12.05.1964
Sameinað þing: 77. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2066 í B-deild Alþingistíðinda. (1585)

Almennar stjórnmálaumræður

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Góðir Íslendingar. Skammt er síðan útvarpsumr. fóru fram á Alþingi um utanríkismál, og mun ég því vera fáorður um þau mikilvægu mál. Þó er rétt að minna á, að í umr. á dögunum var ríkisstj. beðin um að svara því, hvað gerzt hefði í samningunum við NATO um flotastöð í Hvalfirði. Þessari spurningu var ekki svarað, og engar upplýsingar fengust gefnar. Á þriðja degi þingsins á s.l. hausti lögðum við Alþb.- menn fram till. þess efnis, að enga samninga mætti gera um hernaðarframkvæmdir í Hvalfirði án samþykkís Alþingis. Þessi till. var raunar undirstrikun á skýrum fyrirmælum stjórnarskrárinnar, þar sem segir, að enga samninga megi gera um kvaðir á landi, nema samþykki Alþingis komi til. Báðir stjórnarandstöðuflokkarnir studdu þessa till. eindregið. Það er hins vegar til marks um lýðræðisleg vinnubrögð stjórnarfiokkanna, að núna við þingslit, 7 mánuðum síðar, hefur þessi till. ekki einu sinni verið afgreidd til nefndar.

Það er alkunna úr sögu hernámsins á Íslandi, að við nýja landvinninga Bandaríkjamanna hafa leikreglur lýðræðisins verið fótum troðnar, Alþingi hefur verið hunzað og stjórnarskrá lýðveldisins þverbrotin hvað eftir annað. Leynimakk ríkisstj. og furðuleg framkoma gagnvart Alþingi gefur þjóðinni fyllstu ástæðu til þess að vera vel á verði nú á næstunni, ekki sízt eftir að þrír hershöfðingjar NATO ásamt flotamálaráðh. Bandaríkjanna hafa verið hér í heimsókn með stuttu millibili á aðeins einum mánuði.

Síðan umr. um utanríkismál fóru fram, hefur sjónvarpsáskorun 60-menninganna verið borin upp í tillöguformi á Alþingi. En það er eins um þessa till. Stjórnarflokkarnir misbeita valdi sínu til að klaeða málið þögninni. 60 oddvitar þjóðarinnar í félags- og menningarmálum, studdir af hundruðum annarra, sem áður hafa látið skoðun sína í ljós, skora á Alþingi að íhuga, hvílík einokunaráhrif bandaríska sjónvarpið hefur í íslenzkri menningarhelgi. Svar ríkisstj. er hvorki fugl né fiskur. Hún snýr sér undan og neitar að láta ræða málið á Alþingi. Meiri forherðingu og dólgshátt gagnvart menntamönnum þjóðarinnar var varla unnt að sýna.

Lifi frjálst framtak, er boðskapur ríkisstj. Lifi verzlunarfrelsið. Efnahagsstefna ríkisstj. er mótuð af þeirri kenningu, að straumur fjármagnsins eigi að ráða sér sjálfur, gróðavon einstaklinga á að vísa veginn og lögmál peninganna að ráða því, í hvaða atvinnuvegi fjármagnið leitar, hvað er byggt upp og hvað fær að blómstra í þjóðfélaginu. Nú um árabil hefur tilraun verið gerð með þessa stefnu hins óhefta peningavalds í íslenzku efnahagslífi. En þessi stefna hefur beðið skipbrot. Stjórnleysi er ríkjandi og óðaverðbólga meiri en dæmi eru til áður. Lífskjör almennings hafa staðið í stað og rýrnað þó heldur þrátt fyrir einstakt góðæri til lands og sjávar og sjaldgæf aflabrögð. Ef ekki væri almennt mjög langur vinnutími hjá verkafólki, væri neyðarástand ríkjandi á fjölmörgum heimilum.

Stjórnarstefna peningagróðans getur aldrei blessazt á Íslandi. Það er fyrst og fremst samvinna, en ekki innbyrðis átök og samkeppni, sem hér á heima. Íslenzka þjóðfélagið er dvergvaxið í samanburði við önnur ríki, og hér gilda því ekki sömu lögmál. Allir verkamenn á Íslandi eru jafnmargir og hjá stærsta rafmagnsveri Svíþjóðar, ASEA, eða um 40 þús. Fyrirtæki stórþjóðanna steypa sér saman og mynda voldugar peningablakkir. Þess vegna er óhugsandi að berjast á heimsmörkuðum við máttuga auðhringi, nema við stöndum sameinaðir, svo fáir sem við erum, undir skipulagðri heildarstjórn þjóðarbúsins. Áætlunargerð og skipulega uppbyggingu atvinnuveganna er auðvelt að framkvæma, þó að haldið sé sama fyrirkomulagi og áður, með því að blanda saman einkarekstri, samvinnurekstri og ríkisrekstri. En þjóðfélagið verður að starfa eins og lífræn heild, en ekki eins og 10 þús. gerlar, sem éta hver annan í stjórnleysi græðginnar.

