16.01.1964
Sameinað þing: 34. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2123 í B-deild Alþingistíðinda. (1602)

Alþingishús og ráðhús

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að fara að ræða það hér, hvort þeir, sem málum ráða í Reykjavíkurborg, gera rétt eða ekki í því að ákveða ráðhúsi borgarinnar þann stað, sem till. eru uppi um nú og væntanlega verður tekin ákvörðun um í borgarstjórninni í dag, eftir því sem mér hefur skilizt. En málið horfir þannig við, eins og sakir standa, að horfur eru á því, að yfirvöld höfuðborgarinnar ákveði að reisa á þessum stað, við norðurenda Tjarnarinnar, það hús, sem verða mun, ef svo mætti segja, miðdepill þessarar borgar. Það mun, eins og hv. síðasti ræðumaður vék að, setja svip sinn á hinn gamla miðbæ ásamt þeim byggingum, sem væntanlega verða síðar reistar í samræmi við þetta mikla hús.

Það er að sjálfsögðu rétt, sem hv. 3. þm. Reykv. sagði, að ef slíkt hús verður reist á þessum stað og með þeim svip, sem á því er ráðgerður, þá mun mega telja, að alþingishúsíð eigi ekki heima á þeim stað, sem það nú er, a.m.k. ekki til langrar frambúðar. Því vil ég nú vekja athygli á því og beina því til þeirrar hv. n., sem að þinghúsmálum er starfandi hér á Alþingt, hvort nú sé ekki tímabært í sambandi við alþingishús að taka upp á ný hina gömlu hugmynd Fjölnismanna, sem við öll þekkjum, en þeir lögðu til og ýmsir menn aðrir ágætir í landi unt það leyti, sem Alþingi var endurreist, á öndverðri 19. öld, að því yrði fenginn hinn forni þingstaður á Þingvöllum við Öxará. Ég vil beina því til þessarar hv. n., að hún taki til athugunar, hvort af hálfu Alþingis og þjóðarinnar eigi ekki að stefna að því, þó að það verði e.t.v. ekki í bráð, að alþingishús verði reist á Þingvöllum við Öxará, því að það er svo, að þó að það kynni að verða ekki alveg á næstunni, sem ráðizt yrði í slíka framkvæmd, þá ber nauðsyn til þess að hafa það í huga, hvort stefnan er sú eða ekki, að Alþingi verði á Þingvöllum í framtíðinni.

Ég vil leyfa mér að minna á það, að fyrir 30–40 árum voru uppi hér á hinu háa Alþingi í sambandi við Alþingishátíðina, sem þá stóð fyrir dyrum, till. í þessa átt. Þá voru uppi till. um það, ef ég man rétt, að láta fara fram þjóðaratkvgr. um þingstaðinn, að þjóðinni yrði gefinn kostur á því að láta í ljós vilja sinn um það, hvort hún vildi ákveða Alþingi stað á Þingvöllum. Það kom fram í umr. um það mál á þeim tíma, að menn töldu, að í rauninni hefði þjóðin aldrei fengið aðstöðu til þess að segja álit sitt um þetta mál, en málið væri þess eðlis, að það væri eðlilegt, að um það kæmi fram þjóðarvilji sérstaklega. Ég ætla, að till. þess efnis hafi komið fram þrisvar sinnum á Alþingi fyrir og um 1930, og á þeim tíma, þegar atkvgr. fór fram um það mál, var að vísu ekki meiri hl., en þó mikill hluti þm. því fylgjandi, að slík þjóðaratkvgr. yrði látin fara fram, og í hópi þeirra ýmsir hinna mætustu manna, sem sumir eru nú fallnir frá, en aðrir enn vel uppistandandi og sumir í hinum þýðingarmestu störfum hér í þessu þjóðfélagi. Eftir Alþingishátíðina féll þetta mál niður, en vel má vera, að ef því hefði verið haldið áfram, hefði meiri hl. fengizt fyrir þessari atkvgr. Ég held, að það væri þess vert fyrir hv. þm. að kynna sér þær umr., sem fram fóru á sínum tíma um þessar till., því að þær eru sannarlega mjög svo athyglisverðar. En það var þetta, sem var erindi mitt hér upp í ræðustólinn í framhaldi af því, sem hv. 3. þm. Reykv. sagði hér, að beina því til n., að hún athugi þinghúsið frá þessu sjónarmiði einnig.

Þegar Jón Sigurðsson á sínum tíma gerðist því fylgjandi, að aðsetur Alþingis yrði í Reykjavík, var það sérstaklega ein röksemd, sem hann færði fram fyrir því máli. Aðalrök hans voru þau, að Íslendingum væri, eins og þá stóð á, — sjálfstæðisbaráttan var þá að hefjast, þess mikil þörf að eignast höfuðstað. Reykjavík taldi hann fyrir margra hluta sakir auðveldast að efla til slíks höfuðstaðar, þótt hún væri fámenn þá. Íbúar hennar munu þá hafa verið innan við 1000. En hann hélt því fram jafnframt, að eitt af því, sem mest áhrif mundi hafa í þá átt að efla Reykjavík sem höfuðstað, væri að setja þingstaðinn þar og koma þar upp fleiri þjóðarstofnunum. Jón Sigurðsson hefur reynzt sannspár í þessu sem mörgu öðru. Það, að Alþingi var ákveðinn staður í Reykjavík og mörgum öðrum þjóðarstofnunum, sem þar hefur verið komið upp einnig, hefur átt sinn mikla þátt í vexti höfuðborgarinnar.

Nú er Reykjavík orðin borg, og má segja, að henni sé ekki lengur sama þörf á því að hafa Alþingi hér eins og í þann tíð, er Jón Sigurðson lagði til, að hún yrði efld á þennan hátt, og styður það enn þá athugun þessa máls, sem ég er hér að minnast á.