16.10.1963
Sameinað þing: 3. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2156 í B-deild Alþingistíðinda. (1614)

Olíugeymar í Hvalfirði

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég mun verða við þeim tilmælum, sem hæstv. forseti hefur borið fram, og reyna að stytta mál mitt.

Hæstv. utanrrh. gaf hér eina yfirlýsingu, sem mér þótti mjög vænt um að heyra. Hún var sú, að það væri ekki búið að semja um neitt viðvíkjandi Hvalfirði enn þá, og ég vil hér með láta þá ósk í ljós, að Alþingi megi treysta því, eftir að komin er fram þáltill. í Sþ. um að taka þetta mál fyrir, að á þeim tíma, sem líður þangað til Alþingi hefur afgreitt þá þál., verði heldur ekkert gert. Og ég leyfi mér að treysta því, og þótt ég annars hafi ekki mikið traust á hæstv. ríkisstj., þá hef ég það mikið traust á henni, að hún muni ekki leyfa sér annað eins og það að fara að afgreiða þetta mál, eftir að Alþingi með þskj., sem liggur fyrir, er raunverulega búið að taka málið í sínar hendur. Ég vil þess vegna leyfa mér að líta svo á, að það sé skoðun ríkisstj., að það verði ekkert í þessu máli gert frekar en nú er orðið, þangað til Alþingi hefur afgreitt þetta mál, því að eins og hver þm. skilur, þá væri það sú dæmalausasta ósvífni, sem hægt væri að hugsa sér gagnvart Alþingi, að afgreiða þetta mál nú í ríkisstj., eftir að Alþingi hefur tekið það á dagskrá hjá sér, og þá ósvífni ætla ég ekki hæstv. ríkisstj. Og ef nokkur væri annarrar skoðunar en ég í þessu, þá vildi ég gjarnan, að það kæmi fram, þannig að við mættum treysta því algerlega, að ekkert yrði gert í þessum málum, meðan Alþingi væri að fjalla um það.

Þá eru nokkur orð viðvíkjandi málefninu sjálfu. Hæstv. utanrrh. heldur því fram, að það sé hægt að gera samninga út frá hernámssáttmálanum 1951 um t.d. miklar breytingar viðvíkjandi Hvalfirðinum. Ég álít, að það sé óhugsandi. Við skulum bara gera okkur ljóst, hvað þarna er um að ræða. Hæstv. utanrrh. hefur sjálfur komið fram með það, að 1955 muni hafa af hálfu Atlantshafsbandalagsins án sérstakra mótmæla frá hendi ríkisstj. verið sköpuð fyrirætlun um stórkostlegar framkvæmdir, eins og hann orðaði það, og liggur nærri að áætla, að þær stórkostlegu framkvæmdir hafi átt að eiga sér stað í Hvalfirðinum. Heyrzt hefur á skotspónum, að jafnvel ætti að gera atómsprengjuhelt byrgt með því að grafa undir Þyril og annað þess háttar, en maður veit ekki, hvað satt er í því. Eitt er greinilegt, að smátt og smátt er verið að framkvæma stórfellda breytingu, sem ekki var hugsuð 1951, þegar hernámssáttmálinn var gerður. Og hún er sú að breyta smám saman aðstöðu Íslands frá því að hafa gildi fyrir Bandaríkin sem flugvöllur, Keflavíkurflugvöllur fyrst og fremst, yfir í það að hafa gildi fyrir Bandaríkin og kannske þeirra bandaríki sem miðstöð fyrir kafbátahernað á Norður-Atlantshafi, og nú þegar hafa verið gerðar samsvarandi breytingar á herstjórnarfyrirkomulagi hér, sem benda til þess, að Bandaríkin ætli sér, ef þau geta, að koma upp smátt og smátt kafbátastöð með herskipalægi og öðru slíku í Hvalfirðinum.

