16.01.1964
Sameinað þing: 34. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2136 í B-deild Alþingistíðinda. (1607)
Alþingishús og ráðhús
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. E.t.v. hafa menn fengið þá mynd af því máli, sem hér hefur verið rætt, að Alþingi og Reykjavíkurborg standi sem andstæðingar hvort andspænis öðru. A.m.k. hefur mátt skilja ummæli sumra hv. þm. svo, sem hér væri verið að tefla saman þessum tveimur aðilum. Þetta tel ég fullkominn misskilning og vil leiðrétta, því að bæði er það svo og á að vera svo, að Alþingi og stjórn höfuðborgarinnar séu samherjar í þessum vandamálum, sem hér er um rætt, og eigi að vinna saman og leggja hvort öðru lið, Það hefur verið gefið í skyn hér og raunar annars staðar einnig, að Reykjavíkurborg hafi gengið á rétt Alþingis með því að velja ráðhúsinu stað við norðurenda Tjarnarinnar. Hér hefur saga þess máls að nokkru verið rakin, en ég vil þó aðeins bæta þar örlitlu við.
Það hefur verið rætt í bæjarstjórn Reykjavíkur öðru hverju áratugum saman, hvar velja skyldi ráðhúsi Reykjavíkur stað, og eftir að leitað hafði verið álits margra aðila og m.a. fulltrúa ríkisvaldsins í skipulagsmálum, skipulagsnefndar ríkisins, varð það að lokum einróma ákvörðun bæjarstjórnar Reykjavíkur í árslok 1955, að ráðhúsið skyldi byggt við Vonarstræti sunnanvert. Ég vil taka það skýrt fram, að áður en sú ákvörðun var gerð, lá fyrir einnig einróma álit skipulagsnefndar ríkisins um, að þetta væri heppilegasti staðurinn, og meðmæli með honum. Hér var því ekki eingöngu um að ræða einhliða ákvörðun bæjarstjórnar Reykjavíkur, heldur einnig einróma meðmæli þess fulltrúa ríkisvaldsins, sem til þess er settur að ákveða um skipulag í Reykjavík eins og í öðrum kaupstöðum og kauptúnum.
Um leið og þessi ákvörðun var tekin fyrir rúmum 8 árum, ræddi bæjarstjórn Reykjavíkur og skipulagsnefndin einnig um það, hvernig væri hentugast að leysa framtíðarhúsnæðismál Alþingis og hvaða staðir kæmu þar helzt til greina. Þegar málið var rætt í bæjarráði Reykjavíkur, var það einnig einróma afstaða þar að bjóða Alþingi Íslendinga lóðina, sem kölluð er venjulega Ísbjarnarlóðin, þ.e.a.s. þríhyrninginn, sem markast af Tjarnargötu, Skothúsvegi og Tjörninni sjálfri. Ég held, að það sé flestra dómur, að það sé eitt hið fegursta byggingarstæði hér. Á sínum tíma var það einn af þeim stöðum, sem mjög komu til greina, að ráðhús yrði reist á. Og ástæðurnar til þess, að ráðhúsinu var fremur valinn staður við Vonarstræti heldur en á Ísbjarnarlóðinni, voru ýmsar, en einkum var það sú ástæða, að ráðhús dregur óhjákvæmilega að sér mikla umferð, bæði bifreiða og gangandi fólks, og m.a. vegna þess þótti ráðhúsinu af umferðar- og skipulagsástæðum miklu betur komið hér við Vonarstræti heldur en suður á Ísbjarnarlóðinni. Reykjavíkurborg