24.10.1963
Neðri deild: 5. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2168 í B-deild Alþingistíðinda. (1623)

Olíugeymar í Hvalfirði

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Við höfum hlýtt á svar hæstv. utanrrh. Hann var að því spurður, hvort hann gæti lagt fram nokkur þau sönnunargögn, sem sannað gætu þá fullyrðingu hans, að dr. Kristinn Guðmundsson hefði samþykkt áætlanir um hernaðarframkvæmdir í Hvalfirði árið 1956. Hefur nú hæstv. ráðh. svarað þessari spurningu? Ég er hræddur um, að það sé öllum ljóst, að hæstv. ráðh. hefur engin gögn lagt fram í málinu. Hann hefur aðeins rifjað upp fyrri ummæli sín með öllu óljósara orðalagi en áður.

Hæstv. ráðh. fullyrti hér á dögunum, að dr. Kristinn Guðmundsson hefði samþykkt þessar áætlanir. Hæstv. ráðh. sagðist ekki vera í vafa um, hvað dr. Kristinn hefði gert. Hæstv. ráðh. hefur ekki í þessum svörum sínum tekið aftur þessi ummæli, og því stendur málið eins og það stóð áður, það stendur fullyrðing á móti fullyrðingu. Það stendur alveg opið eftir og spurningunni er ósvarað, hvor ráðh., sá núv. eða sá fyrrv., hefur rétt fyrir sér, hvor þeirra segir satt, og ég er anzi hræddur um, að hv. þm. séu litlu nær eftir þetta svar.

Hæstv. ráðh. getur vafalaust sannað, hvað hershöfðingjar Atlantshafsbandalagsins ætluðu sér að gera á Íslandi 1956. En við vitum ekkert um það, hvort hæstv. ráðh. sagði satt, þegar hann fullyrti það í þinginu hér á dögunum, að dr. Kristinn Guðmundsson hefði samþykkt þessar áætlanir.

Ég vil endurtaka það, sem ég sagði hér áðan: Ef það reynist rétt, sem hæstv. ráðh. heldur fram, þá hefur ambassador Íslands í Moskvu gerzt sekur um meiri háttar afbrot með því að bera hæstv. utanrrh. röngum sökum. En ef dr. Kristinn Guðmundsson hefur rétt fyrir sér og það er rétt hjá honum, að hann hafi hvergi komið nálægt því að samþykkja þessi áform, þá refur hæstv. utanrrh. ekki aðeins gerzt ber að því að segja hv. Alþingi ósatt, heldur kemur einnig í ljós, að ráðamenn Atlantshafsbandalagsins hafa gerzt svo ósvífnir að ákveða stórfelldar hernaðarframkvæmdir á Íslandi án þess að spyrja Íslendinga leyfis.

Þetta mál. mun koma til umr. síðar, þegar mál það verður tekið fyrir, sem við nokkrir þm. Alþb, höfum lagt fram í sameinuðu þingi, og mun þá gefast tækifæri til að ræða önnur efnisatriði í þessu mál. Þá mun verða tækifæri til þess að ræða þá staðreynd, að hæstv. utanrrh. hefur ekkert leyfi til að gera þennan samning, án þess að samþykki Alþingis komi til. Þá verður unnt að ræða, hvað eiginlega rekur hæstv. utanrrh. til að gera samning um ný hernaðarmannvirki í Hvalfirði, á sama tíma og friðvænlega horfir í heiminum og dregur úr átökum stórveldanna. Þetta mun ég ekki ræða hér að sjálfsögðu. Ég vil aðeins leggja á það áherzlu á þessu stigi málsins, að ef í ljós kemur, að forsendur þær, sem hæstv. utanrrh. byggir ákvarðanir sínar á, reynast rangar, þá eru allar forsendur undir frekari hernaðarframkvæmdum nú í Hvalfirði byggðar á röngum undirstöðum. En ef ekki reynist unnt að fá hér fram nein sönnunargögn, eins og að var spurt, um það, hvor aðilinn segi ósatt, hæstv. utanrrh, eða fyrrv. utanrrh., er það óhjákvæmilegt, held ég, að athuga möguleika á því, að deildin kjósi rannsóknarnefnd skv. 39. gr. stjórnarskrárinnar, svo að reynt sé með öllum tiltækum ráðum að leiða sannleikann í ljós, og má athuga það mál síðar.