16.10.1963
Sameinað þing: 3. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2146 í B-deild Alþingistíðinda. (1609)
Olíugeymar í Hvalfirði
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Ég vildi gjarnan leyfa mér að bera fram fsp. hér utan dagskrár til hæstv. utanrrh., og ég sagði honum frá því í gær, að ég mundi gera það í dag, svo að hann gæti athugað málið.
Þann 7. ágúst s.l. birtist í ríkisútvarpinu í kvöldfréttum fréttatilkynning frá utanrrn. Hún var svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Undanfarið hafa farið fram umr, um, að Atlantshafsbandalagið endurnýjaði og fjölgaði olíugeymum í Hvalfirði og bætti afgreiðsluskilyrði þar. Athuganir eru nú að hefjast um staðsetningu nýrra geyma, ef til framkvæmda kemur.“
Þessi frétt þótti þannig vaxin, að ástæða væri til að athuga þetta mál nánar, og þótti framsóknannönnum rétt að fá upplýsingar um þetta málefni strax hjá hæstv. ríkisstj., eftir því sem hægt væri. Var fyrst borin fram ósk um, að utanrmn. Alþingis yrði kölluð saman út af þessu málefni, en til vara óskað eftir því, að fulltrúar frá flokknum fengju að ræða við hæstv. utanrrh. Ríkisstj. hafnaði því að kalla saman utanrmn. og kvaðst líta svo á, að umboð n. hefði fallið niður með þingrofinu, en hins vegar lýsti hæstv. utanrrh. sig fúsan til að ræða við fulltrúa frá Framsfl. um málið, og ræddu þeir við ráðh., varaformaður flokksins, Ólafur Jóhannesson, og Þórarinn Þórarinsson ritstjóri þann 8. ágúst í sumar. Upplýsingar þær, sem utanrrh. veitti fulltrúum flokksins, voru m.a. þessar:
Viðræður hafa staðið yfir milli íslenzku ríkisstj. og Atlantshafsbandalagsins eða NATO, sem við köllum, um að NATO byggi og eigi eftirgreind mannvirki í Hvalfirði: 1) Stóra olíubirgðastöð, og hefur verið ráðgert, að byggðir verði hið fyrsta 25–28 geymar. 2) Hafskipabryggju eða bryggjur, þar sem stór skip geti bæði landað olíu og tekið olíu. 3) Legufæri, sem verði steypt í botn fjarðarins, en NATO mundi ekki fá að nota nema með sérstöku leyfi ríkisstj. hverju sinni.
Ráðh. skýrði frá því, að gerðir yrðu sérstakir samningar við NATO um þessar framkvæmdir, ef úr þessu yrði. Ríkisstj. mundi ekki telja nauðsynlegt að leggja þá samninga fyrir Alþingi, en í þeim yrðu svipuð uppsagnarákvæði og í varnarsamningnum milli Íslands og Bandaríkjanna, ef til samninganna kæmi.
Þessar upplýsingar hæstv. ráðh. sýndu glöggt, að ríkisstj, taldi mjög koma til greina og var jafnvel að semja um nýjar stórframkvæmdir í Hvalfirði, sem sýnilega voru ætlaðar sem upphaf að flotastöð í firðinum að okkar dómi. Af þessu tilefni hélt framkvæmdastjórn Framsfl. því fund þegar í stað, að þessar upplýsingar lágu fyrir, og tók afstöðu til málsins á þann hátt, sem ég vil nú greina, með leyfi hæstv. forseta.
„Samkv. tilkynningu frá utanrrn., sem lesin var í útvarpsfréttum 7. þ. m., og viðtali, sem fulltrúar Framsfl. hafa átt við utanrrh., fara nú fram viðræður milli Atlantshafsbandalagsins og ríkisstj. um, að bandalagið byggi stóra olíubirgðastöð í Hvalfirði, hafskipabryggju eða bryggjur og legufæri, sem ætluð eru herskipum. Af hálfu bandalagsins hafs áður verið bornar fram óskir um svipaðar framkvæmdir í Hvalfirði, en þeim þá verið hafnað. í tilefni af framangreindum viðræðum Atlantshafsbandalagsins og ríkisstj. lýsir Framsfl. sig andvigan því, að aukinn verði herbúnaður í Hvalfirði með byggingu nýrra flotamannvírkja eða á annan hátt, og skorar á ríkisstj, að ljá ekki máls á samningum um slíkt.“
Ályktun þessa sendi stjórn Framsfl. utanrrh. 10. ágúst og einnig ríkisútvarpinu. En það furðulega skeði, að ríkisútvarpið neitaði að birta þessa ályktun, enda þótt það hefði birt fréttatilkynningu ríkisstj, um þetta sama mál. Er sú framkoma ríkisútvarpsins tvímælalaust algert brot á hlutleysisstefnu útvarpsins. Er illa komið hér í landinu, ef stjórn stjórnarandstöðuflokks getur ekki komið á framfæri beinni frásögn, áróðurslausri með öllu, af afstöðu sinni til stærstu mála, en ríkisstj. einni ætlað að geta komið slíku á framfæri. Mun ég ekki ræða það atriði nánar að sinni í sambandi við þessa fsp., sem hæstv. forseti hefur leyft mér, en nú er það erindi mitt með þessum formála, sem ég hef greint, að gera fsp. til hæstv. utanrrh., og geri ég hana utan dagskrár vegna þess, hve það tekur langan tíma að fá teknar fyrir til umr. fsp., sem gerðar eru á annan hátt, en fsp. er á þessa lund og vona ég, að hæstv. ráðh, svari henni:
„Hefur ríkisstj. í huga að gera eða hefur hún gert samninga við Atlantshafsbandalagið um mannvirkjagerð í Hvalfirði, og ef svo er, hvernig eru þeir samningar?“
Þetta sýnist mér lífsnauðsyn, að hv. þm. og allir fái að vita nú þegar í upphafi þings, til þess að menn geti skoðað málið í ljósi þess, sem kann að hafa gerzt eða ætlunin er að gera, sem ég vona að hæstv. ráðh. segi okkur frá, ef ríkisstj, hefur ákveðið í hyggju.