14.12.1963
Sameinað þing: 27. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2108 í B-deild Alþingistíðinda. (1595)
Verkföll
Forsrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég tek undir það, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, að það er frumskylda aðila að reyna að leysa þessa deilu og leggja sig fram um það, jafnframt því sem ríkisvaldið að sjálfsögðu á að gera það, sem í þess valdi er, til þess að greiða fyrir happasælli lausn. Ég skal spara mér allar deilur og tel, að stóryrði og ásakanir verði engum til góðs. Ég verð þó að mótmæla því, sem hv. síðasti ræðumaður bar fram sem ásakanir á sáttasemjara um afskiptaleysi þeirra af málinu, frá því að upp úr slitnaði aðfaranótt s.l. þriðjudags. Ég minni á af því tilefni og raunar einnig því, sem hv. 1. þm. Austf. sagði, það, sem ótvíræðum stöfum stendur í 36. gr. l. um stéttarfélög og vinnudeilur, sem hljóða svo, með leyfi hæstv. forseta: „Nú hafa sáttaumleitanir sáttasemjara hætt án árangurs, og ber honum þá að hefja þær á ný, ef annar hvor aðili óskar þess eða hann telur það heppilegt. Þá ber honum ætíð að gera tilraun til sátta með aðilum innan tveggja vikna, frá því að hann hætti seinustu samningatilraunum sínum.“ Þarna kemur berlega fram, að til þess er ætlazt, að frumkvæðið sé fyrst og fremst hjá aðilunum, þeir láti til sín heyra um það, hvort þeir telji nú vænlegra til sátta en var, þegar upp úr slitnaði. Jafnframt er það svo á mati sáttasemjara, hvenær hann telur heppilegt að kveðja aðila til fundar, en það má aldrei dragast lengur en tvær vikur.
Nú er þessi mikli vandi fyrir höndum, að svo mikið ber á milli sem hv, síðasti ræðumaður lýsti. Hann gat þess, að annars vegar eru kröfur verkalýðs um 37% almenna og allsherjarkauphækkun, en hins vegar boð um 10% kauphækkun og þó eingöngu á dagvinnu. Þarna er gífurlegur munur á milli, og sáttasemjara er vissulega mikill vandi á höndum, meðan munurinn er jafnmikill og þessi. Ég vil minna á það, að ég efast um, að nokkurn tíma hafi verið staðið á jafnmikilli kauphækkunarkröfu í einu eins og þessum 37%, sem þarna eru fram bornar kröfur um. (Gripið fram í: Víst ekki 37%, ráðh.) Nú, hv. þm. sagði það. (Gripið fram í: 37 krónur.) Hv. þm. sagði úr 43 niður í 37%. Það voru hans tölur. (Gripið fram í.) Ja, ég vitna í hans tölur, og hver er þá sú raunverulega tala, ég spyr? (Gripið fram í: Það er úr 40 kr., komið niður í 37 kr.) Já, en hver er prósentutalan? (Gripið fram í: 32.2). Já, 32.2. Ég hafði nú ætlað það, en ég hélt, að hv. þm. vissi þetta manna bezt, en það reyndist nú ekki svo vel, og bið ég hann afsökunar á því. En látum það vera. Engu að síður er þarna um gífurlega mikinn mun að ræða, rúm 32% á öllu kaupi og 10% á nokkrum hluta kaups, eins og hv. þm. segir. En til viðbótar þessari miklu hækkun, sem krafist er allt í einu, þá er orðin á þessu ári 13% allsherjar kauphækkun. Og kemur nú nokkrum manni til hugar, að þjóðfélagið standist svo mikla breytingu í einu vetfangi? Kemur nokkrum manni til hugar, að svo mikil og almenn kauphækkun geti orðið án áhrifa á kaup opinberra starfsmanna samkv. lögunum í fyrra um samningsrétt og kjör? Getur nokkrum komið til hugar, að þetta verði án áhrifa á landbúnaðarvöruverð? Kemur nokkrum til hugar, að þetta geti orðið án áhrifa á kaup farmanna, togarasjómanna og hlutarsjómanna? Ég hygg, að það sé öllum ljóst, að ef samið yrði um eitthvað svipaðar kröfur, mundi það valda allsherjar umskiptum í okkar landi. Við getum deilt um það, hvort þau yrðu til góðs eða ills, en við getum ekki deilt um hitt, að hér er um svo gífurlega breytingu á einu ári að ræða, að það þarf vissulega mikla umhugsun og margfaldar ráðstafanir, til þess að þjóðarskútan haldist á réttum kili eftir alla þá breytingu.