Er nú hugsanlegt að ætla að fara að gera svona stórbreytingar án þess að taka þetta til umr. á Alþ. og taka ákvörðun um slíkt? Er hugsanlegt, að við getum gengið út frá því, að bara með sáttmálanum frá 1951 einum saman væri hægt að gera allt, sem einni ríkisstj. þóknaðist? Við skulum taka dæmi. Ef það er leyfilegt að útbúa svo og svo marga tanka, skipalægi ný og annað slíkt, sem herskip gætu notað á ófriðartímum í Hvalfirðinum, er þá ekki eins hægt að gera það sama viðvíkjandi Ísafirði, viðvíkjandi Eyjafirði, viðvíkjandi Seyðisfirði? Væri ekki hægt að taka hverja þá staði á Íslandi smátt og smátt, sem viðkomandi ríkisstj. áliti hentugt og viðkomandi útlent stórveldi sæktist eftir, og gera þannig Ísland smátt og smátt að einu víghreiðri? Og dettur nokkrum manni í hug, að það væri hægt að gera slíkt bara út frá sáttmálanum 1951? Við skulum gá að því, að ef við ekki og þá fyrst og fremst Alþingi heldur þannig á þessum málum, að það sé stöðvað í tíma, þá er hægt að þenja út um allt Ísland þær herstöðvar, sem illu heilli hafa þegar verið á Keflavíkurflugvelli. Þess vegna er engum blöðum um það að fletta, að það, sem nú er um að ræða viðvíkjandi Hvalfirði, er stórhættulegt fordæmi, hvort sem um væri að ræða 6 tanka, 28 tanka, stærri eða minni legufæri eða annað slíkt, bara prinsipið sjálft. Það er aðalatriðið þarna að fara að útbúa Hvalfjörð sem hugsanlegt herskipaflotalægi í styrjöld. Við skulum gá að því, að það er háttur Bandaríkjanna í öllum viðskiptum við okkur á síðustu 20 árum að fara sér hægt í þessu. Fyrsta áhlaupið 1945 tókst ekki. Þá var meiningin að fá Hvalfjörð til 99 ára sem amerískt yfirráðasvæði, afgirt frá íslenzku lögsagnarumdæmi, þannig að íslendingar og íslenzka ríkisstj. hefði ekkert yfir því að segja eða neinu, sem þar gerðist. Það var takmarkið. Það var það, sem átti að ná með einu áhlaupi samkv. kröfunum 1. okt. 1945, og það var það, sem ekki tókst. En við vitum hins vegar, að Bandaríkin halda áfram að sækjast eftir því að ná þessu takmarki smátt og smátt, og það er þetta, sem við þurfum að hindra. Og spurningin um Hvalfjörð núna er einmitt slík spurning.

Það er satt að segja eftirtektarvert fyrir okkur almenna þm., að það skuli þurfa alls konar rifrildi á milli gamalla samherja, sem að þessum hernaðarundirbúningi á Íslandi standa, til þess að við fáum yfirleitt að vita hitt og þetta um, hvað bollalagt hafi verið og áætlað fyrir jafnvel 10 árum af þeim flokkum, sem bera ábyrgð á þeim hlutum, sem hér er verið að gera. Það er þess vegna alveg auðséð, að Alþingi þarf að fylgjast með því, sem er að gerast, og fylgjast betur með því en það hefur gert hingað til. Ég álít þess vegna, að frá því sjónarmiði að fara. að þenja herstöðvarnar út um allt land, þá þurfi nú þegar að stöðva við, hvað Hvalfjörð snertir.

Þá er annað atriði, sem ég vil minnast á og taka þar undir það, sem hv. 1. þm. Austf. sagði. Það er algerlega óviðeigandi af Íslandi og sérstaklega af Íslandi að fara einmitt á þessum tíma, sem nú er, að gera ráðstafanir til að auka, hvort sem er í smáu eða stóru, hernaðarviðbúnað hér á Íslandi. Ísland er nýbúið að undirskrifa samning, sem allir góðir menn vona að geti orðið til þess að fari að draga úr þeim viðsjám, sem verið hafa í heiminum, sérstaklega mikið síðustu 15 árin, draga úr kalda stríðinu svokallaða. Og það er engum efa bundið, að hvert smátt eða stórt skref, sem stigið er hér á Íslandi núna í þá átt að auka hernaðaraðgerðir hér, verður skilið sem aukinn hernaðarundirbúningur ýmist af hálfu Bandaríkjanna eða NATO. Ég vil þess vegna líka frá því sjónarmiði vara hæstv. ríkisstj. og hennar fylgilið alveg sérstaklega við því að gera þann óvinafagnað á þessum tímum, þegar menn hafa þó nokkuð rökstuddar vonir um, að heldur sé að batna í veröldinni, að einmitt við og sízt af öllu situr á okkur hér á Íslandi að fara að spilla eitthvað fyrir slíku, enda býst ég við, að hér séu engir menn, sem vilja gera það, Það væri mikil ógæfa, ef það ætti eftir að henda hæstv. ríkisstj. að fara núna, einmitt eins og nú standa sakir, að láta undan þrýstingi í Hvalfirði, því að ég hef fyrir satt, að þessi þrýstingur hafi verið alllengi og hafi verið staðið á móti honum, og ég sé sízt af öllu ástæðu til þess fyrir hæstv. ríkisstj. að fara að láta undan honum núna. En það að fara að stefna að því núna að koma upp aðalflotastöð fyrir flota Bandaríkjanna eða Norður-Atlantshafsbandalagsins hér á Íslandi eða gera möguleika til þess, einmitt þegar það er vitanlegt, að Pólaris-kafbátarnir eru að verða höfuðvopnið, ef til styrjaldar kæmi, þá er það slíkt glapræði, að ég vona, að okkar gæfa sé enn það mikil, að okkur verði forðað frá því að stiga slíkt skref.

