talin hækkun á söluskatti, þó að aukin velta í þjóðfélaginu skili með óbreyttri hundraðstölu söluskattsins fleiri krónum í ríkissjóð og sveitarsjóði. Á þessum skilningi byggt ég að sjálfsögðu það, sem ég segi um skatta- og tollamál.
Með flestum þjóðum eru gerð yfirlit um það, hve álögur hins opinbera eru stór hundraðshluti af þjóðarframleiðslunni. Þegar rætt er um álögur hins opinbera í þessu sambandi, þá eru taldir allir beinir og óbeinir skattar til ríkissjóðs og sveitarsjóða, hagnaður af ríkisfyrirtækjum og öll iðgjöld til almannatrygginga. álögur eða tekjur hins opinbera eru þannig teknar í víðtækari merkingu en við notum að jafnaði til þess að fá réttan samanburð við önnur lönd. Árið 1962 voru tekjur hins opinbera á Íslandi í þessum skilningi tæplega 27% af þjóðarframleiðslunni. Sé borið saman við önnur lönd 5 í grennd við okkur, eru tilsvarandi tölur fyrir sama ár þessar: Danmörk tæp 29%, Bretland 33%, Noregur 36%, Vestur-Þýzkaland rúm 37%, Svíþjóð tæp 40%. Bráðabirgðatölur fyrir Ísland 1963 sýna sama hundraðshluta og 1962, eða tæp 27%. Hundraðshluti Íslands varð þannig árið 1962 lægstur af þessum 7 löndum. Samanburður við aðrar þjóðir talar vissulega sínu máll. Hann sýnir, að álögur hins opinbera á Íslandi eru ekki þyngri en í þessum nágrannalöndum okkar, heldur eru álögurnar hér nokkru lægri hundraðshluti af þjóðarframleiðslunni. Hér ber þó að hafa í huga kostnað þessara þjóða af landvörnum.
Ef athuguð er þróun þessara mála hér heima, lítur myndin þannig út: Tekjur hins opinbera, í öllum tilfellum að frádregnum útflutningsbótum, voru í hundraðshluta af þjóðarframleiðslunni árið 1958 28%, árið 1959 rúm 28%, árið 1960 rúm 31% , árið 1961 tæp 28%, 1962 tæp 27%, 1963 tæp 27%. Af þessu yfirliti sést, að miðað við þennan mælikvarða á opinberar álögur, sem mjög er notaður með mörgum þjóðum, eru álögur hér á landi í heild sinni ekki meiri en fyrir 4–5 árum, heldur minni.
Í tekjuöflun ríkissjóðs vega aðflutningsgjöldin eða tollarnir þyngst. Á 3 árum hafa miklar endurbætur orðið í tollamálum okkar. Aðflutningsgjöld Íslendinga voru orðin óhafandi af mörgum ástæðum. Gjöldin voru svo margvísleg, prósenturnar svo mismunandi, grunnarnir, sem af var reiknað, svo ólíkir, að ekki var á færi nema fárra sérfræðinga að segja til um, hvaða tollar væru í gildi á Íslandi. Tollarnir voru samanlagt óhóflega háir. Þetta ástand leiddi af sér ólöglegan innflutning á ýmsum vörum, án þess að tollayfirvöld megnuðu að stemma þar stigu við. Nú hafa tollarnir verið gerðir einfaldir, tollskráin samræmd þeirri tollskrá, sem gildir í öllum vestrænum löndum. Hæstu aðflutningsgjöld áður voru á fjórða hundrað prósent af sumum vörum, nú er hámarkið 125%.
Það hefur verið gert yfirlit um áhrif þeirra tollalækkana, sem gerðar voru haustið 1961 og með nýju tollskránni í fyrravor. Niðurstaðan er þessi: Miðað við innflutningsverðmæti 1962 hefðu eldri tollalögin skilað um 206 millj. meira í ríkissjóð en hin nýju tollalög, eða m.ö.o. tollabreytingarnar þýða rúmlega 200 millj. kr. lækkun miðað við árið 1962, en sú upphæð yrði talsvert hærri miðað við árið 1963. Þessi tollalækkun er auðvitað kjarabót fyrir landsmenn, sem nemur þessari sömu upphæð.