Og ég spyr: Hvernig á sáttasemjari, þegar menn ætlast til sáttatill. af honum, að bera fram raunhæfa sáttatill., meðan munurinn er jafnmikill á milli aðila og hann er samkv. þessum upplýsingum hv. þm.? Það verður ekki með neinu móti umflúið, það er sú staðreynd, sem allir verða að gera sér ljóst, að meðan munurinn á milli aðila er jafnmikill og nú hefur fram komið, er málið óleysanlegt.
Hv. 5. þm. Austf. sagði, að vandinn væri ekki annar en sá, að við ættum í ríkisstj. að gera nógu vel við útflutningsframleiðendur, til þess að þeir gætu boðið meira fram af sinni hálfu og raunar var hv. samþm. hans, 1. þm. Austf., nokkuð svipaðrar skoðunar. En dettur nú nokkrum þm. eða yfirleitt nokkrum Íslendingi það í hug, að ríkisstj. geti látið það í hendur atvinnurekenda, að þeir geti frjálst og upp á reikning ríkissjóðs eða ráðstafana, sem Alþingi ætli að gera, farið jafnhátt og þarf til þess að ná þeim kröfum, sem hv. 5. þm. Vestf. lýsti? Ef aðilar semja um þetta sín á milli, fær ríkisstj. ekki við því gert, Alþingi ekki við því gert, nema með lögum, sem beinlínis hefti eða ómerki slíka samningsgerð. Hitt má segja, að ef aðilar gera slíkan samning sín á milli eða eitthvað svipaðan, sé það augljóst, að ríkisvaldið, ríkisstj. og Alþingi, verði að grípa til ráðstafana til þess að forða algerri neyð og upplausn í þjóðfélaginu.
Þetta mál verður ekki nálgazt — og það skulum við hafa hugfast án slíkra ásakana eða gífuryrða í hvors annars garð — með öðrum hætti en þeim, að aðilar komi sér saman um einhvern samningsgrundvöll, að þeir færi svo saman hugi sína og hugmyndir, að það sé einhver möguleiki, raunhæfur möguleiki, til þess að brúa það bil, sem þar stendur á milli.
Ég hygg, að það hafi verið hv. 5. þm. Austf., sem sagði, að atvinnurekendur — og átti þar einkanlega við útflutningsframleiðendur —hefðu af því ríka hagsmuni að hækka kaup til þess að verða samkeppnisfærir. Þetta mál stendur þannig, að atvinnurekendur annars vegar og verkamenn hins vegar verða að knýjast til raunhæfra umr. Látum vera, að tilboð atvinnurekenda sé nú of lágt, alveg eins og tekið var fram af ríkisstj., þegar hún bar fram sitt tilboð, að þar var ekki um neina úralitakosti að ræða af hennar hálfu, endanlegar tölur, heldur einungis samningsgrundvöll, eins og ég veit að hv, þm. staðfestir. Alveg á sama hátt og eðlilegt er, að atvinnurekendur meti það, hvað þeir í raun og veru telji, miðað við ástand þjóðfélagsins í heild, möguleika til frambúðarrekstrar og samkeppni við aðrar atvinnugreinar og hvað þeir telji sig þurfa að fara hátt, til þess að líklegt sé, að samningum verði náð, eins verða verkalýðsfélögin að komast niður á eitthvað, sem menn í alvöru fást til þess að tala um, eitthvað, sem er framkvæmanlegt, eitthvað, sem er líklegt að geti orðið, án þess að alger upplausn komi í þetta þjóðfélag.