hefur aldrei orðið þess vör, að það væri að óvilja Alþingis Íslendinga, að ráðhúsið yrði byggt við Vonarstræti. Á sínum tíma fóru fram viðræður milli fulltrúa borgarinnar og nefndar, sem fjallaði um byggingarmál Alþingis og þingmannabústaðar af þingsins hálfu. Á árunum 1955–1956 fóru fram slíkar viðræður, og minnist ég þess, að ég átti nokkra fundi með þeirri nefnd, en formaður hennar var þá Gísli Jónsson, fyrrv. alþm. Frá þeirri nefnd komu aldrei nein andmæli gegn því, að ráðhúsinu yrði valinn þessi staður, og var það mál rætt ýtarlega. 8 ár rúm eru liðin síðan þessi ákvörðun var tekin í borgarstjórn, og Alþingi og alþingismönnum hefur verið það kunnugt síðan. Alþingi hefur enga ályktun gert, engin nefnd frá Alþingi, ekki forsetar Alþingis, um það, að Alþingi teldi á nokkurn hátt á sinn rétt eða hagsmuni gengið með þessari fyrirætlun. Og mér er ekki kunnugt um, að nokkurn tíma hafi komið einu sinni fram á Alþingi till. til þál. eða lagafrv. um að koma í veg fyrir þessar fyrirætlanir. Ég held, að því sé óhætt að slá föstu, að hér hefur ekki verið um að ræða neins konar ágreining milli Alþingis og bæjarstjórnar eða borgarstjórnar Reykjavíkur. Og þegar bæjarstjórnin gerði sína ályktun og hefur síðan látið vinna teikningar og allan undirbúning að ráðhúsinu, hefur bæjarstjórnin verið fullkomlega í góðri trú um, að þessar ráðstafanir og fyrirætlanir væru á engan hátt gegn vilja Alþingis.
Þegar rætt er um stað fyrir frambúðarhúsnæði Alþingis, kemur auðvitað margt til greina, og ég vil fyrst undirstrika það mjög eindregið, að þess er orðin órýn nauðsyn að búa Alþingi betri húsnæðisskilyrði en nú eru, og þarf ég þar litlu við að bæta það, sem hér hefur fram komið. Starfsskilyrði Alþingis í núverandi húsakynnum eru gersamlega óviðunandi. Og það er í rauninni næsta furðulegt, hversu lengi Alþingi og alþm. hafa getað við þetta unað án þess að taka ákvarðanir um umbætur. Það er auðvitað erfitt að gera sér ljósa grein fyrir
því, hvernig á þessu stendur. E.t.v. er ein ástæðan sú, að um nokkurra ára skeið beindist hugur alþm. eða margra þeirra fyrst og fremst að því að byggja þingmannahús. Menn töldu það meira aðkallandi að búa þm. utan af landi sæmileg skilyrði, þegar þeir þurfa að vera hér um þingtímann í Reykjavík, þannig að þingmannahús væri meir aðkallandi en alþingishús. Þetta kom greinilega fram hér í umr, á þingi ár eftir ár um tíma. Ég mundi ætla, að hér hafi orðið nokkur breyting á, m.a. vegna þess, að nú hafa alþm. úti á landi að sumu leyti betri og meiri tækifæri til að fá sæmilegar íbúðir og vistarverur hér í Reykjavík en áður var. En hvað sem því líður, byggingu þingmannahúss, þá vil ég leggja áherzlu á það og undirstrika það, sem frsm hefur komið hér, að þetta er orðin hin brýnasta nauðsyn og má ekki öllu lengur svo til ganga.