En stjórnarandstæðingar eru ekki á því að viðurkenna slíkt, þvert á móti. Þeir segja, að þessar tollabreytingar skipti engu máli fyrir kjör fólksins, og rökin eru þessi: Breytingin verkar ekki á vísitöluna. Þar er komið að þessum þrönga hugsunarhætti, sem menn voru farnir að vona að væri úreltur orðinn, þeim hugsunarhætti, að það eitt skipti máli um lífskjörin, sem hefur áhrif á framfærsluvísitöluna. Þessi skaðlega skoðun hafði þau áhrif árum saman, að efnahagsaðgerðir og fjármálapólitík beindust um of að því, hvernig hægt væri að hagræða vísitölunni. Þeim vörum, sem gengu inn í vísitöluna, var hlíft við álögum, en þeim mun ríflegar smurt á aðrar. Þessu til viðbótar voru svo auknar jafnt og þétt niðurgreiðslur af almannafé á vísitöluvörur. Við þessar aðgerðir rammskekktist verðlagið í landinu, smyglið færðist í aukana, vísitalan varð æ lakari mælikvarði á lífskjörin í landinu.
Vísitala er nauðsynleg í ýmsum samböndum. Hún gefur nokkra, en engan veginn fullkomna mynd af þeim breytingum, sem lífskjör fólksins taka. Nú er talað um að taka upp að nýju svokallaða verðtryggingu kaupgjalds, þ.e. vísitöluviðmiðun kaupsins í einu eða öðru formi. Ef af því verður, er nauðsynlegt að reyna að forðast ýmsa þá annmarka, sem hafa áður loðað við vísitölukerfið. Hið nýja skipulag má t.d. ekki freista um of til að auka niðurgreiðslur, en draga úr möguleikum til tollalækkana á næstu árum. Núv. ríkisstj. hefur ekki hagað störfum sínum eftir hinum þröngu vísitölusjónarmiðum. Hún hefur t.d. óhikað framkvæmt stórfellda tollalækkun, af því að hún taldi það rétt og nauðsynlegt, án tillits til þess, hvort framfærsluvísitalan lækkaði við það eða ekki. Og vissulega eru þetta kjarabætur. Það hefur áhrif á hag fólksins, þegar lækkaður er tollur á tilbúnum fatnaði, skófatnaði, búsáhöldum, landbúnaðartækjum, svo sem dráttarvélum, lömpum, ljósmyndavélum, hljóðfærum, svo að fáein dæmi séu nefnd, sem hreyfa ekki vísitölumælinn, svo að notað sé uppáhaldsorðalag formanns Framsfl. Úr og klukkur koma ekki inn í vísitöluna, en það snertir kjör hverrar einustu fjölskyldu í þessu landi, að tollur af úrum og klukkum var lækkaður úr 207% niður í 57%.
Annar tekjustofn ríkissjóðs er tekjuskatturinn. Á honum varð gerbreyting 1960, breyting, sem svo oft hefur verið rakin, að þess gerist ekki þörf nú. Á þessu þingi var skattalögunum aftur breytt í þá átt, að skattfrjálsar tekjur voru hækkaðar verulega. Sú breyting leiðir til þess, að tekjuskattur skilar væntanlega ríkissjóði í ár um 50 millj. minna en ef skattalögin frá 1960 hefðu gilt óbreytt, m.ö.o. léttir tekjuskattsbyrði landsmanna um 80 millj. í ár. Þegar stjórnarandstæðingar gagnrýna þessa tekjuskattsbreytingu, miða þeir alltaf við skattal, frá 1960 og telja þetta frv., sem nú var samþykkt, ekki eins hagstætt og skattal. frá 1960. En mér er spurn: Hvers vegna miða þeir alltaf við skattal. frá 1960 sem hina einu sönnu fyrirmynd, þótt þeir greiddu flestir atkv. á móti þeim? Hvers vegna bera þeir sig ekki saman við sína sæludaga frá 1958? En fyrst þeir eru svona tregir til að gera þennan samanburð, hef ég gjarnan viljað rétta þeim hjálparhönd. Ef skattalög vinstri stjórnarinnar giltu í dag óbreytt, m.a. með umreikningi sínum samkv. kaupgjaldsvísitölu, og reikna ætti nú út skatt af þeim tekjum, sem menn höfðu á síðasta ári, þá fáum við út þessi dæmi: Einhleypt fólk þyrfti að borga skatt strax af 20 