Hv. 5. þm. Vestf. segir: Verkalýðurinn getur ekki óskað eftir framhaldsviðræðum, vegna þess að þá verður hann spurður að því, hvað hann hafi nýtt fram að færa. — Verkalýðurinn hefur vissulega hagsmuni af því að leysa þessa deilu og að einskis sé látið ófreistað til, að hún verði leyst, alveg á sama veg og atvinnurekendur hafa það af sinni hálfu. Og þess vegna er það, eins og hv. 5. þm. Vestf. sagði, frumskylda þessara aðila fyrst og fremst að koma sér niður á raunhæfan umræðugrundvöll, og fyrr en það verður gert, eru allar frekari till. ríkisstj. sannast sagt gersamlega út í bláinn, það verður að segja alveg eins og er, alveg eins og sáttasemjari hefur, meðan munurinn er jafnmikill og hann er nú, ákaflega óhæga aðstöðu um að bera fram sáttatill. En það er ekki á mínu valdi eða ríkisstj. að meta, hvenær hann gerir það, það er vitanlega hans sjálfs. En hitt sjá allir, að meðan munurinn er jafngífurlegur og hann er, og aðilar jafnfjarri því að fást til þess að tala um eitthvað, sem raunverulega geti leyst þennan vanda, talað er í austur og vestur, þá eiga sér ekki stað alvarlegar samningsviðræður, og það er engum aðila til skammar, hvorki verkalýðshreyfingunni né atvinnurekendum, að eiga þátt í því, að komizt sé úr þeirri sjálfheldu.
Ríkisstj. bar fram sínar till. Við skulum láta vera, hvort þær þykja ófullnægjandi eða ekki. En þær voru byggðar á ákveðinni ráðagerð, ef svo má segja, um það, hvernig hlutur hinna verst settu yrði í raun og veru bættur.
Ég skal ekki heldur fara út í það nú að deila um einstakar prósenttölur í þeim útreikningi, sem hv. 5. þm. Vestf. var með hér áðan, og hef ég þó um það nokkuð aðrar hugmyndir en hann. Á hitt verður að líta, að nú væri í fyrsta skipti samkv. þessum till. tryggt, að hinir verst launuðu yrðu ekki verr settir eftir hringferðina heldur en áður. Það væri tryggt, að jafnvel þó að tekið sé tillit til þeirra verðhækkana, sem menn nú sjá fyrir, og þar með hækkunar vísitölu vegna hækkaðra skatta, sem leiðir aftur af hækkuðum tekjum á þessu ári, halda hinir verst launuðu raunverulega nokkru eftir í sinn hlut. Látum vera, hvort það er mikið eða lítið. Látum vera, hvort hægt er að bæta það eitthvað frá því, sem verið hefur. En það er þó a.m.k. gerbreyting frá hinu, sem verið hefur undanfarin ár, að eftir hringferðina, eftir gífurlegar hækkanir verða hinir lægst launuðu ekki aðeins hlutfallslega verr settir en aðrir, heldur raunverulega verr settir en þeir voru áður. Á þessum grundvelli verður að byggja að mínu viti, ef á að ná þessu markmiði. Þess vegna verða menn að gera það upp við sig: Vilja menn á framkvæmanlegan hátt taka þátt í tilraun um það að bæta kjör hinna verst settu, gera stefnubreytingu frá hringavitleysu undanfarinna áratuga og gera nú raunhæfa ráðstöfun, til þess að hinir verst settu fái ekki aðeins uppbættar allar hækkanir, sem verða, heldur einnig nokkra raunhæfa kjarabót? Það hlýtur svo að verða til nánari umr., ef menn fást inn á þessa hugsun, hversu mikil sú kjarabót geti orðið. Og vissulega vildi ég leggja mitt af mörkum til þess, að hún gæti orðið ríflegri en eftir till. ríkisstj., án þess að ég þar