Helztu lærimeistarar og kennimenn stjórnarstefnunnar hafa hvað eftír annað á undanförnum árum boðað okkur Íslendingum þann nýja sannleik, að það borgi sig tæpast að halda uppi sjálfstæðu þjóðríki. Þeir segja, að stóru skipin sigli niður litlu kænurnar. Þess vegna vilja þeir, að íslenzkir auðmenn fái tækifæri til að tengjast erlendu fjármagni, og vænta þess jafnframt, að fyrr eða síðar verði Ísland innlimað í stærri heild, Efnahagsbandalag Evrópu. Slíkar kenningar eru í fyllsta samræmi við þá trú, að gróðinn sé eina hreyfiafl þjóðlífsins. Þessir kennimenn ríkisstj. gera sér það ljóst, að í svo örsmáu þjóðfélagi er það fásinna, að hver troði annan niður í innbyrðis efnahagssamkeppni. Þeir vilja því fórna sjálfstæði þjóðarinnar til þess að víkka út markaði og stækka verulega leikvöll fjármagnsins, svo að kostir skipulagsins, hagsýni, verkaskipting og fjöldaframleiðsla, fái notið sín til fulls. Þeir vita sem er, að Ísland er allt of lítill leikvangur fyrir fjármálaspil auðvaldsstefnunnar.

Andspænis þessum mönnum standa þeir Íslendingar, sem hafa ekki látið glepja sig af sjónarmiðum gróðahyggjunnar og vita því, að Ísland þarf engu að fórna af sjálfstæði sínu, ef við aðeins höfum vit og skynsemi til að starfa saman. Reynslan kennir okkur, að allt, sem við höfum bezt gert á þessari öld, hefur verið unnið með sameiginlegu átaki, hvort sem um var að ræða stórframkvæmdir eða félagslegar umbætur.

Um árabil hafa Alþb. og Sósfl. hamrað á nauðsyn þess, að gerð yrði áætlun um heildarstjórn þjóðarbúsins og skipulega eflingu atvinnuveganna. Þessi sjálfsagða krafa hefur mætt skilningi meðal almennings, en algeru skilningsleysi ráðamanna. Svo gerðist það allt í einu fyrir seinustu alþingiskosningar, að hæstv. ríkisstj. tók snöggan fjörkipp og tilkynnti, að nú hefði verið samin þjóðhags- og framkvæmdaáætlun fyrir næstu 3 árin. Bumbur voru barðar og hin nýju tíðindi boðuð með áfergju þess manns, sem skyndilega er skírður til nýrra trúarbragða. Nú skyldi upp tekin áætlunargerð, alhliða skipulagning. Þegar svo þessi mikla áætlun birtist í 76 síðna bók, kom í ljós, að þar voru aðeins örfáar framkvæmdir nefndar á nafn. Að vísu skorti ekki á hagfræðilegar vangaveltur, skýrslur og talnarunur í löngum bunum, og auðvitað var mikið rætt um hinn stórkostlega framkvæmdahug ríkisstj. En þegar að því kom að nefna, hvað gera skyldi, var spekin uppurin. En hér var þó kominn vísir að áætlun, þótt mjór væri, og margir urðu til þess að fagna þessum boðskap. Meðal þeirra voru Siglfirðingar og Austur-Skagfirðingar, því að í þessari nýju áætlun ríkisstj. var eitt hið fáa, sem nefnt var, að byggður skyldi traustur vetrarvegur og grafin jarðgöng um Stráka til Siglufjarðar. Framkvæmdir skyldu hefjast fljótlega og vegurinn vera fullbúinn til umferðar í ágústmánuði 1965.

Síðan þetta var, er eitt ár liðið. Hvað er nú að frétta af hinni merku framkvæmdaáætlun? Er hún ekki grundvöllur helztu framkvæmda í landinu? Er hún ekki beinagrindin í stjórnarstefnunni? Fáir munu kannast við það. Þessi áætlun virðist týnd með öllu og tröllum gefin. En hvað er þá um Strákaveg, óskadraum Siglfirðinga? Jú, það er af honum að frétta, að ríkisstj. hefur nú viðurkennt, að engin jarðgöng verði grafin um Stráka í bráð og enginn muni aka veginn til Siglufjarðar í ágústmánuði á næsta ári. Tæknilegur undirbúningur mun alls ekki vera fyrir hendi, og því miður veit enginn, hvar á að grafa gatið gegnum fjallið.