þús. kr. tekjum, í stað þess að byrja nú fyrst þegar komið er yfir 65 þús., og hjón af 30 þús., í staðinn fyrir 31 þús. nú. 5 manna fjölskylda, þ.e. hjón með 3 börn, sem höfðu 130 þús. kr. tekjur í fyrra, mundu í ár greiða í tekjuskatt 7877 kr. samkv. l. frá 1958, en ekkert eftir nýju tekjuskattsl. Þessir útreikningar og þessi dæmi eru óhrekjandi staðreyndir. En þar sem stjórnarandstæðingar neita staðreyndum og hamra á því, að stjórnin sé að hækka beinu skattana, hef ég gert þeim tilboð á Alþingi. Ég stakk upp á því, að sett yrði í tekjuskattsfrv. ákvæði á þessa leið:
„Nú óskar skattþegn, að tekjuskattur hans sé á lagður samkv. þeim skattal., sem giltu 1958, og skal skattstjóri þá verða við þeim tilmælum.“
En af einhverjum ástæðum hafa stjórnarandstæðingar ekki þekkst þetta góða boð. Þriðji tekjustofn hins opinbera er söluskattur, sem í smásölu hefur verið 3% frá 1960 til 1. febr. í ár. Þá var bætt við 21/2 % söluskatti til þess að mæta í bili afleiðingum kauphækkananna í des., en tilheyrir ekki hinni almennu tekju- eða fjáröflun ríkissjóðs. Þessi 3% söluskattur hefur í 4 ár verið stjórnarandstæðingum kærkomið yrkisefni til skáldskapar um það, hvernig ríkisstj. helli neyzlusköttum yfir fólkið, skapi dýrtíð og magni hana. Við skulum aðeins staldra við og virða fyrir okkur þetta mál. Þessi 3% söluskattur vegur í vísitölunni 3.30 stig. En um leið og þessi söluskattur var á lagður, var afnuminn annar söluskattur frá tíð vinstri stjórnarinnar, sem var 9% skattur á iðnaðarvörum og þjónustu. Væri hann í gildi í dag, næmi hann í vísitölunni 3.58 stigum eða nokkru hærri upphæð en 3% söluskatturinn.
Eitt af mikilvægustu verkefnum í skatta-og fjármálum okkar nú er að bæta siðferðið í skattamálum, tryggja sem réttust framtöl og koma í veg fyrir undandrátt tekna og eigna undan skatti. Til þess að þetta megi takast, tel ég, að þrennt þurfi að fara saman. Í fyrsta lagi sanngjörn skattalög, sem eru í samræmi við réttarvitund fólksins. Í öðru lagi jafnvægi í efnahagsmálum, því að ofþensla og verðbólga eykur jafnan undandrátt og skattsvik. Og í þriðja lagi skattaeftirlit, sem framkvæmt er með festu og réttvísi án öfga og ofsókna. Að því miða nýmæli, sem lögfest voru á Alþingi fyrir fáum dögum.
Þegar stjórnarandstæðingar stagast á því, að fjárl. hafi í krónutölu þrefaldazt síðan 1958, eru slíkar staðhæfingar gersamlega út í bláinn og skortir allan rökrænan grundvöll. 1958 höfðu fjárl. verið klofin í tvennt, og var útflutningssjóður sér á báti með ekki minni fjárfúlgur en ríkissjóðurinn sjálfur. Og þjóðarframleiðslan hefur rúmlega tvöfaldazt á þessu tímabili, aukizt úr 5400 millj. kr. 1958 og í 13700 millj. árið 1963.
Að lokum þessar staðreyndir, sem fyrir liggja: 1) Tekjur hins opinbera á Íslandi eru lægri hundraðshluti af þjóðarframleiðslu en í nálægum löndum. 2) Allar opinberar álögur nú eru lægri hundraðshluti af þjóðarframleiðslu en árið 1958. 3) Tollstigar hafa lækkað í mörgum greinum verulega. 4) Tekjuskatturinn hefur stórlækkað. 5) Útsvarsstigar hafa lækkað, m.a. vegna þess, að sveitarfélögin hafa fengið nýja tekjustofna. 6) 3% söluskatturinn er lægri en annar eldri skattur, sem um leið var felldur úr gildi. 7) Aukin framleiðsla, aukinn útflutningur og innflutningur, aukin velta, auknar þjóðartekjur, bætt lífskjör hafa skilað miklu hærri fjárhæðum til opinberra þarfa en áður var.
Þökk þeim, er hlýddu. — Góða nótt.