með játi réttmæti þess útreiknings, sem hv. 5. þm. Vestf. hér gerði. Og ég vil minna á það, að auðvitað tjáir ekki í öðru orðinu að tala um kjör hinna verst settu og miða þá annaðhvort við 67 þús. kr. tekjur eða 80 þús. kr. tekjur og fussa og sveia á till., sem miða að því að bæta kjör a.m.k. fjölskyldufólks, sem við þetta á að búa, og segja: Nei, það eru alls ekki þessar tölur, sem um er að ræða, heldur eru hinar raunverulegu tekjur fólksins kringum 100 þús. kr. — Þá yfirgefa menn sjálfir sínar eigin forsendur, þá hverfa þeir frá þeim vettvangi, sem þeir sjálfir hafa markað sér í umr. og kröfugerð. Hitt er svo allt annað mál, sem ég skal játa fúslega, ég hef játað í umr. hér áður og raunar fyrr tekið undir og sett fram, að kjör þessara manna, sem hafa kringum 100 þús. kr., — og vissulega væri gott að geta bætt þau, ég játa það, — en sú mesta kjarabót, sem það fólk getur fengið, er, að það fái þessar tekjur fyrir skaplegan vinnutíma. Það er mesta kjarabótin handa því, og það er annað verkefni, sem því miður verður ekki leyst að þessu sinni með bindandi ákvörðunum eða sundurliðuðum samningum. Til þess er að mál enn, því miður, of lítið athugað. En sannarlega er það eitt af hinum viðurhluta og þýðingarmestu verkefnum á næstu árum. Og ef tekizt hefði nú að ná allsherjarsamningum og samkomulagi um vinnufrið í tvö ár, hefði það verið tími, sem umfram allt átti að nota, og ég segi ekki, að það hefði þurft að nota allan þann tíma til þess, en umfram allt átti að nota hann til þess að koma þessu mikla kjarabótamáli áleiðis. En ég veit, að hv. 5. þm. Vestf. játar það með mér, að enn er það mál komið of skammt í undirbúningi, til þess að það verði leyst í einu vetfangi, enda aðstaða hinna ýmsu atvinnugreina í þeim efnum harla ólík og þess vegna engin ein allsherjarregla, sem þar á við. Einnig er nauðsynlegt, áður en slíkar reglur yrðu upp teknar, að fyrir hendi sé meiri raunhæf þekking hjá fleiri aðilum á vinnuhagræðingu og skynsamlegum vinnubrögðum, eins og annars staðar tíðkast, heldur en við búum yfir hér.
Það tjáir ekki, eins og hv. þm. of oft gera og of oft er haft á orði í umr. um þessi mál, að tala um hverja einstaka kauphækkun, hvort heldur hjá hinum lægst launuðu eða almennt, sem grundvöll, er miða eigi við og þeir geti búizt við að halda algerlega óskertri án þess að taka tillit til hins raunverulega ástands í þjóðfélaginu. Við vitum það öll, og það nægir að nefna bara eitt dæmi, að landbúnaðarvöruverðið er háð hinu almenna kaupgjaldi og hin almenna kaupgjaldshækkun hlýtur þess vegna að leiða til hækkunar á landbúnaðarvöruverði. Við vitum einnig, að verulegur hluti hinnar innlendu framleiðslu mundi ekki geta staðizt, nema því aðeins, hvað sem álagningunni líður, að a.m.k. sjálft hið hækkaða kaupgjald sé tekið inn í útsöluverðið. Þessir og aðrir fleiri liðir eru því þess eðlis, að áður en menn gera kröfu um hækkað kaupgjald, verða þeir að gera sér grein fyrir, hverjar eru hinar óhjákvæmilegu afleiðingar þessarar kaupgjaldskröfu. Ef það er ekki gert, fást þeir ekki til þess að líta raunsætt á og meta réttilega, hvað þeir í raun og sannleika hafa fengið.