Í meira en áratug hafa Siglfirðingar beðið eftir veginum um Stráka. Á þessum 10 árum hefur aðeins einu sinni verið unnið af einhverjum krafti við þessa vegagerð. Þá var hamazt í nokkra mánuði og grafnir 30 m af 900 m löngum jarðgöngum. Og hvenær skyldi þetta hafa verið? Jú, það var um sumarið 1959, mánuðina fyrir haustkosningar það ár. Og þá var líka slíkur gangur í málunum, að enginn Siglfirðingur, sem gekk að kjörborðinu, gat leyft sér að efast um, að vegurinn yrði fullgerður á næsta kjörtímabili. En þegar búið var að kjósa, var einnig hætt að grafa og framkvæmdir lögðust niður.

Í 4 ár var ekki snert við jarðgöngunum og engar áætlanir uppi. Tíminn líður og loksins kemur aftur að kosningum. Þá er aftur rokið upp til handa og fóta, loforð eru gefin til hægri og vinstri, og þau eru meira að segja prentuð í sjálfa framkvæmdaáætlun ríkisstj. Og enn einu sinni er kosið. Svo er draumurinn búinn. Núna, tæpu ári eftir kosningar kemur loksins í ljós, að tæknilegur undirbúningur hefur verið byggður á sandi. Framkvæmdum er slegið á frest um óákveðinn tíma. Nú er Strákavegsmálið að því leyti skemmra á veg komið en var fyrir 4 árum, að þá vissu allir, hvar grafa skyldi gatið, en nú virðist enginn vita það lengur.

Það dæmi, sem ég hef nefnt, dæmið um Strákaveg, segir söguna alla. Framkvæmdaáætlun ríkisstj. gegndi mikilvægu hlutverki í beim mikla sjónleik sýndarmennskunnar, sem leikinn var fyrir kosningar á s.l. vori. En um leið og tjaldið var dregið fyrir, var áætlunargerðin fokin út í veður og vind. Flóðbylgja verðbólgunnar skall yfir þjóðina, og síðan hefur stjórnleysið verið það eina varanlega í íslenzkum efnahagsmálum.

En hvað sem segja má um gerviáætlun ríkisstj. frá fyrra ári, stendur hitt þó eftir óhaggað, að íslenzka þjóðin hefur enn þá knýjandi þörf fyrir skipulega eflingu atvinnuvega, framtíðaráætlun og fastmótaða heildarstjórn. Nú er atvinnuleysi og neyðarástand ríkjandi á vestanverðu Norðurlandi. Á öllu svæðinu vestan af Ströndum og norður í Siglufjörð er atvinnulíf lamað að meira eða minna leyti. Fólkið streymir unnvörpum á brott alfarið, og yfir vetrartímann verða menn í stórum hópum að leita sér vinnu fjarri heimilum sínum. Á stöðum eins og Skagaströnd og Hofsósi er meira en annar hver vinnufær heimilisfaðir mánuðum saman í öðrum landshlutum í atvinnuleit, og þeir, sem heima sitja og komast ekki á brott af ýmsum ástæðum, verða að þrauka við litla sem enga atvinnu. Einmitt þannig getur það verið, þegar engin heildarstjórn er á þjóðarbúskapnum. Á sama tíma og atvinnulíf stendur með blóma víðast hvar á landinu og einstakt góðæri ríkir með metafla ár frá ári, er heill landshluti að grotna niður í atvinnuleysi og eymd. Fólkið flýr burt frá verðmætum byggingum og atvinnutækjum, sem kostað hefur milljónir að reisa. Orsök þessa hörmulega ástands er auðvitað sú, að atvinnulíf í þessum landshluta hefur lengi mótazt af síldarvinnslu, enda var það til skamms tíma helzta síldveiðisvæði landsins. En nú hefur síldin brugðizt um árabil. Þar á ofan bætist hin almenna aflatregða fyrir Norðurlandi að undanförnu. Sveitarfélög og einstaklingar hafa ekki haft bolmagn til að standa gegn slíkum andbyr eða laga sig að nýjum aðstæðum, og atvinnulíf hefur lamazt.

Stjórnarstefna, sem einungis miðar gerðir sínar við frelsi fjármagnsins og gróðavon einstaklinga, er miskunnarlaus gagnvart vandamáli sem þessu. Engar sérstakar ráðstafanir eru gerðar, þótt heill landshluti sé að dragast aftur úr í atvinnumálum. Skipulagsleysi í fjárfestingarmálum er allsráðandi, og hér sunnanlands er hrúgað niður ýmsum iðngreinum, sem alveg eins mætti staðsetja á Norðurlandi. Eða hvers vegna er verið að setja hér upp sokkaframleiðslu, súkkulaði- og sælgætisverksmiðjur og alls kyns smáiðnað í landshluta, þar sem alls staðar skortir vinnuafl og útflutningsframleiðslan, fiskiðnaður og útvegur, hrópar á meiri vinnukraft? Það er auðvitað vegna þess, að engum áætlunum er fylgt og skipulagsleysið er aðalsmerki stjórnarstefnunnar.