Þegar nú á að velja frambúðar alþingishúsi stað, þá er fyrst á það að líta, að Alþingi Íslendinga hefur hingað til um þessi rúm 1000 ár aðallega verið á þrem stöðum. Það hefur langsamlega lengst verið á Þingvöllum, síðan var það um alllangt skeið í latínuskólanum, þ.e.a.s. menntaskólanum nú, og síðan 1881 verið hér í þessu húsi. Það er að vísu till. uppi um það að byggja yfir Alþingi á Þingvöllum og flytja Alþingi og starfsemi þess þangað. Formenn tveggja stærstu þingflokka, hæstv. forsrh. og hv. 1. þm. Austf., hafa báðir fært fram sínar röksemdir gegn þeirri till. Ég ætla, að bæði þær röksemdir, sem þeir hafa fram flutt, og afstaða mikils meiri hluta manna almennt, bæði á þingi og utan þings, muni nú með þeim hætti, að þessi leið komi ekki til greina. Ég veit ekki, hvort einhverjum kynni að detta í hug að reisa nýtt alþingishús þar, sem menntaskólahúsið er nú. Með því mæla ýmis rök, m.a. þau, að Jón Sigurðsson starfaði þar allan sinn þingmennskuferil. Hann starfaði í því þinghúsi, því að Alþingi var jafnan háð þar, meðan hans naut við, og það var ekki fyrr en eftir lát hans, sem það hús, sem við nú erum í, var tekið í notkun. Ég hef þó í rauninni engan í alvöru heyrt varpa því fram, enda veit ég, að í augum margra eru svo dýrmætar minningar tengdar við menntaskólann og latínuskólann og það hús, að menn vilja ekki láta það hverfa fyrir nýju Alþingishúsi. Ég tel, að sú leið komi ekki heldur til greina.
Þriðja leiðin er sú að byggja í einu eða öðru formi við þetta hús, annaðhvort allstóra byggingu fyrir sunnan það, við Vonarstræti norðanvert, þar sem Alþingi á lóðir, eða vestanvert við alþingishúsið og tengja þetta á einhvern hátt saman. Ég hélt, að hugmyndin um það að byggja nægilega stórt hús hér sunnan við alþingishúsið og tengja það við þetta hús, væri nú að mestu úr sögunni. Það hafa verið gerðir bráðabirgðauppdrættir að slíku og virðast ekki sérlega eftirsóknarverðir. Ég ætla, að flestir þeir, sem um þetta fjalla, óski þess, að þessar gömlu, virðulegu byggingar, bæði alþingishúsið og dómkirkjan, geti haldizt í sinni núv. mynd. Það mun verða til spillis fyrir allan svipinn hér á þessum slóðum, ef farið er að byggja stórt hús fyrir sunnan alþingishúsið, tengja það við með einhverjum göngum eða viðbyggingum, þannig að alþingishúsið yrði nokkurs konar bíslag við eitthvert nýtízku hús hér fyrir sunnan.
Ég fyrir mitt leyti er þeirrar skoðunar, að leiðin sé sú og eigi að vera sú að byggja nýtt alþingishús, sem sé ekki tengt því húsi, sem við nú erum í, og að flestu leyti fari bezt á því. Hvar sú bygging á að vera, þar koma auðvitað ýmsir staðir til greina. Það er nefndur einn staður, það er sunnanvert við Tjörnina, í Vatnsmýrinni, sem er auðvitað ákaflega fagur og góður staður. Ég tel, að þó að slíkt væri að ýmsu leyti ákjósanlegt, sé slíkt staðarval útilokað, nema flugvöllurinn sé lagður niður. Ég býst ekki við, að menn séu reiðubúnir að taka nú ákvörðun um það.
Sá staður, sem hæstv. forsrh. nefndi og töluvert hefur verið ræddur í þeirri n., sem fjallar um þetta, hefur marga ágæta kosti, og það er að byggja alþingishús á ferhyrningnum, sem markast af annars vegar Kirkjustræti og Vonarstræti og hins vegar af Tjarnargötu og Thorvaldsensstræti eða hér rétt fyrir vestan þetta hús. Það mælir margt með því, eins og hæstv. forsrh. tók fram, m.a. sögulegar minjar og nálægð við bæ Ingólfs. Hins vegar er að sjálfsögðu á það að líta einnig, að bygging þar yrði ákaflega dýr vegna þeirra miklu kaupa á lóðum og húsum, sem yrðu nauðsynleg, ef þar ætti að byggja þinghús, og mikið eða jafnvel meiri hluta af þessu yrði að kaupa og rífa, áður en hægt væri að hefjast handa um byggingu þinghúss þar.