Það er rétt, að fyrri kaupgjaldshækkanir á þessu ári eru nú að verulegu leyti eða öllu uppétnar. En vilja menn halda áfram þeirri sömu aðferð, eða fást menn til að komast inn á einhvern þann grundvöll, sem tryggi, að þannig verði ekki farið að? Þar stoðar ekki verðtrygging ein, eins og hv. 5. þm. Vestf. talar um, vegna þess að við vitum það öll, — þekkjum það frá vísitölukerfinu áður fyrr, — að ef vísitalan hækkar umfram visst magn, leiðir það til allsherjar ráðstafana, sem bitna á öllum landslýð, einnig hinum lægst launuðu. Það stendur alveg á sama, hvaða menn hafa verið hér við stjórn og eftir hvaða stjórnarstefnu hefur verið farið á hverjum tíma, þetta hefur ætíð verið reynslan, allt frá því að launamálin urðu jafnþýðingarmikið atriði í okkar þjóðarbúskap og þau hafa verið, þ.e.a.s. eftir að þjóðfélagið komst í nútímahorf. Þessi saga hefur endurtekið sig æ ofan í æ. Fram hjá þessu getum við ekki komizt.
Ríkisstjórnin leitaði leiðar til þess að veita hinum lægst launuðu raunhæfa kjarabót, fyrst og fremst að tryggja það, að þeir yrðu ekki verr settir eftir þær hækkanir, sem nú eru fyrirsjáanlegar og mundi leiða af þeim hækkunum, sem nú yrðu á kaupgjaldi, og áður en menn fordæma þessar tillögur og gera lítið úr þeim, er rétt fyrir þá að reikna sjálfir út dæmið, hvernig færi og fer, ef önnur aðferð er höfð, ef menn vilja ekki í raun og veru taka hina lægst launuðu út úr og tryggja sérstaklega þeirra kjör. Og þá vil ég skjóta því inn í, að tölusamanburður hv. 5 þm. Vestf. var einnig rangur, vegna þess að ýmsir hinna lægst launuðu mundu ekki einungis hafa notið þeirrar hækkunar og þeirra hlunninda, sem till. ríkisstj, gerðu ráð fyrir, heldur einnig hlunninda launajafnaðarlaganna, sem um næstu áramót hefðu fært samkv. þessari ráðagerð öllum þorra vinnandi kvenfólks í landinu, sem vinnur utan heimilis síns, a.m.k. kringum 5% hækkun til viðbótar þeirri hækkun, sem felst í till. ríkisstj. Og það fólk hefði eftir þessari ráðagerð haldið þeirri hækkun, fengið tryggingu fyrir henni, og það er vissulega verulegur hluti allra launþega í landinu, sem af þessu hefði notið góðs.
Ef menn hins vegar vilja ekki fallast á þann greinarmun, sem ríkisstj. gerði á hinum raunverulega lægst launuðu og öðrum, eru menn komnir inn á almennar kauphækkanir, og ef þær almennu kauphækkanir verða verulegar, er það óumdeilanlegt, að þær hafa ekki einungis áhrif á landbúnaðarvöruverðið, þær hafa einnig áhrif á kaupgjald opinberra starfsmanna. Og hver trúir því þá, að sjómennirnir mundu vilja láta sig vera afskipta? Hv. 5. þm. Reykv. taldi, að ekki hefði mátt gera mun á almennum verkamönnum og iðnaðarmönnum. Við viðurkenndum það, að eðlilegt væri, að iðnaðarmenn fengju nokkra hækkun, en við töldum eðlilegt, að hún yrði minni en til annarra, m.a. vegna þess, að á síðustu árum hefur yfirleitt, þrátt fyrir nokkrar undantekningar, minnkað munur hér á landi á launum iðnlærðra manna og almennra verkamanna. Það er rétt, að áður fyrr var á þessu meiri munur, en þróun síðustu ára og jafnvel meira en áratugs hefur gengið í þá átt að draga úr þessum mun. Hann var svo aukinn aftur með samningum ekki alls fyrir löngu. En það er vissulega, eftir að menn sjá, hver afleiðing hringferðarinnar verður, að hinir verst launuðu verða ætíð hlutfallslega verst úti og fá