24.10.1963
Neðri deild: 5. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2176 í B-deild Alþingistíðinda. (1629)

Olíugeymar í Hvalfirði

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Ég skal ekki fara að lengja þær umr., sem hér hafa farið fram um þær fullyrðingar, sem hæstv. núv. utanrrh, hefur haft í frammi um það, sem dr. Kristinn Guðmundsson á að hafa leyft á sínum tíma sem utanrrh. varðandi framkvæmdir í Hvalfirði. Ég held, að eftir þessar umr. liggi það ákaflega ljóst fyrir, hvernig málavextir eru. Sú spurning er lögð fyrir hæstv. utanrrh., hvort hann geti lagt fram einhver gögn til að sanna mál sitt. Hæstv. utanrrh. hefur svarað þessu þannig, að hann hefur engin gögn lagt fram, bókstaflega engin ný gögn lagt fram, heldur aðeins endurtekið sínar fyrri fullyrðingar um þessi mál. Eins og málið stendur því í dag, liggur það þannig fyrir, að hæstv. utanrrh. getur engin gögn lagt fram til að sanna fullyrðingar sínar. Ég held, að þetta sé alveg nægilegt til þess að upplýsa það, hvernig málavextir eru í þessu máli.