Ég hef ekki farið neitt dult með það, að sá staður, sem ég tel heppilegastan, æskilegastan og fegurstan fyrir nýtt alþingishús, er Ísbjarnarlóðin, þríhyrningurinn milli Tjarnarinnar, Skothúsvegar og Tjarnargötu, og sá staður var fyrir 8 árum boðinn Alþingi, og ég veit, að það tilboð stendur í fullu gildi enn í dag.
Hvað á þá að gera við þetta hús? spyrja menn. Í umr. á sínum tíma í sambandi við staðarval fyrir ráðhús lét ég í ljós mína skoðun bæði um það, sem ég gat um áðan, um framtíðarstað fyrir alþingishús, en um leið, að þessu húsi, sem við erum í, ætti að sjálfsögðu að halda við, og mér virtist það vel til þess fallið að verða dómhöll, aðsetur hæstaréttar og ef til vill fleiri dómstóla. Mundi húsinu með þeim hætti að sjálfsögðu sýnd full virðing og hæstarétti á hinn bóginn ekki síður.
Ég held, að varðandi þau mál, sem hér er verið að ræða, væri það æskilegast, ef þessir aðilar: Alþingi, borgarstjórn Reykjavíkur og fleiri aðilar, sem þarna ættu hlut að máli, gætu sameinazt um lausn eitthvað eftir þessum línum. Hitt held ég að sé engum til framdráttar, að vera að gefa í skyn, að Alþingi og höfuðborgin standi hér sem andstæðingar, að höfuðborgin hafi gengið á rétt Alþingis, því að það er ekki rétt.
Hér hefur það komið fram, að borgarstjórn Reykjavíkur muni væntanlega í dag taka endanlega ákvörðun um byggingu ráðhússins við Vonarstræti sunnanvert, og tel ég allar líkur til þess, að svo verði, m.a. þegar þess er gætt, að í borgarráði hefur orðið alger samstaða um till. þess efnis til borgarstjórnar. Hér hefur á það verið minnzt, að þetta væri ekki siðasta sporið í málinu, því að það ætti eftir að koma til fulltrúa ríkisvaldsins, þ.e.a.s. skipulagsnefndar ríkisins og ráðh., og er það að sjálfsögðu rétt. En á hitt vil ég benda, að áður en borgarstjórnin valdi ráðhúsinu stað, var haft fullkomið samráð við skipulagsnefndina. Hún mælti einróma með þessum stað, og veit ég ekki til, að hafi orðið nein breyting á hennar afstöðu. Þess vegna held ég, að ekki sé rétt að gera á nokkurn hátt ráð fyrir því, að breyting verði á þessari ákvörðun um staðarval fyrir ráðhúsið. Ég geng út frá því, að eftir að borgarstjórnin hefur gert sína samþykkt, muni þeir aðilar, sem eiga að leggja síðustu hönd á það, fallast á það, vegna þess, hver afstaða þeirra hefur verið hingað til í málinu.
Ég skal ekki fara fleiri orðum um þetta mál að sinni, en undirstrika enn, að það er hin brýnasta nauðsyn að taka ákvarðanir um það nú sem fyrst að bæta úr skilyrðum þeim, sem Alþingi og alþingismenn eiga nú við að búa. Vitanlega tekur sá undirbúningur allur nokkurn tíma. Fyrst og fremst þurfa hæstv. forsetar ásamt þeim fulltrúum þingflokkanna, sem eiga sæti með þeim í nefnd, að koma sér niður á ákveðna till., bæði um staðarval og um fyrirkomulag í stórum dráttum, og bera það að sjálfsögðu undir Alþingi, síðan tekur það suðvitað nokkurn tíma að undirbúa slíkt. En ef einhver skriður væri á þessu máli og horfur á því, að samkomulag gæti orðið og samstaða um staðarval og framkvæmdir á næstu árum, þá þyrfti að sjálfsögðu að taka ríflega fjárveitingu til byggingarframkvæmda, helzt upp í fjárlög fyrir næsta ár.