ekki raunverulega bætur á sínum kjörum, þá verður að leita leiða til þess að leiðrétta þennan mun. Það kann að vera, að dregið hafi úr þessum mun á milli þessara manna á undanförnum árum, vegna þess að þá var fyrir ýmsar opinberar aðgerðir verið að reyna að jafna metin. Nú var búið að ójafna þau aftur. En hitt er alger sjálfsblekking, ef menn halda, að það sé raunverulega hægt að bæta kjör hinna verr settu, án þess að það kosti einhverja eitthvað. Það verður að koma niður á öðrum. Og vegna þess að við viðurkennum, að það sé nauðsynlegt að bæta kjör hinna verr stæðu, höfum við verið þeirrar skoðunar, að eðlilegt og óhjákvæmilegt væri að greiða nokkuð fyrir, a.m.k. hraðfrystiiðnaðinum. Hitt getur ekki komið til greina, að honum sé af hálfu ríkisvaldsins selt sjálfdæmi í þessum efnum. Úr því að sú till., sem ríkisstj. bar fram, nægir ekki, er eðlilegt, að ríkisstj. ætlist til þess af aðilum, að nú reyni þeir raunverulega og í alvöru að koma sér saman og komi síðan í sameiningu til ríkisstj, og segi: Nú ber okkur þetta á milli. Vilt þú hjálpa okkur til að brúa bilið? Hvaða ráðstafanir getur þú gert til þess að firra okkur vandræðum af áframhaldandi verkfalli? — Ég hygg, að þessi hugsun mín sé alls ekki fjarri hv. 5. þm. Vestf., og byggi það nokkuð bæði á því, sem hann sagði hér áðan, og eins samtölum, sem ég hef átt við hann.
En áður en menn semja um svo og svo miklar hækkanir á almennu kaupi í landinu, hvílir á þeim skylda, báðum aðilum, að gera sér grein fyrir afleiðingum þeirra samninga. Hverjar eru hinar óhjákvæmilegu hækkanir, sem hljóta að fylgja í kjölfar þeirra kauphækkana, sem gerðar eru? Hvað þarf m.a. aðstoðin til hraðfrystihúsanna að verða mikil? Hvaða áhrif hefur hækkunin á hugsanlega verðtryggingu, þannig að hún leiði ekki til sjálfkrafa skrúfugangs, sem leiði okkur, áður en varir, út í hreinar neyðarráðstafanir? Hvaða áhrif hafa almennar hækkanir á ráðagerðirnar um að hjálpa hinum verst launuðu með breytingum á útsvarslögunum? Það er alveg ljóst, að ráðagerðir slíkar sem breyting á útsvarslögum hljóta að verða mjög háðar þeirri lausn, sem fæst á þessari deilu, þegar af því, að kaupgjald almennt í landinu breytist, skattstigarnir hljóta að miðast við þær tölur, sem menn verða að reikna með, og kröfur sveitarfélaganna verða allar aðrar og hærri vegna hins hækkaða kaupgjalds. Þess vegna getur verið unnt að bjóða fram breytingu á útsvarsstigum miðað við ákveðnar forsendur, en hana sé ekki hægt að gera, ef forsendurnar verða allar aðrar.
Hv. 5. þm. Vestf. sagðist vilja skilja orð mín svo, að það væri að vænta nýrra till. ríkisstj., og brýndi okkur á nauðsyn frumkvæðis í málinu. Vissulega mun ekki standa á frumkvæði okkar og aðgerðum, ef sýnt er, að aðilar eru komnir að samningaborði til þess að semja, en enn er eina hreyfingin, sem á þetta mál hefur komizt, fyrir frumkvæði ríkisstj. Hennar till. hefur verið hafnað, og það er eðlilegt og óhjákvæmilegt, að nú komi þeir aðilar, sem ekki telja sér fært að vinna á þessum grundvelli, með till. sínar um það, hvernig þeir raunverulega vilji leysa málið, því að auðvitað vitum við það öll og þurfum ekki að eyða orðum að því, að meðan jafnmikið ber á milli og enn er, er aðilum ekki alvara um það að reyna að leita samninga. Fyrst verða þeir að gegna sinni frumskyldu.