Formlega þori ég að vísu ekkert um það að fullyrða, vegna þess að við höfum ekki séð nein samningsuppköst eða neitt í sambandi við þessi umtöl, sem nú hafa farið fram. En fullyrt hefur þó a.m.k. verið, að það sé Atlantshafsbandalagið sem slíkt, sem standi að þessum framkvæmdum. .Ég heyrði, að hæstv. utanrrh. sagði, að það v æri eingöngu kostað af Atlantshafsbandalaginu og að samningurinn væri eingöngu við Bandaríkin. Gamli varnarsamningurinn svokallaði er eingöngu við Bandaríkin og ekki við NATO. Ég hef aldrei stúderað hann lögfræðilega nægilega vel til þess að vera viss, en ég geng út frá, að ef Ísland væri farið úr NATO, þá mundi hann falla, og náttúrlega ef Bandaríkin væru áfram í NATO, en meginið af öðrum ríkjum, sem í því eru, væri farin úr því, þá er ég hræddur um, að Bandaríkin gætu haft einhverja möguleika til að halda því engu að síður. Það eru lögfræðilegar hugleiðingar, en engu að síður álít ég, að það sé strax nokkurs annars eðlis og það sé hlutur, sem við þurfum að athuga, ef farið er að gera einhverja sérstaka samninga við Atlantshafsbandalagið sem slíkt í þessum efnum. Og bara sú formlega breyting, sem kynni að vera á slíku, meira að segja þó að Bandaríkin gerðu það í þeirra umboði eða slíkt, ef Atlantshafsbandalagið er aðilinn, — við skulum hugsa okkur þann möguleika, að Bandaríkin hefðu gert þetta aðeins á vegum NATO og NATO hefði réttinn og Bandaríkin færu úr NATO og þau ríki, sem verða eftir í NATO heimtuðu þá þessa aðstöðu. Það er rétt, í hvert skipti sem maður er að gera samning, að athuga allar aðstæður í þessu, og ég álít, að það nái ekki nokkurri átt einu sinni að vera að ræða svona samninga, án þess að það sé í fyrsta lagi ráðfært sig við utanrmn. og þetta sé borið undir Alþingi.

Það hefur verið þannig af hálfu okkar Íslendinga stundum, að við höfum ráðizt í að gera svona samninga, þar sem kannske okkar utanrrh. hefur staðið svo að segja einn með að heita má engum sérfræðingum og hins vegar hafa verið ótal sérfræðingar, utanrrh. hlaupið í þetta öðru hverju, svona 10 mínútur og kortér og klukkutíma, og endað með því að gera samninginn, en hins vegar hafa setið mánuðum saman legátarnir frá stórveldunum til þess að athuga þetta saman. Hvernig eigum við að geta gert samninga upp á svona býti? Það er nógu slæmt að vera lítið ríki og gera samninga við stórveldi, en þegar maður þar að auki reynir ekki einu sinni að nota alla krafta, sem væru þó tiltækir, til þess að finna þá galla, sem kynnu að vera á slíkum samningum, þá er ákaflega illa farið. Við skulum þess vegna aðgæta það með alla svona hluti, að þarna er ekki verið að semja fyrir hönd einnar sérstakrar ríkisstj., þarna er verið að semja fyrir hönd landsins, og þjóðin sem slík og þeir, sem eiga eftir kannske að fjalla um svona samninga seinna og sjá um að segja þeim upp, sjá um að breyta þeim og semja þá aftur, þeir eiga að hafa líka réttindi í þessu sambandi.

Svo að síðustu: Það hefur verið lögð hér fram þáltill. af okkur nokkrum þm. Alþb. um þessi mál. Ég hef þegar lýst hér yfir, að ég álít, að fyrst hún er komin hér fram, þá megi treysta því, að hæstv. ríkisstj. geri ekkert, meðan Alþingi hefur ekki afgreitt þá þáltill., og ég mun þess vegna að öðru leyti ekki ræða þessi mál, fyrr en sú þáltill. kemur til umr. En ég vildi einmitt með tilliti til þess, að þessi mál eru nú þegar rædd hér nokkuð utan dagskrár, og til hins, sem hæstv. utanrrh. þegar hefur sagt, óska þess, að það mætti verða sem allra fyrst, að þessi till, kæmi til umr. og hún mætti síðan fá sem greiðastan gang, þannig að hún ekki aðeins færi til utanrmn., heldur yrði líka afgreidd frá utanrmn. sem allra fyrst, til þess að Alþingi tæki sínar ákvarðanir í þessu máli.