Þegar gróðavon einstaklinga ræður allri fjárfestingu, er einungis hugsað um líðandi stund og aldrei horft fram í tímann. Það er vissulega ólíklegt, að núverandi kreppuástand á Norðurlandi vestra muni vara að eilífu. Síldarleysið er millibilsástand, sem varir ekki í allmörg ár. Síldin kemur og fer og kemur aftur, og eins er um annan fisk. Hið eina, sem enginn veit, er það, hve lengi menn þurfa að bíða. Eitthvert sumarið fyllist Skagafjörðurinn af síld og hin fræga Húnaflóasíld kemur aftur á miðin. Þá er spurningin sú: Verða þessi héruð enn í blóma, eða verður þá kannske allt í rúst, byggðin tæmd og byggingar grotnaðar niður? Verður þessi landshluti þá orðinn fórnarlamb skipulagsleysisins“ Ástandið á Norðurlandi vestra er dæmigert sýnishorn um stjórnleysið í fjárfestingarmálum. Aðeins með áætlunargerð og heildarstjórn fjárfestingar má gerbreyta til batnaðar þessu ástandi. Það þyrfti ekki fleiri en 10 lítil iðnfyrirtæki til að draga verulega úr atvinnuleysi á þessum stöðum og tryggja atvinnuástandið til frambúðar. Á hinn bóginn mættu Reykvíkingar gjarnan missa nokkur iðnfyrirtæki, svo að eitthvað losnaði um vinnuafl, sem fiskiðnaðurinn hrópar nú á.

En það er ekki aðeins vinnuafl, sem útgerðin hrópar á. Landbúnaður og útvegur stynja undan háum vöxtum og lánsfjárskorti, meðan því virðast engin takmörk sett, hvað verzlunarstéttin fær að sópa til sín af útlánum bankanna. Það er einn liðurinn í núverandi stjórnleysi, að verzlunin í landinu fær að tútna út og blómstra á kostnað framleiðslunnar og útflutningsatvinnuveganna. Á sama tíma er mest um það rætt í herbúðum stjórnarflokkanna, að nú þurfi að fækka bændum, og þessi mikla hugsjón er ekki aðeins í nösunum á þeim, heldur má nú hver maður sjá, að verið er að svæla hundruð smábænda af jörðum sínum. Bændur á Íslandi eru nokkuð yfir 5 þús. að tölu. Hins vegar eru kaupsýslumenn í landinu um 4500 og þar af eru 2500 í Reykjavík. Hvarflar það aldrei að hinum sprenglærðu hagfræðingum ríkisstj., að þessi furðulegi ofvöxtur í kaupsýslustéttinni sé nokkur hemill á hagvöxt þjóðarbúsins, eins og það er orðað um bændur? Ekki þarf mikla framsýni til að sjá, að einhvern tíma muni það þykja frumstæð vinnubrögð, að þúsundir manna sitja hver í sínu horni og dunda við að panta inn vörur frá útlöndum óskipulagt og án samráðs hver við annan.

Þjóðfélag, sem þolir ekki búskap smábænda, hefur það frekar efni á að eyða orku og hugviti nokkur þúsund manna í jafneinfaldan hlut og innflutning varnings frá útlöndum? Svari því hver sem vill. Eða hefur þjóðfélagið efni á að halda uppi þreföldu dreifingarkerfi á olíu og benzíni og greiða þremur auðfélögum milliliðagróða, þegar öll félögin þrjú selja sama benzínið á sama staðnum við sama verði?

Tími minn er á þrotum. Ég vil leggja á það áherzlu, að eitt brýnasta verkefnið í íslenzkum stjórnmálum í dag er að breyta stjórnarstefnunni og taka upp markvissa heildarstjórn þjóðarbúsins. Verkalýðshreyfingin hefur áður haft vit fyrir auðmannastétt landsins, þegar hún hafði forustu um tæknilega umbyltingu atvinnulífsins á nýsköpunarárunum. Nú er þörfin mest á skipulagningu atvinnulífsins. Alúminíumverksmiðja í höndum erlendra auðhringa mun aldrei verða íslenzku atvinnulífi til gæfu. Við þurfum iðnbyltingu í íslenzkum matvælaiðnaði og stórbætta markaðsleit, svo að annað eins hneyksli og með niðurlagningarverksmiðjuna á Siglufirði endurtaki sig ekki. Við þurfum skipulagða eflingu atvinnuveganna, gerða að óskum skynseminnar, en ekki að óskum blindrar gróðavonar. — Góða nótt.